Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1999, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1999, Qupperneq 32
44 MÁNUDAGUR 16. ÁGÚST 1999 I>V onn * Ummæli ' Ósjálfstæðir ráðherrar „Það sem hefur háð þessu umhverfisráðu- neyti er hversu lítið sjálfstæði ráðherrarnir hafa haft á ákvarðana- töku.“ Margrét Frí- mannsdóttir alþingismaður, í DV. Myllusteinn R-listans „Reykjavikurlistinn er nú um það bil að hnýta sér sinn eigin myllustein um hálsinn í Laugardalnum eins og ráð- húsið varð íhaldinu myllu- steinn en ekki bautasteinn við Tjörnina." Ásgeir Hannes Eiríksson, í Degi. Davíð skýtur Finn „Þetta með söluna á FBA og dreifða eignar- aðild er svipað og í fyrra þegar Finnur vildi selja Svíum Lands- bankann en Dav- íð Oddsson skaut hann nið- ur í fluginu og stöðvaði málið.“ Össur Skarhéðinsson alþingismaður, í Degi. Tóntegundalaus fram- tíð „Vonandi heyrir maður aft- ur í Atonal Future, og bara að það verði í allra nánustu, tón- J tegundalausri framtíð." Jónas Sen tónlistargagn- rýnandi, í DV. Vinir íslenska hestsins „Ekki er það nema ánægju- legt að forsetinn okkar og ráðherr- I ar noti sumarfrí- hrossa í útlönd- um, ef það er al- veg tryggt að það er ekki á kostnað skattborgara." Guðrún Helgadóttir, rithöf- undur og fyrrv. þingmaður, ÍDV. Milljarðinn vantar „Þaö þarf ekki fleiri ráð- gjafanefndir, ekki fleiri sam- ráðsnefndir ráðuneyta. Sú tíð er að baki. Nú þarf fjármagn - nú þarf að skína í milljarð- inn sem lofað var fyrir kosn- ingar.“ Guðmundur Árni Stefáns- son alþingismaður, um milljarðinn sem á að fara til varnar fíkniefnum, í Morg- unblaðinu." É'CI Íð SÍtt til að hi i l sækja heims- f |3 meistaramót Stefán Logi Haraldsson framkvæmdastjóri: Góð samskipti við sam- starfsfólk eru mikils virði DV, Vesturlandi: „Mér líst bara ljómandi vel á þetta nýja starf. Hér er um verulega spenn- andi fyrirtæki að ræða, rótgróið fyrir- tæki sem stofnsett var árið 1956 og stað- ið hefur í fylkingarbrjósti iðnaðarupp- byggingar í héraðinu og styrkst og dafn- að í takt við síbreytilegt atvinnulíf hér- aðsins og þjóðarinnar í heild. Þá er þess að geta að mér sýnist ég taka við góðu búi af Páli Guðbjartssyni sem, ásamt sinu dugmikla starfsfólki, hefur stýrt fyrirtækinu til sóknar og sigra um langt árabil. Mér hefur verið einstaklega vel tekið af starfsfólkinu hér í Vímeti og vænti ég góðs af samstarfinu við það. Góð samskipti við samstafs- fólkið eru mér sérlega mikils virði og vitna ég þá til reynslu minnar úr mínu fyrra starfi í Steinullar- verksmiðjunni en þar átti ég að frábært samstarfsfólk og sam- heldið mjög, en það tel ég einn mikilvægasta lykil að ft framgangi fyrirtækja svo sem ég sé fram á að geti orðið hér í Vírneti," segir Stefán Logi Har- aldsson ffá Sauðárkróki, nýráð- inn framkvæmdastjóri Virnets hf. í Borgamesi. Hann hefur tekið við starf- inu af Páli Guðbjartssyni sem gegnt hef- ur því í fjölda ára með miklum sóma. „Mér fannst kjörið tækifæri fyrir hendi er ég sá starfið auglýst og í sam- einingu ákváðum við hjónin að ég skyldi sækja um starfið og láta á það reyna hvort krafta minna yrði óskaö þar sem ég hafði lagt að baki rúman áratug í starfi fyrir Steinullarverksmiðjuna og fannst kominn timi til að breyta til og takast á við meiri kröfur og aukna ábyrgð sem mér fannst minn fyrri vinnuveitandi vera búinn að búa mig vel undir. Borgames heillaði okkur hjónin einnig sem staður til að Maður búa fiölskyldu okkar gott um- hverfi og spenn- andi uppvaxtar- ár. Þó vil ég geta þess að enn sem komið er hugsa ég að fiölskyldan sé á þeirri skoðun að hvergi í heiminum sé betra að búa en á Sauð- árkróki, en tíminn mun leiða í ljós I | ' , hvort okkur á ekki eftir að líða jafn vel hér í Borgarnesi og á Króknum. Varðandi rekstur fyrirtækisins er ljóst að áfram verður byggt á þeirri grunnstarfsemi sem byggð hefur verið upp á umliðnum árum og ekki ástæða til að boða neinar stórbreytingar þar um eða kúvendingar. Þó er þaö alltaf svo að með nýjum herrum fylgja alltaf einhverj- ir nýir siðir og verður tíminn að leiða það í ljós hvort einhverjar breytingar verða á rekstrinum á allra næstu tímum, umfram þær sem nauðsynlegar eru hverju sinni til að fylgja eftir síbreyti- legu rekstrarumhverfi og nýjum sóknar- færum í iðnaði í landinu." __________________ Stefán segir áhuga- Haacinc mál sín ten8jast UðöOlllð mest íþróttum og ------------------ hestamennsku: „Borgarnes er kjörinn vettvangur fyrir íþróttaiðkun hvers konar þar sem að- staöa hér til íþróttaiðkunar og hesta- mennsku vbðist meö því besta sem ger- ist á landinu. Einnig hef ég ætíð haft rík- an áhuga á þróun og stöðu mannlífsins og atvinnulífsins á landsbyggðinni sér- staklega og tel að þar megi sannarlega bíta í skjaldarrendur til að rétta hlut okkar landsbyggðarfólks gagnvart höfuð- borgarsvæðinu nú á timum.“ Eiginkona Stefáns er Inga S. Baldurs- dóttir sem starfað hefur sem bankaritari hjá Búnaðarbankanum um langt árabil. Börn þeirra eru: Heiðar Öm, 18 ára, Sonja Petra, 13 ára, Sandra Lind, 8 ára, og Haraldur Andri, 6 ára. -DVÓ DV-mynd DVÓ Andrea Gylfa- dóttir verður á ró- legum nótum í kvöld. Andrea og Eövarð á Gauknum Andrea Gylfadóttir og gít- arleikarinn Eðvarð Lárus- son sjá um tónlistina á ; Gauki á Stöng í kvöld. Á efnisskránni eru m.a. sígild- ir söngvar Billie Holiday og lög eftir Mingus, Sting og Ellington, auk íslenskra laga. Andrea hefur fyrir löngu sungið sig inn í hug og hjarta djassáhugafólks og er tvímælalaust ein af okkar V fjölhæfustu söngkonum og hefur notið mikilla vin- sælda. Eðvarð er útskrifað- ur frá Tónlistarskóla FÍH. Hann er af mörgum talinn Skemmtanir einn af okkar snjöllustu og sérstæðustu gítarleikurum síðari tíma. Eðvarð hefur leikið með og tekið upp með flestum okkar þekktustu tónlistarmönnum. Sixties á Kaffi Reykjavík í kvöld og næstu kvöld. flytur Sixties að hluta til gömul og vinsæl lög, eins og nafn hljómsveitarinnar bendir til, en einnig lög eftir þá félaga sem komið hafa út á hljómplötum með þeim. Myndgátan Sj ómannaafsláttur Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði. Víkingar taka á móti Val á Laugar- dalsvelli f kvöld. Víkingur-Valur Margir leikir voru í knattspyrn- unni um helgina, meðal annars var leikið í úrvalsdeild karla og er einn leikur eftir í þrettándu um- ferðinni, viðureign Reykjavíkur- félaganna Víkings og Vals, sem fram fer á Laugardalsvelli í kvöld kl. 20. Bæði liðin eru í botnbarátt- unni í deildinni og þurfa nauðsyn- lega á stigum að halda og þvi er víst að barist verður til síðasta blóðdropa á Laugardalsvellinum í kvöld. íþróttir í kvöld verða einnig þrír leikir i úrvalsdeild kvenna. Þar hefur KR örugga forystu og munu KR- stúlkur fara til Akraness í kvöld til að leika við ÍA. í Grindavík leika Grindavík-Breiðablik og á Stjömuvelli í Garðabæ leika Stjaman- ÍBV. Allir leikirnir hefj- ast kl. 19. Fleiri leikir eru í boltanum í kvöld og má nefna að sjö leikir eru í 1. deild kvenna og fara þeir fram víðs vegar um landið, allt frá Fylk- isvelli austur til Vopnafjarðar. Þá er einnig leikið í 1. og 2. flokki karla og eldri flokki karla. Bridge Þegar nágrannaþjóðir eigast við í bridge vill slagurinn oft verða harð- ur enda vill hvorug þjóðin ógjarna tapa fyrir hinni. Rígurinn á milli Belga og Hollendinga hefur jafnan verið mikill en Hollendingar oftast haft betur við græna borðið. Hins vegar brá svo við að Belgar höfðu sigur í innbyrðis viðureign þjóð- anna á Evrópumótinu á Möltu í opnum flokki, 20-10. Lokatölurnar í impum talið vora 65-41, en á tíma- bili var lið Belgíu með 50 impa for- ysíu. Belgar þóttu nokkuð heppnir í leiknum, sérstaklega I þessu spili. Hollendingarnir Muller-de Boer sögðu vel á spilin sín á hendur AV í lokuðum sal og komust alla leið í 6 tígla án truflana andstæðinganna. Þeir réðu hins vegar ekki við trompleguna og fóru tvo niður í þessum annars ágæta samningi. Sagnir þróuðust á allt annan hátt í opnum sal, norður gjafari og enginn á hættu: 4 G1098 <«* 1095 ♦ DG842 ♦ 3 4 ÁK4 •f K3 ♦ 765 * ÁG864 4 762 44 8642 ♦ - * KD10972 Norður Austur Suður Vestur pass 1 grand 3 4 dobl P/h Grandopnun austurs lofaði 15-17 punktum og Hollendingurinn í suð- ur ákvað að koma inn á hindrunarsögn- inni 3 laufum. Vestur doblaði til úttektar og aust- ur var að sjálf- sögðu ekki á móti þvi að verjast í þessum samn- ingi. Aumingja Hollendingurinn í suður var 5 niður og 1100 stig skráð í dálk andstæðinganna. Belgar græddu því 15 impa á spilinu, eða meirihlutann af því sem skildi liðin að í lokin. ísak Öm Sigurðsson 4 D53 * ÁDG7 ♦ ÁK1093 4 5

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.