Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1999, Page 15
Loftheilinn
„Hvað myndi gerast ef maður
bráðnaði? Þú veist, maður heyrir
aldrei neinn tala um þetta, en
skyndibruni? Hann er til!! Fólk
brennur að innan. Stundum er
einhver i viðarstól og stóllinn
sviðnar ekki einu sinni, en það er
ekkert eftir af manneskjunni
nema tennurnar. Eða hjartað.
Enginn talar um þetta en þetta er
til!“
Þetta lét hann Keanu Reeves
einhvem tímann hafa eftir sér í
viðtali. Keanu hefur aldrei verið
álitinn neitt gáfnaljós og hann
hefur margoft viðurkennt
heimsku sína í viðtölum. Samt
sem áður er hann einn af
Hollywood-elítunni og hefur leik-
ið í mörgum þrælgóðum mynd-
um. Keanu ólst upp í hjólhýsa-
hverfi í Toronto og er kominn af
lágstéttafjölskyldu. Pabbi hans er
hálfur Hawaiibúi og hálfur Kín-
verji en mamma hans er ensk.
Þau skildu stuttu eftir að Keanu
fæddist og mamma hans flutti til
Toronto í Kanada og er Keanu
enn þá með kanadískan rikis-
borgararétt. Hann lagði leikinn
snemma fyrir sig og var í ýmsum
sjónvarpsmyndum og þáttum þar
í bæ en fyrsta myndin sem hann
vakti einhverja athygli í var
River’s Edge eftir Tim Hunter.
Þetta var þegar hann var búinn
að láta drauma sína rætast og
flytja til Borgar englanna. Keanu
varð síðan vinsæll í kjölfar Bill
& Ted myndanna þar sem hann
lék Ted „Theodore" Logan.
Vandamálið er það að hann virð-
ist hafa fest sig í rullunni sem
Ted. Á seinni árum hefur hann
leikið í fjölmörgum stórmyndum
og á hann það að þakka sprengj-
unni sem varð þegar æsimyndin
Speed var sýnd þar sem hann og
Sandra Bullock voru teymi.
Hann hefur ekki beint vaðið í
verðlaunum eða tilnefningum en
einu yerðlaunin sem hann hefur
hlotið eru MTV-verðlaunin en
þau fékk hann einmitt fyrir að
vera í besta teyminu í Speed og
girnilegasti karlmaðurinn í Point
Break. Hann hefur hins vegar
verið margoft tilnefndur og hlotið
Razzie-verðlaunin alræmdu sem
veitt eru fyrir afburðaslæman
leik. Keanu er nú samt þrælgóður
á hlaupum og eflaust búinn að
negla sig niður meðal stjamanna
nú með Matrix. Hann spilar
einnig með hljómsveit sem hann
stofnaði sem heitir Dogstar og er
hún einmitt að fara að spila á
Glastonbury-hátíðinni á
Englandi.
Fæðingardagur og ár: 2.september 1964.
Fæðingarstaður: Beirút, Líbanon.
Stjörnumerki: Meyja.
Maki: Enginn sem vitað er um, hann segist
ekki hafa tíma fyrir slíkt.
Kvikmyndir: River's Edge (1989), Dangerous
Liaisons. (1989), Parenthood (1989), Bill &
Ted's Excellent. Adventure (1989), I Love
You to Death (1990), Bill & Ted's Bogus Jo-
urney (1991), Point Break (1991), My Own
Private Idaho (1991), Bram Stoker's Dracula
(1992), Even Cowgirls Get the Blues
(1993), Much Ado about Nothing (1993),
Little Buddha (1993), Speed (1994), Jhonny
Mnemonic (1995) , A Walk in the Clouds
(1995), Chain Reaction (1996), Feeling
Minnesota (1996), The Devil's Advocate
(1997), Me and Will (1998), The Matrix
(1999), The Replacements (2000)
Frumsýning í dag:
Robeit Cariyle snýr aftur
Fyrsta mynd kauða frá því hann
kom fram í Full Monty og sýndi ekk-
ert á sér delann. Þetta er að vísu
eitthvað mjög skrýtin mynd. Allt út-
lit myndarinnar er ofsalega sjóræn-
ingjalegt með smá Sense and Sen-
sebility ívafl. Nett þreytandi fyrir
alla nema hámenningarpakkið.
Það er að vísu verið að reyna að
blanda þessu öllu saman í Plunkett
and Macleane - erfitt að bera þetta
fram: Plunkett and Macleane. Mynd-
in á að vera ofsalega raunsæ og tek-
ur sjálfa sig alvarlega en bætir við
smá púður-aksjon og virkilegu
drama. Hún er samt sönn saga. Já,
þessir Plunki og Maci voru til i al-
vörunni og létu eins og Hrói höttur.
Rændu þá ríku og svona. Það er því
ekkert sem bendir til þess að mynd-
in sé leiðinleg. Það bendir heldur
ekkert til þess að hún sé skemmti-
leg. En Robbi karlinn verður
allavega góður, því hann getur
leikiö, helvískur. Þetta er samt
svona mynd sem spyrst meira út
heldur en ein af þessum
hæpdrullublöðrum, hún er líka
bresk.
Robert Carlyle er ekki beint sætur,
og þó. Hann er allavega þrusuleikari.
Sveinn.
HVaaon
Miöauerö aðeins 1200 krónur
Flidrik 2000
Talsmenn fá miðann á 980,-
1ÍasTaSNíi
Sími 552 3000
13. , 16. og 21. Júní
15. Júlí og 18. Júlí
Akureyri 11. 12. 18.
visir.is
m
og 19. Júní
NÚ GETUR ÞÚ UNNIÐ
r r
ÞERINN MIÐA A
ÍSLANDSFLUG
gorír fíoirum fœrt aö fíjúgo
vísir.is
i
11. júní 1999 f Ó k U S
15