Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1999, Side 19
MÁNUDAGUR 16. ÁGÚST 1999
31
Fréttir
Starfsmenn Slitlags hf. á Hellu, þeir Magnús Davíðsson, Helgi Guðmundsson og Hannes Örn Kjartansson, leggja
klæðingu á Siglufjarðarveginn.
DV-mynd Örn
Siglufjarðarvegur:
Síðasti malarspott-
inn að hverfa
DV, Fljótum:
Unnið hefur verið við styrkingu
og endurbætur á Siglufjarðarvegi í
sumar, um Sléttuveg í Skagafirði.
Um er að ræða síðasta ómalbikaða
kaflann á leiðinni milli Siglufjarðar
og Reykjavíkur.
Vinna við verkið hófst vorið 1998
og var þá tekinn átta metra langur
vegarkafli sem lagt var á bundið
slitlag. Þá var eftir kaflinn frá Höfða
á Höfðaströnd að Stafá, um 13 km að
lengd, sem unnið hefur verið við í
sumar. Er liðlega helmingi verksins
lokið og var lagt slitlag á veginn
skömmu fyrir verslunarmannahelg-
ina.
Verktaki við Siglufjarðarveg er
Fjörður sf. sem er fyrirtæki vörubif-
reiða- og vinnuvélaeigenda í Skaga-
firði. Ljóst er að þeir ná að skila
verkinu á tilskildum tíma þannig að
bundið slitlag verður lagt á þennan
síðasta malarkafla á leiðinni Siglu-
fjörður-Reykjavík í haust. Þarf ekki
að fara mörgum orðum um hvað
þetta verður mikil breyting til batn-
aðar fyrir íbúa þessa svæðis og aðra
sem oft fara þessa leið. -ÖÞ
Málmey í Barentshafið
DV, Sauðárkróki:
Togarinn Málmey SK-1 hélt til
veiða nýverið og var feröinni heitið
í Barentshafið. Skipið hefur verið
frá veiðum í rúman mánuð, eða frá
því það kom úr túrnum góða í byrj-
un júlí. Málmeyin var í slipp á Ak-
ureyri.þar sem m.a fór fram vélar-
upptekt og gert var við talsverða
dæld á bóg skipsins sem er frá því
það fékk á sig mikið brot í ofsaveðri
vestur af landinu fyrir einu og hálfu
ári.
„Okkur skilst að veiðin hafi
glæðst þarna og þeir séu að fá
svona 10-15 tonn á sóiarhring sem
er nokkuð gott. Við fengum úthlut-
að þarna kvóta fyrir einn túr,
þannig að mönnum fannst best að
vera ekkert að bíða með þetta
lengur. Það er farið að dimma
þarna og birtutíminn að styttast,
auk þess sem veðrið gæti farið að
versna,“ segir Gísli Svan Einars-
son, útgerðarstjóri Fiskiðjunnar
Skagfirðings.
Að öðru leyti er það helst að
frétta frá FISK að Skagfirðingur
hefúr verið leigður til Fiskiðju-
samlags Húsavíkur, en þar er við
stjórnvölinn Einar Svansson, fyrr-
um framkvæmdastjóri Fiskiðjunn-
ar. Skagfirðingur var áður í leigu
hjá Hraðfrystihúsi Hnífsdals - fór
þangað á liðnu hausti en ekki var
talin þörf fyrir skipið eftir að HH
sameinaðist Gunnvöru. Skagfirð-
ingur verður gerður út á rækju frá
Húsavík, eins og fyrir vestan.
-ÞÁ
Milliuppgjör Búnaðarbanka íslands:
Hagnaður 805 milljónir
króna fýrir skatta
Rekstrarhagnaður Búnaðarbanka
íslands hf. fyrstu sex mánuði ársins
1999 var samkvæmt árshlutaupp-
gjöri 805 milljónir fyrir skatta. Þetta
er næstum jafnmikill hagnaður og
allt árið í fyrra en þá var hagnaður
bankans fyrir skatta 876 milljónir.
Hagnaður fyrir skatta fyrstu sex
mánuðina í fyrra var 309 milljónir
og er aukningin því 161% miðað við
sama tíma í fyrra. Skattar á tímabil-
inu voru 215 milljónir og nemur
hagnaður eftir skatta þvi 590 millj-
ónum. Raunarðsemi eigin fjár fyrir
skatta var 27,5% en 19,8% að teknu
tilliti til reiknaðs tekjuskatts. Þessi
niðurstaða er betri en rekstraráætl-
un bankans fyrir tímabilið gerði ráð
fyrir. Nýendurskoðuö áætlun um
hagnað bankans á árinu er 1,2 millj-
arðar fyrir skatta en 880 milljónir
eftir skatta.
Góða éifkomu tímabilsins má
fyrst og fremst rekja til aukinna
umsvifa og hagstæðra ytri skilyrða
en bankinn hefur náð að nýta mark-
aðstækifærin í góðærinu vel og hafa
margir sterkir viðskiptamenn geng-
ið til liðs við bankann. Niðurstöðu-
tala efnahagsreiknings var 96,9
milljarðar en var 88,5 milljarðar í
árslok 1998. Útlán um mitt ár voru
73,4 milljarðar og hækkuðu um 9,1
milljarð frá áramótum. Innlán
námu 51,1 milljarði og hækkuðu um
rúm 11% frá áramótum. Eigið fé í
lok tímabilsins var 6,6 milljarðar og
jókst um 436 milljónir á tímabilinu.
Ávöxtun hlutabréfa bankans hefur
verið með miklum ágætum frá því
þau komu á markað 17. desember
1998. Útboðsgengi bréfanna var 2,15
en markaðsgengi þeirra er í dag um
3,80 sem er 77% hækkun á rúmu
hálfú ári. Hluthafar í Búnaðarbank-
anum í dag eru 29.928 þrátt fyrir að
ríkið eigi enn 85% hlutafjár.
-bmg
Aukinn hagnaður
Hagnaður Olíufélagsins hf.,
ESSO, var 234 milljónir króna á
fyrstu 6 mánuðum þessa árs, sam-
anborið við 161 miUjón árið áður.
Heildarsala á olíuvörum nam 141
þúsundi tonna sem er nær sama
sala og árið áður. Söluaukning í
öðrum vörum en olíuvörum var
30%. Arðsemi eigin fjár í ár var
9,2%, samanboriö við 6,9% árið
áður.
Rekstrartekjur Olíufélagsins hf.
og dótturfélaga á þessu tímabili
námu 5.151 milljón króna og hafa
aukist á milli ára um 96 milljónir
eöa 2%. Rekstrargjöld án afskrifta
hækkuðu ekki á milli ára. Rekstrar-
hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði nam 476 milljónum
króna, samanborið við 380 milljónir
króna árið áður. Afskriftir hækk-
uðu um 11%, voru 139 milljónir
króna, og fjármunatekjur umfram
fjármagnsgjöld voru 47 milljónir
króna sem er jákvæð breyting um
51 milljón frá árinu 1998. Samtals
var hagnaður fyrir reiknaðan tekju-
og eignaskatt 384 milljónir en var
árið áður 251 milljón króna og hafði
því hækkað um 133 milijónir eða
53%. Samtals var hagnaður Olíufé-
lagsins hf. 234 milljónir króna á
fyrstu sex mánuðum ársins 1999,
þar af var hagnaður af reglulegri
starfsemi 241 milljón króna en hlut-
dedd minnihluta í afkomunni var
neikvæð um 7 mUljónir króna.
Hagnaður félagsins hefur aukist um
73 milljónir króna, eða 45%.
-bmg
$ SUZUKI
Suzuki Baleno GL, árg. '96,
ek. 43 þús. km, beinsk., 4 d.
Verð 890 þús.
Suzuki Baleno GLX, árg.
'96, ek. 56 þús. km, ssk.,
4 d. Verð 990 þús.
Suzuki Swift GLXi, árg. '97,
ek. 25 þús. km, beinsk., 5 d.
Verð 820 þús.
Suzuki Vitara JLX, árg. '97,
ek. 50 þús. km, beinsk., 3 d.
Verð 1.260 þús.
BMW318ÍA, árg. '96, ek.
51 þús. km, ssk., 4 d.
Verð 1.990 þús.
Chevrolet S-10, árg. '89,
ek. 75 þús. km, ssk.
Verð 590 þús.
Daihatsu Feroza EL, árg.
'94, ek. 70 þús. km, beinsk.,,
3 d. Verð 820 þús.
Ford Escort EST, árg. '96,
ek. 60 þús. km, beinsk., 5 d.
Verð 790 þús.
Ford Mondeo Ghia 1/98,
ek. 18 þús. km, beinsk., 4 d.
Verð 1.750 þús.
MMC Lancer GLX, árg.
'97, ek. 66 þús. km, beinsk.,
5 d. Verð 1.150 þús.
MMC Lancer GLX, árg. '91,
ek. 110 þús. km, beinsk.,
5 d. Verð 490 þús.
Opel Astra GL, árg. '96,
ek. 62 þús. km, ssk., 5 d.
Verð 950 þús.
Opel Corca, árg. '98, ek. 36
þús. km, beinsk., 3 d.
Verð 880 þús.
Subaru Legacy WG, árg.
'92, ek. 124 þús. km, beinsk.
Verð 940 þús.
Toyota Touring XL, árg. '93,
ek. 79 þús. km, beinsk., 5 d.
Verð 890 þús
SUZUKIBILAR HR
Skeifunni 17 • Sími 568 5100
www.suzukibilar.is
4'