Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1999, Síða 14
CELL 5UPER FLY Kr. 8.990,-
TORNRDO Kr. 3.990,-
DEVY UJOMEN'5 Kr. 5.990,-
COMFORT LEHTHER Kr. 6.990,-
Tákn - Húsavík
pumfiL
f Ó k U S 28. maí 1999
DEFY
Kr. 5.990,-
Cruel Intentions er
gerö eftir hinni
frægu átjándu
aldar skáldsögu
Les Liaisons
Dangereuses, sem
var á sínum tíma
mikil hneykslunar-
saga og hefur oftar
en einu sinni verið
kvikmynduð.
Þekktasta útgáfan
er tvímælalaust
Dangerous Liasons
Rxel □ - Vestm.eyjum
Sportver - Rkureyri
Þjótur - ísafirði
sem Stephen
Frears leikstýrði.
n af
J
Stjörnubíó frumsýnir í dag
spennumyndina Illur ásetningur
(Cruel Intentions). Um er að ræða
unglingamynd í ódýrari kantinum
(kostaði 11 miUjónir dollara) sem
hefur gert það gott í Bandaríkjun-
um, fengið góða dóma og góða að-
sókn. Það sem er sérstakt við
þessa mynd er að hún er gerð eft-
ir hinni frægu átjándu aldar
skáldsögu Les Liaisons Dangereu-
ses, sem var á sínum tíma mikil
hneykslunarsaga og hefur oftar en
einu sinni verið kvikmynduð.
Þekktasta útgáfan er tvímælalaust
Dangerous Liasons sem Stephen
Frears leikstýrði með Michelle
Pfeiffer, John Malkovich og
Glenn Close í aðalhlutverkum.
Þessi nýja útgáfa, Cruel In-
tentions, er ekki bara færð í nú-
tímann heldur eru aðalpersónum-
ar yngdar upp, eru unglingar og
hefur það sjálfsagt haft áhrif á það
að dálítið hefur verið um að
myndin sé sett við hlið Romeó og
Júlíu þar sem unglingastimin Le-
onardo DeCaprio og Claire
Danes voru i hlutverkum
elskendanna.
Cruel Intentions fjallar um
stjúpsystkinin Sebastian (Ryan
Philippe) og Kathryn (Sarah
Michelle Gellar) sem eru rík
ungmenni og búa á Manhattan.
Kathryn hefur gaman af að
ráðskast með fólk og þar með
bróður sinn og sérstaklega gaman
hafa þau af því að eyðileggja
mannorð annarra og ástarsam-
bönd. Sebastian er orðinn leiður á
að daðra við og sofa hjá „ómerki-
legum“ og fallegum stúlkum og
hungrar í erfiðari verkefni. Þegar
Reese Witherspoon. Ein efni-
legasta lelkkonan í Hollywood.
hann flettir unglingablaðinu
Seventeen sér hann grein eftir
Annette (Reese Witherspoon)
þar sem hún lýsir því yfir að hún
ætli að vera hrein mey þar til hún
giftist. Þetta þykir Sebastian
ögrun við hæfi. Áður en hann fer
í þetta mál er Kathryn með áríð-
andi verkefni handa hon-
um. Hún vill að hann
spilli og táldragi
hina barnalegu
og saklausu
Cecile (Selma
Blair) því kærasti Kathryn hafði
sagt henni upp vegna Cecile.
Sebastian ákveður að slá tvær
flugur í einu höggi og leysa bæði
verkefhin með trompi. Kathryn
kemur þó með ákveðin skilyrði.
Ef honum mistekst ætlunarverk
sitt fær hún Jagúar-sport-
bíl hans, árgerð
1956. Hins
vegar,
ef honum
tekst ætl-
u n a r -
verk sitt fær hann að sofa hjá
henni. Hefst nú atburðarás sem á
■ eftir að draga dilk á eftir sér.
Ryan Philippe, Sarah Michelle
Gellar og Reese Witherspoon eru
öll meðal vinsælustu unglinga-
leikara í Hollywood. Philippe fékk
sitt fyrsta kvikmyndahlutverk í
kvikniýnd Ridleys Scotts, White
Squall' þar sem hann lék á móti
Jeff Bridges. Hann hefur síðan
leikið í Little Boy Blue, Nowhere,
I Know What You Did Last Sum-
mer, sem kom honum á blað í
Hollywood og 54. Næsta kvik-
mynd hans er Playing by Heart,
þar sem mótleikarar hans eru
Sean Connery, Gena Rowlands
og Angelina Jolie.
Sarah Michelle Geller varð eins
og Ryan Philippe þekkt fýrir leik
sinn í I Know What You Did Last
Summer. Þegar hún lék í þeirri
mynd var hún þegar orðin þekkt
fyrir leik sinn í sjónvarpsseríunni
Buffy the Vampire Slayer, sem ný-
farið er að sýna hér á landi. Þá
hefúr hún leikið í Scream 2. Gell-
er var ung að árum þegar hún
fékk hlutverk í sápuóperunni Ail
My Children og lék hún í þessari
þáttaröð með fram því að hún
stundaði leiknám í New York.
Reese Witherspoon þykir ein-
hver efnilegasta leikkonan í
Hollywood. í þeim kvikmyndum
sem hún hefúr leikið, allt frá því
hún lék í sinni fyrstu kvikmynd,
The Man in the Moon, þykir hún
hafa sýnt ótrúlegan þroska sem
leikkona og er vert að nefna leik
hennar í Wildflower, Fear og Ple-
asantville. Nýjasta kvikmynd
hennar er Election, litil kvikmynd
sem slegið hefur í gegn og fengið
frábæra dóma.
Leikstjóri og handritshöfundur
Cruel Intentions er Roger
Kiánble og er um ffumraun hans
á þessu sviði að ræða. Áður
hafði hann eingöngu fengist
við að skrifa handrit.
-IIK
■HHHH