Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1999, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1999, Blaðsíða 15
4 M g ■ 1 I ’ Leikstjórinn Ron Underwood og brellumeistarinn Rick Baker bjuggu til stóran apa og spunnu í kringum hann sögu sem þeir kalla Mighty Joe Young. Hér er komin enn ein Disney- mynd sem hefur fjölskylduna í skot- sigtinu. Að þessu sinni er endur- gerð á ferðinni og er það risastór górilla, Mighty Joe Young að nafni, sem sér um að bræða hjörtu áhorf- enda. Joe hefur um langt skeið hald- ið verndarhendi yfir litlu þorpi frumbyggja í Afríku og á hann að- eins einn vin, Jill. Þegar dýrafræð- ingurinn Gregg O’Hara, sem er að rannsaka hin fjarlægu Pangani-íjöll í miðri Afríku, rekst á Joe ákveða hann og Jill að flytja Joe til Kali- fomíu til að verja hann fyrir veiði- mönnum. Það líður hins vegar ekki langur tími þar til gamall óvinur Joe úr fortíðinni lætur á sér kræla aftur. Þetta er ósvifinn veiðimaður sem vill nema Joe á brott til að geta selt hann á svörtum markaði sem verslar með dýr í útrýmingarhættu. Sá vílar ekkert fyrir sér og gerir hvað sem er til þess að fá vilja sín- um framgengt. Að lokum kiknar Joe undan öllu álaginu. Hann ein- faldlega þolir ekki að búa í manna- byggðum lengur og flýr burt úr griðlandi sínu. Nú er hann kominn í King-Kong leik. Hann vafrar um götur Los Angeles og skilur eftir sig örfoka land hvert sem hann fer og hræðir fólk. Nú þurfa Jill og Gregg að hafa sig öll við til þess að koma Joe til hjálpar svo að yfirvöldin láti ekki drepa hann. Eltingarleikurinn magnast og endar á því að Joe sýn- ir mikið hugrekki og sannar þar með að hann er górilla með gull- hjarta. Það eru tveir menn sem koma helst til greina þegar spurt er hver hafl gert þessa mynd. Annar þeirra heitir Ron Underwood og leik- stýrði hann myndinni og hefur að eigin sögn alltaf dáð frummyndina. Hann hefur leikstýrt myndum á borð við Tremors, City Slickers, He- art and Souls og Speechless. Hinn er maðurinn sem bjó til górilluna Joe, sjálfa aðalpersónuna. Hann heitir Rick Baker og er einn sjóaðasti og hæfUeikaríkasti brellumeistarinn í Hollywood. Hann hefur verið til- nefndur til óskarsverðlaunanna sjö sinnum og hlotið flmm verðlaun á fjórum afhendingum. Þær myndir sem hann var verðlaunaður fyrir eru: An American Warewolf in London, Harry and the Hendersons, Ed Wood og The Nutty Professor. Einnig var hann tilnefndur fyrir Greystoke: The Legend of Tarzan, Lord of the Apes og Coming to America sem Eddie Murphy lék í. Svo gerði hann brellumar í Thrill- Mighty Joe undrar sig á hversu smáir japönsku bílarnir eru núorðiö. er-myndbandi Michaels Jacksons, kaffihúsaatriðið í Star Wars, breytti Jack Nicholson í úlf í Wolf og lét mann bráðna i The Incredible Melt- ing Man. Það eitt að Baker er með i myndinni er góð ástæða fyrir því að skella sér á hana. Svo gæti líka ver- ið gaman að bera myndina saman við frumgerðina frá RKO-Pictures. Ungstirniö Charlize Theron sér til þess aö pöbbunum leiðist ekki á myndinni. 1 i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.