Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1999, Page 4
4
MÁNUDAGUR 16. ÁGÚST 1999
Fréttir
Setning nýrrar reglugerðar 1 undirbúningi:
Ný gjöld verða lögð
á fæðubótarefni
- veriö aö tryggja að varan sé í lagi, segir ráöuneytiö
í undirbúningi er reglugerð um um-
sóknar- og árgjald af hvers kyns fæðu-
bótarefnum og náttúruvörum. Undir
þau falla vítamín og steinefni. Nefnd á
vegum heilbrigðisráðuneytisins hefur
unnið að gerð reglugerðarinnar. Drög-
in eru nú til umsagnar hjá Kaup-
mannasamtökunum og Samtökum
verslunarinnar. Gert er ráð fyrir að
þau skili áliti fyrir lok mánaðarins.
Drögin gera ráð fyrir að þau leyfi
sem liggja fyrir að hálfú Lyfiaeftirlits
ríkisins um vörutegundir skuli endur-
nýjuð ekki síðar en 1. mars 2000.
„í dag er málum þannig háttað, að
öll lyf, þ. á m. náttúnilyf, fá markaðs-
leyfi. Á þau koma tiltekin skráningar-
gjöld," sagði Einar Magnússon hjá
heilbrigðisráðuneytinu við DV. „Svip-
að fyrirkomulag hefur verið til um-
ræðu með fæðubótarefni. Á þau kemur
afgreiðslugjald, sem á að standa undir
kostnaði af rannsóknum á innihaldi
þeirra hjá Lyfiaeftirliti ríkisins, þ.e.
hvort þau standi undir kröfum um
innihald. Slíkt gjald hefur verið lengi á
lyflum og náttúrulyfjum."
Einar sagði að það væri miklu um-
fangsmeira og dýrara að meta lyf held-
ur en heilsuvörur. Enn hefði ekki ver-
ið ákveðið um hvaða upphæðir yrði að
ræða á ofangreindum göldum, enda
reglugerðin enn í vinnslu.
Aðspurður um hvort gjöldin kæmu
einnig á t.d. hrein vítamín sagði Einar
að svo gæti verið, ef um væri að ræða
vítamínblöndur.
„Með þessu er verið að tryggja að
gæðin séu í lagi og varan sé leyfð á
Evrópska efnahagssvæðinu," sagði
Einar. „Það hefur orðið aukning á inn-
flutningi fæðubótaefna. Hingað til hafa
ekki verið til nægilega skýrar reglur.
Nú er fyrirhugað að bæta úr því.“
Á vegum ráðuneytisins er einnig í
smíðum reglugerð um hómópatalyf.
Samkvæmt drögunum verður gengið
úr skugga um að viðkomandi lyf séu
leyfð á Evrópska efnahagssvæðinu.
-JSS
Eigandi Heilsuhússins:
Forsjárhyggja út í hött
- ótal fæðubótarefni detta út
„Þetta er alveg út í hött,“ sagði Örn
Svavarsson, eigandi Heilsuhússins,
um fyrirhuguð umsóknar- og árgjöld
af fæðubótarefnum. Heilsuhúsið rek-
ur sem kunnugt er umfangsmikil við-
skipti með ýmiss konar heilsubótar-
vörur.
„Þessir ágætu menn eru að reyna
að koma fæðubótarefnum undir sömu
reglugerð og gilda um lyf. Um fæðu-
bótarefni eiga frekar að gilda þau lög
og reglugerðir sem ná yfir matvæli.
En þeir reyna að troða þeim undir
lyijahugtakið.“
Örn sagði að ef þessi gjöld af
heilsuvörum yrðu sett á þýddi það að
ótal mörg fæðubótarefni myndu detta
út. Þau stæðu hreinlega ekki undir
þeim kostnaði sem þessi gjöld myndu
íþyngja vörunni með. Þetta ætti við
allt sem ekki seldist í mjög miklu
magni, s.s. jurtir, stök vítamín og
blöndur af fæðubótarefnum. Hin sem
eftir væru yrðu umtalsyert dýrari.
Hann kvaðst ekki geta nefnt tölu í því
sambandi því ekkert hefði komið
fram um það enn þá hve há þessi
gjöld ættu að vera.
„Það er til yfirlýst stefna stjóm-
valda að gera einstaklinginn ábyrgari
fyrir eigin heilsu. Þarna er stórlega
verið að íþynga þeim og vinna gegn
þessari stefnu. Þessi aðgerð virðist í
anda þeirrar forsjárhyggju sem virð-
ist afskaplega rík hjá íslenskum emb-
ættismönnum. Þeir vilja stjóma því
hvað fer ofan í fólk og láta það svo
borga skatt af því að nota það.“ -JSS
Nú er til umsagnar ýmissa aðila reglugerð um sérstakar álögur á fæðubót-
arefni, þ.e. skráningar- og árgjöld. Ef hún tekur gildi munu margar vöruteg-
undir hverfa úr hillum verslana sem versla með heilsuvörur, að sögn eig-
anda Heilsuhússins. DV-mynd
bökkum.“ Það er af því að ráðherr-
ann sér hlutina í samhengi. Þegar
Eyjabökkum verður sökkt færir
fuglinn sig til. Hann hlýðir ráð-
herranum eins og fólkið. Orkan
sem verður til verður græn og
streymir til græns álvers sem
framleiðir létta græna bíla sem
spara meiri orku en gömlu bílarn-
ir. Þannig að allt er þetta af hinu
góða. Allt er vænt sem vel er
grænt. Þetta sjá auðvitað þeir sem
skoða hlutina í samhengi. Hinir
bergnumdu ráfa hins vegar um 1
villu og svima. Þeir skUja ekki
gangverk stjómmálanna og gera
því þá fáránlegu kröfu til ráðherr-
ans að hann verði bergnuminn
eins og þeir. Þeir vita ekki að ein-
ungis ráðherraefni geta leyft sér að
verða bergnumin úti í náttúrunni.
Ráðherraefni verður að höfða tU
fjöldans en ráðherrann þarf þess
ekki. Ráðherra verður að sýna
stiUingu og skoða hlutina í réttu
samhengi. Að öðrum kosti verður ráðherrann
fyrrverandi ráðherra. Það er ómöguleg staða.
Þetta verða rætnir andstæðingar að skilja sem
sjá ráðherrann færa fórnir. Og þeir verða að sjá
lengra og horfa í eigin barm. Græn orka í grænt
álver framleiðir græn atkvæði. Umverfísvænni
ráðherra er vart tU. Dagfari
Það er erfitt að vera ráðherra.
Ekki er nóg með að ráðherra verði
að hafa vit á þeim málaflokki sem
hann hefur á sinni könnu heldur
gerir almenningur kröfu um að
hann geti orðið fyrir áhrifum af
umhverfinu. Þeir eiga sem sagt að
geta litið í kringum sig og orðið
bergnumdir þegar það á við. Eðli
málsins samkvæmt á umhverfis-
ráðherra því öðmm ráðhermm
fremur að vera sérstaklega næm-
ur á umhverfið. Og til hans er
gerð sú skýlausa krafa af hálfu
kjósenda að hann verði bergnum-
inn úti í náttúranni og hafi um
það stór orð. Áður en ráðherrann
varð ráðherra mátti skUja sem svo
að hann væri gæddur þessum
hæfileikum. Greindarlegar full-
yrðingar um lögformlegt umhverf-
ismat og krafa um að náttúran
nyti vafans sögðu kjósendum að
þarna væri ráðherraefni á ferð, á
hraðferð, bergnumið af minnsta
tilefni. Og ráðherraefnið varð ráðherra, umhverf-
isráðherra. Ekki vegna þess að ráðherraefnið
hefði sérstaka hæfileika til að verða bergnumið
heldur vegna þess að það vildi sjá hlutina í sam-
hengi. Og ráðherra fór út i náttúruna. En þá var
ráðherra ekki lengur ráðherraefni. Á því er reg-
inmunur. Það vita þeir sem skilja gangverk
stjórnmálanna. Og ráðherrann skilur gangverk
stjórnmálanna til hlítar. Þó að ráðherraefni hafi
eina skoðun getur ráðherra haft aðra. Og ráð-
herrann hefur sjálfstæðar skoðanir og skiptir um
skoðanir í samhengi við eðli hlutanna. Hann læt-
ur ekki undan þrýstihópum eða kverúlöntum.
„Sorrí, Stína, ég er ekki bergnumin yfir Eyja-
Kananum að kenna
Bylgjuævintýri þeirra Heimis
Karlssonar, Birgis Viðars Hall-
dórssonar og Einars Vilhjálms-
sonar fór ekki eins og að var
stefnt í upphafi. All-
ir áttu að verða rík-
ir, meira að segja
forríkir. Amerík-
aninn Lawrence
Barrett sagði að
íslendingar yrðu
heimsmeistarar í
bylgjusölu.
Margir bitu á
agnið og greiddu
tugi þúsunda í von um skjótan og
auðfenginn gróða. Skemmst er
frá því að segja að enn hefur eng-
inn orðið ríkur á bylgjusölunni.
Sitja margir eftir með sárt ennið
og skömm yfir að hafa látið giim-
ast og tapað fé. Eftir því er tekið
að íslenskir aðstandendur þessa
töfraúða eru sammála um að
fyrrnefndur Ameríkani hafi
bmgðist, þetta sé allt honum að
kenna...
r
I fremstu töð
Siv Friðleifsdóttir hefur
kastaff stríðshanska framan í
þjóðina með yfirlýsingum sínum
að Eyjabökkum, þessari nátt-
úruperlu, verði
fórnað á altari
byggðastefnu. í
framhaldi hefur
verið hvatt til
kröftugra mót-
mæla gegn áform-
um um að sökkva
Eyjabökkum
undir uppistöðu-
lón fyrir Fljóts-
dalsvirkjun og beinlínis mælst til
þess að fólk stilli sér upp framan
við gröfutennumar. Vinstri-
grænir funduðu fyrir austan um
helgina og samþykktu ályktun
um að allt svæðið yrði gert að
þjóðgarði, kenndum við Snæfell.
Má því búst viö að Steingrimur
J. Sigfússon, Kolbrún Hall-
dórsdóttir, Ögmundur Jónas-
son o.fl. sýni fordæmi og verði í
fremstu röð....
jónÓ
Þeim brá heldur sem áttu leið
um baklóð prentsmiðjunnar Hjá
Guðjóni 0. á dögunum. Prent-
smiðjan hefur verið að stækka
við sig og miklar
framkvæmdir á
lóðinni. Upp við
vegg var skilti sem
vakti athygli og
gaf tilefni til
vangaveltna um
hvort títtnefndur
viðskiptarisi
hygðist fara út í
prentbransann.
Á skiltinu stóð nefnilega jónÓ
hf. Þeir sem vissu betur gátu
róað áhyggjufulla vegfarendur og
bentu þeim á að þetta væri ein-
ungis helmingurinn af gömlu
skilti prentsmiðjunnar....
Gild afsökun
Mörg þekkt andlit úr þjóölífinu
eiga það sameiginlegt að kíkja af
og til inn á Grand Rokk við
Smiðjustíg. í þeim hópi em menn
eins og Haraldur
Blöndal hæstarétt-
arlögmaður, Dav-
íð Þór Jónsson
skemmtikraftur,
Hrafn Jökuls-
son ritstjóri og
Dan Hansson,
stórmeistari i
skák. Og eins
má af og til sjá
Steinari Jóhannssyni bregða
þar fyrir. Á Grand Rokk er veitt
sú sjálfsagða þjónusta að veita
mönnum afsökun fyrir að fá sér
ölsopa hafi þeir hana ekki fyrir.
Á töflu uppi á vegg er letrað: Til-
efni dagsins. Og þar undir er
hvern dag skráð nýtt tilefni....
Umsjón: Haukur L. Hauksson
Netfang: sandkom 'aíf. is