Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1999, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1999, Blaðsíða 4
TYúar'- leiðtogi á Laugavegi Músllmar á fslandi hafa fengið góðan gest þar sem er Omar Hatam- leh, trúarleiðtogi frá Jórdaníu. Omar er 48 ára og meö masters- gráðu í islömskum fræðum. Hér á landi mun hann kenna múslimum fraeðin og styrkja trú þeirra dag hvem. Kennslan fer fram á Lauga- vegi f Reykjavík þar sem leigð hef- ur verið litil íbúð fyrir leiðtogann. Múslimar á íslandi em nú yfir eitt hundrað talsins og dreifa sér vitt og breitt um landið. Omar fer á sunnudaginn til Flateyrar til að kynna sér íslenska náttúra og heimsækir Isafjörð í leiðinni, en þar er einn múslimi búsettur. Þá er Omar duglegur við að heimsækja trúbræður sína í Reykjavík. Omar Hatamleh verður hér í eitt ár, en flýgur þó heim til Jórdaníu reglulega til kennslu, en þar á hann einnig eiginkonu. Lesbfimiar flyQa sig um set - karlmönnum á Kaffi List brugðið Reykvískar lesbíur em smám sam- an að flytja sig af gamalgrónum sam- komustað sín- um, veitinga- húsinu 22 við Laugaveg, yfir á Kaffi List á Klapparstíg. Engin viðhlít- andi skýring hefur fengist á þessum vistaskiptum kvennanna en „maður getur ekki alltaf hangið á sama staðn- um“, eins og ein lesbían orðaði það. Kaffi List hefur veriö einn vinsælasti samastaður miðaldra karlmanna í kvenmannsleit og líst þeim mörgum ekki á þróunina. Einn fastakúnninn hefur Iagt til að nafni staðarins verði breytt í Kaffi Trist eftir að lesbíumar fóm að venja komu sína þangað. Annars hverfur Kaffi List af Klapp- arstfgnum með vorinu og flyst upp á Laugaveg, í næsta nágrenni við veit- ingahúsið 22. Þá verður enn styttra fyrir lesbiurnar að skjótast yfir. Kaffi List hefur fengið inni í næsta húsi við Mál og menningu og þar munu hlátrasköllin óma út á götu um ókomna framtíð ef að líkum lætur. PTOlB Ivar, Guðjón og Reynir eru áhöfn Starflee’t á íslancH, Þeir koma saman.til að horfa á Star Trek-þættina í sjónvarpinu, ræða saman um heimsmynd ■ • . þeirra. og tækni og mæta alltaf fyrstir i bio þegar Star Trek-myndirner eru sýndar þar. í dag.er hátíð hjá þeim. Níunda'Star Trek-myndin verðúr frumsýnd í dag. ^^1 i Það er til félagsskapur „Trekk- ara“ á íslandi. Félagsmenn koma saman og glápa á seríurnar sem við hin fáum ekki að sjá fyrr en ári síðar. Þegar nýjar Star Trek myndir eru frumsýndar, mæta þeir gjarnan uppstrílaðir í ein- kennisbúingum hetja sinna. Okk- ur hinum gefst kostur á að sjá þessa sérstöku hegðun samborg- ara okkar nú í kvöld, þegar Há- skólabíó frumsýnir Star Trek Insurrection. ívar, Guðjón og Reynir eru í forsvari Starfleet á íslandi: „Félagsskapur Trekkara starfar eftir hugmyndafræði þáttanna um útópiska bjarta framtíð," segja þeir. „Þar tíðkast jafnrétti á öllum sviðum og búið er að eyða fordóm- um. Þetta byggir á sömu hug- myndum og intemationalistar og húmanistar hafa boðað á síðari tímum. í félaginu eru bæði karlar og konur og aldurinn frá fimmtán og upp úr. íslenska deildin okkar er ung og enn nokkuð smá í snið- um, en alþjóðasamtökin em göm- ul í hettunni, hafa verið starfrækt frá árinu 1969.“ Nú er myndin dálítiö seint á feröinni hér. „Myndin var frumsýnd í desem- ber í Bandaríkjunum. Við erum auðvitað pínulitið pirraðir yfir seinkuninni en bætum okkur það rækilega upp núna.“ Mér skilst aö í þessari myndi sé horfiö lítillega frá spennunni og meira lagt upp úr glensi. Finnst ykkur þetta jákvœö þróun? „Þetta á sér sína forsögu. Þegar fyrstu seríunni lauk, tók maður að nafni Gene Roddenberry sig til og klippti saman í þátt mistökin við tökurnar. Þetta varð ágætis kómedía og andinn skilaði sér inn í bíómyndirnar." Nú er plottiö í myndinni ekki ýkja ferskt, reynt aö komast yfir leyndardóm eilífrar œsku! „Þetta er ekki plottið í mynd- inni, heldur kveikjan að atburða- rásinni. Burðarás myndarinnar er uppreisn áhafnarinnar á Enter- prise. Þó þetta með eilífu æskuna sé óttaleg klisja þá virkar hún al- veg í þessu samhengi. Þetta fer eftir því hvaða augum fólk lítur söguna og hvort menn hafa ein- hverja þekkingu á þáttunum yfir höfuð.“ Hverjar eru uppáhalds persónur ykkar? „Data er flottur, einnig Spock, Kirk og Picard. Úr nýju seríunum má nefna Quark og lækninn." Aö lokum, á aö fara og sjá Hnet- una í Iönó? „Já, ætli við verðum ekki fasta- gestir þar næstu vikurnar. Maður veit þá i hvað kaupið manns fer.“ Hægt er að skrá sig i félagið gegnum vefsíðuna http://mem- bers.xoom.com/ivarg/ f Ó k U S 19. mars 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.