Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1999, Side 18
8 Lifiri cftir vmnu
Hvunndagsleikhúsið sýnir Frú Klein í Iðnó kl.
20. Sálfræðilegt og djúpþenkjandi að hætti
Ingu Bjarnason. Margrét Ákadóttir er frú
Klein. Sfminn er 530 3030.
Tryllirinn Svartklædda konan er leikinn í TJarn-
arbíói kl. 21. Leikarar eru Vlðar Eggertsson
og Vllhjámur Hjálmarsson, auk þess sem
Bryndís Petra Bragadóttir kemur við sögu.
Leikstjóri er Guðjón Sigvaldason. Simi 561
0280.
Hótel Hekla, Ijóðaleikrit í samantekt Llndu VII-
hjálmsdóttur og Antons Helga Jónssonar, kl.
20.30 í Kaffileikhúsinu. Síminn er 551 9055
fyrir þá sem vilja panta miða.
Sex í sveit er vinsælasta
stykki Borgarleikhússlns
þetta árið. Ein sýning er
á stóra sviðinu f kvöld kl.
20. Leikarar: Edda Björg-
vinsdóttir, BJörn Ingi
Hilmarsson, Ellert A.
Inglmundarson, Gfsli
Rúnar Jónsson, Rósa
Guðný Þórsdóttlr og
Halldóra Geirharðsdóttlr.
Sími 568 8000.
Áhugaleikhópurinn Huglelkur sýnir Nóbels-
drauma Árna Hjartarsonar jarðfræðings f
Möguieikhúsinu við Hlemm kl. 20.30. Sími
551 2525.
Leikfélag Mosfellsbæjar sýnir Jaröarför
Ömmu Sylvíu í Þverholti kl. 20.30. Þetta
kassastykki, sem gengið hefur nokkur ár „off-
Broadway" f New York, er hér f meðförum
áhugasamra Mosfellinga. Sfminn er 566
7788.
# b í ó
Kvlkmyndadagar i Háskólabíól undir yfirskrift-
inni „Halur og sprund" hefjast við hátíðlega
athöfn í bíóinu kl. 21. Hátíðin stendur yfir dag-
ana 12.-29. mars og auk Háskólabíós taka
Vr meðal annarra Kaffl Thomsen, VTsir.is og
Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar þátt í
henni. Við opnunina verður margt um dýrðir,
t.a.m. spilar Djasshljómsveit Kormáks Geir-
harðarsonar, boðið verður upp á veitingar og
Captaln Morgan skvisan kynnt i boði K. Karls-
sonar. Frumsýnd veröur myndin The Real
Blonde og svo veröur haldin tiskusýning á
vegum Herrafataverslunar Kormáks og Skjald-
ar. Sumarlínan verður sýnd og að sögn er hér
um að ræða „hressilega liti en þó ekki spjátr-
ungslega". Úlfur skemmtarl leikur undir. Með-
al annarra mynda á hátfðinni má nefna Kis-
sed, Dead Man’s Curve, In the Company of
Men og Your Friends and Neighbours.
w •opnanir
Nýútskrlfaölr arkitektar opna sýningu á út-
skriftarverkum sinum f Ráöhúslnu kl. 17, und-
ir heitinu Vaxtarbroddar. Við opnunina mun
Páll Skúlason rektor fiytja hugvekju (kannski
boðar hann arkitektanám við Háskólann) og
Elnar Örn Jónsson leikur á pfanó til að breiða
svolítið settlegan blæ yfir athöfnina.
B.E.G.S. bræöur opna sýningu í Gallerí! Hár
og llst, Strandgötu 39 í Hafnarfirði, kl. 20.
Þetta eru góðkunningiar listunnenda: mynd-
listarmennirnir Bjarnl Ragnar Haraldsson, Elí-
as HJörlelfsson, Gunnar Örn og Sverrir Ólafs-
son. Þessir höfðingjar sýndu sfðast saman
verk sín í FÍM salnum sáluga við Laugarnes-
veg fyrir réttum tuttugu árum, eða f nóvember
1978. Á þessum tuttugu árum segjast þeir
fóstbræður hafa marga hildina háö og fjöruna
sopið. í tilefni þessara tfmamóta hafa þeir fé-
^ lagar ákveðið að sækja að nýju fram á völlinn
b í ó
Háskólabíð frumsýnir í dag kvikmynd-
ina Hilary and Jackie en hún er byggð á
minningabók systkinanna Piers og Hilary
du Pre um systur þeirra sellósnillinginn
Jacqueline. Bók þessi hefur vakið athygli
enda lifði Jacqueline undarlegri ævi og var
sjálf frekar undarleg persóna. Hún var alin
upp sem snillingur og var byrði öllum sem
umgengust hana eins og títt er um þess
konar fólk. Milli þess sem hún lét fjöl-
skylduna hafa fyrir sér galdraði hún með
sellóinu sínu svo allir fyrirgáfu henni.
Hjónaband hennar og tónsnillingsins
Daniels Barenboims og í langan tima
hafði Jacqueline full afnot af eiginmanni
systur sinnar. Ferill hennar sem sellóleik-
ara endaði á áttunda áratugnum vegna
MS-sjúkdóms sem dró hana að lokum til
dauða 1987. Það er Emily Watson sem
leikur Jacqueline en sú leikkona er öllum
ógleymanleg fyrir hlutverk sitt í Breaking
the Waves eftir Lars von Trier.
með samsýningu, meðal annars sökum þess
að þeir hafa löngu fundið ákveðin sammerki I
sfnum lífsskoðunum og listrænum viðhorfum
þó að nálgun þeirra og ástleitni við listina sé
vitaskuld með persónulegum áherslum og
sjarma. Sýningin verður opin daglega frá kl.
9-18 en um helgar frá kl.14-18.
•fundir
Siguröur Snorrason dósent flytur föstudags-
fyrirlestur Líffræðistofnunar Háskólans aö
Grensásvegi 12, stofu G-6, kl. 12.30. Efnið er
spennandi: Breytlleg lífssaga lax á islandi.
Vaxtarferlar og lífslíkur í sjó.
| k1úbbar
I/ Félagsskapurinn Vlrknl hefur haldið tón-
listarkvöld til eflingar drum ‘n bass tónlistar f
hverjum mánuði sem af er árinu og f kvöld er
komið að marsskemmtinum, dj. Bryan Gee,
sem ætlar að vera við plötuspilarann á Kaffi
Thomsen. Bryan er einn af eigendum V-útgáf-
unnar f Englandi, sem hefur unnið aigjört
brautryðjendastarf á þessu sviði tónlistar.
DJ. Nökkvi og dj. Ákl snúa skffum á Skugga-
bar.
• krár
Á Suöurnesjum hefur orðið til hljómsveitin
Geimfarar. Nafnið er æði hallærislegt, en það
á svo sem við um nöfn á mörgum góðum
böndum. Hvað um það, Geimfararnir ætla að
bregða sér f bæinn í kvöld og spila á Gaukn-
um. Þar getur fólk tekið stöðuna á keflvísku
rokkl eins og það er f dag.
Flðringurinn er nafn á hljómsveit gamalla
jaxla: Björgvins Gfslasonar gitarleikara, Jóns
Ingólfssonar bassaleik-
ara og Jóns Björgvlns-
sonar trommuleikara.
Þessir kappar verða á
Fógetanum i kvöld.
Á Kaffi Reykjavík eru
stundaðar veiðar á teg-
undum sem eru friðaðar
á öðrum stöðum. Sixties
spilar undir þeim tónlist
við hæfi.
Rúnar Þór, kappinn sjálfur, rffur raddböndin
sfn og plokkar gitarinn á Péturspöbb.
Dj. Birdy snýr skífum á Café Amsterdam.
Torfi Ólafsson, trúbador og stuðpinni, spilar
fyrir gesti Ásláks í Mosfellsbæ.
Það eru öngvir aðrir en Svensen og Hallfunkel
sem lifga upp á Gullöldina f kvöld.
Plötusnúðurinn
Skugga-Baldur
fær að velja
plötur f Naust-
kjallarnum.
Hljómsveitin
Bara tveir leik-
ur fyrir þá gesti Catalinu í Kópavogi sem eru
nógu snyrtilega klæddir til að komast inn.
Hljómsveit Stefáns P. og Péturs (okkar kenn-
ing er sú að Pétur sé pabbi Stefáns P.) leikur
á Næturgalanum.
Fjórir á Ricther og Flnni skjálftl ná skjálftan-
um úr fastagestunum á Rauða Ijóninu áður en
þeir hella sér í bjórinn og spilakassana.
Álafoss föt bezt: Rúnar Júlíusson - Tina Turn-
er (slands - skemmtir sér og sínum.
Glen Valentine situr enn við flygilinn á Café
Romance og syrgir annarra manna ástmissi.
Mímisbar, Hótel Sögu: Stefán og Anna
skemmta gestum á sinn klassíska hátt enda
eru gestirnir allir fyrir löngu orðnir klassfskir.
Gunnar Páll er viö sinn flygil á Grand hótel.
b ö 11
Viðar Jónsson kantrfkall gætir þess að réttur
andi svffi yfir vötnum Alabama í Hafnarfirði.
Lúdó sextett og Stefán rifjar upp gamla
prógramið í Ásbyrgl á Broadway.
Slggl Hlö. gefur sjálfum sér og öðrum haus-
verk úr diskóbúrinu f Leikhúskjallarnum. Hann
læknar hann síðan daginn eftir á Skjá 1.
Það verður ball fyrlr fatlaða i Árseli í kvöld.
Diskóljónin Kristján og Maggl sjá um tónlist-
ina, en dansinn byrjar kl. 20 og stendur fram
til 23. Aldurstakmark er 16 ár. Fatlað fjör.
jklassík
Wagner félaglð heldur uppteknum hætti við
að halda sínum manni á lofti I Norræna hús-
inu kl. 13. Nú verður sýnd og leikin upptaka
Gerrit Schuil píanóleikari og Finnur Bjarnason baríton halda tónleika í Nor-
ræna húsinu á sunnudaginn kl. 17 en þeir gáfu út plötu saman fyrir síöustu
jól. Það líöur varla sú vika aö Gerrit standi ekkl fyrir tónleikum meö hinum
ýmsu tónlistarmönnum en þaö er ekki á hverjum degi sem landsmenn fá aö
heyra hina miklu rödd Finns.
Ríkisútvarpsins á umdeildri upþfærslu Þjóð-
lelkhússins á Niflungarhringnum á Listahátíð
1994. Þetta var sem kunnugt er stytt útgáfa
svo sannir Wagner-menn munu eitthvað
smella f góm og hrista hausinn undir flutningn-
um.
Vöröukórinn, blandaður kór í uppsveitum Ár-
nessýslu, stendur fyrir þýsku menningar- og
matarkvöldi í Árnesl í Gnúpverjahreppi og
hefst dagskráin kl. 20.30. Kórinn syngur þýsk
þjóðlög, kórlög eftir Fellx Mendelsson og
sígaunalög eftir Jöhannes Brahms. Stjórnand-
inn, Margrét Bóasdóttlr, mun einnig syngja
lög eftir Franz Schubert. Þá mun Monika
Abenroth flytja suður-þýska þjóðlagatónlsit á
hörpu sfna. Þór Vigfússon mun loks segja frá
sjálfum Goethe og ræða um menningartengsl
íslands og Þýskalands. Maturinn verður auð-
vitað þýskur, skinka og kartöflusúpa með pyls-
um og annað eftir því. Miða á herlegheitin þarf
að panta fyrir fram, til dæmis í sfma 486
6683.
•sveitin
Skorhúsið, Keflavik:
Ljóðasnillingarnir í
Súkkat (textahöfundar
ársins samkvæmt is-
lensku tónlistarverðlaun-
unum) verða með hljóm-
sveit sfna f Keflavik í
kvöld og keyra í gegn
sveitaballaprógramið
sitt.
Festi, Grindavík: Knattspyrnumenn Grinda-
víkur ætla að fagna sigrum komandi leiktfðar
f þessu sögufræga húsi í kvöld og njóta við
það aðstoðar sveitaballagrúbbunnar írafárs
og svo annarra gesta.
Knudsen, Stykkishólmi: Blfstrandi æðakollar
halda uppi fjöri.
Kántríbær, Skagaströnd: Hljómsveitin Kúnst
leikur fyrir dansi. Sveitina skipa Jóhanna Harð-
ardóttir, Jón Sverris og Ragnar Karl.
Báran, Akranesl: Drengirnir í Sóldögg láta vet-
urinn ekki hafa nein áhrif á sig og fara hring
eftir hring á sveitaballarúntinum. Nú eru það
Skagamenn sem fá aö sletta úr klaufunum.
✓ Dead Sea
Apple verður i
Sjallanum !
kvöld og reynir
á Akureyring-
um prógramið
sem þeir vilja
selja Ameríkönum. Dauðahafseplunum til
halds og trausts verða ungsveitirnar Toy
Machine (heimamenn og verða þvf klappaðir
upp) og Carpet frá Mosfellsbæ. Drengirnir í
Dead Sea Appel buðu Miro Sorvinu f Sjallann
- Guð má vita hvers vegna - en hún kemur
náttúrlega ekki. Hvers vegna buðu þeir Díönu
prinsessu ekki? Það er einhvern veginn skilj-
anlegra að hún sjái sér ekki fært að mæta.
Annars eiga að verða á ballinu starfsmenn
ýmissa bandarískra útgáfufýrirtækja sem eru
vfst að spæja um sveitina. Nærvera þeirra
mun þó hvorki auka né draga úr ánægju
gesta, þótt hún muni eflaust hleypa einhverju
kappi í drengina á sviðinu.
Það verður Bylting á Odd-Vltanum á Akureyrl
í kvöld. Ekkert alvarlegt, aðeins hljómsveit
með þessu nafni.
Vlð Polllnn, Akureyri: Hljómsveitin KOS gerir sitt.
Herkúles, Reyðarfirði: Diskótek og fyrlr-
tækjakeppni i karaoke.
b í ó
Bíóborgin
The lce Storm
Áleitin og stundum
óþægileg kvikmynd sem
hefur sérlega sterkan frá-
sagnarmáta. Fjallar hún
um dramatísk átök þar
sem tilfinningar hafa
brenglast vegna þess að
fjölskyldulífið hefur fengið
á sig neikvæða mynd. Hin
sterku áhrif sem myndin vekur koma ekki sfst
frá frábærum leikarahópi, þar sem þau Kevin
Kline og Joan Allen eru fremst meðal jafningja.
*■ -HK
Fear an Loathing in Las Vegas ★★ Fear and
Loathing in Las Vegas hefur litið skemmtana-
gildi og þeir sem leita að einhverri ádeilu þurfa
að kafa djúpt til að finna hana. Samt er það svo
að þrátt fyrir galla er einnig margt vel gert.
Johnny Depp og Benecio Del Toro eiga stjörnu-
leik og viss húmor er f öllum þeim sjálfsköpuðu
hremmingum sem þeir félagar lenda f. -HK
Póddulíf ★★★ Það sem skiptir máli f svona
mynd er skemmtanagildið og útfærslan, og hún
er harla góö. Sama skemmtilega hugmynda-
flugið sem gerði Mulan svo ánægjulega er hér
enn á ferð og mörg atriðanna eru hreint frábær,
bæði spennandi, fyndin og klikkuð. -úd
Enemy of the State ★★★ Virkilega vel gerð
spennumynd þar sem persónur verða nánast
aukanúmer við hliðina á njósnatækni nutfm-
ans. Það ergífurlegur hraði í myndinni sem gef-
ur henni vissan trúverðugleika þegar njósna-
tæknin er höfð I huga og þessi hraði gerir það
Ifka að verkum að minna áberandi verður tilvilj-
anakennt handritið þar sem samtölin bera oft
þess merki að til að „plottið" gangi upp verði
að fara ýmsar vafasamar leiðir. -HK
Bíóhöllin/Saga-bíó
Hamilton ★ Vandræðalegur bastarður, Ifkt og
þessar myndir sem framleiddar eru fyrir mynd-
bandamarkað-
inn f Austur-
löndum fjær.
Það er hrein-
lega pínlegt að
sjá klassaleik-
ara á borð við
Stormare og
Olin þræla sérf
gegnum þennan óskapnað.
You’ve Got Mall ★★ Það fer að halla fljótt und-
an fæti f þessari skrýtnu samsuðu og þegar
upp er staðið er myndin aðeins miðlungsróm-
antísk gamanmynd. Á móti leiðindasögu kemur
þáttur Toms Hanks og Meg Ryan sem, eins og
við mátti búast, koma myndinni upp á hærra
plan með því að vera eitthvert mest sjarmer-
andi leikarapar f Hollywood. -HK
Ronin ★*★ Það er margt sem gerir Ronin að
góðri afþreyingu. Til að mynda eru f myndinni
einhver fiottustu bflaeitingaratriði sem lengi
hafa sést og liggur við að um mann fari við að
horfa á öll ósköpin. Þá er leikarahópurinn sterk-
ur, með Robert DeNiro f hörkuformi, og ioks ber
að geta þess að þrátt fyrir ýmsa vankanta í
handriti gengur þessi flókna atburðarás að
mestu leyti upp og dettur ekki niður f lokin eins
og oft vill verða. -HK
Háskólabió
Psycho ★★ Viðfangsefn-
inu er stillt upp fyrir fram-
an okkur eins og það
kemur fyrir en án lífs-
marks og þess samheng-
is sem það var upphaf-
lega unnið f. í þessu tiiliti
er Psycho Van Sant at- |
hyglisverð pæiing og kall-
ar óneitanlega fram við-
brögð. Sem enn ein bfó-
myndin fyrir þann hóp sem nú stundar kvik-
myndahúsin hvað mest virkar hún hins vegar
alls ekki. -ÁS
Shakespeare in Love ★★★ Þetta er fskrandi
fýndin kómedía. Mér er sem ég sjái hina
hneykslunargjörnu hnýta í myndina fyrir sagn-
fræðilegar rangfærslur. Slfkt fólk er ekki f snert-
ingu við guð sinn. Þetta er fýrst og sfðast
skemmtisaga um lífið og listina, létt eins og
súkkulaðifrauð og framreidd með hæfilegri
blöndu af innlifun og alvöruleysi. -ÁS
Elizabeth ★★★ Shekhar Kapur vefur frásögn-
ina f expressjónísk klæði, skuggarnir eru lang-
ir, salirnir bergmála og andi launráða svffur yfir.
Guðsblessunarlega heldur hann sig langt frá
hinni hefðbundnu nálgun breskra búninga-
mynda og skapar safarfkt bíó sem er þegar upp
er staðið hin ágætasta skemmtan. -ÁS
Festen ★*★★ í kvikmynd Thomasar Vinter-
bergs, Festen, er það fýrst og fremst mögnuð
saga sem gerir myndina að áhrifamikilli upplif-
un en auðvitað verður heldur ekki komist hjá
því að njóta þess einfaldleika sem hún býður
upp á með notkun hinnar dönsku dogma-að-
ferðar. Þetta er kvikmynd sem lætur engan
ósnortinn. -HK
Egypski prlnslnn ★*★★ The Prince of Egypt er
tækniundur og sannkallað augnakonfekt. Ef hægt
er að tala um epfska teiknimynd þá er þetta slik
mynd. Með The Prince of Egypt má segja að teikni-
myndir sem gerðar eru sem fjölskylduskemmtun
taki breytingum. Ekki er veriö að beina sérstak-
lega augunum að börnum heldur einníg komið til
móts við þá sem eldri eru og þroskaðri. -HK
Kringlubíó
The Last Days of Disco ★★ Það er mikið talað
undir þekktri
diskótónlist,
innantómt hjal
að okkur finnst,
en er mikilvægt
f hugum persón-
anna. Myndin er
stundum yfirborðskennd en þó leynist alltaf eitt-
hvert sannieikskorn I því sem rætt er um. Leik-
stjórinn Whit Stillman þekkir persónur sfnar vel,
enda má segja að þær séu þær sömu og í fyrri
myndum hans. Ekki mjög sþennandi en hefur sín-
ar góðu hliðar. -HK
Waterboy ★★ Enn einn heimskinginn sem sigrar
heiminn. Nú er það Adam Sandler sem bregður
sér í hlutverk einfeldningsins með barnssálina
sem í byrjun myndar er lægstur allra en stendur
uppi sem bestur og mestur í lokin. Sandler skap-
ar skemmtilega persónu en er f rauninni ekki að
gera neitt annað en það sem Jim Carrey gerir og
margir hafa gert á undan. Þá er allt of mikið gert
út á amerískan fótbolta sem verður að leiðinleg-
um endurtekningum. -HK
Laugarásbíó
Very Bad Things
★★ Upphafið
ólgar af fjöri f
mynd sem verður
síðan stöðugt
ágengari. Þetta
er þeim mun
verra þar sem
smám saman missir leikstjórinn áhugann á per-
sónunum, sem I upphafi lofuðu góöu, en keyrir
plottið áfram af því meiri krafti svo jaðrar við hy-
steríu. Um leið fer kvikmyndagerðin öll út í móa
því maður missir áhugann á hlutskipti ólánspilt-
anna í myndinni. - -ÁS
Clay Pigeons ★*★ Leikstjóri og handritshöfund-
ur ætla sér greinilega mikið með þessari mynd
sem ber bæði merki Tarantino-bylgjunnar og
Cohen-bræöra og þrátt fyrir að þeir ætii sér á
stundum aðeins of mikið þá tekst þeim bara ansi
vel upp. Það er mikið til að þakka skemmtilegum
persónum og frábærum leik. -úd
A Night at Roxbury i Annaðhvort eru farsar
fýndnir eða hundleiðinleigir og Night at the Rox-
bury er hundleiðinleg, henni er beint til unglinga.
Hvað varðar aðalleikarana, Will Farrell og Chris
Kattan, þá hverfa þeir von-
andi aftur í amerískt sjón-
varp þvf eftir frammistöðu
þeirra liggur þeirra framtfð
ekki f kvikmyndum. -HK
Regnboginn
The Thln Red Line ★★*★
Það er djúp innsýn í per-
sónurnar ásamt magnaðri
18
f Ó k U S 12. mars 1999