Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1999, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1999, Side 15
Matthew McConaughey leikur sjónvarpsstjörnuna ED, Woody Harrelson leikur bróöur hans. Venjulegur lúöi uppgötvaður af sjónvarpsstöö á niðurleið og gerður að sjónvarpsstjörnu tuttugu og fjóra tíma á sólarhring.L Öllu sjónvarpað nema kynlífinu Laugarásbíó frumsýnir í dag EDtv, sem er nýjasta kvikmynd Ron Howards (Apollo 13, Ransom). Myndin er gamanmynd og segir frá ungum manni sem verður fræg sjón- varpsstjarna á einni nóttu. EDtv á það sameiginlegt með The Truman Show að fylgst er með aðalstjörn- unni allan sólarhringinn, munurinn er að Ed veit af þessu. Matthew McConaughey leikur Ed, aðrir leik- arar eru Woody Harrelson, Jenna Elfman, Sally Kirkland, Martin Landau, Ellen DeGeners, Rob Reiner, Dennis Hopper og Eliza- beth Hurley. EDtv er byggð á fransk/kanadískri gamanmynd, Roi des Ondes, sem gerð var 1994 en færð í amerískt þjóðfélag þar sem vettvangurinn er The NorthWest Broadcasting sjónvarpsstöðin. Fyrir tveimur árum var stöðin vinsælasta kapalsjónvarpsstöðin en er nú á hraðri niðurleið. Það eru því góð ráö dýr. Sá sem fær hugmyndina um að sjónvarpa lífi almúgamanns í 24 tíma á sólarhring er þessi hug- myndasmiður. Með þetta síðasta hálmstrá er lagt af stað í leit að rétta manninum. Eftir nokkra leit er Ed Pekumy frá San Francisco talinn besti kosturinn. Á einni viku verður þessi ofur venjulegi afgreiðslumað- ur á myndbandaleigu vinsælasta sjónvarpsstjarnan í Bandaríkjunum. Á yfirborðinu kann Ed þéssu vel og lætur það ekki hafa áhrif á sig að honum er fylgt hvert fótmál af þriggja manna tökuliði. Á nóttunni þegar hann sefur eru sýndir helstu atburðir dagsins. Eitt er þó það sem sjónvarpsáhorfendur fá ekki að fylgjast með, það er kynlíf Eds. Hann finnur þó fljótt fyrir því að frægðin kostar sitt og eftir því sem vandamálin hrannast upp verður hann áþreifanlega var við að hann er ekkert annað en tæki sem notað er til að afla vinsælda og meðan vin- sældirnar eru miklar reynist honum erfitt að hætta. -HK Ron Howard Ron Howard var fræg barna- stjarna. Þessi rauðhærði og freknótti drengur kom fyrst fram opinberlega tveggja ára gamall í auglýsingum fyrir Corn Flakes. Fimm ára gamall fékk hann sitt fyrsta hlutverk í kvikmynd og sex ára gamall lék hann annað aðalhlut- verkið í sjónvarpsseríunni The Andy Griffith Show, sem naut óhemju vinsælda. Um sama leyti tók Walt Disney Howard í sína vörslu og lék hann í nokkrum vin- sælum fjölskyldumyndum. Það fór ekki fyrir honum eins og mörgum bamastjörnum að gleymast, heldur fékk hann á unglingsárum sínum eitt aðalhlutverkið í vinsælum ung- lingaþætti í sjónvarpinu, Happy Days, sem veitti honum vinnu í nokkur ár og lék einnig eitt aðal- hlutverkið í American Graffiti. Strax á þrítugsaldri fór rauða hárið að þynnast og um sama leyti eða 26 ára gamall skipti Howard um gír og settist bak við myndavélina með þeim árangri að hann er nú einn virtasti og eftirsóttasti leikstjórinn í Hollywood og getur valið úr fjölda verkefna auk þess sem hann rekur ásamt framleiðandanum Brian Glazer Imagine Films, fyrirtæki sem gengið hefur mjög vel og nýtur mikillar virðingar. Fæðingardagur og ár: 1. mars 1954. Fæðingarstaður: Duncan, Oklahoma. Stjörnumerki: Sól í fiskamerkinu, tungl í vatnsberanum. Eiginkona: Cheryl (fóru að vera saman þegar þau voru í menntaskóla). Börn: Bryce Dallas, tvíburarnir Jocelyn og Paige og Reed. Kvikmyndir sem Ron Howard hefur leikstýrt: Grand Theft Auto (1977), Cotton Candy (1978), Skyward (1980), Night Shift (1982), Splash (1984), Cocoon (1985), Gung Ho (1986), Willow (1988), Parenthood (1989), Backdraft (1991), Far and Away (1992), The Paper (1994), Apollo 13 (1995), Ransom (1996), EDtv (1999). w 1 Það hefur ekki verið átakalaust fyrir Spike Lee að koma nýjustu kvik- *, mynd sinni, Summer of Sam, frá sér. Nú hefur verið ákveöinn frumsýning- ardagur 30. júlf, eftir að Spike Lee hefur enn eina ferðina tek- ið myndina til endurskoðunar. Summer of Sam gerist i Bronx þegar hræðslan við fjöldamorð- ingjann David Berkowitz (Sonur Sams) var sem mest og segir myndin frá mafíuforingja sem heitir háum verðlaunum þeim sem fmnur fjöldamorðingjann. Götu- flokkur undir stjóm Joey T er ákveð- inn í að næla sér í verðlaunin og er ekki vandur að meðulum i leit sinni að morðingjanum. Strax við tökur á myndinni mótmæltu ættingjar fómar- lamba Sams og töldu að verið væri að hefja morðingjann upp á stall, aðrir aðilar mótmæltu 1 kjölfarið og var Lee öllum lokið þegar svartir kyn- bræður hans sökuöu hann um að svikja málstað svartra í myndinni. Loks kom að því að Disney, sem fram- leiðir myndina, setti Lee skorður með þeim afleiðingum aö hann þurfti að fara í myrkrakompuna og breyta. Með aðalhlutverkin í Summer of Sam '• fara John Leguizamo, Anthony LaPa- glia, John Savage, Mira Sorvino og Bebe Neuwirth. Jaws er hákarlamynd allra tíma og hefur ekki oft verið reynt að skáka henni. Finnski leikstjórinn Renny Harlin (Die Hard 2, Cliffhanger, The Long Kiss Goodnight) ætlar sér að gera §tilraun til að fylgfa í kiölfarið á Jaws með Deep Blue Sea sem frumsýnd verður síðla sumars. Fjaliar myndin um vís- indakonu sem telur að finna megi i heila há- karls frumur sem geti læknaö alzheimersjúkdóminn. Tilraun er gerð til að stækka heilann á stórum hvítum hákarli sem var mun gáfaöri en menn héldu, svo nú er bara að ímynda sér hvað hvítur hákarl get- ur gert þegar hann er farinn að hugsa og það fyrsta sem kemur upp í huga hans er að losna úr prfsundinni sem t hann er í. í aöalhlutverkum í Deep Blue Sea eru Samuel L. Jackson, Saffron Burrows (enn ein breska leik- konan sem spáð er frama 1 Hollywood), Stellan Skarsgárd, Michael Rapaport og LL Cool J. Pierce Brosnan í fótspor Steve McQueens Þessa dagana er Pierce Brosnan að leika f nýrri Jams Bond-mynd sem frumsýnd verður um næstu jól. Áður en að þvf kemur eða um miðjan næsta mánuö munum við sjá Brosnan 1 róm- antísku sakamálamyndinni The w Thomas Crown Affair sem leikstýrð er af John McTiem- an (Die Hard, The Hunt for Red October). Þetta er endur- gerö vinsællar kvikmyndar frá 1968. í henni léku Steve McQueen og Faye Dunaway að- alhlutverkin og leikstjóri var Norman Jewison. i þessari nýju útgáfu leikur Brosnsn múltimiUjónera sem stundar bankarán sér til skemmtunar. í hlut- verkinu, sem Faye Dunaway lék, er núna Rene Russo sem leikur spæjara hjá tryggingafélagi. Dunaway sjálf kemur fram 1 aukahlutverki. Þess má geta að Pierce Brosnan er einnig framleiðandi myndarinnar. 28. maí 1999 f Ó k U S 15

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.