Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1999, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1999, Side 15
MÁNUDAGUR 16. ÁGÚST 1999 15 Hvað er hús? „Vandinn er að greina á milli sambyggðra húsa, sambygginga sem eru í raun eitt hús eða sjálfstæðra húsa sem eru samtengd. Þetta er ekki alltaf auðvelt." Þetta er undarleg spurning munu flestir segja. Hvert mannsbarn veit hvað hús er. En málið er ekki alveg svona einfalt. í fjöleign- arhúsalögunum merkir hús ytri mörk sameign- ar. Hér er átt við að undirstöður, veggir, burðarvirki, þak o.s.frv. er sameign allra I fjöl- eignarhúsi. Það merkir aftur að viðhald, stofh- kostnaður og umhirða er sameiginlegur kostn- aður. Vandinn er að greina á milli sam- byggðra húsa, sambygg- inga sem eru í raun eitt hús eða sjálfstæðra húsa sem eru samtengd. Þetta er ekki alltaf auðvelt. Lögin hjálpa ekki mikið. í 3. gr laganna segir: „Með húsi í lögum þessum er átt við byggingu sem varanlega er skeytt við land og stendur sjálfstæð og aðgreind frá öðrum húsum eöa skilur sig þannig frá þeim þótt sambyggð eða samtengd séu að eðlilegt og haganlegt sé að fara með hana samkvæmt lögum þessum sem sjálfstætt hús.“ - Þetta vekur upp spurninguna hvort vera kunni munur á húsi í lagalegum skilningi og húsi í byggingar- fræðilegum skiln- ingi. Sambyggingar og raðhus Af ofansögðu leiðir að sambygging get- ur hæglega verið eitt hús og því er sá sem kaupir íbúð í einni einingunni ábyrgur fyrir og þátttakandi í við- haldi á gafli 100 til 200 m ofar í götunni. Kærunefnd fjöleign- arhúsamála hefur haft til umflöllunar nokkur mál af þessu tagi. Ég held að ég muni það rétt að kærunefnd hafi úrskurðað allar sambyggingar sem á hennar borð hafa komið eitt hús. í þessum til- vikum hefur ver- ið horft til fjöl- margra atriða, s.s. hvort sam- byggingin er sam- ræmd heild, út- litslega heild, teiknuð af sama arkitekt. Til skoð- unar kemur hvort byggingar- meistarar eru fleiri en einn, byggingartími ein- inganna, byggingarfræðileg gerð sambyggingar, lagnakerfi, burðar- kerfi, þak o.s.frv. í tveim þrem til- vikum hefur kærunefnd klofnað í úskurði sínum. Málþing í ráði er að efna til málþings í haust, e.t.v. i nóvember, þar sem tekið verður á viðfangsefninu hvað er hús. Ljóst er að hér er um að ræða spurningu sem hefur mik- il áhrif á sambýli þeirra sem í sambyggingum búa. Æskilegt er að menn séu eins sjálfstæðir með eigur sínar og unnt er, að þeir verði ekki að rugla saman reytum meira en nauðsynlegt er. Vafalítið verður erfltt að móta einhlítar reglur, alltaf koma fram fjölmörg matsatriði. En það er mikilvægt að fólk geti sem skýrast gert sér grein fyrir hver viðhaldsskylda er þegar það kaupir ibúð í sambygg- ingu. Úrskurðir kærunefndar og í sumum tilvikum dóma hafa gert raðhúsalengjur að einu húsi sem þýðir að utanhúss viðhald er sam- eiginlegt, að hús í vesturenda verður að taka þátt í viðhaldi aust- urenda. Arkitektar teikna sífellt fjölbreyttari hús og þar með verð- ur spurningin flóknari. Athyglis- verð er sambygging við Lindar- götu þar sem - hús - standa sín hvorum megin við götuna en eru tengd undir götuna með bíla- geymslu, eru því sambyggð og óneitanlega eitt hús á sameigin- legri undirstöðu. Niðurstaðan er sú, sama úr hvaða átt er horft, að nauðsynlegt er að skýra hugtakið hús betur, nauðsynlegt er að freista þess að svara spuming- unni: Hvaö er hús? Guðmundur G. Þórarinsson Kjallarinn Guðmundur G. Þórarinsson verkfræðingur „Vafalítiö veröur erfítt aö móta einhlítar reglur, alltaf koma fram fjölmörg matsatriöi. En þaö er mikilvægt aö fólk geti sem skýr- ast gert sér grein fyrir hver viö- haldsskylda er þegar þaö kaupir íbúö í sambyggingu.u Skynsamleg stjórnarmyndun A marga vegu er þessi þriðja rík- isstjóm Davíðs Oddssonar einstök. - Hún er fyrsta ríkisstjórn sem mynduð er á íslandi af sama ráð- herra þriðja kjörtímabilið í röð. Davíð Oddsson hefur slegið öllum íslenskum stjórnmálamönnum við hvað það snertir og er ástæða til að óska honum til hamingju. Þessi þriðja ríkisstjórn er tvímælalaust sú sterkasta. Fjölgun kvenna í stjórn Stjómin á eftir að berjast við alls konar erfiðleika sem þarf slynga stjórnmálamenn til að leysa, ekki efast ég um að hún leysir úr þeim. Ríkisstjórnin er einstök fyrir það að þrjár konur eru í þessari stjóm, hver annarri hæfari i þau ráðuneyti sem þeim eru ætlað. Það var Davið líkt að af mörgum hæfum konum skyldi hann leggja til við þingflokkinn að fá Sólveigu Pétursdóttir í ráðu- neyti dómsmála. Fyrir utan ein- stakan dugnað og þekkingu henn- ar af þessum málaflokki, þá er sú tíð liðin að í þetta ráðuneyti velj- ist annað en lögfræðingur og hann hafí mikla hæfileika og þekkingu á málaflokknum. Hér áður fyrr voru oft ómenntað- ir þingmenn settir í þetta vanda- sama ráðuneyti. Sumir hafa haldið þvi fram að Sjálf- stæðisflokkurinn hafi fengið rýran hlut sér til handa. Alltaf má finna eitthvað að sam- setningu á ríkis- stjóm - það væri kannski helst að fleiri konur frá Sjálfstæðisflokkn- um hefðu mátt sjást. En þetta er stór breyting. Sigur er nú unninn, ísinn hefur verið brotinn fyrir kon- ur eftir mörg ár. Þeim mun áreið- anlega fjölga enn meira í fjórða ráðuneyti Davíðs Oddssonar. Ráðherrar á réttum stað Sjálfstæðisflokkurinn hefði auð- vitað einnig mátt fá heilbrigðis- málin í sinn hlut. Flokkurinn hef- ur hæfa þingmenn sem kunnugir em þeim máium og hefði því flokkurinn átt að fá þau. Og eitt verður umfram allt að gerast varð- andi þá fjármuni sem lofað hefur verið til höfúðs eitur- lyfjavandanum - það loforð verður að efna. Dómsmálaráðherra verður að fá nægt fjármagn í sinn mála- flokk. Það getur ekki gengið að eingöngu séu eyrnamerktir fjár- munir til gæsluheim- ila og sjúkragæslu, því lögregluna verður líka að stórefla með auknu fjármagni. Samgönguráðherra, Sturla Böðvarsson, ætlar ekki að láta sitt eftir liggja og boðar strax sölu á rikisfyrir- tækjum sem lúta hans málaflokki. Hann ætti einnig að leggjast á árar með yflrgnæfandi meirihluta höfuðborgarsvæðisins - og sífellt stækkandi hluta lands- byggðarfólks - sem vill flytja allt flug frá Reykjavík til Keflavíkur- flugvallar. Árni M. Mathiesen, með sinn glaðbeitta svip, mun örugg- lega valda sínu stóra ráðuneyti. Honum væri illa í ætt skotið ef hann léti ekki verkin tala. Um ráð- herra mennta- og fjármála þarf ekki að ræða, þeir hafa sarmað sig. Ég spái þvi að þessi ríkisstjóm verði afkastamikil og haldi áfram að bæta hag þegnanna eftir því sem þjóðarbúið þolir. Stöðugleikinn heldur áfram þótt kjaraasamningar séu fram undan. Það er engin þörf á að ef- ast um það. Máttlaus stjórn- arandstaða í orðum Birgis ísleifs Gunnarssonar seðla- bankastjóra um að fjölmiðlar búi að sínu leyti til óróleika í efnahagsmálum eru eflaust mikil sann- indi. Það er skiljan- legt að fjölmiðlar á þessari tölvuöld vilji fréttir, en váfréttir eru smitandi og það fylgir því ábyrgð að flytja þær. Það er sýnilegt að stjórnarand- staðan verður máttlaus og mun ekki flækjast tiltakanlega fyrir. Hún sýnir samt einstaka frekju með því að heimta formennsku í mörgum nefndum. Hún veröur ekki til stórræðanna ætluð, frekar en í kosningabaráttunni, sem varð henni hrakfór hin mesta. Hún get- ur látið hátt og grátið sárt, en það bylur líka alltaf hæst í tómri tunnu. Hún má ekki komast upp með að eyða tímanum á þingi i ut- andagskrárumræður aðeins til að tefja þingstörf. - Hinn röggsami forseti sameinaðs alþingis verður að stöðva það. Karl Ormsson „Ég spái því aö þessi ríkisstjórn veröi afkastamikil og haldi áfram aö bæta hag þegnanna eftir því sem þjóöarbúiö þolir. Stööugleik- inn heldur áfram þótt kjarasamn- ingar séu fram undan. Þaö er eng- in þörf á aö efast um þaö.u Kjallarinn Karl Ormsson fyrrv. deildarfulltrúi Með og á móti Eiga starfsmenn RÚV að greiða afnotagjöld? Fastráðnir starfsmenn Ríkisút- varpssins eru 369 og afnotagjöld þeirra eru því um níu milljónir. En frá árinu 1979 hafa þeir ekki þurft að greiða þau og auk þess engan skatt af þessum hlunnindum sín- um. Þetta er athyglisvert í Ijósi þess að RÚV var rekið með 345 milljóna króna tapi á síðasta ári. Nú eru uppi raddir um að tekið verði tii innandyra og starfsmenn látnir greiða afnotagjöld eins og aðrir. Innheimt með sköttum Teitur Þorkelsson, fréttamaður á Stöö 2. „Auðvitað eiga starfsmenn Ríkisútvarpsins að borga af- notagjöld eins og aðrir. En vit- lausast er náttúrlega að við hin getum ekki átt sjónvarp án þess að borga afnota- gjöld RÚV. Það er eins og að allir sem kaupa sér þvottavél verði lögum samkvæmt að gerast áskrif- endur að þvottadufti frá sápuverksmiðj- um ríkisins þótt þeir séu með ofnæmi fyrir því. Sumir virð- ast vera með ofnæmi fyrir RÚV og reyna allt hvað þeir geta til að komast undan bylgjunum sem það batterí útvarpar um landið allt og miöin þótt vissu- lega sitji aðrir fyrir framan viötækin eins og norskir ung- lingar í háíjallasólarlampa og láti geislana leika um sig. Er það ekki annars krabbaméins- valdandi? Ef ríkið ætlar að vera í þessum rekstri á það að innheimta gjöldin í sköttiun af öllum. Síðan gæti RÚV hækkað laun starfsmanna sinna sem vinna við dagskrárgerð og fréttir ef það vill að þeir fylgist með því sem er að gerast." Auðveldar fagleg störf „Auðvitað eiga allir lands- menn að greiða Ríkisútvarpinu afnotagjald en sumir hópar fá afnotagjöldin endurgreidd með einhverjum hætti, þeirra á meðal eru starfsmenn Morgunblaðs- ins, Stöðvar tvö, DV, Bylgj- unnar, Ríkis- útvarpsins, ellilífeyrisþeg- ar og fleiri. Aðferðirnar eru mismun- andi og ekkert þvi til fyrirstöðu að endurskoða þær. Til dæmis fá þeir hjá Morgunblaðinu og Stöð tvö á annan tug þúsunda króna á mánuði í endurgreiddum áskriftum að fjölmiðlum og af- notagjöldum Ríkisútvarpsins. En fastráðnir starfsmenn Ríkis- útvarpsins fá afnotagjöld felld niður eftii' þriggja ára starf og það er gert sámkvæmt ráð- herrabréfi Vilhjálms Hjálmars- sonar frá 1977. Að auki er ákvæði í samningum Félags fréttamanna hjá Ríkisútvarp- inu um að vinnuveitandinn kosti afnotagjöld, líkt og er í kjarasamningi starfsmanna DV. Rökin eru þau sömu, hvaða fjölmiðill sem á í hlut: það auðveldar fagleg störf og er vinnuveitanda í hag að starfs- menn fjölmiðla hafl greiðan - lesist: ókeypis - aðgang að öll- um flölmiðlum." Jón Ásgeir Sigurós- son, formaður Starfsmannasam- taka Riklsútvarpss- ins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.