Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1999, Qupperneq 9
Helgi Björnsson er ekki bara rokkari
og leikari. Hann er kóngurinn í sínum
bransa. Sólin búin að vera að hamast
þetta í 11 ár og „Best Of“ plata
væntanleg. Helgi er líka homminn í Rent
þriggja barna faðir, einnar konu maki
í 22 ár og kartöflumóðir hvers rokkara.
Súpa og vatnsglas á Carpe
Diem, gríptu daginn. Ekkert nema
kvikmyndaplaköt og tökuvélar
uppi um allar veggi. Meira að
segja búningar úr Hrafninmn og
Dansinum. Þjónninn slurkar í
skál og glas og samræðurnar
byrja á að snúast um verstu ís-
lensku kvikmyndimar. Það segir
sína sögu um þann bransa en fljót-
lega færist umræðan yfir á Sólina.
„Vinnutitillinn er ‘88-’99,“ segir
Helgi Björnsson um „Best of‘
plötu Sólarinnar en hún kemur út
í júní og mun innihalda 40 lög.
Hvernig gengur aö velja lög á
plötuna?
„Þetta er eins og að vera að fara
I sumarfrí með börnin sín og segja
við sum: „Þú mátt ekki koma
með,““ segir Helgi og bætir því
við að það verði þrjú ný lög á þess-
ari plötu.
Skítamórall, Land og synir og
Buttercup eru Sálin í dag. Hver er
Sólin?
„Ef maður ætti að nefna ein-
hverja þá eru það helst Sóldögg.
Þeir eru svipaðir okkur í attitúti
en SkítamóraU ólst náttúrlega upp
að hluta til hjá okkur í Sólinni,"
segir Helgi og það má bæta því við
að Skítamórall er meira að segja
reynslu okkar vel og þannig á það
að vera. Sólin er ekki í samkeppni
við neinn og dúkkar bara upp til
að halda blóðstreyminu til höfuðs-
ins í réttu hlutfalli."
Hvaö meö sukkiö, var ekki mikill
hraöi á ykkur í denn?
„Menn lyftu sér upp öðru
hvoru,“ segir Helgi og glottir út í
annað. „En aðcdálagið á svona
ferðalögum um landið eru þessar
rosalegu vökur I rútunni. Þá þurfa
menn að vera uppfinningasamir
svo þeir haldi geðinu og i kjölfar-
ið verða til fyrirbæri eins og
rútusörf, sund í ísköldum ám og
fleira sem ekki má tala um.“
En geriröu mikiö íþví að vera „inn
í því nýjasta“ eóa ertu sáttur viö að
vera „bara“ gamall Rollingur?
„í gegnum tíðina höfum við
alltaf fylgst mjög vel með því sem
er í gangi og ég hugsa að við séum
oft með miklu ferskara sánd held-
ur en sum af þessum irngu bönd-
um,“ segir Helgi.
Skotinn í konunni
„Ég er kominn yfir það að kippa
mér upp við bögg,“ segir Helgi um
frægð á íslandi. „Ég er líka með
þannig attitút gagnvart umhverf-
inu að ég pæli ekkert í þessu.“
Helgi Björnsson safnar ekki úrkllppum og á ekki einu sinni plöturnar sínar. Hann lifir í núinu og flækir hvorki fortíð né
framtíð fyrir sér.
búinn að hertaka Sólar-rútuna og
hefur auk þess gert gcunla bílstjór-
ann þeirra að umboðsmanni.
Öfundaröu þá aö vera að ham-
ast þetta á fullu núna þegar þiö
hafiö róast?
„Nei. Ég er mjög sáttur við stöð-
una hjá mér og bara ánægður með
að þeir skuli hafa fengið eitthvað
inn á harða diskinn þegar þeir
spiluðu með okkur. Þeir hafa nýtt
En er ekki einhver sniöug saga til?
„Engin böggsaga. En fyrir
nokkrum helgum var ég niðri í
bæ. Klukkan hefur verið um fjög-
ur og eitthvað par stoppaði mig.
Maðurinn var með GSM-síma og
vildi endilega að ég hringdi í syst-
ur sína til að óska henni til ham-
ingju með afmælið. Ég sagði auð-
vitað já við því en þá reyndist
systirin ekki vera heima svo ég
var allt í einu lentur í hrókasam-
ræðum við mömmu hennar."
Já. Hann Helgi er örugglega
með ljúfari mönnum. Er ekkert að
láta bögg eða fólk yfir höfuð fara í
taugarnar á sér. Svo er hann líka
fjölskyldufaðir og eiginmaður. Á
tvo stráka, fimmtán og tuttugu
ára, og sex ára stelpu. Annar
drengjanna ætlar að líkjast föður
sínum. Hann komst í úrslit í Mús-
íktilraunum en sá eldri er upp-
rennandi bisnessmaður. Var að
opna pitsustað í Grafarvogi og
Helgi er auðvitað stoltur af sínum.
En hver er galdurinn á bak viö
22 ára hjónaband?
„Þetta er náttúrlega drullutöff
en ég hef verið ótrúlega heppinn
með góða konu og við höfum alltaf
náð að endurnýja funann. Það er
það mikilvægasta. Maður þarf að
vera soldið skotinn í konunni
sinni, annars gengur þetta ekki,
og þá er ekki verra að vera smáaf-
brýðisamur við og við.“
Hvaö meö góöœriö, finna popp-
arar fyrir því?
„Ég finn ekki fyrir neinu
þannig séð. Fyrir utan að þegar
við vorum að byrja þá var alltaf
svo flókið að finna sponsor og allt
slíkt. Nú gengur allt slíkt rosalega
vel. Það má vel vera að þetta teng-
ist góðæri en aðallega þó mark-
aðsvitund fyrirtækja," segir Helgi.
Stones hita upp
„Ég vinn náttúrlega mjög mikið
út frá sjálfum mér,“ segir rokkar-
inn um vinnsluaðferð leikarans
Helga Björns. „Reyni bara að
finna vissa póla í mér sem geta
mætt persónunni á miðri leið,“
heldur Helgi áfram en fyrir utan
hommann í Rent og tíkina í Rocky
þá hefur Helgi verið í fjögurra ára
pásu frá leikhúsinu.
„Það er búið að vera æðislegt að
taka þetta fri frá leikhúsinu. Mað-
ur er miklu ástríðufýllri og er að
skemmta sér mjög vel núna í
Rent.“
Er leikhús skemmtilegra en
rokk?
„Maður ræður sér ekki eins
mikið sjálfur í leikhúsinu. Maður
er soldið hlekkjaður við sviðið ef
maður er kannski í vinsælli sýn-
ingu og eina fríið er kannski 3-4
dagar við og við. En það er æðis-
lega skemmtilegt að vinna í góð-
um leikhópi og stemningin sem
myndast á milli fólks er ótrúleg.
Ég tala nú ekki um ef það er söng-
ur og svona smástuð í gangi.“
Hvaö varstu aö gera fyrir 10
árum?
„‘89. Þá hef ég örugglega veriö
að leika Ferdinand í Ofviðri
Shakespeares á móti Maríu Ell-
ingsen. Við í Sólinni höfum þá
verið að semja lög á plötuna Ég
stend á skýi. Um vorið var ég svo
að æfa sem Ólafur Ljósvíking-
ur,“ segir Helgi og nokkuð ljóst að
minni hans er óbrigðult. „Ég er
samt þannig að ég lifi i núinu. Á
til dæmis engar úrklippur og
safna ekki plötunum mínum,“
heldur Helgi áfram og bætir því
við að hann gefi meira að segja
gullplötumar frá sér.
En hvaö verðuröu aö gera eftir
10 ár?
„Ég verð á Ítalíu. Eða niðri á
torgi að fremja gjörning með
plástraðan tittling. Þetta yrði
svona hreyfiverk og ég yrði alveg
nakinn. Nema að Sólin verði bara
á Wembley og Stones hita upp.“
Hvaö með líf eftir dauöann?
„Ég hef lengi verið á þeirri skoð-
un að maður fái einhvern séns eft-
ir dauðann. En ég er aðeins að
hverfa frá því og væri alveg eins
opinn fyrir því að það verði bara
klippt á og ég fari í frí.“
-MT
28. maí 1999 f ÓkUS
9