Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1999, Síða 21
Lifid eítir vmnu
Mabur í mislitum sokkum eftir Arnmund
Backman er á Smíöaverkstæöi Þjóöleikhúss-
ins kl. 20.30. Þessi farsi gengur og gengur og
því er uppselt í kvöld. Enn eitt gangstykkið
með „gömlu leikurunum" - að þessu sinni
Þóru Frlörlksdóttur, Bessa Bjarnasyni og
Guörúnu Þ. Stephensen. Slmi 5511200 fyrir
þá sem vilja panta miða á sýningu einhvern
tlma I framtlðinni.
Hvítasunnukirkjan Filadelfia stendur fyrir leik-
sýningu I kirkjunni sinni I Hátúni I kvöld kl. 20.
Hér er á feröinni sýning sem gert hefur garð-
inn frægan bæði I Vestmannaeyjum og á Akur-
eyri og nafnið er að vonum kjarnyrt: Hliö him-
ins, logar vítis. Og það vekur spurningar (og
svarar þeim lika) um hvort líf sé eftir dauðann,
hvað Bíblían segi um það og hvort við séum
með nafn okkar skráð I lífsins bók eða hvort
vegur okkar endar I eilifri glötun. Ekki lítils
spurt. Það kostar ekkert inn.
Leikfélag eldrl borgara, Snúöur og Snælda,
leikur I Möguleikhúsinu kl. 16. Símar 588
2111 og 551 0730.
fyrir börnin
Barnasöngleikurinn „Hattur og Fattur, nú er
ég hlssa" eftir Ólaf Hauk Simonarson verður
sýndur I Loftkastalanum kl. 14. Þeir sem hafa
minni til muna sjálfsagt eftir þessum félögum
úr Stundinni okkar frá þvl fyrir áratug eða
tveim. Þeir eru mjög Ólafshaukískir, glettnir
trúðar og þjóðfélagslega sinnaðir - ekki ósvip-
aðir og Olga Guðrún þegar hún syngur efni frá
Ólafi. Guðmundur Ingi Þorvaldsson og Felix
Bergsson eru Fattur og Hattur.
Mjólkursamsalan heldur fjölskylduskemmtun
I Ráöhúsi Reykjavíkur I tilefni af framlengingu
samnings síns við íslenska málnefnd. Dag-
skráin byrjar kl. 14 og samanstendur af Ijóða-
lestri (Þórarlnn Eldjárn), trúðsleik (Halldóra
Gelrharösdóttir), hugvekju (Auður Haralds) og
söng (Bubbl Morthens). Auk þessa veröa
verðlaunaafhending vegna íslenskugetraunar
og upplestrarkeppni og Snuðra og Tuðra
bregða á leik. Kynnir er Gunnar Helga-
son.Snuðra og Tuöra eftir löunni Steinsdóttur
verða I Möguleikhúslnu við Hlemm bæði kl.
12.30 og 14. Slmi 562 5060.
✓Borgarleik-
húsiö: Pétur
Pan er á stóra
sviðinu kl. 14
og skemmtir
þar ungum
sem öldnum.
Krókur kapteinn er þó miklu skemmtilegri,
eins og vondra manna er siður. Indíánar, haf-
meyjar, krókódíll, draumar og ævintýri. Sími
568 8000.
fopnanir
Gallerí Fold stendur fyrir málverkauppboöl I
Súlnasalnum á Hótel Sögu og hefst það kl.
20.30. Uppboðsverkin verða til sýnis I hús-
næði gallerísins að Rauðarárstíg 14 fyrr um
daginn, frá kl. 12 til 17. Þetta er fyrsta lista-
verkauppboðið frá því að dómurféll I fölsunar-
málinu (þar var eigandi Gallerls Borgar dæmd-
ur - Gallerí Fold kom þar hvergi nærri) og verð-
ur forvitnilegt að sjá hvort sá dómur muni
hafa áhrif á gang mála. Um 100 verk verða
boðin upp, þar á meðal nokkur eftir hina
svokölluðu gömlu meistara.
i fundir
Bókmenntadagskrá verður I Gunnarshúsl I
dag kl. 16. Karl-Erik Bergman, rithöfundur frá
Álandseyjum, les úrverkum sínum ogsegirfrá
álenskum bókmenntum. Bergman er einn
kunnasti höfundur Álandseyinga en hefurjafn-
framt verið sjómaður og ber skáldskapur hans
þess glögg merki. Hann hefur tvlvegis áöur
heimsótt ísland, var meðal annars gestur á
Bókmenntahátíð 1987. Fyrir tæpum þremur
árum kom út bókin Ljóð á landi og sjó eftir
Karl-Erik Bergman, I íslenskri þýðingu Aðal-
steins Ásbergs Sigurðssonar. Þýðandinn og
kona hans, Aðalsteinn Ásberg og Anna
Pálína, ætla að flytja tónlist til að lífga upp á
prógrammið og Anna S. Björnsdóttir les Ijóð.
Dagskráin er öllum opin meðan húsrúm leyfir
og aðgangur er ókeypis.
Björn BJarnason flytur erindi á fræðslumorgni
I Hallgrímskirkju kl. 10 og ræðir um trú og
stjórnmál. Þetta er sama umfjöllunarefni og
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var með á sama
stað og tlma fyrir viku en líklega verða áhersl-
ur Björns eitthvað aðrar. Á eftir erindi hans
gefst tími til fyrirspurna og frjálsrar umræðu.
Og á eftir þeim er messa I kirkjunni, stundvls-
lega kl. 11.
Ráðstefna Páls Skúlasonar, rektors Háskól-
ans, um framtíö búsetu á íslandi heldur áfram
I hátíðarsal Háskólans kl. 10 og stendur fram
til 16.45 með matar- og kaffipásum. Þarna
verður án efa margt fróðlegt sagt og frumlegt
hugsað.
b í ó
✓Islensk-japanska félagið stendur fyrir kvik-
myndasýningu I Norræna húsinu í dag kl. 14.
Félagið býður upp á Tokyo Story eftir höfuðsnill-
inginn Ozu. Friörik Þór Friöriksson heldur smá-
tölu um kappann. Og það kostar ekkert inn.
f sport
íslandsmótiö I listhlaupi á skautum klárast I
dag á skautasvellinu I Laugardal. Herlegheit-
in byrja kl. 8.50 og keppni lýkur fýrir hádegi
með þvl að Skautafélag Reykjavíkur hefur
frammi sýningaratriði kl. 11.35. Upp úr kl. 12
verða síðan verðlaunaafhendingar.
Mánudagufj
22. mars!
@leikhús
I dag er íþróttadagur leikara og þeir munu
sportast og spinna I Leikhússporti I Iðnó kl.
20.30. Enginn veit hvað gerist og aðeins þeir
sem mæta munu vita hvað gerðist. Slmi 530
3030.
Listaklúbbur Lelkhúskjallarans býður ekki
upp á dagskrá um Sjálfstætt fólk eins og áður
hefur verið auglýst I dagskrá heldur verður
sjónum gesta beint upp I Mosfellssveit þar
sem Leikfélag Mosfellsbæjar sýnir Jaröarför
ömmu Sylvíu. Félagar úr félaginu mæta I Þjóö-
leikhússkjallarann og fræða gesti um þennan
jarðarfararspuna. Þeir leika fyrri hluti verksins
(botninn er uppi I Mosfellsdal) og á eftir verða
umræður um bakrunn þess, uppsetningu og
móttökur hér á landi en verkið er sprottið úr
heimi gyðinga vestanhafs. Kjallarinn verður
opnaður kl. 19.30 en sýningin hefst kl. 20.30
Hvítasunnukirkjan Fíladelfia stendur fyrir leik-
sýningu I kirkjunnl sinni I Hátúnl I kvöld kl. 20.
Hér er á ferðinni sýning sem gert hefur garö-
inn frægan bæði I Vestmannaeyjum og á Akur-
eyri og nafnið er að vonum kjarnyrt: Hilö hlm-
ins, logar vítls. Og það vekur spurningar (og
svarar þeim líka) um hvort llf sé eftir dauðann,
hvað Bíblían segi um það og hvort við séum
með nafn okkar skráð I lífsins bók eða hvort
vegur okkar endar I eilífri glötun. Ekki lltils
spurt. Það kostar ekkert inn.
fyrir börnin
Þeir Egill Ólafsson og Birgir Thoroddsen hafa
ferðast á milli skóla með dagskrá sem þeir kalla
Heimsrelsa Höllu og byggist á íslenska þjóðlag-
inu Ljósið kemur langt og mjótt. Þeir sem ekki
hafa rekist á þá félaga á ferð sinni geta séð þá
og heyrt í Hafnarborg I kvöld kl. 20.30. Allir eru
velkomnir og aðgangur er ókeypis.
Þriðjudagur
23. mars
poppl
✓sjöunda Stefnumótiö verður á Gauki á
Stöng í kvöld og hefst það kl. 22. Að þessu
sinni mun hardcore rokkmetallinn ráða rikjum
og munu nokkur þéttustu og þyngstu rokkbönd
landsins spila: Bisund, Mínus, Sólstafir og For-
garöur helvítis. Það gerist varla hrárra og rokk-
aðra en þetta! Aðgangseyrir er kr. 500
ikrár
Okkar ástsæli Eyjólfur Kristjánsson sýnir
gestum Kaffi Reykjavíkur hvernig náttúrubörn
I kráarsöngli skila slnu hlutverki.
uklassík
Kvennakór Reykjavikur heldur tvenna tón-
leika sjálfum sér og áheyrendum til sjálfsstyrk-
ingar I Loftkastalanum I kvöld kl. 20 og 22. Vf-
irskrift tónleikanna er Bíótónar og á þeim
syngur kórinn lög úr ýmsum bíómyndum undir
stjórn hinnar vösku Sigrúnar Þorgeirsdóttur.
Andrea Gylfadóttir syngur einsöng en þau
Þórhildur Björnsdóttlr, Birglr Bragason og Ás-
geir Óskarsson sjá um undirleik.
Tónllstarskólinn í Reykjavík heldur tónleika I
Grafarvogskirkju kl. 20.30. Strengjasveit
yngri deildar leikur verk eftir höfuðsnillinga
tónsögunnar undir stjórn Unnar Maríu Ingólfs-
dóttur. Aðgangur ókeypis.
Framhald á bts.30.
út aö borða
AMIGOS ★★★ Tryggvagötu 8, s. 5111333.
„Erfitt er að spá fýrir fram I matreiðsluna, sem er
upp og ofan." OpiO í hédeginu virka daga
11.30-14.00, kvöldin mán.-fím. 17.30-22.30,
fös.-sun. 17.30-23.30. Barínn er opinn til 1 á
virkum dögum en til 3 um helgar.
AUSTUR INDÍAFÉLAGIÐ ★★★★ Hverfis-
götu 56, s. 552 1630. „Bezti matstaöur
austrænnar matargerðar hér á landi." OpiO
kl. 18-22 virka daga og til kl. 23 um helgar.
ARGENTÍNA ★★ Baróns-
stlg lla, s. 551 9555.
„Bæjarins besta steikhús
hefur dalað." OpiO
18-23.30 v.d., 18-3 um
helgar.
ASÍA ★ Laugavegi 10, s.
562 6210. OpiO virka
daga 11.30-22 en 12-23
um helgar.
CAFÉ ÓPERA Lækjargötu 2, s. 522 9499.
CARPE DIEM Rauöarárstíg 18, s. 552 4555.
CARUSO*** Þingholtsstr. 1, s. 562 7335.
„Þvert á Islenska veitingahefð hefur hin rustalega
notalegi Caruso batnað með aldrinum." OpiO
11.30-14.00 og 18.00-23.00 virka daga.
Föstudaga 11.30-14.00 og 18.00-24.00,
laugard. 11.30-24.00 ogsunnud. 18.00-24.00.
CREOLE MEX ★ ★★★
Laugavegl 178, s. 553
4020. „Formúlan er líkleg
til árangurs, tveir eigendur,
annar I eldhúsi og hinn I
sal." OpiD 11.30-14 og
18-22 á virkum dögum en
18-23 um helgar.
EINAR BEN Veltusundi 1.
5115 090. OpiO 18-22.
GRILLIÐ ★★★★ Hótel
Sögu v/Hagatorg, s. 5252 9960. „Glæsilegur
útsýnissalur milliklassahótels með virðulegri og
alúðlegri þjónustu, samfara einum allra dýrasta
matseðli landsins." OpiO 12-14.30 og 19-22.30
virka daga, 12-14.30 og 18-22 föstu- og laugar-
daga.
HARD ROCK CAFÉ ★★ Kringlunni, s. 568
9888.
Horniö ★★★,
Hafnarstrætl
15, s. 551
3340. „Þetta
rólega og litla
Ítalíuhorn er
hvorki betra né
verra en áður. EldhúsiO er opiO kl. 11-22 en til
kl. 23 um helgar.
HÓTEL HOLT ★★★★★
Bergstaöastræti 37, s.
552 5700. „Listasafn-
iö á Hótel Holti ber I
matargerðarlist af
öðrum veitingastofum
landsins." OpiO
12-14.30 og 19-22.30
virka daga, 12-14.30 og
18-22 föstu- og laugardaga.
veitingahús
Askur ★★★
Neitar að deyja
Allt er enn eins og ævinlega á Aski, þar á meðal matseðillinn.
Svo langt er síðan staðurinn steinrann, að óþarfi er
að gera veður út af því núna.
Askur við Suðurlandsbraut
tjuggutjuggar eins og gömul eim-
lest, sem ekki fæst til að gefa upp
öndina, af því að tækin voru svo
vel smíðuð í gamla daga, þegar
hún varð til sem millistig ■ veit-
ingahúss og skyndibitastaðar,
heimaland kokkteilsósunnar. Allt
er enn eins og ævinlega á Aski,
þar á meðal matseðillinn. Svo
langt er siðan staðurinn steinr-
ann, að óþarfi er að gera veður út
af því núna.
Á sunnudögum hefur verið
steikarskurður í hádeginu og aðra
daga frekar ólystugt hlaðborð, sem
einkenndist af mjög soðnu græn-
meti, djúpsteiktri ýsu og miklum
sósum, en bjargaðist fyrir horn
með beikonfylltum kartöflum,
meyru svínaíleski og góðri rauð-
sprettu með þrenns konar
papriku.
Aðgangur að óvenjulegum salat-
bar fylgir öllum aðalréttum stað-
arins. Barinn státaði af tveimur
og þremur tegundum af olífum,
ýmsum baunategundum, hnetum,
sultuðum og kryddlegnum lauk,
gráfikjum og niðursoðnum æti-
þistli, fyrir utan ýmislegt af hefð-
bundnara tagi, en engum svepp-
um. Þar voru sósur og tvenns kon-
ar edik, en engin ólífuolía. Einnig
súpa dagsins, uppbökuð hveiti-
súpa af skárra taginu, en ekki
alltaf nákvæm að heiti, því að
brokkálssúpa með syndandi
brokkáli var eins og sveppasúpa á
bragðið. Ágætt brauð fylgdi.
Stórlúða dagsins var hæfilega
elduð, greinilega fersk og bragð-
góð, borin fram með kryddsmjöri,
fjölbreyttu og fallegu grænmeti
léttsteiktu, og bakaðri kcirtöflu,
sem er einkennistákn staðarins.
Smjörsteikt rauðsprettuflak var
snarpheitt og meyrt, jóðlandi í
smjöri, með milt elduðu blómkáli
og brokkáli, svo og sveppum og
tvenns konar papriku og auðvitað
bakaðri kartöflu. Sú breyting hef-
ur raunar smám saman orðið á
Aski, að flskur er orðinn sterkasta
hlið eldhússins og fer vel á því.
Uppáhald fjárbóndans var sagt
vera grillað lambafillet, en mér
fannst það vera innralæri, vel
kryddað villijurtum og borið fram
með mikið steiktum lauk og
grimmt elduðu káli, svo og bak-
aðri kartöflu. Lakasti aðalréttur-
inn var barbeque blanda svína-
rifja og kjúklingalæra. Rifin voru
sæmileg, en kjúklingurinn þurr og
frönsku kartöflumar gervilegar.
Sæmilegasta eplabaka með
vanilluís og þeyttum rjóma kom á
borð með súkkulaðisósu. Osta-
terta var nánast ostlaus, eins og
Royal búðingur að áferð og bragði,
borin fram með jarðarberjum og
blæjuberjum. Kaffivatn að amer-
ískum hætti var frambærilegt sem
slíkt.
Hádegishlaðborð kostar 1090
krónur, salatbarinn 870 krónur,
réttur dagsins með súpu 1290
krónur og þríréttað af matseðli
kostar 2370 krónur. Þetta höfðar
til stórfjölskyldna á ferðalagi utan
af landi, vel stæðra einstaklinga,
sem ekki nenna að elda, og slæð-
ings af ferðamönnum.
Húsakynni hafa lengi verið
óbreytt og fremur kuldaleg, en
barnavæn. Langsófar eru með
veggjum, stólar á móti og á milli
þeiira hentug tveggja manna borð,
sem slá má saman að vild.
Dósatónlist er stundum með há-
værara móti. Sennilega er þjón-
ustufólk á of lágu kaupi og hættir
fljótt, því að sífellt voru að birtast
ný andlit, sem kunnu enn lítið til
verka. Jónas Kristjánsson
HÓTEL ÓÐINSVÉ ★★ v/Óölnstorg, s. 552
5224. „Stundum góður matur og stundum ekki,
jafnvel I einni og sömu máltíð." OpiO 12-15 og
18-23 virka daga, 12-15 og 18-23.30 föstu- og
laugardaga.
HUMARHÚSIÐ ★★★★ Amtmannsstíg 1, s.
5613303. „Löngum og hugmyndarikum matseðli
fylgir matreiðsla I hæsta gæðaflokki hér á landi"
OpiO frá 12-14.30 og 18-23.
IÐNÓ ★★★ Vonarstrætl 3, s. 562 9700.
„Matreiðsla, sem stundum fer slnar eigin slóðir,
en nær sjaldan hæstu hæðum. Enginn réttur var
að neinu leyti misheppnaður, en fáir minnisstæð-
ir.“ OpiO frá 12-14.30 og 18-23.
ÍTALÍA ★★ Laugavegi 11, s. 552 4630.
JÓMFRÚIN ★★★★★ Lækjargötu 4, s. 551
0100. „Eftir margra áratuga eyðimerkurgöngu
Isiendinga getum við nú aftur fengið danskan
frokost I Reykjavík og andað að okkur ilminum
úr Store-Kongensgade." OpiO kl. 11-18 alla
daga.
KÍNAHÚSIÐ ★★★★ Lækjargötu 8, s. 551
1014. „Kínahúsið er ein af helztu matarvinjum
miðbæjarins." OpiO 11.30-14.00 og 17.30-
22.00 virka daga, 16-23 laugardaga og 17-22 á
sunnudögum.
KÍNAMÚRINN ★★★ Laugavegi 126, s. 562
2258
LAUGA-ÁS ★★★★★
Laugarásvegi 1, s. 553
1620. „Franskt bistró að
íslenskum hætti sem dreg-
ur til sln hverfisbúa, sem
nenna ekki að elda I kvöld,
barnafjölskyldur utan úr
bæ ög ferðamenn utan af
landi og frá útlöndum."
OpiO 11-22 og 11-21um
helgar.
LÆKJARBREKKA ★ Bankastræti 2, s. 551
4430.
MADONNA ★★★ Rauöarárstíg 27-29, s. 893
4523 „Notaleg og næstum rómantísk veitinga-
stofa með góðri þjónustu og frambærilegum ítal-
lumat fýrir lægsta verð, sem þekkist hér á landi."
OpiO virka daga 11.30-14.00 og 18.00- 23.00
og 17-23.30 um helgar.
MIRABELLE ★★★
Smlöjustíg 6, s. 552
2333. „Gamal-frönsk
matreiðsla aila leiö
yftr I profiteroles og
créme brulée." OpiO
18-22.30.
PASTA BASTA ★★★
Klapparstig 38, s. 561 3131.
„Ljúfir hrisgrjónaréttir og óteljandi tilbrigði af góð-
um pöstum en litt skólað og of uppáþrengjandi
þjónustufólk." OpiO 11.30-23 virka daga og
11.30-24 um helgar. Barinn er opinn til 1 virka
daga og til 3 um heigar.
PERLAN ★★★★ Öskjuhlíö, s. 562 0200.
„Dýrasti og glæsilegasti veitingasalur landsins
býður vandaða, en gerilsneydda matreiðslu" OpiO
18.00-22.30 virka daga og tii 23 um helgar.
POTTURINN OG PANNAN, ★★★★ Brautar-
holti 22, s. 551 1690. „Einn af ódýrustu al-
vörustöðum borgarinnar býður eitt bezta og
ferskasta salatborðið." OpiO 11.30-22.
RAUÐARÁ Rauðarárstíg 37, s. 562 6766.
REX ★★★★
Austurstræti 9,
s. 511 9111.
„Rex kom mér á
óvart með góðri,
fjölbreyttri og oft-
ast vandaðri
matreiðslu, með áherzlu á einföld og falleg salöt,
misjafnt eldaöar pöstur og hæfilega eldaða fisk-
rétti." Opiö 11.30-22.30.
SHANGHÆ ★ Laugavegl 28b, s. 551 6513.
OpiO virka daga 11.30-22 en 12-23 um helgar.
SKÓLABRÚ ★★ Skólabrú 1, s. 562 4455.
„Matreiðslan er fögur og fín, vönduð og létt, en
dálítið frosin." OpiD frá kl. 18 alla daga.
TILVERAN ★★★★★ Llnnetsstíg 1, s. 565
5250. „Það eru einmitt svona staðir, sem við
þurfum fleiri af til að fá almenning til að lyfta
smekk sínum af skyndibitaplani yfir á fyrstu þrep
almennilegs mataræðis." OpiO 12-22 sunnudag
til fimmtudags og 12-23 föstudag og iaugardag.
JBS,
f
VID TJORNINA ★★★★
Templarasundl 3, s. 551
8666. „Tjörnin gerir oftast
vel, en ekki alltaf og mis-
tekst raunar stundum."
OpiO 12-23.
„ ÞRlR frakkar
ISmr ★★★★★ Baldursgötu
14, s. 552 3939. „Þetta
—er einn af hornsteinum ís-
lenskrar matargerðarlistar og fiskhús landsins
númer eitt." OpiD 11.30-14.30 og 18-23.30
virka daga og 18-23.30 um helgar en til 23
föstu- og laugardag.
Stendur þú
fyrir einhverju?
Sentlti upplýsingar i
e-rnail (okusÁfokus.is / tax 550 5020
Í
19. mars 1999 f ÓkUS
29