Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1999, Blaðsíða 6
6
MÁNUDAGUR 16. ÁGÚST 1999
Fréttir____________________________________________________________________________x>v
Óðinn Magnússon hjólar hringinn í kringum landið:
Safnar fýrir nýju
áfangaheimili unglinga
„Ég er að fara að stofna áfanga-
heimili fyrir unglinga og þar mun
ég brydda upp á nýjung hér á
landi. Ég verð með starfstengd úr-
ræði. Það verður smíðagallerí á
staðnum sem verður grundvallað
á endurvinnslu á sorpi af höfuð-
borgarsvæðinu, við verðum með
sölugallerí þar sem við munum
selja framleiðslu okkar sem við
áætlum að muni standa undir
rekstrarkostnaði heimilisins. Við
ætlum að verða með heimilið á
svæði 101 í Reykjavík, niðri í mið-
bæ. Ég mun taka við krökkunum
þegar þeir koma úr áfengis- eða
vímuefnameðferð og hjá mér
verða þeir frá þrem mánuðum upp
í tvö ár. Ég mun reyna að hjálpa
þeim að taka fyrstu skrefin út í líf-
ið. Flestir þessara krakka sem
lenda i vímuefnavandanum hafa
ekki unnið. Þeir þurfa að læra það
og að búa með öðrum og umgang-
ast hver annan,“ sagði Óðinn
Magnússon þar sem hann áði með
reiðhjólið sitt rétt austan við Sel-
foss. Óðinn lagði lagði upp í ferð
umhverfis landið á hjólinu sínu til
að safna fé til að koma á fót nýju
áfangaheimili fyrir unglinga sem
hafa lent í vímu- og áfengisvanda.
„Það kostar um 12 milljónir að
koma þessu af stað. Samkvæmt
tölum frá í fyrra drekkur landinn
fyrir 17 milljónir króna á dag út úr
Ríkinu, fyrir utan smásöluálagn-
ingu vínveitingahúsa. Ég verð 18
daga á ferðinni og með henni er ég
í raun og veru að skora á lands-
menn að sleppa öðru hverju glasi
meðan ég er að hjóla hringinn.
Okkur liggur á
„Ég hef verið spurður hvers
vegna ég bíði ekki eftir milljarðin-
um sem var lofað í vor. Frá því
stjórnin var mynduð hef ég horft
upp á tvo á þessum aldri deyja úr
þessum sjúkdómi þannig að það er
enginn tími til að bíða eftir hon-
Þessi jeppi var á ferð á Reykjanesbraut á laugardagskvöld. Þegar ökumað-
ur hans var að keyra á móts við Staldrið við Mjódd stóð húddið á bíinum
skyndilega í Ijósum logum. Slökkviliðið í Reykjavík brást skjótt við og reyndi
að slökkva eldinn með tveimur duftslökkvitækjum. Það var þó ekki fyrr en
gripið var til vatnsdælunnar að tókst að slökkva eidinn. Enginn veit hvernig
óhappið vildi til en eins og nærri má geta varð bíllinn óökufær á eftir.
DV-mynd S
um, okkur liggur á,“ sagði Óðinn.
Hann ætlar að sofa í svefnpoka
undir berum himni meöan hann
verður á ferðinni. Það gerir hann
til að halda kostnaði í lágmarki og
til að sýna fram á alvöru málsins.
„Fjöldi krakka sefur undir ber-
um himni, ekki einu sinni í svefn-
pokum, í stigagöngum og rusla-
kompum. Ég er eiginlega orðinn
hundleiður á að velta mér upp úr
þessum vandamálum og er að
horfa á lausnina. Þaö eru allir til-
búnir að ræða vandamálin og
benda á sökudólga. En þegar kem-
ur að því að gera eitthvað i málun-
um er eins og flestir vilji varpa
ábyrgðinni á einhvern annan.“
Hann reiknar með að starfsmenn á
áfangaheimilinu verði þrír og
hann ætlar sjálfur að búa þar.
- En gengur áfangaheimili í
miðborg Reykjavíkur, innan um
allar freistingarnar?
„Þessar freistingar verða alltaf
til staðar. Menn verða að læra að
vinna með þeim. Það þýðir lítið að
labba á undan þessum krökkum
og fylla upp í holurnar sem verða
á vegi þeirra. Það verður að kenna
þeim að stíga yfir þær,“ sagði Óð-
inn.
Þeir sem vilja leggja Óðni lið við
að koma upp þessu áfangaheimili
geta lagt inn á reikning 11400 í
SPRON. -NH óðinn Magnússon viö hjólið sitt austan við Selfoss. DV-mynd NH
Stærsta tölvuleikjamót landsins:
250 í drápsleik
„Þetta er sérheimur. Það er til
heimsmeistari í Quake og þaö er
menning í kringum þetta," segir
Nathan Richardsson sem sér um
Skjálftamót Landssímans i Quake.
Tölvuleikurinn Quake er skot-
leikur og gengur út á að drepa sem
flesta af andstæðingunum. Þetta er
stærsta tölvuleikjamót sem haldið
hefur verið hér á landi. Mótið sem
haldið var nú um helgina gekk mjög
vel og voru þátttakendur 250. Keppt
er í fimm flokkum, bæði í liða-
keppni og einstaklingskeppni.
„Þetta var þriðja mótið af fjórum
í íslandsmeistarakeppninni en efstu
menn í hverju móti komast í úr-
slitakeppni sem verður haldin
seinna. Við erum líka með risaskjái
þar sem hægt er að horfa á bardag-
ann allan. Það er draumur margra
Quake-spilara að þetta verði ein-
hvern tímann sjónvarpsefni," segir
Nathan.
Hætta þurfti að skrá keppendur
fyrir þremur vikum, aðsóknin var
slík. Spilað er á daginn og langt
fram á kvöld og þrátt fyrir að flest-
ir vilji halda áfram út nóttina er það
ekki leyfilegt. Aðspurður um hvort
Síminn Internet græði á þessum
mótum segir Nathan: „Nei, en at-
hyglin sem þessi mót vekja vinnur
það upp. Við erum samt ekki að
græða á þessu. Þetta er fyrst og
fremst til gamans gert þrátt fyrir að
margir hálfpartinn lifi fyrir
Quake.“ -EIS
Guömundur Hauksson:
Vona að mál-
in stillist
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
„Ég vona bara að málin stillist
nú, það er búið að vera upphlaup í
kringum þessa sölu sem kom mér
dálítið á óvart vegna þess að í raun
er einfaldlega verið að selja hluta-
bréf sem voru keypt á markaði,"
segir Guðmundur Hauksson, stjóm-
arformaður Scandinavian Holding,
um kaup Orca AS á um fjórðungs-
hlut í Fjárfestingabanka atvinnulís-
ins, FBA.
„Hins vegar vona ég að umræðan
sem þetta hefur kallað á verði verð-
bréfamarkaðnum til góða. Það er
ljóst að margir gera sér ekki grein
íýrir því hvaða leið hlutabréf, sem
eru að koma á markað, geta farið,
og ég held að menn skilji betur
hvemig lögmál verðbréfamarkaða
virka á eftir. Þaö var án efa leyndin
yfir öllu sem olli þessu en það eru
komnar fram skýringar á henni.
Umræðan sem slík hefur verið og
holl góð og ég held að sátt náist um
þetta í framtíðinni því menn vissu
ekki nákvæmlega hvað var á ferð-
inni. Ég hef verið spurður um
blokkamyndun en mér er ekki
kunnugt að þessir aðilar séu í
neinni blokk." -hdm