Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1999, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1999, Síða 22
Lífid eftir vmnu 4 Útllegur eru orðnar að möguleika. Það hlýrra nú um helgina heldur en það var í síðustu viku. Því ættu allir sem í það minnsta standa í lappirnar að drösla sér upp I sveit. Ekki langt þó, alls ekki of langt. Það gengur ekki að fólk sé að fara í einhverja glæfraför og enda fros- ið einhvers staðar uppi á hálendi eða vera drepinð af einhverjum morðóðum hillbillís. Nei, skreppum bara í mesta lagi upp að Laugavatni eða í Hvalfjörðinn. Tjöldum þar og færum okkur að- eins nær frummannin- um í okkur. Það er sum- i ar. Okkur líður vel og við treyst- um okkur alveg til að sofa í rökum svefnpoka með kóngulóm skríðandi á milli lappanna á okkur. Það þarf ekki að vera eins slæmt og fólk heldur. Sérstaklega ef fólk er eitt og sér, út af fyrir sig. En það er auðvitað Pesta útileg- an. Að vera bara einn eins og Laxness og þessir bjánarfyrr á öldinni. Þá er hægt að þykj- ast vera eitthvað annað en maður er. Kannski væri sniðugt fyrir íslendinga að fara bara á puttanum og tala ensku með þýskum hreim. Reyna að sjá land og þjóð með augum þýskara. Aliavega er alger nauösyn að fá pínu- litla pásu frá sjálfum sér og slnu nánasta um- hverfi. ú r f ó k u s Þriðjudagur 1. júní •K1úbbar y/ Á Stefnumótatónleikum Untíirtóna koma fram Dip, sem kynna mun nýtt efni af væntanlegri breiðskífu, Múm, Spúnk og plötu- snúðurinn Herb Legowitz úr GusGus. Tónleik- arnir hefjast stundvíslega klukkan 22.00. Að- gangseyrir er 500 kr. og innifalið I honum er einn bjór. Bein útsending er frá tónleikunum á www.cocaeola.is •Kr ár Hvað er betra en að skreppa á Romance og fá sér púrtara og andlegan sjortara hjá Uz Gammon? Trúbbinn Jón Ingólfsson er á poppandi blússi á Fógetanum, þó það sé bara þriðjudagur. ís- land án eiturlyfja fyrir föstudag! Hljómsveitin Url er nýkomin úr hljóðveri og ætlar að gefa kost á forhlustun á efninu á Gauknum I kvöld. Sé tónlistin snilld geta þeir sem mæta I kvöld stært sig af því um alla framtíð, eins og þegar gaml- ir pönkarar jarma: »Ég sá Snillingana í Tjarn- arbiói 1979!“ Rutta Reg og Maggi Kja spila ska á Kaffl Reykjavík. •Feröir Nú er komið að því að hjóla um Kópavog. Það er íslenski fjallahjólaklúbburinn sem stendur fyrir vikulegum hjólreiðatúrum um ýmis svæði út frá skiptistöðlnni I Mjódd. Þessi leið er 12 kílómetrar og tekur klukkutíma að hjóla. Mæt- ing er klukkan 20 og þátttökugjald ekkert. Star Wars. Þetta Stjörnustríðsæði er komið út í algerar öfgar. Það voru meira að segja út- lenskir Star Wars-aðdáendur á forsiðu Mogg- ans um daginn. Þeir voru i hv'rtum einkennis- búningum hermanna Svarthöföa og maður hefði haldið að það væri heimskulegt þar sem Episode 1 gerist áður en þessir búningar verða nothæfir í þessum gerviheimi George Lukas. En hvað sem því líður þá er þetta æði að eyðileggja mikið fyrir hin- um venjulega aödáenda Star Wars. Hann filar al- veg myndirnar en myndi halda áfram að borga af bílnum sín- um og íbúðinni og öllu því þótt engin væri framhalds- myndin. Hann ætlar samt á framhaldsmynd- ina en vill um leið ekki láta mikla hana fýrir sér í fjölmiðlum. Hann vill frekar láta myndina koma sér á óvart. En það er ekki hægt þar sem myndin er yfirhæpuð og mesta auglýs- ingadella veraldarsögunnar. Þaö er þvi nokk- uð öruggt aö allir verða fýrir vonbrigðum með hana. Sérstaklega hér á íslandi þar sem kvik- myndahúsaeigendur eru svo miklar gufur að þeir ætla að sýna hana þremur mánuðum seinna hér en úti, bara til að við getum hæpað hana til fjandans. En Fókus mótmælir og hvet- ur fólk til að fara ekki á Episode 1 i bíó heldur bíða þar til hún kemur á vídeó. Miðvikudagúr 2. júní •Krár Uz leikur hugljúfar ballöður á Romance. Púhh púhh da! Púhh púhh da! Púhh púhh da! Púhh. Þið munuð öll! Þið munuð oll! Þiö munuö öll! Deyja! Enn er Bubbi að fara yfir afrek sín á Fógetanum. Það er líka alltí lagi, þau eru mörg og hann er skemmtilegur, kallinn. Rut, við elskum þig öll! Og Maggi, þú ert ágætur líka. Sjáumst á Kaffl Reykjavík. Sóldögg skemmtir Gauksverjum í kvöld. Ætli Fönn Dögg mæti? •K1ass í k Á Seyðisfirði er að hefjast tónleikaröðin Biáa kirkjan. Þetta er annað árið í röð sem hún er haldin. Alls verða haldnir 14 tónleikar í sumar og þeirfyrstu eru í kvöld, klukkan 10.30. Hutt verður islensk tónlist frá ýmsum tímum. Flytj- endur eru Margrét Bóasdóttir sópran og Bjöm Stelnar Sólbergsson organisti. Margrét og Björn Steinar hafa unnið saman frá árinu 1987, en þá stofnuðu þau Sumartónleika á Norðurlandi. Þau hafa haldiö fjölmarga tón- leika og nýveriö kom út geislaplata þeirra með íslenskri kirkjutónlist fýrir söngrödd og orgel sem íslensk tónverkamiöstöð gefur út. Aö- gangseyrir á tónleikana er 500 kall. •Leikhús Maöur í mislitum sokkum eftir Arnmund Backman er í Ólafsvík í kvöld, kl. 20.30. Þessi farsi gengur og gengur og núna um allt landið. Enn eitt gangstykkið með „gömlu leikurunum' Kæfurokk folks með tónsmíðaræpu Á þriöjudaginn kemur hljóm- sveitin URL fram á Gauknum. Þetta er ekki enn eitt kóverband- ið, frekar gerir það sér far um að líkjast engum nema sjálfu sér. Fólk er þó alltaf samt við sig og þeir sem heyrt hafa í bandinu vilja helst líkja tónlistinni við Portishead og Unun. „ Það er ekkert víst að slíkar samlíkingar segi nokkuð um músíkina," seg- ir Helgi, bassódeikari hljómsveit- arinnar." Þetta er bara það sem ég hef heyrt utan að mér. Við höfum ekki verið að reyna að gera tónlist í anda neinna tón- listarstefna, við erum bara URL.“ Vel á minnsí, nafnið. Er þetta alþjóðlega nafnið yfir veffang? „Einmitt." Og eruö þið þá ekki með heima- síðu, hvað er URL-ið hjá ykkur? „Það er verið að vinna eina slfka en þangað til er það bara netfangið url-the-band@hotmaiI.com.“ í sveitinni eru auk Helga söngvaramir Heiða og Garðar, gítarleikarinn Þröstur, Oscar leikur á hljómborð og Kjartan er trommarinn. „Við erum ekki með nein kóverlög á prógramminu, við erum sjálf of fijó til þess. Það eru átján lög fullunnin og fínpússuð á prógramminu og gomma sem bíður þess að verða unnin." Þaó er þá plata á leiðinni? „Já, við höfum hugsað okkur að koma með plötu í haust eða vetur. En það eru að koma út eitt eða tvö lög á safnplötu frá Skífunni, áhugasamir geta því fengið forsmekkinn fljótlega." Og hvernig tónlist er þetta? „Mjög melódísk, nokkuð kraftmikil og útvarpsvæn. Við höfum notað orðið kæfurokk enda engin betri skilgreining til.“ Hafið þið verið dugleg aö spila? „Við höfum komið 15 sinnum fram frá því við stofnuðum URL fyrir rúmu ári. Þetta hafa verið gigg á Gauknum, Astró, Sir Oliver, í Kolkrabbanum og á Rás 2 sem dæmi. Einnig tókum við að okkur undirleik í Söngvakeppni Ármúlaskóla í vetur." Útlönd? „Já. Allir okkar textar eru á ensku. Við setjum stefnuna út fyrir landsteinana. Tökum þó eitt skref í einu, fyrsta skrefið á langri leið er þessi safnplata.“ Fókus hvetur alla sjálfráða íslendinga til að kynna sér tónlist þessa metnaðarfulla bands, hljómsveitir sem þessar eru ekki á hverju strái nú á gullöld eftirhermustarfseminnar. - að þessu sinni Þóru Friðriksdóttur, Bessa Bjarnasyni og Guörúnu Þ. Stephensen. •Feröir Eldri borgarar skreppa í dagsferð klukkan 13 til Krýsuvíkur, að Ölfusárbrú ogtil Hveragerðis, þar sem ferðalangar fá sér kaffi og meðlæti. Hægt er að skrá sig á skrifstofu félagsins, sími 588 2111. Nú verður Ferðafélagsreiturinn i Heiðmórk heimsóttur. Þetta er ekta skógræktarferö og lagt verður af staö frá austurvegg BSÍ og Mörkinni 6 klukkan 20. •K1úbbar Óskar Guðjónsson spilar á saxófón og Óli skiptir um Drum&Bass-plötur á Rex. Eðak klúbbastuð á helstu lífsstílsbúllu bæjarins. •Krár Sóldögg kyndir liðið á Gauk á Stöng allt þar til hitastigiö úti fellur niður lýrir daggarmark. Þá fara allir heim að sofa, nema poppararnir sem sukka fram að hádegi. Llz leikur einhvern minimalisma eftir skeggi- aöa hippa í bland við Sinatra á Romance í kvöld. Athyglisverö skemmtun. •Leikhús Abel Snorko býr einn, eftir Eric Emmanuel Schmitt hinn franska, verður flutt á Litla sviði Þjóðleikhússins kl. 20. Sími 551 1200. ý Stengjaleikhúsið frumsýnir óperuleikinn Maður lifandi klukkan niu á Litla sviði Borgarleikhússins. Höfundur verksins er Ámi Ibsen, leikskáld, Karólína Eiriksdóttir, tón- skáld og Messíana Tómasdóttir myndskáld. Flytjendur eru leikararnir Þröstur Leó Gunn- arsson og Ásta Arnardóttir og söngvararnir John Speight, Sverrir Guðjónsson og Sólrún Bragadóttir. Þetta er sviðsverk fyrir leikara, söngvara, leikbrúður og hljóðfæraleikara, I senn ópera, leikrit og leikbrúðuverk þar sem fjallað er um samskipti mannsins við Dauð- ann. Sýningar á þessu verki verða aðeins flór- ar. Þjóðleikhúsið sýnir Rent eftir Jonatan Larson í Loftkastalanum kl. 20.30. Þetta er söngleikur sem öfugt fiestra slíka sem hafa ratað á fjalirnar undanfarin misseri er nýr. Ekki þó alveg því þráðurinn er aö hluta spunninn upp úr óperunni La Boheme - ekki þó tónlistin. Sagan segir frá ungum listnem- um í New York og líf þeirra innan um dóp, al- næmi, ást, spillingu, greddu og rómantík. Baltasar Kormákur leikstýrir en meðal leik- enda eru flestar af yngri stjörnum leikhúss- ins: Rúnar Freyr Gíslason, Björn Jörundur Friðbjörnsson, Brynhildur Guöjónsdóttir, Atli Rafn Siguröarson og Margrét Eir Hjartar- dóttir auk nokkurra eldri brýna á borö við Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur og Helga Bjöms. •Ferðir Nú er það síðasti áfanginn í Póstgöngunni. Gengiö verður frá pósthúsinu í Keflavík og fýlgt fornri leið að Básendum. Rútuferð frá BSÍ klukkan 19.15. Stendur þú fyrir einhverju? Sendu uppiýsingar í e-maii fokusö’fckus.is • fax 550 5020 Góða skemmtun hverjir voru hvar ]meira áif www.visir.is Auðvitaö var fullt út úr dyrum á Astró síðasta föstudagskvöld. Kristjana, ungfrú ísland, var á staönum ásamt Jonna Miami-fara og þarna voru líka Arna og Díanna Dúa Playboygellur. Handbolta- gæjarnir Bergsveinn markvöröur og Alexander skemmtu sér fram eftir öllu og Róbert Árni lög- fræðingur sömuleiöis. Að sjálfsögðu lét FM-klíkan |l sig ekki vanta meö Þór Bæring, Magga Magg, Svala, Rúnar Ró- berts, Heiðar Austmann og Harald Daða fremsta í flokki. Valli sport Hausverksmaður var auðvitað í stuði, sem og Ásgeir Kolbeins og ívar Guðmunds Bylgjumenn. Eydís dansari, Pálmi (fýrrum Popp- og kók-maöur), Halli í Gullsól, Jói Gaukari og framkvæmdakóngur- inn Einar Bárðarson lyftu sér líka upp. Á laugardagskvöldiö sást meöal annars til El- ínu í lcelandic Models og Karó en Gunna og stelpurnar i Centrum áttu nú samt athyglina á dansgólfinu. Þorvaldur og Kristján Rex voru þvílikir töffarar og Debbie og Hanna Rut ekk- ert síðri, nýkomnar frá Miami. Linda GK og vín- konan Eva flugfreyja voru líka þarna á Astró, sem og Brynja X ásamt vinkonugengi. Laugarás- bíótvíburarnir Maggi og Gunni voru og þarna, sem og Gylfi Tæknival, Svavar Örn og Jónína frá Stöö 2, Halldór Bach- mann lögfræðingur, Jói Fel bakari og James Bond-saumaklúbburinn sem mætti í smóking- um. i þeim ágæta klúbbi eru Hrafn Friðbjöms- son líkamsræktarfrömuður, Halli Kristins frá FM og fleiri. Að lokum skal þess getið aö hinn geðþekki Kio Briggs, sem dómarar geta ekki verið sammála um hvort sé sekur eða sak- laus, lyfti sér upp á Astró þetta vorkvöld í Reykjavík. Reyndar hafði þessi ágæti útlend- ingur líka verið á Gauknum kvöldið áöur enda tími til kominn aö kíkja út á lífið hér á íslandi. Grand Rokk er rosalega kúl bar. Ætti engan að undra þótt Hrafn Jökulsson hafi verið þar um stðustu helgi, sem og týndi Radiusbróðir- inn Jakob Bjarnar og útvarpsmaöurinn og leik- listargagnrýnandinn Egill Helgason. Þarna var líka annar gagnrýnandi, Jón Proppé nokkur, og Guðrún Kristjánsdóttir, fýrrverandi ritstjóri og nú- verandi aðstoðarmaður n æstu m-því-Rol I i ng-Sto- nes-innflytjanda. Harald- ur Blöndal ráöherrabróð- ir var grand á þvl og hinn siðprúði Hrannar B. Arn- arson fékk sér líka aðeins neðan í þvl. Á lokakvöldi Stuttmyndahátíðar I Reykjavík I Tjarnarblói á miðvikudagskvöld mætti gagn- rýnandinn góði, Egill Helgason, búinn að jafna sig eftir fjörið á Grand Rokk. Ekki fylgir sög- unni hvort hann passaöi I sætiö. Þarna voru lika Kári Schram, Jonni Sigmars kvikmynda- geröarmaður, Ragnheiður Axel, Bryndís Jó- hannsdóttir fram- kvæmdastjóri hátiðarinn- ar, Tóta I Saga Rlm, Sig- tryggur Baldursson og litli bróðir hans, Gaui (samt ekki hinn eini sanni Gaui og ekki litli heldur). Móði var á 22 eins og alltaf. Á Kaffibar á föstudag var þotuliöið úr Rent, Balti sjálfur og gervi- hommalingarnir Atli Rafn og Helgi BjöSSS. Oz-gengið var þarna líka og þó óstaðfestar heimildir vanti má slá þvi föstu að sama kvöld hafi ýmsir áhrifamenn aörir látið sjá sig. Mar- geir skipti svo um plötur fýrir þá heppnu. í fyrradag grísuðust montnu helvitin I Man. Utd til að vinna Bayern Múnchen I Barcelona og á leikinn mættu nokkur Islensk stórstirni; þ. á m. Einar Örn Ólafsson, FBA- sérfræöingur, sendlarnir Árni Þór Vigfússon og Þórir Snær (Totti), Frikki Pönk kvikmyndagúrú og Hafrún Kristjánsdóttir, upprennandi hand- boltastjarna I Val. Á gömludansaballi eldri borgara á Næturgal- anum mátti heyra þessa pikköpplinu: „Kem ég oft hingað?'. 22 f Ó k U S 28. maí 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.