Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1999, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1999, Blaðsíða 10
víkuna 3.6-10.6. 1999 NR. 326 Lagið í tíunda sæti, Flat Beat með Mr. Oizo, stendur í stað fimmtu viku sína á listanum. Lagið varð vinsælt þegar það var notað í Levi’s auglýsingarherferð þar sem brúðan Rat Eric fer á kostum með sérstæðu headbangi sínu og stælum. Vikur á lista ALL OUT OF LUCK . . . . . .SELMA (EUROVISION) ® ItlLlttLIII RIGHT HERE RITHT NOW . ® mi SCAR TISSUE RED HOT CHILLI PEPPERS t n SECRETLY #iiii WHY DON’T YOU GET A JOB OFFSPRING 4 mmm STARLOVER 1 ii OOH LA LA 1 THINKING OF YOU 4 m LADYSHAVE t mmmm FLAT BEAT #mi 11 LIVIN’LA VIDA LOCA t mi 12 PROMISES 4 mmn 13 PROMISES t iiii 14 CANNED HEAT 4 rniii 15 IT’S NOT RIGHT BUT IT’S OK . . .WHITNEY HOUSTON 4 mm 16 WILD WILD WEST . . .WILL SMITH (WILD WILD WEST) tii 17 KISS ME SIXPENCE NONE THE RICHER #m 18 STRONG 4 mmn 19 ALLSTAR t ii 20 |N OUR LIFETIME 4 mmi % NEW 4 mm 4». LENDING 407 11 ( TREAT HER LIKE A LADY t iii ^ CLOUD NUMBER NINE . . . t m % PERFECT LIFE t iii t GENG í HRINGI 4 m % VIAGRA 1. ii EINN MEÐ ÞÉR 4 mm LOOK AT ME 4 mi ii... YOU NEEDED ME t iii t RED ALERT t m Cb SÍGRÆN ÁST t ii I WANT IT THAT WAY . . . . 4 mi db SWEET LIKE CHOCOLATE . . .SHANKS & BIGFOOT frn | & ONE AND ONE 4 iiii % GET READY tn ^ LITLA HRYLLINGSBÚÐIN . . .ÚR LITLU HRYLLINGSB. 'ÍMT | &| SOMETIMES 4 IIII <tjji SALTWATER & YOU'LL BE IN MY HEART . ým | íslenski listinn er samvinnuverkefni Bylgjunnar og DV. Hringt er í 300 til 400 manns á aldrinum 14 til 35 ára, af öllu landinu. Einnig getur fólk hringt í sfma 550 0044 og tekiö þátt 1 vali listans. íslenski listinn er frumfluttur á fímmtudagskvöldum á Bylgjunni kl. 20.00 og birtur á hverjum föstudegi f DV. Listinn er jafnframt endurfluttur á Bylgjunni á hverjum laugardegi kl. 16.00. Listinn er birtur, aö hluta, í textavarpi MTV sjónvarpsstöövarinnar. íslenski listinn tekur þátt f vali „World Chart“ sem framleiddur er af Radio Express f Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er í tónlistarblaöinu Music & Media sem er rekiö af bandarfska tónlistarblaöinu Billboard. <& Nýtt á Hækkar sig frá Lækkai ndur listanum síöustu viku síöust Jtaö Taktu þátt í vali listans í síma 550 0044 Yfirumsjón með skoöanakönnun: HaUdóra Hauksdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó Handrit, heimUdaröflun og yfirumsjón með framleiöslu: ívar Guömundsson • Tæknistjórn og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson Útsendingastjóm: Ásgeir Kolbeinsson, Jóhann Jóhannsson og Ragnar Páll ólafsson • Kynnir I útvarpi: tvar Guömundsson sr f Ó k U S 11. júní 1999 Alan Ball flutti inn allar stærstu hljómsveitirnar fyrir nokkrum árum. Nú er hann kominn aftur með East 17, Garbage, Mercury Rev og Repuplica. „Ég kom hingað fyrst ‘86 af því að ég var með íslenskri stelpu og eign- aðist með henni son,“ segir Alan Ball tónleikahaldari aðspurður af hverju í fjandanum hann hafi kom- ið til íslands til að byrja með. „Ég fór síðan aftur til Bretlands ‘93 og fór í Háskóla. Lærði viðskiptafræði og er nú kominn til að vera. Mér líkar vel að búa hérna,“ heldur Alan áfram en á þessum árum, ‘86-’93, stóð hann fyrir mörgum af stærstu tónleikunum sem haldnir voru hér á landi. Alan Ball tónleikahaldari stefnir á að flytja inn Brian Adams og Sheril Craw. Beasty Boys, Sheril Craw og Brian Adams „Ég bjó með hljómborðsleikaran- um Alan Clarke fyrir 20 árum. Þá var hann bláfátækur listamaður en fékk síðan breikið. Hann gekk til liðs við Dire Strait og það var um svipað leyti sem ég fór að hafa áhuga á hljómsveitum og þá sér- staklega framkvæmdastjórn og tón- leikahaldi," segir Alan Ball en það skýrir þessa tónleikadellu. Eftir þessi kynni hefur Alan flutt inn alla vega grúppur. Sumar heimsfrægar og aðrar semi frægar, en mjög vinsælar á íslandi. í ár hef- ur Alan snúið aftur og ekki með neinum smákrafti. 22. júní verða risaútitónleikar ofan á Faxaskála. Þar mæta Garbage, Mercury Rev, Repuplica og East 17. Af hverju komstu aftur til íslands? „Sonur minn býr hérna og mig langar til að vera með honum. Strákurinn var lika alltaf að heimta að ég kæmi heim til að flytja inn Be- asty Boys. Hann langar til að sjá þá.“ Og nœröu aó uppfylla þá drauma? „Já. Það er í vinnslu og vonandi gengur það upp. Þeir eru með sama umboðsmann og Garbage og því eru ágætishorfur í því máli en í þessum bransa er ekki hægt að lofa neinu,“ svarar Alan, loðið, en bætir því við að hann sé samt búinn að bóka Bri- an Adams seint í ágúst og að Sher- il Craw komi að öllum líkindum einhverjum mánuðum seinna. Sjómannssonur frá Hull „Ég er frá Hull. Pabbi var togara- sjómaður og það var einmitt í gegn- um hann sem ég kynntist íslandi fyrst en við skulum ekki ræða þorskastríðið," segir Alan og hlær. Hann minnist samt á það að hérna fyrir nokkrum árum hafi hann far- ið með strákinn sinn niður á höfn, tekið mynd af honum með varðskip- in í baksýn og sent pabba sínum. Þeim gamla fannst það ekki fyndið. En ertu aö vinna í einhverju ööru en tónleikahaldi hérna? „Nei. Það tekur þrjá til fjóra mán- uði að skipuleggja tónleika sem þessa. Og maður gerir ekki mikið annað á meðan. Þetta er vinna upp á tólf, fjórtán tíma á dag.“ Og er vinnan aö skila sér? „Hvort hún er. Við erum að horfa upp á það að þessir tónleikar verða stærstu útitónleikar sem haldnir hafa verið á íslandi til þessa. Við flytjum líka inn sviðsmenn sem munu sjá um öll sviðsmálin en Ijós- in eru í höndum íslendinga. Þið eig- ið virkilega hæfileikaríkt fólk sem farið er að geta séð um ótrúlegustu hluti.“ En nú lenda tónleikarnir á þriöju- degi og byrja á hádegi þannig aö krakkarnir veröa aö taka sér frí í vinnu til að komast á þá. Helduröu aö þaö gangi? „Já. Þetta eru hljómsveitirnar sem krakkarnir vilja sjá og þá mun ekkert stoppa þau. Og hafa ber í huga að ef við hefðum getað gert þetta um helgi hefðum við gert þetta um helgi. En eina helgin sem var laus hjá Garbage var í janúar 2001.“ Hvaó meö efnahaginn, „godaerid", finnuröu muninn á ástandinu frá því þú varst hérna síöast? „Mér sýnist verðlag á íslandi vera komið á evrópskan standard. ‘93 kostaði 5.500 krónur inn á úti- tónleikana á Kaplakrika en í dag erum við með stærri tónleika en samt kostar þúsund krónum minna inn.“ -MT Ferill Alans er æði misjafn, stundum mættu hljómsveitir ekki, tónleikahallir urðu rafmagnslausar eða að starfsmenn kvörtuðu og allar endurgreiðslur á miðum fóru í rugl. En hvað sem því líður þá hefur kauði verið fantaduglegur: Iron Maiden „Síðustu tónleik- ar Bruce áður en hann hætti í hljómsveitinni. Mjög hraðir og góðir tónleikar." Brian Adams „Það þurfti að vísu að fresta tón- leikunum um einn dag því rafmagns- kerfið hrundi í Höllinni. En á seinni tónleikun- um var flottasta hljóðið. Það seldust annars 10.000 miðar og það var mjög leiðinlegt að það var ekki hægt að halda Brian í einn dag til viöbótar." Jethro Tuil og Black Sabbath „Þessir tónleikar voru haldnir í til- efni 50 ára af- mælis Akraness. Það sem kom á óvart var að Jethro var vinsælli en Sabbath. Við bjugg- umst við hinu gagnstæða þar sem þjóðin var mikið inni í þungarokki á þessum árum.“ Poison „Þetta var svolítill „bömrner" því það var bara hringt í okkur nokkrum tímum fyrir tónleikana og sagt að gítarleikarinn hefði brotiö fjóra fingur. Þá báöum við bara Quireboys að taka yfir. Hljóm- sveitirnar kvörtuöu meira að segja undan því að hafa sólbrunnið. Þeim þótti mjög furðuiegt að sólbrenna á íslandi." Whitesnake „Uppáhaldstón- leikarnir mínir. Sérstakiega seinni tónleikarn- ir, þegar Steve Way tók stjórnina og var alveg ótrú- legur.“ Skid Row „Þetta voru líklega bestu tónleik- arnir sem ég hef haldið þrátt fyrir að mætingin hafi ekki verið mjög góð.“ Quireboys „Þetta voru frá- bærir gæjar og þeir urðu rosa- lega vinsælir á íslandi. Þeír þökk- uðu meira að segja fyrir sig á næstu plötu og skrifuðu nöfnin okkar í þakkarlistann.” Meatloaf „Þessir tónleikar voru svipað dæmi og Kiss. Ég var bara að vinna á fullu.“ Kiss „Ég hélt ekki þessa tónleika en vann á þeim óg var þá að læra að halda tónleika. Ég man eiginlega ekkert eftir þeim því það var svo mikiö að gera hjá mér baksviðs.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.