Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1999, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1999, Síða 10
10 MÁNUDAGUR 16. ÁGÚST 1999 Fréttir ERIö yfir höföalar folksins í tjaldi' bílloi upt) mæni ~ nfAinnx.t.,..). / tigaa a forsetar Bessasti Túristar níólnBsvei-ksoBiroiBandinn, lögrræöingur i R Akmvyri' Fjörftungssjúkrahúsíö Þrisvar sinnum tvíburar Smunn Axels n Ólafsfíröi: Starfsemin til Þorlákshafnar? lnmit-' Risakasi ArnjKirs EA: Nær þúsund tonn í a^isteya ^ Orkt)V>« ^•TSjraA | •V>iItScy5a' nKa&irs IlójHir t jártVíita: Kaupir þrjá þýska togara Oúgnn KKA-Ncttó i Rcvkjnvik: Verslunarstjoranum^ eadt UDD StÖrfum . 'ngasveit smábörn Mt*-** tM W<■»*.!«” rji'.th-' «. t Jt.t' JL tnei* v. » »«*»£“, • WW> «*íií kqasgggSBg StSSS.ifíS!'?S af efimm Fréttaskot DV, sími 550 55 55: I hverri viku greiðir DV tugi þúsunda króna fyrir fréttaskot - sjö þúsund krónur greiddar fyrir besta fréttaskot vikunnar Lesendur DV hafa verið mjög ötulir við að senda ábendingar um fréttir til blaðsins frá því að Frétta- skotiö, sími 550 55 55, hóf göngu sína 29. mars 1984. Rúmlega 19.900 fréttaskot hafa verið skráð á þess- um tíma en það þýðir að þau hafa farið í vinnslu á ritstjóm blaðsins. Fjöldi þessara ábendinga hefur síð- an birst sem fréttir á síðum DV. Nokkuð hefur borið á þeim mis- skilningi þeirra sem senda frétta- skot til blaðsins að þau séu tekin hrá og sett í blaðið. Málið er flókn- ara en svo. Þegar fréttaskot berst er það skráð og fer síðan til frétta- stjóra. Hann úthlutar því til blaða- manns sem gengur úr skugga um sannleiksgildi þess og fær upplýs- ingar um allar hliðar málsins. Þá fyrst er fréttin tilbúin til birtingar i DV. Rétt er að taka fram aö ekki er tekið við fréttatilkynningum, smá- auglýsingum eða lesendabréfum í síma Fréttaskotsins heldur ekki kvörtunum um að blaðið hafi ekki borist til áskrifenda og hringjendur era beðnir að hafa ekki útvarp eða sjónvarp hátt stillt þegar hringt er. Eins og sjá má hafa margvíslegar fréttir borist DV í gegnum símann sem aldrei sefur, 550 55 55, á síðustu vikum. Má þar nefna frétt um að ekið var yfir höfðalag fólks sem var í í tjaldi við Hítarvatn í veiðiferö - níðingsverk sagði eigandinn; um að túristar lægju á gluggum forsetans á Bessastöðum; um að fangi sveik út 400 þúsund krónur af reikningi kokksins á Litla-Hrauni eftir að hafa fengiö númerið á bankareikn- ingi hans; um kærumál vegna geit- hafurs í S-Þingeyjarsýslu, „Blöndal" geltur i leyfisleysi; um að skóla- stjóri og aðstoðarskólastjóri Mýrar- húsaskóla á Seltjarnarnesi voru reknir og frétt var um að Orkubú Vestfjarða lét til skarar skríða á Þingeyri - rafmagnsleysi þar ofan á atvinnuleysi. Frétt var um að prófdómari í vörabílstjóraprófi hefði verið klag- aður til Úmferöarráðs, lét nemanda aka sandhlassi heim á hlað; um að bóndi kærði skógræktarmenn sem veiða kindur í net og drekkja þeim; um konu á níræðisaldri sem ræktar vínber á svölunum á íbúð sinni í vesturbænum í Reykjavík og frétt var um að verslunarstjóranum í KEA-Nettó var sagt upp störfum. Frétt var um hópur undir forystu Björns Sigurðssonar í Þýskalandi kaupir þrjá þýska togara í þeim til- gangi að endurselja þá; frétt var um torkennilegan dauðdaga tveggja helsingja sem fundust dauðir á Geitlandsjökli; og frétt var um Aron Smára, 16 ára Suðumesjamann sem tók sólópróf á flugvél. Sá yngsti til að afreka slíkt. Frétt var um að víkingasveit lög- reglunnar fann smábörn í fíkniefna- greni og þar voru níu handteknir og hald lagt á talsvert af efnum; um að á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri fæddust þrisvar sinnum tvíbur- ar með skömmu millibili. Slíkt hef- ur ekki gerst áður á þessum áratug. Þá var frétt um að sjö ára drengur slapp naumlega úr lífsháska í stjórnlausum bíl sem steyptist nið- ur hrikalega fjallshlíð á Húsavík. Skelfilegt augnablik, sagði móðir drengsins. Hann slapp þó lítt meidd- ur en bíllinn gjöreyðilagðist. Sú frétt var raunar valin fréttaskot vik- unnar sem þýðir að sendandi varð 7000 krónum ríkari. Það er rétt að rifja aðeins upp leikreglur. Hafi einhver ábendingu um frétt, sem hann óskar eftir að koma á framfæri við DV, hringir hann í síma Fréttaskotsins, 550 55 55. Þar er tekið við fréttum allan sólarhringinn, alla daga vikunnar. Hringjandi gefur strax í byrjun fréttaskotsins upp nafn, heimilis- fang, póstnúmer og síma, óski hann eftir að fá greiðslu fyrir fréttaskotið. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist í blaðinu, era greiddar 3000 krónur. Ef margir hafa hringt í síma Frétta- skotsins vegna sama efnis fær sá greiðslu sem á fyrstu hringinguna. Fyrir besta fréttaskotið í viku hverri eru greiddar 7000 krónur. DV greiðir í hverri viku tugi þúsunda króna fyrir fréttaskot. DV heitir þeim sem senda inn ábendingar um fréttir fullum trúnaði og fullrar nafnleyndar er gætt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.