Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1999, Síða 10
áp
Madonna er komin á toppinn
me> lagi> hennar fína úr
Austin Powers. Hún var búin
a> slugsast fletta í flrjár
vikur. Er pabbastelpan ekki
sæt og dugleg?
vikuna 8.7-15.7. 1999
NR. 331
Vikur á lista
(y BEAUTIFUL STRANGER.............MADONNA f- ||||
H SCAR TISSUE . . . . . . .RED HOT CHILLI PEPPERS 4 fl.
% AMERICAN WOMEN LENNY KRAVITZ ||||
FLJÚGUM ÁFRAM . SKI'TAMÓRALL f- ||j|
ALL OUT OF LUCK SELMA (EUROVISION) ! 10|.t0|.||
0 WILD WILD WEST . .WILL SMITH (WILD WILD WEST) -f- 10f|
! STARLOVERS ....
SECRETLY
BOOM BOOM BOOM BOOM VENGABOYS 1 101.111
f) HEY BOY, HEY GIRL
11 LASTKISS
.PEARL JAM ^ ||
12 LENDING 407
■LAND OG SYNIR 1f
13 RIGHT HERE RIGHT NOW -{ mm
14 ÞÚ ERT EKKERT BETRI EN ÉG SSSÓL t llll
15 FLUGUFRELSARINN 4 iiii
16 NARCOTIC f iiii
17 LIVIN’LA VIDA LOCA . . . . 4mm
18 MY LOVE IS YOUR LOVE . . . .WHITNEY HOUSTON t iii
19 YOU LOOK SO FINE . . . . 4 iiii
20 ANYONE ® iii
(fy OOH LA LA 4 m
UNPRETTY t iii
ALEINN t iii
^ IF YOU HAD MY LOVE . . JENNIFER LOPEZ t iii
(jfr MAMBO NO. 5 t ii
^ WORD UP .MEL B (AUSTIN POWERS) |
LITLA HRYLLINGSBÚÐIN . . .ÚR LITLU HRYLLINGSB. 4 m
^ SWEET LIKE CHOCOLATE . . .SHANKS & BIGFOOT t m
^ ROOTS (FEEL TOO HIGH) . .SUNSHINE STAE & DAZ f iiii
4 FEEL FOR ME <«m|
WHEN YOU SAY NOTHING. RONAN KEATING jim |
^ALLSTAR 4 mi
Qjf I QUIT............................HEPBURN , ||
„Plötusnúðurinn er nýja rokk-
stjarnan.“ Þetta er fullyrðing sem
heyrst hefur lengi eða síðan að
„danstónlist“ varð vinsæl á massa-
vís. Það er rokklíf í Fatboy Slim
og The Prodigy. Fatboy gengur um
í Hawaii-skyrtu og er giftur ein-
hverju beibi og Keith Flint í
Prodigy fær lánað viðhorf frá
pönkinu og hagar sér eins og arg-
asti rokkhundur þegar svo ber
undir. Þriðja hjólið undir stór-
stjörnuvagni danstónlistar í Bret-
landi er dúóið The Chemical
Brothers en það er voðalega lítið
rokk í þeim strákum heldur segir
tónlistin allt sem segja þarf. Tom
Rowlands er auðþekkjanlegri en
félagi hans Ed Simons. Tom er
síðhærður og alltaf með gleraugu
með gulu gleri en Ed hefur engin
sérkenni. Það væri auðvelt að
ruglast á þeim og strákum í bak-
aranámi en þetta eru nú samt
strákarnir á bak við plötuna „Sur-
render“ sem fór beint í efsta sæti
breiðskífulistans í Bretlandi í síð-
ustu viku.
Burt með tunguna!
Saga Chemical Brothers hófst
þegar Tom og Ed kynntust í skóla
í Manchester. Þeir tóku ekki þátt
i félagslífl innan skólans, heldur
héngu á bókasafninu, pældu í tón-
list og löptu í sig danskennt rokk
í Hacienda-klúbbnum. Síðan
dönsuðu þeir úr sér vitið í reif-
partíum, fundu upp bigg-bítið í
Heavenly Social-klúbbnum í
London og nú rúmum áratugi síð-
ar eiga þeir að baki tvær mix-
plötur, þrjár stúdíóplötur og fullt
af endurhljóðblöndum fyrir aðra.
„Danstónlist“ er að mestu and-
litslaust fyrirbæri, fólkið sem ger-
ir tónlistina skiptir litlu máli,
heldur er músíkin sjálf í aðalhlut-
verkinu. Ed og Tom skilja ekki
stjörnur sem vilja lifa tilfmninga-
lífl sinu í gegnum fjölmiðla. Þeir
eru sammála málarantun Henri
Matisse, sem sagði að allir lista-
menn ættu að skera úr sér tung-
una og meinti að listamaðurinn
ætti aldrei að útskýra list sína.
„Já, okkur líður dálítið
þannig,“ segir Ed. „Við viljum
ekki að tónlistin verði of samofin
okkur tveimur. Við viljum ekki
plötudómur
Þeir líta kannski út eins og bakaranemar, en þessir tveir 28 ára gaurar áttu
söluhæstu plötuna í Bretlandi í síðustu viku.
að hún verði sápuópera. Við eig-
um báðir mjög erfitt með að tala
um einkalíf okkar í fjölmiðlum
eða að lifa tilfinningalífi í gegn-
um tónlistartímarit. “
Vilja vekja aleði, ekki
skjóta úr fallbyssu
En þó nýju rokkstjörnunum leið-
ist að tala um sjáifa sig leiðist þeim
ekki að ræða um tónlist. Það er allt
annar fílingur í nýjustu plötu Efna-
bræðranna en í fyrri plötum.
„Það er ekkert á plötunni sem
snjóbrettaliðið á eftir að fíla,“ segir
Tom.
„Við lögðum okkur fram og
reyndum að gera nýja hluti. Þessi
plata stríðir á móti þeim hugmynd-
um sem fólk hefur um okkur,“ seg-
ir Ed. „Við vildum bara gera tón-
list sem fólki þætti vænt um og
vekti gleði hjá hlustendum. Við
viljum reyna að lyfta fólki á annað
plan í stað þess að skjóta því úr
fallbyssu, eins og kannski er hægt
A móti sól
— 1999 ★ ★★
að segja.að tónlist okkar hafi gert
til þessa.“
Og þetta er engin vitleysa í þeim.
Þó góð grúf og stuð einkenni hluta
af plötunni (eins og smellinn „Hey
Boy Hey Girl“) er hún þó að stærri
hluta í rólegri gír, fljótandi og jafn-
vel hippaleg á köflum. Að vanda
leggja nokkrir popparar drengjun-
um lið, þ.á.m. Noel Gallagher,
Bobby Gillespie (úr Primal Scr-
eam) og Bemard Sumner (úr New
Order). Tónlistarpressan hefur um-
vörpum slefað út um enda er þetta
ein besta plata ársins til þessa;
þykkur og góður pakki, fullur af
æðislegum lögum. „Surrender"
sýnir ótvírætt fram á að það er líf
á eftir bigg-bítinu og líka að
Chemical brothers er hljómsveit í
allra fremstu röð.
GET READY......................MASE | mfí
SWEET CHILD O’MINE
% BUSES AND TRAIN . . .
4 THINKING OF YOU . . .
(fe TSUNAMI .MANIC STREET PREACHERS i«m |
4 WHAT YOU NEED . . . .POWERHOUSE FEAT DUANE... («m |
Qjf LOUD AND CLEAR.............THE CRANBERRIES nm |
íslenski listinn er samvinnuverkefni
Mónó og DV. Hringt er í 300 til 400
manns á aldrinum 14 til 35 ára, af
öllu landinu. Einnig getur fólk
hringt f síma 550 0044 og tekiö þátt í
vali listans. íslenski listinn er
frumfluttur á Mono á fimmtudags-
kvöldum kl. 20.00 og birtur á
hverjum föstudegi f Fókus. Listinn er
jafnframt endurfluttur á Bylgjunni á
hverjum laugardegi kl. 16.00. Listinn
er birtur, aö hluta, í textavarpi MTV
sjónvarpsstöðvarinnar. íslenski
listinn tekur þátt í vali ,,World
Chart“ sem framleiddur er af Radio
Express í Los Angeles. Einnig hefur
hann áhrif á Evrópulistann sem
birtur er f tónlistarblaöinu Music &
Media sem er rekið af bandaríska
tónlistarblaöinu Billboard.
Jttn \ Ö
Nýtt á Hækkar sig frá Lækkar sig frá Stendur
listanum síöustu viku síðustu viku í stað
Taktu þátt í vali
listans í síma
550 0044
If ékus
Yfirumsjón meö skoöanakönnun: Halldóra Hauksdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaösdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó
Handrit, heimildaröflun og yfirumsjón meö framleiöslu: Ivar Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiösla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn
Steinsson Útsendingastjóm: Ásgeir Kolbeinsson, Jóhann Jóhannsson og Ragnar Páll ólafsson - Kynnir i útvarpi: Ivar Guömundsson
Fimm-drengja sveitin Á móti sól
fyllir þann hóp hljómsveita sem
hægt er að kalla „sbs“ - sveita-
ballasveit. Sveitarmeðlimir koma
af Suðurlandi og eru með aflitað
hár en hljómsveitin tekur þó ann-
an pól í hæðina þegar kemur að
áhrifavöldum, tekur sig blessunar-
lega ekki of hátíðlega og á auðvelt
með að semja grípandi lög. Fyrir
vikið er hún heiðarlegri og einfald-
lega skemmtilegri en flestir aðrir í
sbs-kreðsunni.
Fyrsta albúmið, Gumpurinn,
kom fyrir 2 árum en hvarf spor-
laust. Sveitin hefur síðan átt vin-
sæl stuðlög á safnplötum og spilað
eins og rófulaus popphundur. Nýja
platan, 1999, er ekki yfirlegin stór-
snilld og brýtur ekki í blað í tón-
listarsögunni, en hún verður samt
að teljast mjög hressilegt safn 12
misgóðra popplaga.
Á móti sól ræður við margs kon-
ar stefnur. Ska-popplögin eru fimm
og fljótandi í grípandi melódíum og
fjörugum lúðrablæstri. Það er
verulegt dauðyfli sem hressist ekki
við argandi skastuðlög eins og
Stelpur og Viagra, en í laginu
Geimverur fer léttleikinn á leik-
skólastigið og töffarar þurfa eflaust
að vera komnir í blakkát til að láta
sjá sig á hoppinu við það.
í algjörri andstæðu við ærslafullt
ska-ið býður Á móti sól svo upp á
glimrandi popp sem oft minnir á
eldgömul eðalbönd frá iðnaðar-
rokktímabilinu (t.d. Boston eða
Start). Bandið beitir einföldum
melódíugöldrum og það þarf veru-
legan viljastyrk til að seilast ekki í
kveikjarann og hefja hann á loft
þegar viðlögin í Sæt, Þúsund, Af-
sakið eða Part 2 skella á með jafn-
sannfærandi krafti og steratröll í
teyjustökki. Annað gott á plötunni
er popp-metal samsuðan Haltu
kjafti, þar sem Ellý í Q4U mætir í
leðurdressinu, og skemmtileg er
samflétta gítars og hljómborðs í Ég
er til, sem er yfirlætislaus ballaða
sem vinnur á.
í texhmum gengur sveitin jafn-
hreint til verks og í tónlistinni.
Textagerðin er stundum klaufaleg
Spilamennskan er passlega
kæruleysisleg og hljómar lif-
andi og nokkuð þétt
(eins og þegar „ömmu“ er látið
rima við ,,ömmu“) en maður skilur
a.m.k. hvaða hugsun er í gangi
(nær undantekningalaust eitthvað
um samskipti kynjanna) og það er
engin hégómleg ljóðrænuvitleysa á
ferðinni. Það var rétt ákvörðun að
prenta textana ekki í umslagið
(textaframburður söngvarans er
líka svo skýr) en spuming hver
nennir að lesa stjörnukort strák-
anna sem þeir prentuðu í staðinn.
Allavega nenni ég því ekki.
Spilamennskan er passlega
kæruleysisleg og hljómar lifandi og
nokkuð þétt. Sándpælingar eru
skammlausar en ekki mjög frum-
legar, ekki frekar en tónlistin, svo
sem. En þó frumlegheitin vanti er
hér nóg af skemmtilegu og tilgerð-
arlausu poppi og ef mig langaði á
sveitabali færi ég beint á ball með
Á móti sól.
Gunnar Hjálmarsson
f Ó k U S 9. júlí 1999
10