Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1999, Page 9
MÁNUDAGUR 26. APRÍL 1999
31
DV
Sport
Fyrstu kynbótadómar sumarsins
hefjast í Gunnarsholti á morgun,
þriðjudag. Dæmdar verða hryssur
fyrsta daginn ásamt ungfolum sem
fara í byggingardóm en á miðviku- og
fimmtudag verða dæmdir stóðhestar.
Yfirlitssýning verður á fimmtudag eft-
ir hádegi. Á laugardaginn verður hin
hefðbundna sýning stóðhesta á vellir-
um í Gunnarsholti og má búast við
margmenni.
Þó svo að margir hrossaeigendur
ætli að fara varlega í sýningum þetta
árið en setja á fulla ferð á næsta ári
vegna landsmóts í Reykjavík eru aðr-
ir sem ætla að láta reyna á nýjan
landshrossaræktarráðunaut, Ágúst
Sigurðsson.
Oft hefur verið kurr meðal
umsjónarmanna hrossa
í Gunnarsholti eftir
fyrsta dómsdag og
nú bíða menn
spenntir eftir
því hvað
gerist.
Þórður
Þor-
geirsson hefur ávallt verið með tugi
hrossa í kynbótasýningum á hverju
ári. Hann er með 2/3 stóðhestastöðv-
arinnar á leigu og mun sýna nokkra
stóðhesta í Gunnarsholti.
„Ég er mest með unga hesta nú,
engan sex vetra hest eða eldri,“ segir
Þórður. „Stóri munurinn á þessu ári
og öðrum er að margir eldri hestanna,
sem voru sýndir á landsmótinu á Mel-
gerðismelum, eru ekki í þjálfun nú og
menn leggja meiri áherslu á ungu
hestana. Það er rosaleg spenna vegna
nokkurra fjögurra vetra
hesta frá því
í fyrra, hesta sem voru sýndir á lands-
mótinu og lofuðu góðu. Þar má nefna
Hrafn frá Garðabæ, Ganta frá Hafnar-
firði, Væng frá Auðsholtshjáleigu, Þór
frá Prestsbakka, Keili frá Miðsitju og
Dyn frá Hvammi. Ég er með tvo efni-
lega Orrasyni og albróður Hams frá
Þóroddsstöðum og vonast eftir góðri
útkomu hjá þessum hestum. Annar
Orrasonanna er Stæll frá Miðkoti, al-
hliða hestur undan Elju frá Kirkjubæ,
sem er sammæðra Rauðhettu frá
Kirkjubæ en þær eru undan Brönu
frá Kirkjubæ. Elja er móðir stóðhests-
ins Demants frá Miðkoti. Þetta er
hörkufoli og stefnir í að verða alvöru-
hestur. Spennandi eintak. Dynur frá
Hvammi er fimm vetra, undan Orra
og Djásn frá Heiði. Ég geri mér mikl-
ar vonir með Dyn.
Þymir frá Þóroddsstöðum er al-
bróðir Hams frá Þóroddsstöðum, und-
an Galdri og Hlökk frá Laugarvatni.
Hann er mjög efnilegur og athyglis-
verður og ekki
ósvipaður Hami í útliti. Nú verður
smábreyting á sýningunum hjá okk-
ur. Við höfum alltaf sýnt hægt tölt svo
það hefur engin áhrif á sýninguna þó
svo að sérstaklega verði gefið fyrir
hægt tölt en fetið er óráðin gáta. Við
fáum að fara sex ferðir fram og til
baka og er ætlað að hægja niður á fet
eftir þrjár ferðir á ákveðnum stað og
ríða fet fyrir framan dómarana og
taka hestinn af feti á annan gang,“
segir Þórður Þorgeirs-
son.
■
Geysismenn
klára vetrarmót
Geysismenn heldu ný-
lega þriðja og siðasta vetr-
armót sitt. Rúmlega fjöru-
tíu knapar mættu til leiks,
þar af 13 börn.
Hekla K. Kristinsdóttir
sigraði í barnaflokki á
Fána frá Hala en faðir
hennar, Kristinn Guðna-
son, keppti töluvert á
Fána fyrir nokkrum
árum. Katla Gísladóttir á
Leirubakka var stigahæst
í barnaflokki eftir þrjú
vetrarmót. í unglinga-
flokki sigraði Rakel Ró-
bertsdóttir á Ferju frá Ási
en hún varð einnig stiga-
hæsti knapi eftir þrjú
vetrarmót. Hermann Inga-
son sigraði í flokki fullorð-
inna á stóðhestinum
Kveldútfi frá Kjarnholt-
um. Sigurður Sigurðarson
varð stigahæstur knapa í
flokki fullorðinna á Grýlu
frá Árbakka.
Verðmesti
stóðhestur
landsins, Orri frá
Þúfu, gisti á
Stóð hestastöði n n i
í Gunnarsholti við
sæðisaftöppun.
DV-mynd E.J.
Stóðhestalandsliöiö gistir á stöðinni
Stóðhestar að verðmæti milli 150 og 200 milljónir króna gistu
í Stóðhestastöðinni í Gunnarsholti í síðustu viku við sæðistökur.
Það má segja að stóðhestalandsliðið hafi verið þar á ferðinni.
Þar voru þeir feðgar Orri frá Þúfu og faðir hans, Otur frá'
Sauðárkróki, Hrynjandi frá Hrepphólum, Óður frá Brún, Toppur
frá Eyjólfsstöðum, Gustur frá Hóli, Sproti frá Hæli, Galsi frá
Sauðárkróki, Tývar frá Kjartansstööum og Hamur frá
Þóroddsstöðum.
Auk þeirra komu nokkrir aðrir stóðhestar í lengri eða
skemmri tíma. Aðstaða til sæðistöku er mjög góð og hefur verkið
gengið vel. Sæðistaka eykur möguleika hryssueigenda á að fá
folold undan þekktum stóðhestum því skammtarnir eru fluttir
milli landshluta þó svo að hestamir dvelji heima í héraði. -EJ
Þórður velur knapalandslið
Þekktir knapar verða í sumar beðnir að velja sterkasta
landslið íslands fyrir heimsmeistarakeppnina í Þýskalandi fyrir
hestasíðu DV.
Valdir verða sjö knapar með hesta. Miðað er við þann lykil
sem landsliðsnefnd hefur valið auk tveggja knapa að eigin vali.
Þórður Þorgeirsson ríður á vaðið. Hann hefur valið eftirtalda
knapa og hesta: Ásgeir S. Herbertsson með Farsæl frá Amarhóli,
Hans F. Kjerúlf með Laufa frá Kollaleiru, Atla Guðmundsson
með Orm frá Dallandi, Loga Laxdal með Gráblesu frá Efsta-Dal,
Guðmund Einarsson með Ótta frá Miðhjáleigu, Olil Amble með
Kjark frá Horni og Svein Ragnarsson með Reyk frá Hoftúnum.
Allt eru þetta þekktir knapar og margir íslandsmeistarar.
Hestamir eru ekki síður þekktir. -EJ
Þórður Þorgeirsson
velur Laufa frá
Kollaleiru og Hans
F. Kjerúlf í landsliðið
sem keppir á heims-
meistaramótinu í
Þýskalandi.
DV-myndir E.J.
Kjarkur frá Egiis-
staðabæ er einn
þeirra stóðhesta
sem hafa komið
frá hrossaræktend-
um á Austurlandi.
Hann var sýndur á
síðasta fjórðungs-
móti í Stekkhólma.
Knapi er Vignir Sig-
geirsson.
Keppt verður í öllu á Stekkhólma
Þegar ákveðið var á landsþingi Landssambands hestamanna-
félaga að halda landsmót annað hvert ár í stað landsmóts á fjög-
urra ára fresti var gefinn sá möguleiki að hestamenn á Austur-
landi og Vesturlandi héldu fiórðungsmót milli landsmóta.
Hestamenn á Austurlandi ætla að nýta sér þennan möguleika
í sumar og halda þriggja daga fiórðungsmót á Stekkhólma 2.-4.
júlí. „Við verðum með allar keppnisgreinar á Stekkhólma," seg-
ir Sigfús Þorsteinsson, formaður Freyfaxa. „Þama verða sýnd
kynbótahross, gæðingar og svo verður opin töltkeppni. Freyfaxi
og Hrossaræktarsamtök Austurlands standa að mótshaldi en
mótið er opið öllum hestamönnum, frá Hornafirði norður í
Vopnafiörð. Ef til vill verða sýndir afkvæmahópar og ræktunar-
bú. Frá stærri hestamannafélögunum koma 6-7 gæðingar en 1-2
frá minni félögunum." -EJ