Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1999, Blaðsíða 2
18
Sjávarútvegur
MIÐVIKUDAGUR 7. JULI 1999
Þorskur til vandræða við kolaveiðarnar:
Hásetahluturinn væri
2,5 milljónir
- ef við þyrftum ekki að leigja kvotann, segir Óskar Gíslason
„Þetta er agalegt, það er svo mikill helv....
þorskur," sagði Óskar Gíslason, skipstjóri á
Þorsteini BA frá Patreksfirði. „Þetta er til
stórra vandræöa. Við höfum verið á snurvoð
hér norðan við vita og úti í Nesdýpi og í kant-
inum og alls staðar er þorskurinn til vand-
ræða. Við erum nú út undir Hrygg og viljum
helst sjá kola, en það er erfitt að ná honum
fyrir þorskinum.
Þetta er þó búið að vera mjög gott í sumar
þrátt fyrir ótíð á köflum. Svo þegar kemur
svona renniblíða, þá liggja menn bara í landi
og spara kvótann. Ég held að kolinn sé að
verða búinn i bili og það verði ekki fyrr en í
ágúst sem hægt verður að reyna aftur.“
- Fer kolinn á markað?
„Nei hann er allur sendur beint út. Þar
fáum við svona 220 til 270 krónur fyrir kílóið.
Við erum fjórir á og byrjuðum á snurvoðinni
í endaðan apríl. Við verðum á snurvoðinni
eitthvað fram á haustið, en förum þó í slipp í
ágúst.“
- Er hátt leiguverð á kvóta í dag?
„Já, þetta er ekki hægt lengur. Leiguverðið
Ágætur afli á Patreksfirði:
Lei^u-
kvotinn
á ævin-
týralegu
verði
- mikið af fiskinum fer suður
„Það gengur alveg hreint ágætlega hjá bát-
unum,“ sagði Ingimundur Andrésson á hafn-
arvoginni á Patreksfirði.
í síðustu viku var landað hér tæpum 357
tonnum, mest af skak- og snurvoðarbátum.
Það eru lika að koma hérna einn og einn að-
komubátur. Gegnumsneitt er þetta þokkaleg-
asti fískur sem fengist hefur hér út af víkun-
um og víðar.
í þrem höfnum Vesturbyggðar komu um
1200 tonn í síðasta mánuði. Mikið af þessum
afla fór á markað. Þaðan fer hann síðan í stór-
um stíl með bílum suður á land til vinnslu.
Annars er maður að heyra af ævintýralegu
verði á leigukvóta, allt upp í 110 krónur fyrir
kílóið. Heyrði ég sagt að viðkomandi hefði
haft 7 krónur upp úr krafsinu á kílóið eftir að
hafa veitt og selt aflann."
Blíða á Eldeyjarmiðum:
Sá guli ^
fjarri góðu
gamni
Þótt ekki séu þeir margir, þá eru samt
nokkrir færabátar sem róa flrá Grindavík í
sumar. Eins og víðar af Suðumesjum, sækja
þeir höröustu gjaman í aðra landshluta á
sumrin.
Óskar Jensson á Aski frá Grindavík er einn
þeirra sem halda sig á heimaslóðum. Þegar
DV sló á þráðinn til hans á mánudag var hann
staddur á svokölluðum Skerjum við Eldey.
„Ég hef það það ágætt í bliðunni," sagði
Óskar. „Hann er þó tregur þessa dagana og
það hefur verið lítið hjá handfærabátunum.
Það er t.d. mun minna en í fyrra. Ég var að
heyra að það væri mokfiskirí út af Skaga-
strönd og það fóra tveir menn frá Grindavík
með háta sína norður á hílum.
Héma var ágætt í síðustu viku en rólegra
núna. Það hefur verið blíða hér í rúma viku,
en annars var leiðindatíð í júní. Mér finnst nú
að þegar góða veðrið kemur, þá eigi sá guli að
vera á staðnum," sagði Óskar og sagði að það
hlyti að fara að rætast úr veiöinni.
er komið í 118 krónur en við höfum verið að
fá upp í 170 krónur fyrir stærsta fiskinn. Þetta
er orðið hrein geðveiki og það geta menn
þakkað kvótakerfinu.
Menn kölluðu það geðveiki þegar verið var
að leigja kvótann á 78 krónur kílóið í fyrra. Á
miðvikudag í síðustu viku leigðum við 50 tonn
á 115 krónur kílóið. Þetta er ekkert annað en
bilun.
Annars er þetta kvótaár búið að vera ægi-
lega rólegt. Það er búinn að vera svo mikill
fiskur að við höfum ekkert þurft að hafa fyrir
þessu. Við erum búnir að leigja til okkar tæp
400 tonn. Það skilar einhverju, en ef það þyrfti
ekki að leigja þorskinn í sjónum, þá væri sko
gaman að lifa. Síðasti mánuður hefði þá ör-
ugglega gefið okkur í hásetahlut 2,5 milljónir
í stað einnar milljónar," sagði aflaskipstjórinn
Óskar Gíslason frá Patreksfirði.
Krókabátar úr Grindavík:
Koma
landleiðina
að sunnan
- í góöa veiði í Skagafirði
„Það hefur verið ágætisveiði hjá bátum
héma,“ sagði Vilhjálmur Skaftason hjá Skaga-
fjarðarhöfn. Það hafa margir spurst fyrir um
veiðina og tveir bátar komu á bílum hingað frá
Grindavík. Hér eru nú nálægt 50 bátar alls
staðar að af landinu. Veiðin núna byijaði
miklu fyrr en í fyrrasumar. Þá var ágætt skot
en bara tveim mánuðum seinna.
Hann er alveg ágætur fiskurinn sem þeir fá
en veröið er frekar lágt núna á mörkuðum. Það
er mest um dagabáta sem núna róa enda lítið
oröið eftir hjá kvótabátunum.
Þá hefur verið ágætt veður, þó dálítil inn-
lögn sé yfir daginn. Veiðin er líka ágæt og það
lifnar mikið yfir mannlífinu þegar svo er,“
sagði Vilhjálmur.
N# l
4
■
«V'
J
%
w • 'j/á
iÉP^
Vestmannaeyjar:
Ágætt
kropp hjá
pungunum
- betra en fyrir tveim árum
Flestir þeir færahátar sem eitthvað fiska í
Vestmannaeyjum róa frá Tálknafirði á sumr-
in. Að sögn Torfa Haraldssonar á hafnarvog-
inni er ekki mikið um trilluútgerð frá Eyjum.
„Þeir hörðustu sem eiga einhvem kvóta drifa
sig vestur á sumrin. Hér þurfa menn að sækja
það langt, og svæðið er erfitt og allt fyrir opnu
hafi. Það era því ekki margir sem hafa lifi-
brauð af trilluútgerð allt árið.
Annars er ástandið þannig núna að flestir
era að verða búnir með kvóta og margir að
hætta eða eru þegar hættir. Það hefur þó ver-
ið ágætt fiskirí hjá trollbátunum. Það er þá
meira bundið því hvað menn mega taka. Það
hefur verið erfiðara að eiga við ufsann og lítið
af honum miðað við það sem var hér á árum
áður.
Þá era þónokkrir sem hanga enn við
humarveiðamar. Það er ekki hægt að segja
annað en að það hafi gengið vel hjá þeim.
Sumir bátanna era þó frekar litlir og hafa þvi
ekki getað beitt sér til fulls. Veiðin hefur samt
verið mjög þokkaleg og ágætt kropp á þessum
pungum. Það er allt annað en í hittifyrra þeg-
ar veiðin hrandi alveg niður.“
Stöðvarfjörður:
Fiskur
alveg inn
á fjórá
- segir Orri Harðarson
Trilluútgerð er í miklum blóma á Stöðvar-
firði. Síðasta hálfan mánuðinn hefur verið
góður afli sem fengist hefur rétt við fjarðar-
mynnið.
„Nú var t.d. einn bátur að landa 3,4 tonnum
eftir daginn en tveir menn era á þeim báti.
Þannig hefur þetta verið hjá fleirum,“ sagði
Orri Harðarson á hafnarvoginni þegar DV
ræddi við hann á mánudaginn. „Þetta er mjög
þokkalegur fiskur sem fæst mjög grunnt,
héma rétt utan við fjarðarkjaftinn. Það er
búið aö vera mjög þokkalegt núna síðasta
hálfa mánuðinn eða svo. Það er engin lygi að
segja að það hafi verið hér fiskur alveg inn á
fjörð.
Það róa einir átta til tíu handfærabátar héð-
an og svo koma alltaf aðkomubátar hingað til
löndunar, enda örstutt inn af miðunum.
Aflinn fer svo til allur á markað. Þó era
menn eitthvað famir að safna í gáma til sölu
erlendis vegna þess að verðið hér heima hefur
verið að falla.“
- Fer fiskurinn á markaðnum til vinnslu á
Stöðvarfirði?
„Nei, minnsti hlutinn af honum fer hér til
vinnslu. Þaö má segja að hann sé sendur um
allt land. Snæfell vinnur þó allan þorsk sem
kemur hér aö landi en það er líka ekið með
hann norður á Dalvík til vinnslu hjá fyrirtæki
félagsins þar, lika þorskinum af togaranum
Kambaröst. Það er samt full vinna í frystihús-
inu hjá okkur og ekkert hægt að kvarta yfir
því.
Færabátamir era flestir á kvóta og margir
eiga nokkuð drjúgt af honum. Hann drýgist
líka talsvert þar sem á vetumar veiðist mikið
af ýsu og steinbít. Ýsan byrjar svo að koma
aftur svona í ágúst eða september," sagði Orri
og var rokinn til að taka á móti næsta skak-
báti.
Trillukarlar á Raufarhöfn:
Skreppa
heim í há-
degismat-
inn
Nokkrir smábátar hafa róið frá Raufarhöfn
að undanfomu. Á hafnarvoginni fengust þær
upplýsingar að þó rólegt væri þessa dagana
hefðu verið fín aflabrögö hjá þeim sem hefðu
verið á sjó. Fiskurinn hefur verið góður og
menn verið að fá upp undir átta til níu hund-
rað kíló á mann yfir daginn. Þeir þurfa ekki
að sækja langt bátamir frá Raufarhöfn og því
ekki óalgengt að þeir skreppi heim til sín í há-
degismatinn.
Helgi Hólmsteinsson er einn þessara gömlu
sjósóknara sem man tímana tvenna í sjósókn
frá Raufarhöfn. Hann rær nú á 6 tonna plast-
báti.
„Jú, ég er búinn að vera í þessu i hálfa öld,“
sagði Helgi. „Við vorum nú á grásleppu fram-
an af sumri en veiðin var léleg og tíðarfarið
leiðinlegt. Nú í júní hefur þó verið sæmilegt
kropp á færi. Við sækjum hér rétt út fyrir og
fiskurinn er sæmilegur þó smátt sé innan um.
Menn hafa komist upp í tonnið á mann yfir
daginn en cúgengara er þó að þeir séu með
fjögur til fimm hundrað kUó.
Það era fáir handfærabátar hér núna.
Það fóra nokkrir á net eftir grásleppuver-
tíðina og gerðu það nokkuð gott í fyrstu.
Þeir náðu nú flestir kvótanum sínum þó
þetta væri frekar stutt skot.
Það er heldur skárri veiði núna en ver-
ið hefur undanfarin ár. Hér hefur verið
alveg helvítiseymd hjá okkur í nokkur ár
þó gott hafi verið við Vestfirði og Grímsey.
Jakob fiskifræðingur kennir kuldanum í sjón-
um þar aðallega um.
Það er svo skrítið að það virðist vera að
sum svæði verði dauð á margra ára tímabUi
en svo lifna þau við að nýju. Það var eins og í
Skagafirði, þar var steindautt í 15-20 ár en nú
er að koma fiskur upp þar aftur. Þegar Ula
árar hafa menn mikið farið héðan vestur á
firði og við höfum líka verið að skrölta hér
austur fyrir Langanes og austur á Bakkafjarð-
armið.
Hingað hefur verið að berast loðna og svo
eru útlendingamir famir að fá demantsUd í ís-
lenskri landhelgi, þá eru íslendingarnir búnir
meö kvótann. Ég hef aUtaf verið voðalega
gagnrýninn á það hvað þeir byrja snemma.
Þeir hafa verið að fá grindhoraða sUd langt
norður í hafi og þetta er ekki nema tóm vit-
leysa. Þetta passar ekkert við það sem var hér
áður fyrr, þá var það í júní og fram í ágúst
sem síldin var best, spikfeit og góð. Nú eru ís-
lensku loðnuskipin að fá sUd í nætumar á
loðnuslóðinni hér austur af Langanesi en þeir
mega bara ekki taka hana. Ég er viss um að
þeir naga sig margir í handarbökin yfir að
vera búnir með sUdarkvótann," sagði Helgi
Hólmsteinsson.
Skakbátar frá Hornafirði:
Sumir
leggjast í
víking
- og róa frá Vestfjörðum
Sigfús Harðarson á hafnarvoginni á Höfn í
Homafirði sagði ágæt aflabrögð hafa verið hjá
færabátum að undanfomu. Renniblíða hefur
verið og því aUir á sjó sem vettlingi geta vald-
ið. Hornafjarðarbátar hafa verið að sækja aUt
vestur undir Ingólfshöfða og víðar. Afli færa-
bátanna hefur verið þorskur og ufsi og alveg
þokkalegasti fiskur. „Svo hafa menn líka lagst
í víking og sumir farið á Vestfirðina og róið
þaðan.
Ólíkt því sem gerist í Vestmannaeyjum þá er
nánast engin humarveiði frá Homafirði. „Það
er svo skritið að það er eins og það fáist bara
enginn humar þegar kemur fram í maí, þá er
bara klippt á þetta," sagði Sigfús.
Af stærri bátum var það helst að frétta að
loönuskipið Jón Eðvalds var að fara tU loðnu-
leitar en þar á bæ era menn búnir að taka sex
þúsund tonn af sUd og nú má ekki veiða meira
af þessu silfri hafsins í bUi.
-HKr.