Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1999, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1999, Blaðsíða 6
24 MÁNUDAGUR 12. APRÍL 1999 MÁNUDAGUR 12. APRÍL 1999 25 íþróttir FH (io) 23 Fram (13) 25 0-3, 3-4, 6-6, 6-11, 7-13 (10-13), 10-14, 12-18, 16-19, 19-19, 20-23, 22-23, 23-25. Mörk FH: Valur Arnarson 9/4, Lárus Long 6, Guðmundur Pedersen 5/2, Hálfdán Þórðarson 2, Guðjón Áma- son 1. Varin skot: Magnús Ámason 12/2. Mörk Fram: Guðmundur H. Pálsson 5, Björgvin Björgvinsson 5, Gunnar Berg Viktorsson 4/2, Oleg Titov 4/2, Njörður Ámason 3, Róbert Gunnars- son 2, Magnús A. Amgrímsson 1, Kristján Þorsteinsson 1. Varin skot: Sebastian Alexanders- son 16/2. Brottvisanir: FH 14 mín., Fram 8 min. Dómarar: Anton Pálsson og Hlynur Leifsson, höfðu ágæt tök á leiknum en vom fullbráðir á sér aö dæma. Áhorfendur: Um 1500. Maður leiksins: Sebastian Alex- andersson, Fram. Aftureld. (16)30 Haukar (8) 22 1-0, 3-1, 7-2, 9-3, 10-4, 12-5, 14-7, (16-8). 16-11, 21-12, 22-15, 26-17, 28-19, 29-20, 30-22. Mörk Aftureldingar: Bjarki Sigurðsson 11, Sigurður Sveinsson 5, Jón Andri Finnsson 5/2, Maxim Trúfan 3, Einar Gunnar Sigurðsson 2, Gintas 2, Magnús Már Þórðarson 2. Varin skot: Bergsveinn Berg- sveinsson 28/1. Mörk Hauka: Óskar Ármannsson 7/5, Þorkell Magnússon 6, Einar Gunnarsson 3, Einar Jónsson 1, Halldór Ingólfsson 1, Siguröur Þórðarson, Jón Karl Bjömsson 1/1. Varin skot: Magnús Sigmundsson 9, Jónas Stefánsson 3. Brottvísanir: Afturelding 6 mín., Haukar 12 min. Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson og Ólafur Haraldsson, sæmilegir. Áhorfendur: Um 700. Maður leiksins: Bjarki Sigurðsson, Aftureldingu, átti hreint stór- kostlegan leik í alla staði. Haukar (12) 27 Aftureld. (17)26 1-0, 2-2, 2-5, 3-10, 6-11, 9-16 (12-17), 12-18, 15-20, 16-22, 19-22, 21-23, 22-25, 27-25, 27-26. Mörk Hauka: Halldór Ingólfsson 10/3, Einar Gunnarsson 3, Þorkell Magnússon 2, Petr Baumruk 2, Sigur- jón Sigurðsson 2, Óskar Ármannsson 2, Einar Jónsson 2, Jón Freyr Egils- son 2, Sigurður Þórðarson 1, Kjetil Eliertsen 1. Varin skot: Magnús Sigmundsson 13. Mörk Aftureldingar: Jón Andri Finnsson 8/3, Bjarki Sigurðsson 7, Einar G. Sigurðsson 4, Savukynas Gintaras 3, Sigurður Sveinsson 3, Al- exei Troufan 1. Varin skot: Bergsveinn Bergsveins- son 17/4. Brottvísanir: Haukar 16 mín, Aftur- elding 18 mín. Dómarar: Bjarni Viggósson og Val- geir Ómarsson. Voru ekki i öfunds- verðu hlutverki. Gerðu sín mistök en sluppu í heild þokkalega frá sinu. Áhorfendur: Um 900. Maður leiksins: Halldór Ingólfs- son, Haukum. Hasarleikur Annar leikur Hauka og Aftureldingar við Strandgötuna á föstudagskvöldið var ótrúlega sveiflukenndur og mikill hasarleikur þar sem spennustig leik- manna var við suðumark. Mosfellingar virtust á öruggri leið með að tryggja sér 2-0 sigur i einvíginu. Lokakaflinn var æsispennandi og þegar Sigurður Þórðarson jafnaði fyrir Hauka, 25-25, ætlaði allt um koll að keyra í Strandgötunni. 1 kjölfarið fylgdu tvö Haukamörk til viðbótar. Sig- urður Sveinsson minnkaði muninn í eitt mark 40 sek. fyrir leikslok og Haukamir náðu að halda boltanum út leiktímann þrátt fyrir enga ógnun að marki Mosfellinga sem urðu óðir út í dómarana í leikslok fyrir að dæma ekki leiktöf á Haukana fyrr en 1 sek- únda var eftir. Halldór Ingólfsson átti frábæran leik fyrir Hauka og Magnús Sigmundsson lokaði marki sínu á lokakafla leiksins þegar mest lá við. Bergsveinn, Bjarki og Jón Andri Finsson léku best Mosfell- inga og Gintaras var góður meðan hans naut við. -GH Iþróttir Sigurgleði Aftureldingar var ólýsanlega í leikslok og leikmenn stigu stríðsdans. Nú eru erfiðir leikir framundan en það kemur f Ijós eftir viðureign Fram og FH hver mótherji liðsins verður í úrslitum mótsins. DV-mynd ÞÖK Andrei Astajev reynir markskot að marki FH um helgina. A innfelldu myndinni er hart barist um boltann. Þriðji leikur liðanna fer fram í Framhúsinu í kvöld. DV-myndir ÞÖK „Fram átti skilið að vinna" - sagði Kristján Arason. „Sáttur við mína menn,“ sagði Guðmundur „Það var ekkert fyrir okkur annað að gera en að gefa allt í þetta enda vildum við ekki fara í sumarfrí strax. Það var að duga eöa drep- ast fyrir okkur og ég held að við höfum sýnt ákveðinn karakter með því að vinna þennan leik. Vörnin lagði grunninn að þessum sigri og það munaði auðvitað heilmiklu fyrir okkur að fá Titov aftur inn í vamarleikinn. Eftir þennan sigur tel ég okkur eiga mjög góða mögu- leika á að klára þetta dæmi í Safamýrinni," sagði Gunnar Berg Vikt- orsson, leikmaöur Fram. „Ég er mjög sáttur vió leik minna manna. Við fórum yfir mjög margt eftir fyrsta leikinn og sáum að við yrðum að endurskipurleggja leik okkar og breyta um hugarfar. Ég sá það strax að strákamir voru tilbúnir og þeir héldu þetta út gegn góðu liði FH og á sterkum heima- velli. Við náðum upp mjög góðri vöm og sóknarleikurin var lengst af í góðu lagi. Þaö var auðvitað slæmt að missa niður 6 marka forskot í síðari hálfleik en einhvem veginn fannst mér aldrei aö við myndum tapa þessum leik. Ég get ekki neitað því að tilkoma Titovs í vömina breytti henni til batnaðar. Hann er ekki í góðu formi og það má segja að hann hafi spilað þennan leik meira að vilja en mætti. Hann sýndi ótrúlegan kartakter og hjálpaði okkur mjög mikið. Ég met möguleika okkar á að klára þetta einvígi til jafns á við FH. Ég vona þessi odda- leikur verði jafn og spennandi og að betra liðið vinni,“ sagði Guð- mundur Guðmundsson, þjálfari Fram. „Framarar áttu skilió aó vinna þennan leik. Þeir voru betri og voru með fmmkvæðið allan tímann. Við náðum að vísu að jafna í seinni hálfleik en við náðum ekki að nýta það tækfifæri sem við feng- um til að komast yfir. Sóknarleikurinn í fyrri hálfleik varð okkur eig- inlega að falli. Hann brást illa og þeir skoruðu auðveld mörk úr hraða- upphlaupum á okkur. Framarar vom að spila góða vörn en sóknar- menn mínir voru of ragir og ógnuðu ekki nóg. Þess vegna komu ekki þessi færi sem við vorum að fá í fyrsta leiknum. Við eigum heihnikið inni en þrátt fyrir það tel ég möguleika Framara á að komast í úrslit- in meiri en hjá okkur. Viö höfum samt ekki sagt okkar síðasta orð,“ sagði Kristján Arason, þjálfari og leikmaður FH, við DV eftir leikinn. -GH Rússinn Oleg Tiov hefur ekki sagt sitt síðasta orð í ís- lenskum handknattleik eins og margir héldu en þessi frábæri leikmaður hefur verið meira og minna frá í allan vetur vegna bakmeiðsla. Frammi- staða hans í vörn Framara vó þungt á metunum þegar þeir bláklæddu mættu í Kaplakrik- ann og lögðu FH-inga, 23-25, í öðrum leik liðanna í undanúr- slitun Nissandeildarinnar í handknattleik á laugardaginn. Þar með náðu Framarar að knýja fram oddaleik sem háð- ur verður í Safamýrinni í kvöld. Titov hóf þó leikinn ekki vel. Hann brenndi af vítakast í upphafi leiks en það breytti því ekki að Framarar mættu vel stemmdir til leiks og skor- uðu 3 fyrstu mörkin. En segja má að það hafi verið lán í óláni fyrir Framara þegar Björgvin Björgvinsson fékk að líta sína aðra brottvísun um miðjan fyrri hálfleik en hann hafði fram að því leikið í miðju vamarinnar. Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Fram, tók þá til bragðs að skella Titov inn í vömina í stöðu Björgvins og þetta her- bragð Guðmundar lukkaðist vel. Tiotv kom inn á í stöðunni 6-6 og Framarar náðu að breyta stöðunni í 11-6, sér í vil. FH-ingum gekk illa að finna glufur á sterkri 6:0 vöm Framara sem skilaði Safamýr- arliðinu nokkmm hraðaupp- hlauðum í fyrri hálfleik. Framarar virtust ætla að sigla örugglega fram úr FH- ingum í síðari hálfleik og það fór um margan stuðnings- mann FH þegar staðan var orðin 12-18 í upphafi seinni hálfleiks. En eins og í mörgum leikjum úrslitakeppninnar urðu miklar sviptingar þegar á seinni hálfleikinn leið. Með gríðarlegri baráttu og snjöll- um leik Vals Arnarsonar náðu FH-ingar að jafna metin í 19-19 með marki Guðjóns Ámason- ar 14 mínútum fyrir leikslok. Jöfnunarmarkið skomðu FH- ingar tveimur leikmönnum færri og í næstu sókn Framara var dæmdur ruðningur á Björgvin. FH-ingar virtust vera á leið að snúa töpuðum leik sér í vil en Framarar vom ekki á sama máli. Þeir spýttu í lófana og komust í þriggja marka forskot þegar 6 mínút- ur vom til leiksloka og þá foyrstu létu þeir ekki af hendi. Það var einkum og sér í lagi sóknarleikurinn sem varð FH- ingum að falli í þessum leik en þeim gekk illa að eiga við 6:0 vöm Framara. Guðjón Áma- son, lykilleikmaður FH-liðsins í úrslitakeppninni, náði sér aldrei á strik og sömuleiðs Knútur Sigurðsson sem komst ekki á blað. Þessu máttu FH- ingar alls ekki við. Láras Long hélt heimamönnum á floti í fyrri hálfleik og í þeim síðari tók Valur Amarson við. Vörn FH-inga var góð á köflum, þó ekki eins sterk í undanfómum leikjum, og Magnús Árnason stóð fyrir sínu í markinu. Framarar mættu í Kaplakrika til að selja sig dýrt og það gerðu þeir svo sannar- lega enda bauð staðan ekki upp á annað fyrir þá. Vömin með Titov sem besta mann var aðail liðsins og þá var Sebasti- an mjög traustur á milli stang- anna. Guðmundur Helgi Páls- son og Björgvin Björgvinsson léku vel í sókninni og Gunnar Berg Viktorsson sýndi allt annan og betri leik heldur en í fyrsta leik liðanna í Safamýri. Margir höfðu á oröi eftir þann leik að Fram-liðið væri karakt- erlaust og baráttulaust en þá hluti afsönnuðu leikmenn Fram í þessum leik. Með til- komu Titovs og sigursins í Kaplakrika hljóta leikmenn Fram að öðlast aukið sjálfs- traust sem getur orðið þeim dýrmætt veganesti í slag lið- anna i í kvöld þar sem blóð, sviti og tár munu sjálfsagt renna í stríðum straumum á fjölum íþróttahússins í Safa- mýri. -GH í úrslitin gegn Fram eða FH eftir sigur gegn Haukum í gærkvöld, 30-22 Afturelding tryggði sér í gærkvöld sæti í úrslitum úm íslandsmeistaratitilinn i handknattleik með þvi að sigra Hauka í þriðju viðureign liðanna, 30-22, að Varmá í Mosfellsbæ. Það ræðst í kvöld hverjir verða mótherjar Aftureldingar í úrslitum eftir viðureign Fram og FH í Framhúsinu. Haukar áttu ekkert svarl við stórkostlegum varnarleik Aftureldingar. Mosfellingar mættu fullkomlega tilbúnir í leikinn og höfðu undirtökin frá upphafi til enda. Mosfellingar skoruðu fyrsta mark leiksins, Haukar jöfnuðu metin, og siðan ekki söguna meir. Heimamenn áttu leikinn það sem eftir lifði, sýndu allar sínar bestu hliðar. Sóknarleikurinn var í öllum regnboganslitum. Bjarki Sigurðsson átti hreint stórkostlegan leik, skoraði ellefu mörk úr tólf skotum, varði þrjú skot í vörninni og átti fjórar stoðsendingar. Varnarleikur Aftureldingar var gríðarlega þéttur pog þegar Mosfellingar hafa fyllt slíkan múr þá hlýtur markvarslan að fylgja og það vantaði ekkert á það hjá Bergsveini Bergsveinssyni sem varði 28 skot og þar af eitt vitakast. Mosfellingar ekki auðunnir í þessum ham Aftureldingarliðið er ekki auðunnið í þessum ham. Haukarnir máttu síns lítils gegn Mosfellingum. Þeir lentu fljótlega fimm mörkum undir og náðu aldrei að vinna sig út úr því. I hálfleik munaði átta mörkum en í byrjun síðari hálfleiks breyttu þeir vörninni í 3-3 sem skilaði þremur mörkum í röð en lengra komust þeir ekki og urðu að lokum að sætta sig við átta marka ósigur. Þremur Haukamönnum fengu kælingu á sömu mínútunni og má segja að þá hafi allir möguleikar liðsins verið úr sögunni. Bjarki Sigurðsson og Bergsveinn Bergsveinsson fóru fremstir í flokki Aftureldingar og áttu stóran þátt í þessum glæsta sigri. Liðið í heild sinni lék geysilega vel og það án Gintaras sem hefur stjórnað leik liðsins eins og herforingi í allan vetur. Hnna kom ekkert við sögu í leiknum eftir meiðslin sem hann hlaut í öðrum leik liðanna í Hafnarfirði á föstudaginn var. Óvíst er hvort hann verður leikfær í næsta leik en hvíldin fékk hann gær. Breidinn er mikil í Aftureldingar-liöinu en það kom berlega í ljós í gærkvöld. Stöðu Gintarars tók Maxim Trúafn og gerði það með miklum sóma. Það fer tvímælalaust framtíðarmaður í liðinu. Vörnina var frábær og átti sér stað mikil fótavinna en menn voru á fullu allan leikinn. Haukarnir fundu sig engan veginn Óskar Ármannsson var þeirra besti maður og Þorkell Magnússon var ágætur. Markmennirnir komust aldrei í takt við leikinn. Vörnin var hriplek i fyrri hálfleik og í hálfleik var munurinn þvílíkur að þeir áttu ekki viðreisnar von. Það munaði mikið um það að þeir Halldór Ingólfsson og Einar Jónsson náðu sér ekki á strik. -ih Inn a reynslubankann „Við vorum aldrei tilbúnir í þennan leik. Afturelding átti toppleik frá byrjun en við fundum ekki taktinn í fyrri hálfleik. Við komum mjög vak- andi i seinni hálfleik, minnkuðu muninn í fjögur mörk og þeir voru orðn- ir taugastrektir. Við fengum þá þrjá brottrekstra í röð og leikurinn var bú- inn. Strákamir em búnir að setja heilmikið inn á reynslubankann, reikn- uðu fáir með okkur svona langt og við verðum með sterkara lið á næsta vetri. Við verðum tilbúnir þá,“ sagði Guðmundur Karlsson, þjálfari Hauka ,eftir leikinn í Mosfellsbæ. -ÓÓJ Þetta var bara forsmekkurinn „Þetta var frábær leikur hjá okkur og nú héldum viö út all- an leikinn. í fyrsta leiknum leystum við ekki vömina, í öðr- um leiknum aðeins í 30 mínútur en nú spiluðum við vömina í 60 mínútur og þetta er vömin sem við ætlum að spila í kom- andi leikjum. Við höfum verið vaxandi í hverjum leik og þetta er forsmekkurinn af því sem koma skal. Ég hef meiri trú á Fram í kvöld en þó eiga FH-inga alveg eins möguleika," sagöi Skúli Gunnsteinsson, þjálfari Aftureld- ingar, brosandi út að eyrum eins og flestir Mosfellingar eftir frábæran leik. -ÓÓJ Frábær heimavöllur í Mosó „Þetta var fantagóð vöm, troðfullt hús, og það gekk allt upp. Þegar 6- 0 vömin virkar eins og í dag áttu þeir ekki möguleika," sagði hetja Aft- ureldingar Bergsveinn Bergsveinsson. Aðspurður um hvort hvort Fram eða FH fari áfram í kvöld, svaraði Bergsveinn. „Ég vil ekki óska neinu liði tapi í undanúrslitum og þvi bara að vona að betra liðið vinni leikinn í kvöld. Þessi leikur sýnir okkur að við erum með rosalega góðan heimavöll, þar sem við erum enn taplausir í úrslitunum og við höfum frábært fólk hér í Mosfellsbænum sem styður við bakið á okkur. -ÓóJ - gerði gæfumuninn þegar Fram tryggði sér oddaleik með sigri gegn FH í Kaplakrika, 23-25 Oleg Titov

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.