Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1999, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1999, Blaðsíða 20
fjölleikahús i Sunnudaguf 13. júni ngin Þið munið kannski eftir brjál- aða fjölleikahúsinu sem kom til landsins í mars og tróð m.a. upp í Stutt í spunann. Smurði mað- urinn sem smó inn 1 risa- stóra blöðru og strippaði inni í henni. Ha? Muniði ekki? Jú, þetta frábæra hringleikahús er komið aftur og nú með nýja sýn- ingu sem kallast 00:00. Þessi sýning gerist á broti úr sekúndu, í miðri hring iðu þess þegar svífandi ryk- kom rekst á háspennulínu. Frumsýnt var 1. júní í Malmö en svo var strax haldið af stað í Norðurlandafor. Cirkus Cirkör er afsprengi nýsirkussins svokallaða, list- forms þar sem hrært er saman gömlum sirkushefðum, nýtísku leikhústækni, dansi og rokki. Þetta form er upprunalega franskt en hefur náð að breiðast út um heiminn síðustu mánuði og ár. Stirð bros og fullkomnar uppstillingar hefðbunda sirkussins eiga ekki upp á pali- borðið heldur er gert út á orku og tempó sem aldrei fyrr. Cirkus Cirkör hefur verið að þróa þetta form í Svíþjóð og hefur það að markmiði að smita hug- myndinni á milli Norð- urlandanna. Sýnt verður í Reykjavík dagana 16.-18. júní en svo færir hópurinn sig yfir til Akureyrar og dvelur þar nokkra daga. Þaðan fer sirkusinn svo til Færeyja. Síðast þegar flokkurinn var hér bauð hann upp á námskeið í fjölleikahústækni og aldrei er að vita nema boðið verði upp á slíkt aftur. Það ætti a.m.k. eng- inn að láta sýningar þessa fjöruga fyrirbrigðis fram hjá sér fara því skemmtanagildið er ótvírætt. •K r á r Loksins koma Dúndurfréttir aftur á Gaukinn. Rólegt hjá Llz Gammon á Café Romance núna enda allir uppi í sveit að grilla. Gunnar Páll flytur okkur lagiö Dagar víns og rósa á Kringlukránni. Nú er kominn sunnudagur á Kaffl Reykjavík og því er best aö hreinsa út trommusettin og taka inn látlaust dúó á borð viö Magga KJart- ans og Rut Reginalds. %iKlassík Stórviðburður á Austurlandi! Töfraflauta Moz- arts sett upp á Eiðum! Stjórnandi Keith Reed! Hundrað manns koma að óperunni! 35 söngv- arar og 35 manna hljómsveit! Miöar fást í öll- um Landsbönkum Austurlands! •Sv eit i n Stuðmenn slá upp balli I Hrís- ey ífyrsta sinn. Með hljóm- sveitinni koma fram Úlfur skemmtarl, Sérfræöingarnir að sunnan, sem didía, og gógómeyjarnar Álfheiður og Dagbjört. Leikhús Nokkrir fyndnustu menn þjóðarinnar eru búnir _ að klambra saman dagskrá sem sýnd er í Loft- * kastalanum um þessar mundir. Yfirskrift sprellsins heitir Hirðfífl hennar hátignar og þeir sem fram koma eru Jón Gnarr, Sveinn Waage, Friðrik 2000 og Micka Frury en hann byrjar skemmtunina með þvi að syngja þýsk þjóðlög. Hirðfífl hennar hátignar byrjar klukkan níu-. í Iðnó er veriö að sýna Hnetuna en það er ein- hvers konar geimsápa sem þykir mjög fyndin. Klukkan 20:30 hefst sápan og enn eru nokk- ur sæti laus. Aðalhlutverk leika Friðrik Frið- rlksson, Linda Ásgeirsdóttlr, Gunnar Helga- son og fleiri. Á stóra sviði Þjóðleikhússins er Litla hryllings- búðln sýnd klukkan 20:00. Höfundur verksins er Howard Ashman en leikstjóri er Kenn Oldfl- eld sem er svo sannarlega orðinn „Islandsvin- ur“. Hann hefur leikstýrt nokkrum stykkjum hér á landi, meðal annars Grease sem hlaut fádæma góðar viðtökur. Aðalhlutverk í Hryll- ingsbúðinni leika Stefán Karl Stefánsson, Þór- unn Lárusdóttir, Bubbi Morthens, Eggert Þor- lelfsson og Selma Björnsdóttir svo einhverjir séu nefndir. Um tónlist sér hinn margrómaði Jón Ólafsson. Rétt er að benda á að klukku- stund fyrir sýningu eru miðar seldir á hálfvirði. Sex í sveit er vinsælasta stykki Borgarleikhússins þetta árið og fer nú á ferðalag um landið og byrjar í Vestmannaeyjum, nánar til tekið í Bæjar- leikhúsinu þar. Leikarar eru Edda Björgvinsdótt- Ir, Björn Ingl Hilmarsson, Ellert A. Inglmundarson, Gísli Rúnar Jónsson, Rósa Guðný Þórsdóttlr og Halldóra Geirharðs- dóttlr. Þjóölelkhúslð. Sjálfstætt fólk, seinni hluti: Ásta Sóllllja - Lífsblómlð, verður sýndur kl. 20. Þeir sem sáu Bjart fyrr um daginn geta skellt sér á aðra þrjá tlma af Laxness eftir kvöldmat. Stelnunn Ólína Þorstelnsdóttlr er Ásta Sóllilja og Arnar Jónsson er Bjartur seinni hlutans. Leikstjóri er Kjartan Ragnarsson og hann samdi hann leikgerðina ásamt eiglnkonu sinni. Þetta er síðasta sýning leikársins. Fyrir börnin Barnasöngleikurinn „Hatt- ur og Fattur, nú er ég hissa“ eftir Ólaf Hauk Símonarson verður sýndur I Loft- kastalanum kl. 14. Þeir sem hafa minni til muna sjálfsagt eftir þessum félögum úr Stundinni okkar frá þvl fyrir áratug eða tveim. Þeir eru mjög Ólafshauklsk- ir, glettnir trúðar og þjóðfélagslega sinnaðir - ekki ósvipaðir og Olga Guðrún þegar hún syng- ur efni frá Ólafi. Guðmundur Ingl Þorvaldsson og Fellx Bergsson eru Hattur og Fattur. Sími 552 3000. •Siöustu forvöö Nú fer hver að verða síðastur að sjá sýningu Rnnboga Péturssonar I Galleri Ingólfsstræti 18 en henni lýkur I dag. Rnnbogi er sem kunn- ugt er að fást við grunnform hljóðbylgjunnar og notar til þess hátalara, álplötur og rafmagn. •F u n d i r Úrslitin i Norrænu málflutningskeppninni fara fram I Hæstarétti islands. Hefst þessi rimma klukkan 9.30. Lið íslands heitir Club Lögberg og spennandi verður að sjá hvort það meiki'ða inn I úrslitin. Áhugasamir velkomnir. •S p o r t Fótbolti, úrvalsdeild karla. Lokaleikurinn 15. umferð, Víkingur-Grindavík I Laugardalnum kl. 20.00. Frjálsar iþróttir, meistaramót íslands. Keppt i sjöþraut kvenna og tugþraut karla á Laugar- dalsvelli, og auk þess í 4x1500 m hlaupi karla og 10 km hlaupi karla. Grænl herinn verður við leik og störf í Hrís- eyog með i för verður að sjálfsögðu hljómsveit allra landsmanna, Stuðmenn, en þetta er í fýrsta sinn sem hljómsveitin kemur fram í Hrisey. Þess má til gamans geta að árið 1986 lék sveitin í Grímsey fyrir 120 manns en áþeim tima voru 105 manns skráðir með lög- heimili í Grímsey. í tengslum við sýnlnguna á flugmódelum i Kolaportinu fer fram flugsýning á módelþyrlu viö miðbakkann, noröan Kolaportsins. Þetta er þó háð veðri og þvi hvort útkall verður hjá þyrlu Landhelgisgæslunnar, því flugmaður módelsins er flugvirki og sigmaður hjá gæsl- unni. •Feröir Ferðafélagið töltir Reykjaveg í dag. Viðkomu- staðir eru m.a. Djúpavatn og Méltunnuklif Mæting laust fyrir 10.30 við austurvegg BSÍ og í Mörkinni 6. Staðarskoðun hefst klukkan 14.15 í Viöey. Hún hefst í kirkjunni en þar verður saga eyjar- innar rakin i stórum dráttum og kirkjan skoð- uð. Síðan er farið út, fornleifagröfturinn sýnd- ur og fleira skemmtilegt þar í grennd, einnig útsýnið af Heljarkinn. Loks er svo stofan sjálf sýnd. Þetta tekur innan viö klukkutima og er auðvelt yfirferðar. __ Mánudagur 14. júní •Krár Ef þú labbar inn á Kaffl Reykjavík i kvöld þá er bar- inn á vinstri hönd, Rut og Maggi beint fram undan og til hægri situr skemmtilegt fólk sem er að rifja upp gömul fyllirí. K1 a s s í k í tengslum við uppsetningu Óperustúdiós Austurlands á Töfraflautunni eftir Mozart verða haldnir þrennir tónleikar á Austurlandi þar sem verk W.A. Mozarts veröa i öndvegi. í dag verða tónleikar i Egtlsstaðaklrkju. Þar flytja Guðný Guðmundsdóttir, fiðla, og Gerritt Schuil, píanó, verk eftir Mozart og hefjast tón- leikarnir klukkan 19.00. €Leikhús Vegna fjölda áskorana hefur verið ákveðið að sýna Krákuhöllina ögn lengur. Höfundur er Einar Örn Gunnarsson, leikstjóri Hilmir Snær Guðnason, sviðsmynd og búingar eru í hönd- um Jórunnar Ragnarsdóttur, lýsingu annast Egill Ingibergsson og hljóðmynd hefur meist- ari Sigurður Bjóla með höndum. Leikendur eru útskriftarnemendur Leiklistaskóla ís- lands. Sýningin hefst klukkan 20 i Lindarbæ. Fyrir börnin í dag hefst námskeið fyrir börn í Listasmlöjum Gerðubergs. Fyrst ber að nefna myndasmiðju fyrir 9-13 ára en Sigríöur Ólafsdóttir mynd- listamaöur leiðbeinir. Þá er hægt að velja tónsmiðjuna en kennari þar er Hllmar Þórðar- son tónlistarmaður. Þetta námskeið er fyrir sama aldurshóp. Loks er það leiksmiðja fyrir 7-9 ára börn en þar leiðbeinir Þórey Sigþórs- dóttir leikari. Námskeiðið hefst klukkan 10 stendur til 19. júní. í dag fá börnin á Hlaðhömrum og að Malarási aö njóta Brúðubilsins og Beðið eftir mömmu. Leikhópurin verður á hömrunum klukkan 10 og á ásnum klukkan 14. Beðið eftir mömmu fjallar um bið ungviðis eftir móður sinni og er spennandi og hjartnæmt. Nú hefst nýtt námskeið i Relöskólanum Þyrll en hann er starfræktur í Relðhölllnni í Víðidal. Námskeiðið stendur í 2 vikur. Það er ætlað börnum sem fædd eru á árunum 1984-1991. Kennd er reiðmennska og veitt almenn fræðsla um hestinn. Það eru strætóar númer 10 og 110 sem aka ykkur á staðinn. Nám- skeiöið kostar 14.000 og skráning er í síma 567 3370. •Opnanir Sóley Eiríksdóttir, leirlistakonan sem hafnaði nytjalistinni og helgaði sig fijálslegri kómík, lést 1994. í dag hefst yfirlitssýning á verkum hennar i Hafnarborg, menningar- og llsta- stofnun Hafnarfjarðar. Sýnd eru verk sem spanna feril hennar þann rúma áratug sem hún starfaði. Verk hennar eru mjög persónu- leg og stafar af þeim lifsgleði og kímni. Sýning- in stendur til 16. júli og er opin frá klukkan 12- 18 alla daga nema þriðjudaga. 1 » LaoQardaQtno 18. Jóní á Ha//i Thom«EXi dj. ðronson HlarQCir & Aaðté% CTÍónfchh) L Somarid ht/tl Jjrtt aivöro mcð wrðraumi dtmkói viKnuaoiaQO á HaJ/i thoA«en. Slaóofian oq vcróor í Hatjrati spsrijötonoa oq «Jál/«ÖQðo cev cqqjaadi j&aQSðajMAC^Jar i «vasöino. I f ó k u s 11. júní 1999 Sp o r t Fótbolti, bikarkeppnin, 3. umferð. 23-ára lið Breiðabliks tekur á móti 1. deildarliði Þróttar R. á Kópavogsvelli kl. 20. Þriðjudagur 15. júni •K 1úbbar Tripphopp og djassvíbrar frá Hugh Jazz á Thomsen. Fagurt. •Krár Klamedía er kynsjúkdómur x-kynslóðarinn- ar. Klamedía-X kynnir skífuna Pilsner handa kónginum á Gauknum. Með sjúkt popp. i för er Bris sem leikur sykur- Á Kaffi Reykjavík er Eyjólfur kominn til að sópa Rut og Magga út. Nú færist aftur stuð í leikinn. Andrea og Eddi eru listræn inni á Næsta bar. •K 1 a s s í k Önnur sýning Töfraflautunnar eftir Mozart á Eiðum. Miðar fást í næsta Landsbanka ef þið eruð stödd á Austurlandi. Leikhús Vegna fjölda áskorana hefur verið ákveðið að sýna Krákuhöllina ögn lengur. Höfundur er Einar Örn Gunnarsson, leikstjóri Hilmir Snær Guðnason, sviðsmynd og búingar eru i hönd- um Jórunnar Ragnarsdóttur, lýsingu annast Egill Ingibergsson og hljóðmynd hefur meist- ari Slguröur Bjóla með höndum. Leikendur eru útskriftarnemendur Leiklistaskóla ís- lands. Sýningin hefst klukkan 20 i Llndarbæ. Hallgrímur Helgason hefur skrifað nýtt verk fyrir Hádegisleikhúsið, Þúsund eyja sósa. Þar segir af viðskiptafrömuðinum Sigurði Karli sem stundar flókin rekstur og kanna aö kjafta sig út úr öllum vanda. Með aðalhlutverk fer Stefán Karl Stefánsson, en Magnús Geir Þórðarson leikstýrir. Sýnt er í Iðnó sem fyrr. Fyrir börnin Brúðubíllinn mætir gal- vaskur i Ljósheimana og slær upp sýning- unni Beðið eftir mömmu klukkan 10. Þarna er á ferð- inni ævintýrið um kiðlingana og úlfinn, auk leikrits um unga í hreiðri sem bíða komu móö- ur sinnar. Brúðubíllinn er eina útileikhúsið sem starfar reglulega hvert sumar. •F u n d i r Dr. Guðmundur Hrafn Guðmundsson, Microbiology and Tumorbiology Center Karol- inska Institutet í Stokkhólmi flytur erindi sem nefnist: „Bakteríudrepandi peptíð á fremstu víglínu ónæmlskerfisins“.Fyrirlesturinn er á vegum Miðstöðvar i erfðafræði og hefst kl. 16 i kennslustofu á þriðju hæð í Læknagarði. CSport Fótbolti, úrvalsdeild kvenna. Fjórða umferðin, allir leikir kl. 20. ÍA-Fjölnir á Akranesi, Grinda- vík-KR í Grindavík, Valur-fBV á Hlíðarenda og Stjarnan-Breiðablik í Garðabæ. Fótbolti, bikarkeppni karla. Tiu leikir i 3. um- ferð. Kl. 19 leika Dalvík og FH á Dalvík en aðr- ir leikir hefjast kl. 20. Það eru Huginn/Höttur- Breiðablik.á Egilsstöðum, Víðir-Fram í Garðin- um, KFS-ÍR I Eyjum, Njarðvík-ÍA i Njarðvík, Sel- foss-Stjarnan á Selfossi, KS-Fylkir á Siglufirði, Leiknir R.-lBV í Breiðholti, Þróttur R.23-KR i Laugardal og Þór-Valur á Akureyri. Popp Mannakorn eru komin á kreik. Magnús og Pálmi troöa upp ásamt félögum á Álafoss föt best með allar gömlu perlurnar. Þetta eru tón- leikar sem standa til eitt og á eftir má hrynja íða og taka leigara í bæinn. iKrár Svo er það Hálft í hvoru sem spilar dittinn og dattinn á Kaffi Reykjavik. Landkynningarband íslands. Rokk-pönk-diskójen þó aðallega reaggie)- tríó- ið Úlrik ætlar að djamma einhverja grængol- andi endaleysu yfir hausamótunum á ykkur á Café Amsterdam. Rnt stöff reyndar. Hljómsveitin Sín skemmtir áhangendum Kringlu- krárinnar af innfjálgi allt þar til klukkan slær eitt. Þá skemmta gestirnir dyravöröunum til tvö.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.