Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1999, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1999, Blaðsíða 11
the roöte ?uestlove trommari Samkvæmt útgefendum TLC er tríóið það söluhæsta af öllum kvennatríóum poppsögunnar. Þó er þriðja platan bara rétt komin út og allt útlit fyrir að bankainn- stæðan vaxi enn frekar. TLC heit- ir eftir stelpunum; Tionne „T- Boz“ Watkins, Lisa „Left eye“ Lopez og Rozonda „Chilli“ Thomas. Þær syngja og eru sæt- ar. Á bak við stendur svo hjörð aðstoðarkokka og alls konar út- pældra bransarefa. Þær koma frá Atlanta í Georgíu og þutu beint á Bláfjöll poppsins með fyrstu plöt- unni „Oooooooh... On the TLC tip“ sem kom út 1992 og hafði að geyma þrjá topp 10 smelii. Brennt ofan af kærastanum Tónlist TLC hefur alltaf verið poppuð blanda af hipp-hoppi, r&bi og húsi. Textamir eru beint svar við karlrembunni í textum karlrappara og stelpumar meina það sem þær segja. Lisa komst í fréttir rétt áður en önnur platan kom út fyrir að brenna húsið ofan af kærastanum og rústa bílinn hans. Allt þetta gerði hún í fylliríismóki hafandi komið að kærastanum með annarri. Betri auglýsingu fyrir plötuna var erfitt að hugsa sér. Lisa slapp á skilorði en platan, „Crazysexycool", seldist í 10 milljón emtökum í Bandaríkjun- um einum saman og lagið „Creep“ hékk eins og klessa í fyrsta sætinu. Þrátt fyrir þetta varð hljómsveitm næstum gjaldþrota eftir alls konar réttarmál sem of leiðinlegt er að fara í saumana á hér. Það liðu þvi fimm ár þar til þriðja platan kom á markaðmn. Gera meira en að brosa Sú heitir „Fanmail" og segja stelpurnar hana hafa verið gerða fyrir aðdáendurna (en ekki hvað?). Þær segja líka að þetta sé þeirra persónulegasta plata til þessa. Að vanda er hópur manna að störfum bak við tjöldin, lið eins og Babyface, Dallas Austin og sjö aðrir hljóðstjórnendur. Stelpurnar segjast þó hafa gert meira en að brosa í myndatökum: „Við eigum mikið í plötunni", segir T-Boz. „Við settumst niður með Dallas og unnum með honum að nokkrum hugmyndum. Til dæmis er lagið „Unpretty" byggt á ljóði eftir mig sem hann breytti í lag. Ég veit um fúllt af stelpum sem eru óöruggar. Þjóðfélagið með öll sín fegurðargildi getur látið þær finnast þær vera ólag- legar en ég veit að þetta kemur allt innan frá.“ Beint á toppinn aftur Á þeim fimm árum sem liðin eru á milli platna hjá TLC hafa margir reynt að koma með sams konar kvennaband til að fylla í tómið. „Það er bara ekki hægt,“ segir Lopez, ör- ugg. „Persónuleikar okkar og hvernig við pössum saman er það sem gerir TLC að því sem það er.“ T-Boz bætir við: „Það er pláss fyrir alla og við höf- um engar áhyggjur af samkeppninni. En í alvöru, nýja platan okkar er það góð að ég væri verulega að skíta í brækumar ef ég væri í einhverri annarri hljómsveit. Við erum komn- ar aftur til að endurheimta það sem okkur ber!“ Þetta er ekkert rugl í stelpunum. Nýja platan fór beint i fyrsta sætið í Bandaríkjunum fyrir tveim vikum og er búin að vera þar síðan. -glh Fjórða plata sextettsins The Roots var að og dómar eru á einn veg: Meistaraverk. Lífrænt Rapphljómsveit The Roots hefur vægast sagt verið að fá góða dóma fyr- ir nýjustu plötuna sína, „Things fail apart“, sem er nýkomin út. Platan þykir blása lífi í deyjandi glæður rappsins og einfaldlega vera ferskasta rappplatan síðan fyrsta Wu-Tang Clan platan kom út. Það má vel taka undir þessi sjónarmið því platan er margslungin, frísk og laus við allar hundfúlu khsjur rappsins sem búið er að juðast á endalaust síðustu árin. Platan er að mestu yfirveguð og róleg, spunnin áfram af leitandi krafti. Skýrt dæmi um frískleikann er lagið „You Got Me“ sem söngkonan Erykah Badu er gestur í. Það er margtuggin klisja að blanda saman sætu r&bi og hörðu hipp-hoppi, en í tilfelli The Roots verður útkoman fónkí og ekta. Af götunni í klúbbana Rætur Rótanna liggja aftur til ársins 1987 þegar rapparinn Black Thought (Tariq Trotter) og trommarinn ?uest- love (Ahmir Khalib Thompson) urðu vinir í listaskóla í Philadelphia. Þar sem þeir voru blankir og áttu ekki pen- ing fyrir nauðsynlegum dj-græjum not- uðust þeir við trommusettið hans ?uestlove til að endurskapa vinsæl hipp-hopplög þess tíma. Þeir spiluðu í skólanum, á götuhomum og í hæfi- leikakeppnum. Bráð- lega bættist bassaleik- arinn Hub i hópinn og annar rappari, Malik B. Smám sam- an fór fylgið vaxandi og uppákomurnar færðust af gangstétt- inni inn á klúbba í Philadelpia og New York. Þegar sveitinni bauðst að spila í Þýskalandi tók ^ hún upp plötu til The Roots: lífrænt að selja á tónleik- um. Þetta var frumraunin „Organix" sem kom út 1993. í kjölfarið fylgdi áhugi stórra fyrirtækja og seinna sama ár samdi The Roots við út- gáfurisann DGC. Snemma árs 1995 kom út platan „Do You Want More?!!!??!“. Þar hélt hljóm- sveitin áfram að þróa sitt lífræna rapp sem leikið er á „alvöru" hljóðfæri, án allra „sampla". Rappheimurinn fúls- aði að mestu við plötunni en þess meiri athygli vakti The Roots hjá fylgjendum „öðruvísi" (e. „Alternati- ve“) tónlistar, sérstaklega eftir að bandið spilaði á Lollapalooza farand- festivalinu þá um sumarið. Bandið koma ut Black Thought aöalrappan Rótanna spilaði líka á Montreux djass- festivalinu í Sviss sem sýnir vel breidd tónlistarinn- ar. Á þessu flandri bættust tveir nýjir meðlimir í hópinn; hljómborðsleikarinn Kamal og Ra- hzel the godfather of noyze, sem not- ar munninn til að búa til takt og hafði áður „spilað" með Grandmaster Flash og LL Cool J. Sáð og uppskorið Á þriðju plötu sinni, „Illadelph halflife“ frá 1996, var The Roots mikið í mun að sanna sig í hipp- hopp heiminum. Þeir voru orðnir leiðir á „öðruvísi" stimplinum og vildu fá að vera með hinum „al- vöru“ röppurunum. Þeir tóku því upp á að sampla en fóru þá leið að sampla sjálfa sig; létu teipið rúlla á æfingum og nýttu svo bestu bitana. Plat- an gekk ágætlega, fór hæst í 21. sæti bandaríska sölulistans. Það sem hljómsveitin hefur alltaf aðallega gert út á eru tónleikamir. Oftast vara tónleikar The Roots í 2-3 tíma og þar er allt flutt lifandi, engar Dat-spólur. Auk þess að spila eigið efni tekur bandið hluta af sjó- inu í að spila það sem þeir kalla „Hipp-hopp 101“. Þá endurskapa þeir gamla sígilda rappsmelli með hljóðfæmm, ekki ósvipað því sem þeir gerðu i byrjun. The Roots hefur verið óþreytandi við að halda tónleika í Bandaríkj- unum og því hafa vinsældir þeirra síaukist. Með nýju plötunni virðast þeir vera að uppskera eins og þeir sáðu því platan fór beint í fjórða sæti þegar hún kom út. Besti ár- angur The Roots til þessa og verð- skuldaður. -glh Kvennatríóið TLC er komið aftur til að endurheimta það sem því ber! Eru og góðir dómar Fjöllistahópurinn Gus gus er lagstur í vlking og fór vikuritið New Musical Express lofsamlegum orðum um frammistöðu þeirra í London í vikunni. Guslurum er hrósað í hástert fyrir að fara með poppið sem list og tilraimir þeirra til að teygja formið út fyrir hefð- bundna afþreyingu. Auk þess þykir sviðssetning tónleikanna vel heppn- uð og raunar likt við heilaþvott. Gus gus eru þessa vikuna i fjórða sæti óháða vinsældalistans í Bret- landi með lagið Ladyshave og Ijóst að endurkoma þeirra hefur heppn- ast með ágætum. Marilyn Manson hrekkir ekkju Courtney Love og félögum í hljómsveitinni Hole hefur verið sparkað af tónleikaferðalagi þar sem þau hituðu upp fyrir Marilyn Manson i Bandaríkjun- um. Báðar hljómsveitir verjast allra frétta mn vin- slitin. MM eru þekktir fyrir að vera hund- leiðinlegir við upphitunar- böndin sín, eru niskir á sándtékk og óþolandi í umgengni. Hljómsveitin Monster magnet mun taka sæti Hole á túrnum og nú er bara að sjá hversu lengi þeir endast. viilta Blur eru að setja í gang og spila víða þessa dagana til að kynna breiðskífuna 13, sem er væntanleg með vorinu. Damon Albarn hefur auk þess samið kvikmyndatónlist ásamt Micha Nyman fyrir myndina Ra- venous, sem fjallar um mannát i vestrii__. Uamon sagðist í viðtali við the Observer, miklu frekar viija vera tónskáld en poppari og gaf í skyn að hann myndi einbeita sér að kvikmyndatónlist í framtíðinni. Auk þess kom upp úr kafinu í sama viðtali að smellurinn Beetlebum fjallar um heróín, án þess þó að Damon útskýrði það frekar. 19. mars 1999 f Ókus 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.