Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1999, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1999, Blaðsíða 16
r V Undrabörnin sem gefa út eigið tíma- rit í fimm þúsund eintökum. ú þegar Herbalife-kúrar eru í algleymi og fólk remb i\\ við staurinn út um borg og bý að losa sig við slabbið utan af s einungis einn maður sem stendur uppi sem sigurvegari. Steingrímur Sigurðsson, Steini, lét efnafræðiformúlurnar sem vind um eyru þjóta og fór sína eigin leið. Hann náði að minnka fitumagnið í líkamanum úr 25% í 7% á einungis sex vikum. Kúrinn hans samanstóð af skyri og korn- fleksi. Alvöru röffnekk íslendingur. „Þetta var veðmál milli mín og vina minna, þeir skoruðu á mig að borða bara skyr og komfleks með undanrennu í sex vikur og ég sló tU, why not,“ segir Steini. Þú hlýtur aö hafa stolist til þess að fá þér einhvern smá kjötbita. Varstu ekki aö sál- ast úr hungri? „Nei, nei, ég fór í grill- veislur og matarboð en lét það ekki hafa á mig. Ég borð- aði þetta sex sinnum á dag að meðaltali og tók auðvitað vítamín með. Þetta er allt sem maður þarf. Svo pumpaði ég með niðri í World Class þar sem ég vinn sem einkaþjálfari.“ En hvaö meö Herbalife og Nupo-létt vitleysingana, er þetta bara ekki vonlaust liö? „Fólk velur sér bara sína að- ferð, sumar virka einfaldlega betur en aðrar. Þessi virkar örugglega ekki fyrir alla. Einhverjir svona djókkúrar hefðu hins vegar aldrei virkað fyrir mig, ég er nefnilega að stefna á íslandsmeistara- mótið í vaxtarrækt í haust. Ég keppti árið 1993 en stefni á toppinn í haust. Núna er ég að vinna í því að þyngja mig upp aftur og pumpa því eins og vitleysingur. Ég'er meira að segja búinn að draga strákinn minn og vin hans með mér í þetta.“ Þér finnst sem sagt aö allir slúbbertar heimsins eigi aó samein- ast og boröa bara skyr og kornfleks? „Já, ekki spurning. Ef menn geta staðið við þetta og verið trúir sjálf- um sér þá leynir árangurinn ekki á sér. Á sex vikum fór ég úr 25% lík- amsfitu niður í 7%. Geri aðrir bet- ur.“ -hvs Sánd Annað tölublað tónlistartíma- ritsins Sánd er á leiðinni. Sánd er hugarfóstur þriggja stráka á aldrinum 12 til 14 ára. Þeir eru bræðurn- ir Ingiberg Þór Þor- steinsson og Helgi S t e i n a r Þorsteins- son og v i n u r þ e i r r a Ari Már G u n n - arsson. Strákarnir vinna allt efni í blaðið sjálfir, brjóta um og safna auglýsingum. Fyrsta tölu- blaðið kom út nú í maí og fauk út á nokkrum dögum, að sögn strák- anna. Það kom í 2500 eintökum en það er ekki nóg fyrir þá félaga því næsta blað kemur út í 4500 eintök- um. Þeir stefna á að blaðið komi út í júlí og vinna því myrkranna á milli þessa dagana. Fyrsta tölu- blaðið var mjög lengi í vinnslu, það átti að koma út síðasta haust en var frestað fram á vor. Strák- arnir eru samt bjartsýnir á að þeir nái að klára næsta blað fyrir júlí- byrjun einfaldlega vegna þess að böl hins vinnandi manns, skólinn, er farinn í frí. Heimilistölvan hjá þeim bræðrum verður því upptek- in um stund. í blaðinu kennir ýmissa grasa, forsíðuviðtal við Ensími, viðtal við Mínus, Botn- leðju, Quarashi og fleiri og frétt- ir um tónlist um víða veröld. 4 Svo má líka krækja á sig ökkla- böndum. Til að vera viss um að galla- buxurnar séu í tísku er auð- velt og óbrigðult ráð að bretta upp á þær. Og bretta mikið. Það þykir nefnilega flott að vera með stórt uppábrot á gallabuxum núna. Stundum koma tímar þar sem ekkert er hallæris- legra en að vera með uppábrot en því er ekki að heilsa núna. Þess vegna er mælt með að fólk noti tækifærið og bretti upp á allar gallabuxurnar sínar. Það er sama Sama hvort buxurnar eru of síðar eða ekki, uppábrot er 7iinn“. hvernig þær eru, dökkar, ljósar, stuttar, síðar, þröngar, víðar - bara ekki snjóþvegnar - uppábrot er málið. Svo passar lika voða vel að vera í léttum og opnum skóm við, svona af því að það er sumar. I i I f Ó k U S ll.júní 1999 ; i i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.