Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1999, Page 20
TiLBOÐ
é‘*r:Æf
TiLBOO 39,-
ássr 7a,-
$0
s ú k k u 1 a ð i
TiLBQÐ 39,
5EÚT 5Ú,-
t e g u n d i r
TilBOÐ 35,
isx 5ú,-
P0'r- ði
w&t
i ii"4i
lÍ*i- Njfev1
TilBQÐ 45,
xjr 5ú,-
,íf civ
^8' -
'.r - %
V.iÍ f
TiLBQÐ 189,
?!Tjr cú%-
1BÓNUSUIPEO |
Leigan i þlnu hverfi
Lifjd (dtir vmnu
Nemendur Söngskólans í Reykjavík flytja
óperettuna Leöurblökuna eftir Johann Strauss
I tónleikasal Söngskólans, Smáranum að Veg-
húsastlg 7, tvlvegis I dag: kl. 15 og 20.30.
Óperettan verður flutt I íslenskri þýðingu Jak-
obs Jóhannessonar Smára. Leikgerð og leik-
stjórn annast Ása Hlín Svavarsdóttir, píanó-
leikari er Iwona Jagla og Garðar sjálfur Cortes
stjórnar. Rmm söngkonur skipta með sér hlut-
verki Rósalindu en þrir söngkarlar sjá um
Gaþriel von Eisenstein. Ruglandi? Varla meira
en söguþráðurinn, sem er hefðbundinn mis-
takafarsi.
Langholtsklrkja kl. 20.30. Sálumessa Moz-
arts i flutningi Söngsveitarlnnar Filharmóníu,
kammersveitar og fjög-
urra einsöngvara: Sólrún-
ar Bragadóttur sópran,
Elsu Waage alt (þær
tvær eru enn á landinu
að gefa okkur sýnishorn
af því sem þýskir hafa
fallið fýrir), Snorra Wlum
tenór og Kelth Reed
bassa. Sálumessan er
sem kunnugt er síðasta
verkið sem Mozart samdi og raunar lést hann
áður en verkið var fullgert. Verkið samdi hann
að beiðni greifa nokkurs sem nýlega hafði
misst konu sína. Þetta var seinni part ársins
1791 og var Mozart þá bæði heilsutæpur og
fiárvana og lést frá verkinu hálfkláruðu. Nem-
andi hans Sussmayr að nafni var fenginn til
þess að Ijúka við það. Þekktasti hluti verksins
er líklega svo kallaður Lacrimosakafli en talið
er að Mozart hafi samið fyrstu sjö takta hans
en Sussmayr síðan lokið við hann. Requiem
eða sálumessa er sungin yfir látnum þeim til
sáluhjálpar. Textinn er á latínu og er að stofni
til eins og hefðbundinn messutexti, þó eru
hvorki Gloria né Credo í þessari sálumessu og
koma sálmar í þeirra stað. Stjórnandi er Bern-
harður Wilklnson.
T ó n I e i k a r
verða í Sel-
fosskirkju kl.
17 og rennur
ágóði af þeim
til Styrktarfé-
lags krabba-
melnssjúkra barna. Það er söngkonan Sigrún
Jónsdóttlr sem stendur fyrir tónleikunum og
með henni spilar Ólafur Vlgnir Albertsson.
Málmblásarasveit Tónllstarskólans í Reykja-
vík heldur tónleika í Háteigskirkju kl. 17. Ein-
leikarar eru Guðmundur Vilhjálmsson básúnu-
leikari og Torfl Þór Gunnarsson hornleikari.
Stjórnandi er Einar Jónsson.
Söngvasveit Hverageröls og Senjórítur
Kvennakórs Reykjavíkur halda tónleika !
Hveragerðiskirkju kl. 17. Efnisskráin er fjöl-
breytt sýnishorn Islenskra og erlendra laga.
Stjórnendur eru Rut Magnússon og Margrét
S. Stefánsdóttir og Ástriöur Haraldsdóttir
leikur undir á píanó.
Qleikhús
^Þá er komið að því: Sjálfstætt fólk Lax-
ness i leikgerð Kjartans Ragnarssonar og
Sigríöar Margrétar Guömundsdóttur verður
frumsýnd í dag í Þjóðleikhúsinu. Fyrri hlutinn,
Bjartur - Landnámsmaöur íslands, byrjar kl.
myndlist
opnanir
Listasafn íslands heldur áfram að sýna IJós-
myndir. Kl. 20 á föstudagskvöld verður opnuð
sýning á myndum Janietu Eyre (sem illar tung-
ur segja að Ólafur Kvaran hafi fundið á Netinu).
I tilkynningu frá safninu segir að Janieta eigi
sér fáa líka á okkar dögum (Á þaö ekki við um
okkur öll? spyrja illu tungurnar, er það ekki
galdurinn við lífið?) og Ijósmyndir hennar séu
„sviðsettar draumsýnir sem bera þó sterkt yfir-
skin raunveruleika sem fólginn er í trúverðug-
leika Ijósmyndarinnar sem miðils. Myndirnar
sýna tvöfaldar sjálfsmyndir listakonunnar þar
sem hún gengst upp í ólíkum gervum eða hlut-
verkum. Um leið eru myndirnar sviðsettar í
óræðu sögulegu umhverfi og hlaðnar táknum
og tilvísunum sem skapa magnað andrúmsloft
losta, erótíkur og dauða."
Ólöf Helga Guömundsdóttlr opnar sýningu í
nemendagalleríinu Nema hvað! að Skólavörðu-
stíg 22c kl. 16 á föstudaglnn. Þar sýnir hún þri-
víð verk af ýmsu tagi. Sýningin er opin virka
daga frá kl. 15 til 18 og kl. 14 til 18 um helgar.
Á laugardag kl. 15 verð-
ur opnuð sýning I Smiöj-
unnl Artgallerí á verkum
Ásgelrs Smára Einars-
sonar. Ásgeir Smári hefur
undanfarin ár unnið aö
list í Kaupmannahöfn en
þar rekur hann jafnframt
Galleri Copen. Hann hef-
ur haldið fjölda einkasýninga hérlendis, I Dan-
mörku og Þýskalandi. Að þessu sinni sýnir
hann tuttugu olíumyndlr þar sem þemað er
maður og borg.
Slgþrúður Pálsdóttir (Slssú) myndlistarmaður
opnar á laugardaginn sína fyrstu einkasýningu í
Vestmannaeyjum á Myndlistarvori íslands-
banka 1999. Sissú mun og koma til Eyja og
dvelja þar um helgina. Á opnuninni mun Guölaug-
ur Krlstlnn Óttarsson gitarleikari halda tónleika.
myndlist
RMgO' tbippiið i
■ ■ Pr
A ljósmyndasýningunni hans
Spessa, sem var opnuð í gær,
standa bensíndælurnar keikar eins
og gamlir bændur undir skúrvegg.
Það er ótrúleg stemning yfír sýn-
ingunni og ekki laust við að spretti
fram þrá eftir tímum sem voru
liðnir áður en maður fæddist. En
þessi hugmynd er ekki alveg ný af
nálinni, er þaó, Spessi?
„Nei, svipaðir hlutir hafa verið
gerðir áður. Ed Rusca tók myndir
af 26 bensínstöðvum við tiltekinn
þjóðveg í Bandaríkjunum og gétf
út á bók. Einnig var Dieter Roth
á sama róli þegar hann tók mynd-
ir af og inni í öllum sjoppum á
sunnanverðu íslandi. En ég sé
ekki af hverju ég ætti að sleppa
því að vinna svona verk þó ein-
hver annar hafi gert líka hluti.
Sterkasta einkenni ljósmyndar-
innar er skrásetningargildið. Það
má segja að ég sé að skrásetja
þennan hluta íslandssögunnar. Til
dæmis hefur bensínstöðvum þeg-
ar fækkað um svona 50 síðan ég
hóf að mynda þær. Rusca sagði
um myndir sínar að þær væru
ekki á neinn hátt áhugaverðar. En
galdurinn felst í því að hið hvers-
dagslega fær með tímanum blæ
liðinna tíma. Og að sjálfsögðu
nálgast ég þetta á minn hátt, tek
nokkurs konar portrettmyndir af
dælunum.“
Já, þœr fá meö því móti mjög
fólkslegt viömót. En eru þetta allar
bensínstöövar landsins?
„Nei, en þetta losar 2/3. Á land-
inu eru svona 290 stöðvar og ég hef
náð að mynda rétt um 200 af þeim.“
Og hvenœr var þessi ferö farin?
„Þetta voru margar ferðir. Ætli
megi ekki segja að ég hafi verið 2
ár að safna þessum efniviði. Ég sá
þetta alltaf fyrir mér sem bók en að
lokum varð ofan á að sameina
þetta í bók og sýningu. Bókin sem
er rétt í þessu að koma út inniheld-
ur 101 mynd og sýningin 50. í bók-
ina rita Eiríkur Þorláksson for-
mála og Jón Proppé listfræðilegt
álit. Einnig má þar finna grein eft-
ir Dominique Nahas, gagnrýn-
anda í New York, en hann skrifar í
ýmis blöð, s.s. Art Forum. Hinn
frægi ljósmyndari Anton Corbain
á líka sitt innlegg."
Hvaö stendur sýningin lengi?
„Hún verður opin í tvo mánuði".
15 og sá síð-
ari, Ásta Sól-
lllja - Lífs-
blómið, kl. 20.
Leikhúsfólk
lofar tveggja
tíma hléi á
milli sýninga svi
nært sig og hvtlt. Ingvar E. Slgurösson leikur
Bjart ungan en Arnar Jónsson Bjart á efri
árum. Margrét Vilhjálmsdóttir er Rósa í fyrri
þættinum og Steinunn Ólína Ásta Sóllilja í
þeim síðari. Sami leikhópurinn leikurí báðum
sýningum svo þessi glíma við smærri rullur I
þeim hlutum sem þau bera ekki uppi. Aðrir
leikarar eru: Ólafia Hrönn Jónsdóttir, Valdl-
mar Óm Flygenring, Edda Arnljótsdóttir, Her-
dís Þorvaldsdóttir, Baldur Trausti Hreinsson,
Bergur Þór Ingólfsson, Gunnar Eyjólfsson,
Kristbjörg Kjeld, Magnús Ragnarsson, Stef-
án Jónsson, Þór H. Tulinius og Randver Þor-
láksson. Atll Heimir Sveinsson semurtónlist
viö sýninguna og þeir Guöni Franzson, Tatu
Kantomaa og Þóröur Högnason flytja hana.
Höfundur leikmyndar er Axel Hallkell (Seli).
Höfundur búninga Þórunn Elísabet Sveins-
dóttir. Leikstjóri er Kjartan sjálfur Ragnars-
son og má hann biðja fyrir sér ef hann hefur
ekki sett upp það Sjálfstætt fólk sem hver og
einn leikhúsgestur sá fýrir sér.
Spunaverkiö Hnetan verður sýnt í Iðnó kl.
20.30. Spuninn spinnst að
mestu úti í geimnum og
fjallar um leitfimm fs-
lendinga að plánet-
unni Hnetunni sem
er byggileg mönn-
um. Árið er 2099
um borð í geimflaug
og áhorfendur ráða því
nokkuð hvert hún fer og í
hverju áhafnarmeðlimir lenda. Leikstjóri er
hinn sænski Martin Geljer sem hefur staðið
fýrir öllum þessum spuna sem heltekið hefur
íslenska leikara undanfarin misseri. Leikarar
eru Gunnar Helgason og Hansson, Ingrid
Jónsdóttir, Friðrik Friöriksson og Linda Ás-
geirsdóttir.
✓Leikfélag Reykjavíkur sýnir leikritið Feg-
urðardrottningln frá Línakri, eftir Martin
McDonagh, á litla sviöi Borgarleikhússins
kl. 20.30 Þetta er kolsvört kómedía og að
sjálfsögðu með harmrænum undirtóni. Það
er metsöluleikstjórinn María Sigurðardóttir
sem leikstýrir en Margrét Helga Jóhanns-
dóttir og Sigrún Edda
mæðgurnar. Síminn er
568 8000.
Hellisbúlnn býr enn í
helli sínum í íslensku
öperunnl. Uppselt er á
sýninguna kl. 20. Bjarnl
Haukur Þórsson er hell-
isbúinn. Slminn er 551
1475.
áhorfendur og leikendur geti
Bjornsdottir leika
síöustu forvöö
Hafnarborg menningar- og listastofnun Hafnar-
fjarðar. Samsýnlng sjö norrænna listamanna
sem kalla sig NON ART GROUP. Hópur þessi
átti uþþtök sín í Helsinki 1974 og hefur á ferli
sínum staðið fýrir menningarviðburðum víðs
vegar um Norðurlönd . Opið er milli kl. 12 og 18
þar til sýningunni lýkur á mánudagskvöld.
Magnús KJartansson sýnir málverk sín í Gallerí
Sævars Karls.
Þrjár einkasýningar eru í Nýlistasafninu. Rósa
Gísladóttir sýnir kyrralífsmyndlr í forsalnum og
gryfjunni. Þetta eru þrívfðar uppstillingar úr
gifsi. Ragnhelður Ragnarsdóttlr kallar innsetn-
ingu sína í Bjarta- og Svartasal Sjónmál og
reynir þar að fjalla um afmörkun og opnun og
smlða sér leið til að tengjast umhverfinu - eða
svo segir hún sjálf. ívar Brynjólfsson verður
síðan með Ijósmyndir i Súmsalnum. Sýninguna
kallar hann Væntingar og segir að verkin séu
heimildir um raunveruleikann eins og hann birt-
ist á ofurvenjulegum stöðum.
aörar sýningar
Tengdasonur tslands,
hönnunarsnillingurinn
Mlchael Young, hefur
opnað sýningu á verkum
sínum og félaga sinna
Jaspers Morrlsons og
Marcs Newsons (sem
eru ekkert síður klárir og
heimsfrægir) á Kjarvals-
stöðum. Á sama stað er Spessi meö Ijósmynd-
ir sem hann hefur tekið af bensínstöðvum
hringinn í kringum landið.
Þrjár sýningar eru I Llstasafni íslands. I sal 1 er
sýning á verkum fjögurra frumherja í íslenskri
málaralist, Þórarlns B. Þorlákssonar, Ásgríms
Jónssonar, Jóhannesar Kjarvals og Jóns Stef-
ánssonar. í sal 2 hafa listfræðingar safnsins
valið saman verk þeirra málara sem innleiddu
hugmyndir móderismans í íslenska myndlist.
Sökudólgarnir eru Gunnlaugur Scheving, Jó-
hann Briem, Jón Engilberts, Snorri Arinbjarnar,
Nína Tryggvadóttir og Þorvaldur Skúlason. i
sal 3 er sýning á gvassmyndum þýska myndlist-
armannsins Sigmars Polkes og kallast sýning-
in Tónllst af óræöum uppruna. Polke var fýrir
10 árum eöa svo stórt númer í myndlistar-
heimnum og lifir enn á þeirri frægð. Neöan-
málsgrein í sögunni segja sumir - einn af risum
seinni tíma listar, segja aðrir. Kannið málið.
íM
I Geröubergi er samsýning
á verkum sex myndlistar-
manna á aldrinu 76 til 92
ára. Þarna er samankom-
ið landslið tslands í
næfisma; Þóröur G. Valdl-
marsson (allas Kíkó
Korriró), Siguröur Einars-
son, Svava Skúladóttlr,
Hjörtur Guðmundsson og
systurnar Guörún og Sigurlaug Jónasdætur. I
verkum þeirra má sjá allt það sem prýða má
næfísk verk; óheft ímyndunarafl, fallegar náttúru-
lýsingar og mikla frásagnargleði.
Fjórar sýningar eru í Gerðarsafnl í Kópavogi.
Rúna Gísladóttlr er með málverk í vestursaln-
um (salurinn kallast Skíma). Rúna segist vinna
með Ijós, litbrigði og form í Ijóðrænum tengsl-
um við móður jörð og silfur hafsins. Guörún Ein-
arsdðttir er með sýningu í austursai á tug mál-
verka sem hún vann á síðasta ári. Þetta eru
óhlutlæg náttúru- og landslagsmálverk þar sem
áferðin leikur stóra rullu. Mlreya Samper er
með s!na fýrstu einkasýningu á neðri hæðinni
og kallar hana „Samryskju" (sköpunargleði
sumra rúmast ekki innan áður notaðra orða). Á
neðri hæðinni er Elva Jónsdóttir einnig búin að
koma sínum verkum fýrir á sýningu sem hún
kallar „Raddir". Sýningarnar eru opnar alla
daga nema mánudaga frá kl. 12-18.
Ragnhildur Stefánsdóttir verður næstu vikur
gestur Ásmundarsafns við Sigtún. Hún sýnir s
verk sem hún hefur unnið í tengslum við verk
Ásmundar. Sýningu sína í Ásmundarsafni kallar
Ragnhildur Form skynjana.
Tvær sýningar eru í Llstasafni ASÍ í Ásmundarsal
við Freyjugötu. Kristín ísleifsdóttir sýnir þar ker-
amikiö sitt og Sigrid Valtingojer grafíkina sína.
Nýútskrifaöir arkitektar sýna útskriftarverk sín
í Ráöhúsinu undir heitinu Vaxtarbroddar.
Gallerí Ingólfsstræti 8. ívar Valgarðsson greip
til þess ráðs að mála með Crayola-vaxlitum
beint á veggi gallerisins og sótti innblástur í
nöfnin á litunum. Þetta er því sýning sem hæf-
ir vel musteri minimalismans og konseptsins. \
Galleriið er opið fimmtudaga til sunnudaga milli
kl. 14 og 18.
Kjarvalsstaðir, Flókagötu. Sýningin „Af trönum
meistarans" með verkum frá síðari æviárum Kjar-
vals. Meðal annarra verka er málverkið „Sjón er
sögu rikari" sem danska rikið var svo hugulsamt
að lána til islands. Sýningin stendur til 24. maí.
Ómar Stefánsson sýnir málverk í Gallerí Fold
við Rauðarárstíg kl. 15 á morgun. Verkin gefa
innsýn inn í veröld Ómars, kynjaheim að hætti
Hieronymusar Bosch.
Finnur Arnar hefur lokið við tvö verk og sýnir
þau í versluninni 12 tónum að Grettisgötu 64.
Finnur er hófsamur í list sinni þótt oft glitti í
henni í pólitíska meiningu og annað sem ekki
þykir of fínt.
Eyjólfur Einarsson er með sýningu á nýlegu
steinþrykki á Mokka. Eyjólfur hefur undanfarin
þrjú haust dvalið á grafíkverkstæði t Amster-
dam og eru verkin á sýningunni afrakstur þeirr-
ar dvalar.
Blrgir Örn Thoroddsen (alias Curver eða bara
Bibbi) heldureins konarsýningu að heimili sínu
að Fjaröarási 26 í Árbæiarhverfi. Sýningin er í
raun gjörningur sem standa mun fram til 27. j
mars næstkomandi og felst í því að Bibbi ætl-
ar loks að taka til í herberginu slnu.
)
28
f Ó k U S 19. mars 1999