Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1999, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1999, Qupperneq 16
* Heimsmaðurinn Krístinn Jón Arnarson skellti sér á Kelduna þetta árið vegna góðrar reynslu af hátíðinni í fyrra. Hér birtist ferðasagan - vandlega ígrunduð stúdía sem vonandi hjálpar lesendum Fókuss til að ákvarða hvort partíið í Keldunni hans Hróars eigi að vera inni í næstu sumarfrísplönunum. S' Maður sér alltaf strax á Flugstöð Leifs Eiríkssonar að eitthvað stendur til í útlandinu. Glaðbeittir hópar ungs fólks eru mættir á stað- inn með tjöld og svefnpoka og margir byijaðir að hita upp fyrir hátíðina. í flugvélinni tekst svo nokkrum ungum piltum að missa sín yfir væntanlegri gleði svo næst- um fer að minna á meðal kvenfé- lagsferðalag. Engin stórslys verða, en heimsmaðurinn skrifar í and- lega minnisbók sina að tjalda sem lengst frá þessum kumpánum sem gátu ekki einu sinni hegðað sér al- mennilega í flugvélinni. Það er nefnilega öfugt við það sem margir gætu haldið að drykkjulæti og almenn leiðindi séu óhjákvæmilegir fylgifiskar Hró- arskelduhátíðarinnar. Samkoman einkennist almennt af jákvæðu andrúmslofti og „öll dýrin í skógin- um eiga að vera vinir“- attitjúdi frekar en „berja mann og annan“- leiðindunum heima. Gott dæmi er t.d. að í dagblaði frá hátiðinni sást að í dagbók lögreglunnar eftir 4 daga höfðu aðeins rúmlega 200 inn- brot verið tilkynnt í tjöld. Mll. ” við að gestir eru 65.000 talsins ] reiknast mér til með líkindareikningi að meiri 1__ séu á að fá gervitungl í hausinn en að verða fyrir barðinu á tj þjófúm. Fimmtudagur: Manson er píka Komið var inn á svæðið á þriðju- dagskvöld. Þó svo hátíðin byrji ekki fyrr en á fimmtudagskvöldi er slikt magn af fólki mætt á svæðið að erfitt er að finna tjaldstæði. Það hefst þó á endanum og síðan hefst biðin eftir að fjörið byiji fyrir al- vöru. Það er reyndar ekki erfið bið, því stemningin á tjaldstæðunum er almennt góð og menn finna sér ým- islegt til dundurs. Á fimmtudeginum byrjaði svo ballið. Mesta athygli það kvöldið vakti fyrirbærið Marilyn Man- son, því eins og flestir vita hefur maðurinn verið að gera allt vit- laust í Bandaríkjunum og þá sér- staklega meðal reiðra mæðra sem vcmtar afsökun fyrir því af hverju allt er ekki eins og það var í gamla daga. Eftir að hafa séð sjóið hans getur maður ekki annað en spurt: „Af hverju?“ Maðurinn er ekkert annað en píka sem ég myndi ráða sem barnapíu hvenær sem er. Það ógn- vænlegasta sem hann gerði var að girða niðrum sig eitt augnablik og sýna rassinn. Hann hafði þó ekki einu sinni manndóm í sér til að vera allsber innan undir heldur var hann í G-strengsnærbuxum. Jeminn. Og tónlistin er ekkert ann- að en útvatnað indöstrialrokk. Sessunautur minn sagði að Marilyn hefði minnt sig á hinn alræmda íþróttafréttamann Valtý Bjöm. Æ rest mæ keis, joronor. Metallica vs. Skítamórall Metallica spilaði fullt af gömlu lögunum sínum við góðar undir- tektir og bætti inn smáslettu af kóverlögunum sinum sem féilu vel í mannskapinn. Stór hluti íslend- inganna sem mættir voru á svæðií var spenntastur fyrir Lars Ulricl og félögum og því var ekki erfitt ai finna þá við aðalsviðið á fimmtu dagskvöldinu. Skömmu eftir tónleikana va: boðið í eftirpartí hjá Akureyring um sem komið höfðu sér upp búð- um á tjaldsvæðinu. Þar voru allir í góðum gír og sveif ástin og friður- inn yfir vötnum. Það er nefnilega eins og íslendingamir smitist af já- kvæðninni sem ríkir á Hró- arskeldu og skilji drykkjuleiðindin eftir á Austurstræti. Skeggrætt var um landsins gagn og nauðsynjar og munurinn á Skitamóral og Metall- icu krufinn til mergjar. Á leiðinni heim í tjaldið prísaði maður sig sælan fyrir að hafa tjald- að örskammt frá risastórum blikk- andi fána sem einhverjir Sviar höfðu komið fyrir. Föstudagur: Efasemdir um kynhneigð Eftir sturtuferð til Köben var stefnan sett á Suede sem spil- Ligeglaö löggurnar höföu ekkert á móti því að stilla sér upp fyrir Fókusmynda- töku á föstudagskvöldinu. Hvaö er eiginlega meö þessa Bauna? (man) ég ekki. Kvöldinu lauk svo á hinu geim- verska tæknidúói Orbital, sem var frábært, auk enn eins kynhneigð- arsjokksins þegar þriggja metra há lesbísk bassaleikaraamasónan i Nashville Pussy lék listir sínar. Bandið leikur afspymuleiðinlega tónlist en bætir það upp með stelp- unum sem spila eins og þær eigi lífið að leysa. Og spúa eldi. Lauaardagur: Trúarleg uppnfun Það var farið að síga aðeins á seinni hlutann af varabirgðunum ' mað- ,ur vaknaði 1 laugar- deginum. Það i__ _____ tónleika. ur L_____ d a g s - kvöldsins var I " strax á eftir í græna tjaldinu. ] rokkuðu kynlífsdvergurinn klæðskiptingurinn Brian l.ZJL og félagar hans í Placebo eins c,___ þeir ættu lífið að leysa. Brian söng með helíumröddinni sinni um táningahræðslu á meðan tveggja metra hár bassaleikarinn hreinlega fmssaði kyntöfrum. Ég hef löngum verið tiltölulega viss um kynhneigð mína, en þegar bassaspíran leit djúpt í augun á mér þá stóð mér hreinlega ekki á sama. Það væri ömgglega gaman að leiða þá saman, hann og vest- manneyska eldklerkinn sem segist geta afhommað fólk. Mig grunar sterklega að Snorri í Betel kæmi áhommaður frá þeim fundi. Á meðan R.E.M. svo róaði mann niður og kynhneigðin gerði tilraun til að rétta sig af hittum við félagar minir íslenska Metallicu-aðdáend- ur sem plötuðu nærstaddar löggur til að lána sér hattana sína fyrir myndatöku. Ligeglað-löggurnar tóku vel í það enda allir vinir og ekkert fyrir löggurnar að gera nema sitja fyrir á myndum. Svo hittum við Tékka sem lét eins og það væri besta stund lífs hans að hitta íslendinga. Hvers vegna veit 1 Þessi ágæti Dani lá dauöur úti í móa, en þegar hressir íslendingar leyföu honum aö þefa af ölinu vakn- aöi hann af værum blundi. 2 íslendingarnir vissu hvernig ætti aö skemmta sér í eftirpartíinu hjá Akureyringunum. 3 Tékkinn sem var svo ánægöur meö aö hitta íslendinga sendir koss upp á skeriö. Jón íslendingur var ekki heldur óánægöur meö aö hitta Tékka. 4 Glaöhlakkalegir Hróarskeldugest- ir sýna Ijósmyndara hvernig Davíð losar sig viö öliö. 5 Ungur íslendingur hrifsaöi mynda- vél blaðamanns og heimtaöi aö hann fengi aö taka sjálfsmynd. Ef myndin prentast vei má sjá hvað piltinum gekk til. var hins vegar ekki eftir neinu að bíða og ölið kneyfað til að koma sér í gírinn. Laugardagurinn var nefnilega aðal. Byrjað var á að sofa fyrir aftan 16 bíla sem parkerað hafði verið fyrir framan stóra sviðið. Þar voru nefnilega mættir experimentalist- arnir og undarlegheitamennirnir í Flaming Lips sem spiluðu 16 geisladiska tónverk í stereogræjum bílanna. Svo undirbjuggu japanska stelp- an og ítölsku tviburabræðumir í Blonde Redhead mann fyrir aðal- númerið: Built to Spill. Ekki kannski algengir heimilisvinir á tslandi, en hafa verið uppáhalds hjá mér í mörg ár. Og ekki sviku þeir. Þetta er í fyrsta sinn sem ég hef skilið 12 ára stelpumar á Michael Jackson tónleik- um sem maður hefur hneyksl- ast á í gegnum tiðina. Á einu sérstaklega við- ’—~n augna- . var ekki frá því að maður hreinlega i brynnti músum. Ailt að því trúar- '-j upplifun og ef heimurinn hefði hreinlega endað í lok tónleikanna heföi a.m.k. einn jarðarbúa verið fullkomlega sáttur við það. Kvöldið leið slðan áfram í gleðivímu undir tónlist frá japönsku smástelpunum í Cibo Matto sem sungu um að maður ætti að þekkja kjúklinginn sinn. Síðan tóku við Chemical Brothers sem bigbítuðu á stóra sviðinu undir myndum af rangeygðum Ésú. Sunnudagur: Þunnudagur Varabirgðirnar alveg búnar. Þetta er sennilega í fyrsta sinn sem ég hef fengið það á tilfinninguna að ég sé hreinlega fullur af bjór og það komist ekki meira fyrir. Eftir nokkrar tilraunir gefst ég upp og kaupi vatn. Enda svo sem lítið bita- stætt eftir af hljómsveitum, nema þá helst nýbakaðir íslandsvinir í Mercury Rev sem voru þarna í gáfulegra umhverfi en í Höllinni um daginn. Ég er ekki frá því að þeir hafi jafnvel sagt „takk fyrir“ upp á ástkæra ylhýra eftir eitt lagið - en kannski var það bara bjóreitrunin sem var farin að valda skynvillum. Það er góð vísbending um að há- tíðin hafi heppnast vel og tími til kominn að halda heim á leið. Kristinn Jón Amarson sms-skilaboð hátfðarinnan „Vitl ríða, heff typpi. Brjóst?“ Nafn: Dóra Marteinsdóttir. Aldur: 24 ára. Starf: Au pair i Dan-, mörku. K Heimili: Reykjavík, hefur búið í Danmörku í eitt ár. Langaði mest til að sjá: Metall- ica, Skunk Anansie, Faithless. Skipti á Hróarskeldu: Fyrsta. Uppáhaldsliturinn: Dökkblár Ef þú gætir bætt einhverju við Hróarskeldu: Fá svona almenni- lega hátíð á Islandi. o Nafn: Kristín Vinney. Aldur: 18 ára. Starf: Au pair í Dan- mörku. Langaði mest til 30’ sjá: Skunk Anansie, Faithless, Marilyn Manson og Metallica. Skipti á Hróarskeldu: Fyrsta. Uppáhaldsliturinn: Grár. Nafn:, Sveinn Waage. Alduy: 28. Starf: Grínisti. Skipti á Hró-' arskeldu: Fyrsta. Langaði mest til að sjá: Langar til aö sjá allt hérna en þó aðallega rokkið, mest Metallica og verður gaman að sjá Nashville Pussy. Ef þú gætir bætt einhverju við Hróarskeldu: Maður er náttúr- lega vanur útihátíðamaður og sem slíkur er ég mjög sáttur við þessa hátíð. Ef eitthvað þá mætti vera meira áfengisúrval inni á sjálfu tónleikasvæðinu. Nafn: Ingólfur G. Árnason. Heimili: Vestmannaey- ingur from Hell. Aldur: 27 ára. Skipti á Hró- arskeldu: Fyrsta. Langaði mest til að sjá: Metall- ica, Placebo, Marilyn Manson, REM, Chemical Brothers, Robbie Williams. Ef þú gætir bætt einhverju viö Hróarskeldu: Það vantar náttúr- lega alltaf Radiohead. giiaauu. Q Nafn: Almar Þór Þorgilsson. Starf: Bakari. Aldur: 25 ára. Skipti á Hró-I arskeldu: Annað' skipti. Langaði mest til að sjá: Metail- ica. Uppáhaldsliturinn: Svart. Ef þú gætir bætt einhverju við Hróarskeldu: Kurt Cobain. f Ó k U S 9. júlí 1999 :: . Á :i 'I liíi 11. t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.