Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1999, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1999, Blaðsíða 2
20 MÁNUDAGUR 12. APRÍL 1999 íþróttir Stuttar fréttir frá US Masters Þeir kylfingar sem ekki hittu brautirnar á Augusta Natinoal áttu ekki von á góðu. Grasið fyrir utan brautirnar, röffið, var nú helmingi hærra en það hefur verið síðustu 30 árin. Greg Norman stóð sig frábærlega á Masters. Á þriðja degi lenti hann í þeirri óvenjulegu stöðu að bolti hans týndist á 12. braut. Leitað var i leyfilegar fimm mínútur en það bar ekki árangur. Norman mátti láta sig hafa það að ganga aftur á teiginn og og slá þriðja högg af teig á par 3 holunni. Högg hans hafnaði á flötinni, um 8 metra frá holunni, og „hvíti hákarlinn" setti púttið niður og lék holuna þar með á fjórum höggum. Lee Janzen lék með Norman í holli á þriðja degi og hann tók virkan þátt í leitinni að bolta Ástralans. Steve Pate setti nýtt met á US Masters á þriðja deginum. Hann lék þá sjö holur í röð á höggi undir pari. Ósköpin byrjuðu á 6. holu og enduðu á þeirri 13. Völlurinn glœsilegi í Augusta tekur að- eins 30 þúsund manns og komast færri að en vilja. Mjög erfitt er að fá aðgöngumiða á US Masters sem alltaf fer fram á þessum glæsi- lega velli. Ekkert gekk hjá Bretanum Nick Faldo, einum besta kylfingi heims til margra ára. Faldo lék fyrsta hringinn á átta höggum yfir pari og þar með draumurinn búinn. Faldo komst ekki í gegnum niðurskurðinn frekar en margir aðrir þekktir kylfingar. Nick Price frá Simbabve var lengi vel í baráttunni og hann sannaði að hann er enn í fremstu röð í heiminum. Price setti vallar- met á Augustavellinum árið 1986 en þá lék hann á aðeins 63 höggum. Price hafnaði þá í 5. sæti sem er hans besti árangur á US Masters. Nokkrar breytingar höfðu verið gerðar á Augusta National-golfvellinum fyrir US Masters. Grasið utan brauta var mun hærra en áður og 17. brautin var lengd um 20 metra. Þær breytingar sem búið er að gera á vellinum komu í kjölfar sigurs Tigers Woods á US Masters árið 1997 en Tiger Woods lék þá á 18 höggum undir parinu. Lengingin á 17. brautinni hefur mikil áhrif á leik kylfmga þar og tré á brautinni spila þar stórt hlutverk. Eins og í fyrra byrjaði keppnin á US Masters með óveðri, rigningu og þrumu- veðri. Síðustu tvo dagana lék veðrið við kylfingana sem komust í gegnum niður- skurðinn en þó var nokkuð misvindasamt um tima. -SK Bland í poka Wuppertal tapaði fyrir Essen, 19-21, í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Geir Sveinsson skoraði 3 mörk fyrir Wuppertal, Valdimar Grímsson 2 og Dagur Sigurósson 1. Kiel vann Niederwurzbach, 17-26. Á laugardag sigraði Dutenhofen lið Eisenach, 28-23, og skor- aði Robert Duranona fimm mörk fyrir Eisenach. íslenskir knattspyrnumenn voru í sviðsljós- inu í norsku knattspymunni sem hófst í gær. Stabæk sigraði Skeid, 5-0, og skoraði Helgi Sig- urðsson eitt marka Stabæk í leiknum. Rúnar Kristinsson skoraði eitt mark fyrir Lilleström sem sigraði Brann, 3-1. Strömsgodset sigraði Kongsvinger, 2-1. Valur Fannar og Stefán Gíslasynir léku báðir með Strömsgodset. Steinar Adolfsson og Stefán Þóróarson voru með Kongsvinger. Vik- ing tapaði fyrir Odd Grenland, 1-2, og lék Auöun Helgason með Viking. Rosenborg vann stórsigur á Moss, 5-0, og var Árni Gautur Arason á bekknum hjá Rosenborg. Það verða Celtic og Glasgow Rangers sem leika til úrslita í skosku bikarkeppninmni í knattspymu. í undanúrslitunum um helgina sigraði Celtic lið Dundee United, 2-0, og Rangers sigraði St. Johnstone, 4-0. -JKS DV Jose Maria Olazabal frá Spáni var nánast öruggur um að sigra á US Masters rétt í þann mund er DV fór í prentun. Þá var aðeins ein hola eftir. Reuter US Masters lauk undir miðnætti í nótt: - hafði örugga forystu þegar aðeins ein hola var eftir Jose Maria Olazabal frá Spáni var nánast öruggur um sigur á US Masters stórmótinu í golfi sem lauk í Bandaríkjunum skömmu eftir að DV fór í prent- un. Olazabal lék 71 holu á 8 högg- um undir pari og átti þá aðeins eina holu eftir. Davis Love var þá í öðm sæti á 6 höggum undir pari og Greg Norman þriðji á 5 höggum undir pari og enn hefur honum ekki tekist að sigra á þessu stóra móti þrátt fyrir að hafa nokkrum sinnum verið mjög nálægt því. Steve Pate varð í fjórða sæti. Enginn kylflngur sló verulega í gegn á lokadeginum í gær. Mik- il taugaspenna var I gangi og inn á milli snilldartilþrifa sáust af- drifarík mistök. Lengi vel leit út fyrir einvígi um sigurinn á milli Gregs Norm- ans og Jose Maria Olazabals. Þeir voru efstir og jafnir eftir þriðja hring og léku saman í síð- asta holli í gær. Norman náði erni á 11. holu og komst einu höggi fram úr 01- azabal en Spánverjinn gafst ekki upp. Norman gaf eftir og þegar þeir komu á 16. teig var staðan þannig að Olazabal hafði tveggja högga forystu. Jafn Norman i þriðja sætinu var þá Steve Pate. Olazabal lék mjög vel á lokakafl- anum og sigur hans var nokkuð öi’uggur. Oft hafa kylfingar sýnt betra golf á US Masters en hægt er að fullyrða að sjaldan eða aldrei hefur spennan verið meiri. -SK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.