Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1999, Qupperneq 10
10
MÁNUDAGUR 16. ÁGÚST 1999
Fréttir
ERIö yfir höföalar
folksins í tjaldi'
bílloi upt) mæni ~ nfAinnx.t.,..). /
tigaa a
forsetar
Bessasti
Túristar
níólnBsvei-ksoBiroiBandinn, lögrræöingur i R
Akmvyri'
Fjörftungssjúkrahúsíö
Þrisvar sinnum tvíburar
Smunn Axels n Ólafsfíröi:
Starfsemin til
Þorlákshafnar?
lnmit-'
Risakasi ArnjKirs EA:
Nær þúsund
tonn í
a^isteya ^
Orkt)V>«
^•TSjraA |
•V>iItScy5a'
nKa&irs
IlójHir t jártVíita:
Kaupir þrjá
þýska togara
Oúgnn
KKA-Ncttó i Rcvkjnvik:
Verslunarstjoranum^
eadt UDD StÖrfum .
'ngasveit
smábörn
Mt*-** tM W<■»*.!«”
rji'.th-' «. t Jt.t'
JL tnei* v. » »«*»£“,
• WW> «*íií
kqasgggSBg
StSSS.ifíS!'?S
af efimm
Fréttaskot DV, sími 550 55 55:
I hverri viku greiðir DV tugi
þúsunda króna fyrir fréttaskot
- sjö þúsund krónur greiddar fyrir besta fréttaskot vikunnar
Lesendur DV hafa verið mjög
ötulir við að senda ábendingar um
fréttir til blaðsins frá því að Frétta-
skotiö, sími 550 55 55, hóf göngu
sína 29. mars 1984. Rúmlega 19.900
fréttaskot hafa verið skráð á þess-
um tíma en það þýðir að þau hafa
farið í vinnslu á ritstjóm blaðsins.
Fjöldi þessara ábendinga hefur síð-
an birst sem fréttir á síðum DV.
Nokkuð hefur borið á þeim mis-
skilningi þeirra sem senda frétta-
skot til blaðsins að þau séu tekin
hrá og sett í blaðið. Málið er flókn-
ara en svo. Þegar fréttaskot berst er
það skráð og fer síðan til frétta-
stjóra. Hann úthlutar því til blaða-
manns sem gengur úr skugga um
sannleiksgildi þess og fær upplýs-
ingar um allar hliðar málsins. Þá
fyrst er fréttin tilbúin til birtingar i
DV. Rétt er að taka fram aö ekki er
tekið við fréttatilkynningum, smá-
auglýsingum eða lesendabréfum í
síma Fréttaskotsins heldur ekki
kvörtunum um að blaðið hafi ekki
borist til áskrifenda og hringjendur
era beðnir að hafa ekki útvarp eða
sjónvarp hátt stillt þegar hringt er.
Eins og sjá má hafa margvíslegar
fréttir borist DV í gegnum símann
sem aldrei sefur, 550 55 55, á síðustu
vikum. Má þar nefna frétt um að
ekið var yfir höfðalag fólks sem var
í í tjaldi við Hítarvatn í veiðiferö -
níðingsverk sagði eigandinn; um að
túristar lægju á gluggum forsetans á
Bessastöðum; um að fangi sveik út
400 þúsund krónur af reikningi
kokksins á Litla-Hrauni eftir að
hafa fengiö númerið á bankareikn-
ingi hans; um kærumál vegna geit-
hafurs í S-Þingeyjarsýslu, „Blöndal"
geltur i leyfisleysi; um að skóla-
stjóri og aðstoðarskólastjóri Mýrar-
húsaskóla á Seltjarnarnesi voru
reknir og frétt var um að Orkubú
Vestfjarða lét til skarar skríða á
Þingeyri - rafmagnsleysi þar ofan á
atvinnuleysi.
Frétt var um að prófdómari í
vörabílstjóraprófi hefði verið klag-
aður til Úmferöarráðs, lét nemanda
aka sandhlassi heim á hlað; um að
bóndi kærði skógræktarmenn sem
veiða kindur í net og drekkja þeim;
um konu á níræðisaldri sem ræktar
vínber á svölunum á íbúð sinni í
vesturbænum í Reykjavík og frétt
var um að verslunarstjóranum í
KEA-Nettó var sagt upp störfum.
Frétt var um hópur undir forystu
Björns Sigurðssonar í Þýskalandi
kaupir þrjá þýska togara í þeim til-
gangi að endurselja þá; frétt var um
torkennilegan dauðdaga tveggja
helsingja sem fundust dauðir á
Geitlandsjökli; og frétt var um Aron
Smára, 16 ára Suðumesjamann sem
tók sólópróf á flugvél. Sá yngsti til
að afreka slíkt.
Frétt var um að víkingasveit lög-
reglunnar fann smábörn í fíkniefna-
greni og þar voru níu handteknir og
hald lagt á talsvert af efnum; um að
á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri fæddust þrisvar sinnum tvíbur-
ar með skömmu millibili. Slíkt hef-
ur ekki gerst áður á þessum áratug.
Þá var frétt um að sjö ára drengur
slapp naumlega úr lífsháska í
stjórnlausum bíl sem steyptist nið-
ur hrikalega fjallshlíð á Húsavík.
Skelfilegt augnablik, sagði móðir
drengsins. Hann slapp þó lítt meidd-
ur en bíllinn gjöreyðilagðist. Sú
frétt var raunar valin fréttaskot vik-
unnar sem þýðir að sendandi varð
7000 krónum ríkari.
Það er rétt að rifja aðeins upp
leikreglur. Hafi einhver ábendingu
um frétt, sem hann óskar eftir að
koma á framfæri við DV, hringir
hann í síma Fréttaskotsins, 550 55
55. Þar er tekið við fréttum allan
sólarhringinn, alla daga vikunnar.
Hringjandi gefur strax í byrjun
fréttaskotsins upp nafn, heimilis-
fang, póstnúmer og síma, óski hann
eftir að fá greiðslu fyrir fréttaskotið.
Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist í
blaðinu, era greiddar 3000 krónur.
Ef margir hafa hringt í síma Frétta-
skotsins vegna sama efnis fær sá
greiðslu sem á fyrstu hringinguna.
Fyrir besta fréttaskotið í viku
hverri eru greiddar 7000 krónur. DV
greiðir í hverri viku tugi þúsunda
króna fyrir fréttaskot. DV heitir
þeim sem senda inn ábendingar um
fréttir fullum trúnaði og fullrar
nafnleyndar er gætt.