Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1999, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1999, Qupperneq 9
„Eg var í byggingavinnu hjá Að- alverktökum, var búinn að safna smápening og átti orðið akkúrat fyrir skellinöðru," segir Hörður um gráglettni örlaganna og svarar því hvers vegna hann varð hljóð- færaleikari: „Sama dag og ég ætl- aði að kaupa skellinöðruna hitti ég Bigga bróður sem hafði verið að þvælast í Hljóðfæraverslun Paul Bernburg. Þar var hægt að kaupa kompakt píanó sem var tvö þúsund krónum ódýrara en skellinaðran. Ég gerði það og þar með varð ég poppari en ekki bifhjólavirki." Hörður hefur ekki séð eftir þess- ari ákvörðun. Eins og kemur fram hér til hliðar hefur hann verið í ýmsum nafntoguðum böndum. Léttleikinn hefur alltaf verið í fyr- irrúmi í böndum Harðar, en list- rænn metnaður aldrei langt undan. Hvað ætli reki Hörð áfram í popp- inu? Er alltaf jafn gaman að þessu? „Mér tekst alla vega alltaf að gera þetta skemmtilegt. Ég heiti fullu nafni Hörður Poppkom en er kallaður Höddi Popp. Það er helst nafnið sem rekur mig áfram.“ Hefur þér einhvern tímann tekist aö lifa af poppinu eingöngu? „Nei. Jú, bíddu. Eitt sumar á Norðfirði með Amon Ra, en ég var næstum því dauður af því. Ef ég hefði ekki stolið rabarbara úr görð- um hefði ég dáið. Þama lærði ég að það eina sem læknar hellu i eyra eftir flugferðir er stolinn rabarbari. Ég útskýri þetta frekar í lækninga- bók minni, en rabarbarinn verður að vera stolinn." Veikur fyrir sálmum Rabarbari dugar skammt og ein- hvem veginn verða popparar að fá salt í grautinn. Hörður starfar sem organisti í Ferill Grafarvogs- kirkju. Harðar Poppkorns: „Ég átti hænurnar" Hörður Braga- son er búinn að vera í poppinu í áratugi en þetta er fyrsta einkavið- talið hans. Hann er í sýrupolkasveitinni Hr. Ingi R. sem í dag gefur út sína fyrstu plötu ásamt stórsöngkonunni Möggu Stínu. „AnnaðHvort er þetta stærsti söfnuður landsins eða sá elsti, ég get ómögulega munað það,“ segir hann og bætir við: „Guð almáttug- ur er ágætis vinnuveitandi, um- burðarlyndur og þægilegur." Fœróu aö poppa í kirkjunni? „Nei, en ég fæ að vera háfleygur og virðulegur listamaður. Ég hef alltaf verið veikur fyrir sálmum. Ég píndi m.a.s. foreldra mína til að gefa mér sálmasöngsbók þegar ég var unglingur. Ég hlusta aldrei á kórmúsík en mér finnst mjög gam- an að stjórna kór. Því stærri því skemmtilegra." Þú ert greinilega hœstánœgöur meö organistadjobbiö. En hvað var þá ömurlegasta starfiö? Nú hugsar Hörður lengi og vill ómögulega nefna vikuna sem hann var í Álverinu af því að frænka hans er forstjóri þar. „Þar vaxa víst blóm í kringum súrálskerin núna,“ fullyrðir hann. Loks kvikn- ar ljós: „Einu sinni var ég í máln- ingarvinnu í einn dag. Málningar- meistarinn var ofboðslega komplexaður yfir öllu og það var rosa- lega erfitt að vinna með h o n - Lúslfer. Unglingahljómsveit sem stofnuð var til að spila á „Pang"-kvöldi I Breiðholtsskóla. “Viö vorum vinsælir í Breiöholtinu. Viö hættum nokkrum sinnum og skiptum um nafn þegar viö þurftum aö losna viö einhvern úr hijómsveit- inni. “ Amon Ra. Gamalgróin norðfirsk sveitahippa- hljómsveit. ‘Vinsælasta hljómsveit á Austur- landi ever. Ég haföi kynnst Jóni Skugga í bæn- um og hann dröslaði mér tvö sumur austur til að spila á sveitaböllum." Sinfóníuhljómsvelt Hermanns Nitsch. Tólf manna hljómsveit austurrisks nýlistamanns sem kom hingað og kenndi í MHÍ. "Sellóleikur minn var undirstaöan I þessum hópi. Viö ferö- uöumst um Evrópu og spiluöum jafnt I viröuleg- um konsertsölum og aumum björknæpum. “ listaspíra sem stóö fyrir þessari kaótísku stór- sveit. ‘Ella ætlaöi fyrst aö stofna kvennaband en hringdi í okkur strákana þegar henni bauöst aö spila á Borginni. Svo lognaöist bandiö út af og í lok- in voru bara Ella og Þorvar úr Jonee Jonee eftir á einhverri iðnsýningu." Tónabræöur. Skammlíf gervi- djasshljómsveit. "Viö spiluöum einu sinni I Glæsibæ og einu sinni á balli hjá MHÍ. Ég og Ósk- ar Jónasson spiluöum frægt síams-saxófónssóló og mottó bandsins var: Djass í þúsund ár." Nýmjól. Jólakassetta Haröar sem gefin var út í mjög takmörkuðu upþlagi. “Jólin fóru frekar I taugarnar ámér þegar ég geröi þessa spólu en þarna er samt ósvikin jólatónlist, eins og lögin Brunl BB. Hryðjuverkamenn sem drápu hænur í Rokki í Reykjavík og hræddu lögguna með keðjulausum keðjusögum. ‘Ég átti hænurnar en BJössl Roth fékk að drepa þær þv! hann var mesti veiðimaðurinn. Svínið sem slapp iifir enn í hárri elli." um. Hann hét Helgi D. Sigurðsson og skýringuna á komplexinu fékk í lok vinnudagsins þegar það komst upp að D-ið stóð fyrir Dagur. Það segir sig sjálft að það er hræðilegt að vinna hjá málarameistara sem heitir Helgi Dagur. Þá er örugglega skárra að vinna hjá Sigurjóni Blá- feld loðdýraræktarráðunauti." Lögin sem við urðum að spila Hörður lítur ekki á stússið með Hr. Inga R. sem hobbí. „Nei, hobbíið mitt er að vera undirleikari hjá Karlakór Rangæ- inga,“ segir hann. „Það er mjög skemmtilegt. Ég keyri austur og spila með körlun- Kela skildu aldrei komast á prent. Til dæmis þetta: Tútturnar á Bíbí / eru betri en orð fá lýst / Ég æpi með hjarta mínu / að ég fái þær að mér þrýst." Júplters. Fjörug stórsveit sem spil- aði salsapönk og skemmti skralllýö landsins um árabil. “Ég man nú einna helst eftir fyrsta slagoröi sveitarinnar: Death to dixieland!" um a t ó n - leik- um Gleöileg jól og Svört jól. Spólunni veröur fylgt eftir meö Súrmjól fyrir næstu jðl. “ Oxzmá „Killembillí'-hljómsveitin goðsagna- kennda. Flottasta band klakans um miðjan síö- Hljómsvelt Ellu Magg. Ella Magg var dugleg asta áratug. "Það er sorglegt aö textarnir hans og drekk aðeins með þeim á eftir. Þetta eru skemmtilegir karlar og skáldmæltir hver einn og einasti. Þeir hafa beðið um samstarf við Hr. Inga R. Maður ætti að setja þetta allt í einn graut og fá styrk til að fara til Grænlands á eitthvert kúlturfestival." En nú að aðalmálinu. Plötunni með Hr. Inga R. og Möggu Stínu sem kemur út í dag. Á plötunni eru eðalfin dægurlög eftir aðra. „Þetta er ekki períódu-tónlist þó að við séum að spila kóverlög," staðhæfir Hörður. „Þetta eru bara lögin sem við urðum að spila. Ekki að við höfum búið til það konsept að við ætluðum að spila lög frá ákveðnu tímabili. Þetta eru lög frá okkar eigin ævi og sum frá því rétt fyrir getnað okkar.“ Til hvers eruö þið aö taka þessi lög? „Af því að þetta eru eiginlega okkar lög. Við eigum þessi lög og sláum endanlega eign okkar á þau með því að gefa þau út sem okkar lög. Fyrir samstarfið spiluðu Hr. Ingi R. eigin lög og Magga Stína líka, en svo sameinuðumst við um það að eigna okkur lög annarra. Svo er eitt sem mér dettur í hug og gæti verið djúpt í sálarlífinu hjá okkur. Það er það sem Jón Páll gít- arleikari sagði: „Sko, þetta pakk sem er alltaf að semja lög eru bara aumingjar sem geta ekki spilað lögin sem er búið að semja.“ Skiluröu? Við erum að athuga hvort við séum aumingjar eða ekki." Er þaö ekki bara aumingja- skapur aö spila músík? „Jú jú, og hvað þá að semja hana. Það er algjör vitleysa og aumingjaskapur að semja fleiri lög.“ -glh fólksins Síðan Árni Johnsen reið á vaðið með ÍSLAND hafa um 1500 manns fengið sér einka- númer. Stafirnir mega mest vera sex en minnst tveir. Þetta er ekki mikið rými fyrir stór- kostlega brandara, en nokkur ágæt einkanúmer sjást þó á götunum, t.d. ÉG, JÆJA, ÆLOFJÚ, H KARL og NEI HÆ. En hvaða einkanúmer ætti fræga fólkið að fá sér? Hér tek- ur Fókus ómakið af máttar- 9. júlí 1999 f Ó k U S 9

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.