Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1999, Blaðsíða 14
Fjðlskyldu
Nicolas Cage
Nicolas Cage er enn giftur Patriciu Arquette og
hann á einn son en sjálfsagt myndi hann
aldrei viöurkenna aö
hann væri flölskyldu-
maöur, enda kunn-
ur fyrir allt annaö
en rólegheit i
einkalífinu. Nei,
fyrirsögnin er
heiti á kvikmynd
sem Nicolas Cage
kemur til með aö
leika í. í Famlly Man leik-
ur Cage bankamann sem er vinnufíkill sem
dag einn fer að hugsa um hvernig líf hans
myndi veröa ef engin væri eiginkonan, ekkert
’ hús og enginn krakki. Þaö er eins og viö mann-
inn mælt, dag einn vaknar hann og er allt
hans líf horfið. Leikstjóri Family Man verður
Brett Ratner. Cage hefur að undanförnu verið
aö vinna fyrir mun þekktari leikstjóra, Martin
Scorsese, en hann leikur aðalhlutverki í nýj-
ustu kvikmynd meistarans, Brlnging Out the
Dead, og áður en hann getur byrjað á Family
Man þá verður hann að klára Gone In 60
Seconds, sem Dominic Senna (Kalifornia)
leikstýrir, en meðal annarra leikara í þeirri
mynd er fyrrum fótboltakappinn Vinnie Jones.
Fiennes
í ársfrí
Ralph Rennes hefur ákveðið aö taka sér árs-
'fri frá kvikmyndaleik. Þessi ágæti breski leik-
ari sem sló í gegn í The
English Patient fékk
víst alveg nóg af
þeirri slæmu um-
tjöllun sem Aven-
gers fékk. Renn-
es hefur skuld-
bundið sig til að
leika f að minnsta
kosti tveimur leikritum
eftir William Shakespeare
á sviöi í London á næsta ári. Þetta eru verkin
Richard II og Coriolanus. fieness mun þó
sjást á hvíta tjaldinu á næstu misserum því
enn á eftir að frumsýna þrjár kvikmyndir sem
hann hefur leikiö í, Onegln, þar sem hann leik-
ur á móti samþýliskonu sinni Francesca Anni
og leikstýrð er af systur hans, Mörthu Fienn-
es, A Taste of Sunshlne, sem István Szabó
(Mephisto) leikstýrir og The End of the Affalr,
þar sem hann leikur á móti Julianne Moore og
Stephen Rea og er leikstýrð af Neil Jordan. .
Penn og
Polley í
Þyngd vatns
Hin unga leikkona Sarah Polley, sem lék svo
eftirminnilega í The Sweet Hereaftar og Go,
hefur fengið aðalhlut-
verkið í The Welght
of Water og er
mótleikari hennar
Sean Penn.
Myndin er saka-
málakvikmynd
sem spannar tvö
tímabil á öldinni.
Leikstjóri er Kathryn
Bigelow, sem ekki hefur
leikstýrt kvikmynd frá því hún gerði aldamóta-
kvikmyndina Strange Days. The Weight of Wa-
ter er byggð á skáldsögu eftir Anita Shreve,
sem kom út fýrir tveimur árum og fjallar um
blaðaljósmyndara sem fer að rannsaka gam-
alt morð á tveimur konum. Kvikmyndataka
hefst 15. september f Nova Scotia. Næst
munum viö sjá Sean Penn f nýjustu kvikmynd
Woody Allens, Sweet and Lowdown, sem
frumsýnd verður á kvikmyndahátíöinni f Fen-
eyjum.
Öll ævintýri eiga sér upphaf...
Liam Neeson og Ewan McGregor
leika stærstu hlutverkin. Á milli
þeirra er Jake Uoyd.
George Lucas
- Sttérmdldíi íí IHyi^waxDxdi
George Lucas er stórveldi í
Hollywood. Hann er stjómarformað-
ur margra fyrirtækja sem velta
milljörðum króna ár hvert. Það sem
kannski er merkilegast er að mjög
lítill hluti framleiðslu fyrirtækja
hans fer í gerð kvikmynda sem
hann framleiðir en ef kafað er í hver
gerði hvað í öllum stórmyndum
Hollywood, þar sem treyst er á nú-
tímatækni kvikmyndanna, hefur
eitthvert fyrirtækja hans komið ná-
lægt kvikmyndagerðinni. Sjálfur lif-
ir George Lucas ósköp látlausu lífi á
stórum búgarði í Suður-Kalifomíu,
sem fáir hafa komist í návígi við og
þar heldur hann í marga þræði sem
hann síðan hnýtir vandlega saman
þegar við á. I raun er Lucas sjálfum
sér nægur, er dulur og lítið fyrir að
vera innan um annað fólk. Það sést
best á því að hann hefur aðeins leik-
stýrt fjórum kvikmyndum á þrjátíu
ámm. Lucas kann betur við sig á
bak við tjöldin, í felum fyrir fjöl-
miðlum.
George Lucas fæddist 14. maí
1944. Hann kom fyrst fram á sjónar-
sviðið 1970 þegar hann leikstýrði
sinni fyrstu kvikmynd THX 1138,
sem af og til er er tekin til sýningar
i sjónvarpi. Um er að ræða framtíð-
arkvikmynd (gerist 1984) í þjóðfélagi
þar sem öllum er skipað að haga sér
eins. Lucas byggði þessa kvikmynd
á prófverkefni sem hann gerði þegar
hann var við kvikmyndanám í há-
skóla í Kalifomíu. Það var Francis
Coppola sem þá hafði nýstofnað fyr-
irtæki sitt, American Zoetrope, sem
tók að sér að
framleiða mynd-
ina og er þetta
eina kvikmynd
Lucasar sem hann
hefur ekki fjár-
magnað sjálfur.
Næsta kvik-
mynd Lucasar,
American
Graffiti, kom hon-
um á kortið. Varð
þessi unglinga-
mynd ákaflega
vinsæl og græddi
Lucas nógu mikla
peninga á henni
til að geta farið að
huga að verki sem
hann hafði lengi
gengið með í
maganum, búa til
framtíðarheim þar
sem ýmsar kynja-
verur koma við
sögu. Ekki þarf að
fara mörgum orð-
um um framhald-
ið. Star Wars varð
til. Þetta var árið
1977.
Þegar Lucas var
að gera Star Wars
bauð hann öllum
þeim sem unnu að
gerð myndarinnar
sem ekki voru
bundnir við launataxta í fagfélögum
að gerast hluthafar, láta hluta af
launum sínum í púkk og fá hluta-
bréf í fyrirtæki
hans í staðinn.
Ekki voru það
margir sem feng-
ust til að gera
þetta en þeir ungu
menn sem trúðu á
Lucas og lifðu
naumt til að geta
orðið eigendur að
Star Wars eru all-
ir auðugir menn í
dag og flestir
þeirra mynda hóp
sem starfað hefur
með Lucasi frá
upphafi. í þessum
hópi eru snjöll-
ustu tæknimenn
á sviði kvikmynd-
anna í Hollywood.
Star Wars var
þriðja kvikmynd-
in sem George
Lucas leikstýrði
og hann leik-
stýrði ekki
annarri kvik-
mynd fyrr en Star
Wars: Episode
One - The
Phantom Menace,
tuttugu og tveim-
ur árum síðar og
mjög ólíklegt þyk-
ir að hann leik-
stýri næstu tveim-
ur kvikmyndum í Stjömustríðsserí-
unni. Lucas var þó langt því frá að
vera aðgerðarlaus öll þessi ár. Hann
styrkti stoðir fyrirtækja sinna með
því að veðja á unga leikstjóra á borð
við Steven Spielberg og Ron Howard
og var hann til að mynda sá sem
kom með hugmyndina að Indiana
Jones og framleiddi þær kvikmynd-
ir ásamt Spielberg.
Flest fyrirtækja Georges Lucasar
bera hans nafn, má þar nefna Lucas
Film, Lucas Leaming Ltd., Lucas
Online og Lucas Arts Entertainment
Company. Þá er hann einnig helsti
eigandi þekktra fyrirtækja á borð
við THX og Industrial Light & Magic
en steufsmenn fyrirtækisins hafa
imnið til 40 Óskarsverðlauna og þá
hafa hljóðmenn sem hafa unnið hjá
öðm fyrirtæki í hans eigu, Skywal-
ker Sound, unnið til 28 Óskarsverð-
launa. Loks má geta þess að Lucas
er stjómarformaður George Lucas
Educational Foundation sem veitir
mikið fé árlega til ungra kvik-
myndagerðarmanna og kvikmynda-
skóla.
George Lucas býr einn á óðals-
setri sínu ásamt þremur bömum
sem hann hefur ættleitt. Fyrrum
eiginkona hans er Marcia Lucas,
sem yfirgaf hann fyrir annan mann.
Margar konur hafa verið orðaðar
við Lucas, meðal annars söngkonan
þekkta, Linda Ronstadt, en um tíma
var talið að þau myndu giftast. Víst
þykir að Lucas mun á næstu ámm
helga sig Stjömustríðsmyndunum
þótt hann komi ekki til með að leik-
stýra þeim. Episode II verður vænt-
anlega frumsýnd 2002.
-HK
„Mér hefur alltaf verið
umhugað um hvað
sagt er í mínum kvik-
myndum vegna þess
að við sem gerum
kvikmyndir erum
kennarar - kennarar
sem höfum hátt."
- George Lucas
George Lucas ásamt Jake Lloyd sem
leikur ungan Anakin Skywalker.
I
I
I
I
I
I
I
I
f Ó k U S 13. ágúst 1999
t