Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1999, Side 10
32
MÁNUDAGUR 26. APRÍL 1999
Sport
i>v
Italski öku-
þórinn Alex
Zanardi fékk
blíðar við-
tökur hjá
kvenfólkinu í
Formúlu 1
keppninni í
Ástralíu.
Þegar á
hólminn var
komið gat
ítalinn lítið
sem ekkert
og hefur
ekki lokið
keppni á
tímabilinu
frekar en
Coulthard
og Damon
Hill.
Reuter
David
Coulthard hefur ekki
átt sjö dagana sæla á kappaksturs-
brautinni það sem af er keppnistímabilinu.
Harvey Postlethwait, fyrrum
aðalhönnuður Tyrrell-keppnis-
liðsins, lést í síðustu viku,
aðeins 55 ára að aldri. Hann
hafði að undanfórnu unnið með
Honda sem hefur í hyggju að
mæta með sitt eigið keppnislið í
Formúlu 1 á næsta ári.
Mika Salo, ökumaður Arrows á
síðasta ári, hefur verið beðinn
um að
vera við-
búinn ef
Ricardo
Zonta,
sem
| slasaðist á
æfingu í
Brasilíu
um sið-
ustu helgi,
meiðslanna
Ricardo Zonta.
verður frá vegna
sem hann hlaut.
Harvey Postlethwait var hjá
Tyrell í sjö ár, eða allt þar til
BAR keypti upp liðið. Hann
kom fram með margar róttækar
hugmyndir í hönnun sinni og sú
síðasta hin seinni ár voru hinir
svokölluðu „ Tyrell-turnar “
sem flest lið prófuðu á síðasta
ári en voru svo bannaðir af FLA.
Þar sem Honda hefur verið
tvístígandi um hvort rétt sé að
smíða sinn eigin bíl getur fráfall
Postlethwaits sett stórt strik í
útreikninga fyrirtækisins. Verð-
ur það að teljast frekar líklegt
að fráfaO þessa einstaka
hönnuðar dragi úr líkum á því
að Honda mæti með sitt eigið lið
í Formúlu 1 á næsta ári.
Þriója Formúlu 1 keppnin
nálgast en hún fer fram í San
Marino um næstu helgi. Eddie
Irvine er með nauma forystu og
mun eflaust gera allt til að halda
efsta sætinu í stigakeppninni.
Keppnin verður spennandi því
margir ökumenn verða að ná
góðu sæti.
Eddie Irvine.
Skotinn David Coulthard er undir miklu
álagi eins og aðrir ökumenn Formúlu 1
sem ekki hafa enn séð endamarkið
í Formúlu 1 eru menn
fljótir að gleyma og að
gera nýjar ályktanir um
getu og stöðu manna.
Nú eru þrír hátt
skrifaðir ökumenn sér-
staklega á milli tannanna
á áhugamönnum um
Formúlu 1 fyrir slakan ár-
angur. Mikið er rætt um
hugsanlegan árangur þeirra
í næstu mótum og hvemig
þeim muni ganga þegar líður
á keppnistímabilið. Þessir
þrír ökumenn eru David
Coulthard, Damon Hill og Alex
Zanardi.
Hafa ekki klárað mót
enn þá
Enginn þeirra þriggja öku-
manna sem áður eru nefndir hef-
ur klárað þau tvö mót sem haldin
hafa verið, í Melboume i Ástralíu
og Interlagos í Brasilíu, og hefúr
álag á ökumennina aukist með
hverjum degi undanfarið. Itrekað
hefur verið greint frá döprum árangri
þeirra í fjölmiölum og einnig era þre-
menningarnir undir miklu álagi frá
keppnisliðum sínum.
David Coulthard, félagi Mika Hakkinen
síðan árið 1996, sagði í upphafi tímabils-
ins að nú myndi röðin vera komin að
honum að leiða McLaren-keppnisliðið
til sigurs. Hann myndi fá sams kon-
ar stuðning frá Hákkinen og hann
veitti félaga sínum seinnipart
ársins í fyrra.
Ron Dennis, keppn-
isstjóri McLar-
ens, sagði
hins
veg-
ar
að Coulthard væri með besta bílinn á brautun-
um og hann yrði að spila úr því sem hann hefði,
rétt eins og Hákkinen.
Hreint borð í upphafi tímabiisins
Eftir að báðir McLaren-bílamir biluðu í Ástr-
alíu, eftir að Hákkinen hafði leitt keppnina ör-
ugglega, en allt of stutt, fékk Coulthard annað
tækifæri þegar röðin kom að Brasilíu.
Coulthard sem er, eins og flestir vita, öku-
maður númer tvö hjá McLaren, æfði mun meira
en Hákkinen í vetur, bæði aksturinn og í
íþróttasal. Hann stefndi ótrauður að markmiði
sínu en eftir að hafa misst af besta rásstað í
Melbourne í hendur félaga síns varð hann að ná
góðum árangri í Brasilíu. Hann missti af
Hákkinen með 0,147 sek. mun.
Þá var að gera betur en Mika í rásmarkinu.
En Coulthard drap á Mercedes Benz-vél sinni á
því augnabliki sem allir hinir ökumennimir
brunuðu af stað. Mika Hákkinen leiddi hópinn
en lenti í vandræðum sem hann sigraðist þó á
og endaði sem sigurvegari keppninnar. Þar með
leiöir Mika Hákkinen annað árið í röð besta
keppnisliðið í Formúlu 1 í dag, að margra mati.
„Mjög vonsvikinn með engin stig“
„Ég er mjög vonsvikinn með að hafa ekki
unnið mér inn nein stig eftir þessar tvær keppn-
ir. Sérstaklega er ég óánægður þar sem stigin
lágu á borðinu," segir Coulthard sem hefur
þurft að hætta í báðum keppnunum hingað til
vegna bilana.
„Það er ekki til neins að vera að nöldra yfir
þessu vélarbilunum. En þetta era vonbrigði, því
er ekki hægt að leyna. Það verður oft að gefa
eitthvað í staðinn fyrir hraðskreiðan bil.“
Michael Schumacher er hins vegar á þeirri
skoðun að Coulthard verði töluvert meiri ógn
en hann var á síðasta ári. „Hann keyrir mun ör-
uggar og hraðar en á síðasta ári,“ segir
Schumacher.
-ÓSG