Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1999, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1999, Side 11
MÁNUDAGUR 26. APRÍL 1999 33 Sport Blcmd í poka Þessi mynd var tekin fyrir nokkrum dögum en þá voru þeir Hjörleifur Hilmarsson og Páll Kári Pálsson að undirbúa bílinn fyrir átök sumarsíns. Gaman verður að fylgjast með þeim félögum á þessum öfluga bfl. DV-mynd ÁS Og svona litur Mitsubishi- bfllinn út fullskapaður fyrir rall. Bíll þeirra Hjörleifs og Páls Kára verður í mjög svip- uðum dúr og þessi bíll. Reuter Styttist í að keppnistímabilið í ralli hefjist: Hjörleifur og Páll á nýjum bíl í sumar Keppnistímabil rallökumanna er skammt undan. Fyrsta rali sumarsins er á dagskrá í næsta mánuði og öku- menn eru í óðaönn þessa dagana að búa sig undir strangar keppnir sum- arsins. Hjörleifur Hilmarsson og Páll Kári Pálsson verða með í baráttunni í sum- ar og mæta til leiks á íiýjum bíl. Sá er af gerðinni Mitsubishi Lancer. í viðtali við Hjörleif, eiganda bílsins, kom fram að fyrir utan veltibúrið er hann algjörlega óbreyttur frá verk- smiðju og er þannig flokkaður í grúppu N. Bíllinn er einn af 5000 sérsmíðuðum verksmiðjurallbílum sem Mitsubishi þarf sannanlega að framleiða til að geta keppt til heimsmeistara í rall- akstri. Sams konar bíl, en talsvert breyttum og öflugri sem flokkast i grúppu A, aka íslandsmeistararnir, þeir Páll Hall- dórsson og Jóhannes Jóhannesson. Hjörleifur hefur undanfama viku verið að koma veltibúrinu, sem þarf að vera af öflugustu gerð, fyrir í bílnum og er það mikið verk. Hluta þurfti bíl- inn í sundur að nokkru leyti en búrið liggur t.d. í gegnum hvalbak og tengist bæði fram- og afturfjöðrunartumum. Það er soðið í með viðkomu hér og þar, er með öflugum hliðarstífum og skapar feiknastyrk. Er ekki laust við að það minni mann á framskóga Amason og sem slíkt á það vafalaust eftir að vekja með áhöfninni öryggiskennd ekki síð- ur en vel auglýst dömubindi. Helstu styrktaraðilar þeirra Hjör- leifs og Páls í sumar verða Hekla hf., Alpine (Nesradíó), STP Purolator Autoglym Egr (Filtertækni), en áætlað er að rekstrarkostnaður sumarsins nemi allt að tveimur milljónum króna. Bráðnandi málning og brennandi olfa Aðspurður um áætlaðan árangur í sumar var Hjörleifur ekkert nema hæverskan. Sagðist þurfa að læra á bíi- inn í fyrstu keppni og fikra sig svo áfram í ágætan árangur yfir sumarið. Ég á bágt með að sjá mann eins og Hjörleif með 20 ára rallreynslu aka þessum 280 hestafla nýja bíl eins og barnavagni í sumar. Ekki síst vegna þess að hann hefur sennilega enga til að keppa við í sínum flokki og þarf því að snúa sér að öflugri keppinautum. Hjörleifur er enginn nýliði, hefur hald- ið sér við með keppni í Norðdekkflokki síðasta ár. Fyrir þrett- án áram var hann þekkt- ur fyrir að klára sér- leiðir á heimasmíð- aðri 150 hestafla Toyotu með bráðnandi málningu á felgum og sjóðandi olíu í vélarpönnu. Páll Kári er eld- skírður eftir samstarf við Steingrím Ingason og unir sér því illa í göngu- deild. Mín skoðun er að þessi ófiktaða framleiðsla Mitsubishi ásamt áhöfn verði erfið viðureignar í sumar. Það verður hvatning að Mitsubishi er ekki bara íslandsmeistari heldur líka heimsmeistari í rallakstri. -ÁS Hreint ótrúlegur sigur Franskir ökumenn, Phillippe Bugalski og aðstoðarökumaður hans, Jean Paul Charoni, unnu hreint ótrúlegan sigur í katalónska rallinu á dögunum en keppnin gefur stig til heimsmeistaratitils. Það sem gerir sigur Frakkanna sérstakan er að þeir óku Citroén-bifreið sem einungis er með drif á öðrum öxlinum. Til þessa hafa fjórhjóladrifnir bOar einokað helstu rallkeppnir og langt er síðan að Citroen-bíll hefur sigrað í svona stórri keppni. Frakkarnir ánægðir á verðlaunapallinum. Reuter Þeir Asgeir Sigurðs sott og Bragi Guómunds- son munu sjá um að flytja lesendum DV fréttir af ís- lensku ralli í sumar. Þeir félagar eru áhugamönn um um réill að góðu kunn- ir en þeir óku Metróbíl sínum til íslands meistaratitils ár eftir ár. Rúnar Jónsson og Jón E. Ragn- arsson era að reyna að selja Subaru- rallbíl sinn þessa dagana erlendis. Þeir feðgar verða hins vegar með í sumar, annaðhvort á nýjum bíl eða gamla Subarubílnum ef hann selst ekki. Akstursíþróttafélag Suðurnesja, AÍFS, heldur fyrsta rallmót sumarsins 14. og 15. maí. í viðtali við Garðar Gunnarsson keppnisstjóra kom fram að nýtt fyrirkomulag er í burðarliðnum varðandi alla aksturíþróttaviðburði. Samið var við ESSO, Bíla- naust, Bílabúð Benna og DV um fjármögnun keppn- ishalds, tveir menn i einu og hálfu starfi sjá um skipulag. Stjórnstöð keppnisstjórna verður sér- búin rúta. Talsverður urgur er í eigendum rallbíla sem búnir eru túrbínum. Landssamband íslenskra akstursíþrótta mun gera kröfu um að í þær verði settar löggiltar loftinn- taksþrengingar og þær innsiglaðar. Reglurnar gilda a.m.k. í heims- og Evrópumeistarakeppn- um. Við þessa aðgerð dregur úr afli og finnst sumum aðgerðin ósann- gjöm í keppni við gamla túrbínulausa bíla. Tillögur hafa verið uppi um að breyta stiga- gjöf til íslandsmeistara enn einu sinni. í mörg ár voru stigin þannig fyrir fyrstu ^ögur sætin: 20,15, 12, 10. Síðar kom inn regla þegar keppnum fjölgaði úr 5 í 6 að telja að- eins 5. Enn síðar var al- þjóðlegu keppninni gef- ið tvöfalt vægi. Næst var stigagjöf- inni breytt í: 20,17,15,13 og vægi alþjóð- legu keppn- innar minnk- að í eitt og hálffalt. Ekki er ljóst hvort reglurnar eru breyttar fyrir sumarið en til- laga um að hafa stigin: 10, 6, 5, 4, eins og í Formúlu 1 og heims- meist- ararallkeppn- um mun ekki hafa hlotið hljómgrunn. -ÁS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.