Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1999, Síða 15
bíódómur
Stjörnubíó
— Go ★ ★★
Undanfarið hafa snillingarnir streymt frá
Danmörku. Nú eru þeir líka farnir að
kynna nýjungar í kvikmyndatækninni sjálfri.
Leikstjóri Doug Liman. Handrit
John August. Aðalieikarar: Sarah
Poley, Katie Holmes, Scott Wolf,
Jay Mohr og Desmond Askew.
í tveimur kvikmyndum, Swingers
og Go, hefur Doug Liman f]allað um
ungt fólk i Los Angeles, ekki ungt
fólk eins og við eigum að venjast í
bandarískum kvikmyndum heldur
leitandi ungt fólk sem vill finna eitt-
hvað sem það hefur ekki tangarhald
á og er yfírleitt á sama upphafs-
punkti í lok myndanna. Ef Swingers
var um að ganga hægt um gleðinnar
dyr þá er Go um dyr sem ekki á að
ganga í gegnum. í Go fer Liman þá
leið að skipta myndinni upp, láta
hana byrja fjórum sinnum frá sama
útgangspunkti en fara svo sitt í
hvora áttina í að lýsa sama atburð-
inum. Þetta tekst honum vel að
langmestu leyti, eini gallinn er að
einn hlutinn, saga afgreiðslumanns-
ins Simons, er nokkuð á skjön við
þungamiðjuna en fellur síðan inn í
rammann að lokum.
Útgangspunkturinn er í kjörbúð
þar sem þau Ronna, Claire og Simon
vinna. Tveir ungir og ásjálegir
menn koma inn í búðina í leit að
Simon sem hefur aukatekjur af sölu
eiturlyfja og vilja kaupa af honum
alsælu. Simon hefur rétt áður horfið
á braut og hvert hann fór kemur
fram í öðrum hluta myndarinnar. í
þeim fyrsta fylgjumst við með
Ronnu (Sarah Polley) sem telur sig
geta útvegað Adam (Scott Wolf) og
Zack (Jay Mohr) það sem þeim vant-
ar. Hún fer á kreik, bjargar sér um
alsæluna en salan mistekst sem er
ekki gott mál því Ronna hafði látið
vinkonu sína Claire (Katie Holmes)
sem tryggingu íyrir því að hún
myndi borga sölumanninum. Annar
hluti segir frá afdrifaríkri og enda-
sleppri ferð Simons (Desmond
Askew) með vinum sínum til Las
Vegas. í þriðja hlutanum eru það
hommarir og vinirnir Adam og
Zack sem segja sínar farir ekki slétt-
ar, eru í aðstöðu sem þeir vildu svo
gjaman losna úr. í fjórða hlutanum
er svo púslað oft með augum Claire
sem hefur að mestu staðið fyrir utan
atburðina sjálfa og í lokin eru ung-
mennin nánast i sömu sporum og í
byrjun, aðeins reynslunni ríkari.
Doug Liman er góður stílisti, stíll
hans er hraður og hrár en um leið
beinskeyttur og hann kann að fara
með svartan húmor. Húmorinn er
I Go fer Liman þá leið að
skipta myndinni upp, láta
hana hyrja fjórum sinnum
frá saman útgangspunkti en
fara svo í sína hvora áttina
til að lýsa sama atburðinum.
bestur í þeim hluta, sem kannski
kemur sögunni minnst við, það er í
ferð Simons og vina hans til Las Ve-
gas. Sköpunarþörfm er mikil hjá
Liman og í sumum atriðum nánast
skín hún í gegn en ætlar sér um of
stundum og það er eins og hann eigi
eftir að fínpússa stílinn. Liman hef-
ur gott vald á leikurunum sem upp
til hópa sýna góðan og agaðan leik.
Hilmar Karlsson
Danirnir
eru að
hertaka
kvikmynd
Dogma, sem Danir voru svo snjallir
að finna upp, er orðið að nokkurs kon-
ar tiskufyrirbrigði í kvikmyndaheim-
inum. Nú eru Bandarikjamenn að
ljúka við gerð sinnar fyrstu dogma-
myndar og heitir hún einfaldlega
Dogma. í henni segir frá tveimur
englum. Þeir heita Loki og Bartleby
og sækja um inngöngu á ný í himna-
ríki eftir að hafa verið útskúfað og
eru ófeimnir við að nota alla þá klæki
sem þeir þekkja til þess. Leikstjóri er
Kevin Smith og það
reyndist honum ekki
erfitt að fá þekkta
leikara til að leika
fyrir lítið, en þeirra á
meðal eru Linda
Fiorentino, Chris Danirnir eru að
Rock, Ben Affleck, sem gæti eytt
Matt Damon, Alan
Rickman, Selma Hayek, Jason Lee,
Janeane Garofalo, George Carlin og
söngkonan fræga Alanis Morissette.
Frændur okkar og fyrrum
stjúpfeður (hljómar óhugnanlega)
láta sér ekki nægja að umtuma
bransanum með
hugmyndafræðinni einni saman
Alanis Morissette er að fara að leika
í amerískri útgáfu af dönsku dogma.
heldur eru vísindamennirnir
þeirra að finna upp almennilegt
þrívíddarbíó. Það vita allir hvað 3-
D myndir eru. Þær hafa að visu
ekki verið í bíó í þó nokkur ár en
nú gæti orðið breyting þar á. Og
sem betur fer því þetta eru
frábærar myndir. Hver man ekki
eftir Jaws og öllum þessum gömlu
góðu sem
Borgarbíó í
Kópavogi dældi
yfir okkur?
En nú geta
aðdáendur 3-D
finna upp nýtt 3-D bíó mynda andað
þessum gleraugum. léttar þó
lyktarperramir
verði að bíða. í Hróarskeldu eru
vísindamenn nefnilega að leggja
lokahönd á tækni sem gerir kvik-
myndahúsum kleift að sýna mynd-
ir í þrívídd án þess að menn þurfi
að hafa þessi ömurlegu gleraugu á
nefinu. Þetta mun eiga að heita
Holographic þegar þar að kemur.
BMW
Compact Sport Edition
Grjótháls 1
söludeild 575 1210
Glæsilegur BMW sportbíll!
Glæsilegur BMW, hlaðinn aukahlutum
og búnaði, með aksturseiginleika sem
aðeins BMW státar af.
Sérstakur búnaður:
• M-leður/tau áklæði á sætum
• M-leðurklætt stýri
• M-fjöðrun
• M-spoilerar allan hringinn
•10 hátalara hljómkerfi
• Þokuljós
• Fjarstýrðar samlæsingar og ræsivörn
BMW ánægja og öryggi:
• BMW útvarp með geislaspilara
• ABS og ASC+T spólvörn
• 4 loftpúðar, 5 höfuðpúðar
• Vökva- og veltistýri
• Frjókornasía í loftræstingu
1 .948.000 kr.
• Aukabúnaður á mynd: álfelgur.
Engum líkur
9. júlí 1999 f Ó k U S
15