Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1999, Blaðsíða 33
MÁNUDAGUR 16. ÁGÚST 1999
45
Haukur Gröndal leikur annað
kvöld á vegamótum.
Gæðadjass
á Vega-
mótum
Annað kvöld mun saxófónleik-
arinn Haukur Gröndal leika fyrir
gesti á veitingastaðnum Vegamót-
um við Vegamótastíg 4. Þetta
verða síðustu tónleikar Hauks
Gröndcds hér á landi um sinn en
hann kom fyrr í sumar með tvo
danska vini sina og léku þeir á
ýmsum stöðum á landinu. Haukur
er nú á leið til Kaupmannahafnar
þar sem hann stundar nám.
Tónleikar
Með Hauki, sem leikur á alt-
saxófón, leika að þessu sinni
Gunnar Hrafnsson á kontrabassa
og Einar Valur Scheving á tromm-
ur. Þeir Gunnar og Einar eru ís-
lenskum djassunnendum að góðu
kunnir og hafa leikið með öllum
helstu djassleikurum okkar ásamt
erlendum gestum sem hingað hafa
komið. Þeir félagar munu leika
þekkt djasslög ásamt nýrra efni.
Tónleikamir hefjast kl. 21.30 og er
aðgangur ókeypis.
j Tíbrá hefst í Salnum:
Úrval íslenskra söngvara
Annað kvöld hefst Tíbrá tónleika-
röðin í Kópavogi starfsárið 1999 til
2000. Tónleikar þessir eru glæsilegir
söngtónleikar með íslenskum úr-
valssöngvurum. Verða þeir endur-
fluttir á fimmtudagskvöld. Söngvar-
amir sem syngja á tónleikunum,
sem hefjast kl. 20.30, eru Kristinn
Sigmundsson, Gunnar Guðbjörns-
son, Amdís Halla Ásgeirsdóttir,
Signý Sæmundsdóttir og Ingveldur
Ýr Jónsdóttir.
Kristinn Sigmundsson, bassi,
syngur nú í fyrsta sinn í Salnum
og er það sérstakt fagnaðarefni.
Kristinn er hér í stuttu fríi frá
störfum erlendis, síðast var hann
í Bastilluópemnni í París og á
næstu dögum fer hann til starfa í
Amsterdam, París, Hamborg og
víðar. Á tónleikunum syngur
Kristinn atriði úr Töfraflautunni,
aríu úr Machbeth eftir Verdi og
sönginn um róginn úr Rakaran-
um í Sevilla eftir Rossini.
Gunnar Guðbjörnsson, tenór,
söng á fyrstu söngtónleikunum í
Salnum í janúar sl. Gunnar er nú
sestur að í Berlín og þar bíða
hans mörg verkefni. Hann kemur
hingað frá Vínarborg þar sem
hann hefur starfað í sumar. Á
tónleikunum syngur Gunnar ým-
islegt úr Töfraflautunni og aríur
eftir Bizet og Cilea, en auk þess
dúettinn fræga úr Perluköfurun-
um ásamt Kristni.
Arndís Halla Ásgeirsdóttir
sópran, er ung söngkona sem
starfar í Berlín og kemur nú hing-
að frá Graz í Austurríki þar sem
hún söng á tónleikum fyrir stuttu
með sinfóníuhljómsveit borgar-
innar. Arndís Halla syngur aríu
Næturdrottingarinnar á tónleik-
unum auk atriða úr Ævintýrum
Hoffmanns eftir Offenbach og úr
Don Pasquale eftir Donisetti.
Signý Sæmundsdóttir, sópran,
hefur að undanfómu starfað mest
hér heima og tekist á við afar
margvísleg viðfangsefni á tónleik-
um, í óperum o.fl. Á tónleikunum
nú syngur hún atriði Elizu úr
Lohengrin eftir Wagner og
Rósínu aríuna Una voce poco fa úr
Rakaranum eftir Rossini en auk
þess í tríói og dúett úr Töfraflaut-
unni.
Tónleikar
Ingveldur Ýr Jónsdóttir mezzó-
sópran, hefur komið víða fram en
starfar um þessar mundir á íslandi.
Hennar viðfangsefni hafa verið
margvísleg í óperum, á tónleikum, í
upptökusal o.fl. Ingveldur syngur
nú Habaneruna úr Carmen, aríu úr
Öskubusku eftir Rossini og að auki
bátssönginn úr Ævintýrum Hoff-
manns með Signýju og dúett með
Kristni úr ítölsku stúlkunni frá Al-
sír eftir Rossini.
Með söngvurunum annað kvöld
leikur Jónas Ingimundarson á pí-
anóið. Hann hefur verið til hlés síð-
astliðið ár en kemur nú til leiks.
Jónas er listrænn ráðunautur Tí-
brár.
Kristinn Sigmundsson og Jónas Ingimundarson verða meðal annarra lista-
manna á tónleikum í Salnum annað kvöld.
Christopher Lambert leikur lög-
reglumann í leit að raðmorðingja.
Upprisan
Bíóhöllin sýnir spennumyndina
Ressurection. Aðalpersónan er
lögreglumaðurinn John
Prudhomme sem hefur orðið fyrir
harðri reynslu í einkalífinu sem
gerir það að verkum að vinnan
verður honum allt. Morgun eirm
er hann kominn á morðstað í út-
hverfi Chicago þar sem framið
hefur verið hroðalegt morð. Mað-
ur liggur í blóði sínu og hefur
önnur höndin verið tekin af við
öxl. í blóðið hefur verið
skrifað: „Hann ......,, ,
kemur...“ Þetta er ''////,
Kvikmyndir
aðeins fyrsta morðið af nokkrum
þar sem vantar líkamsparta á
fómarlambið. Prudhomme grunar
að morðinginn sé brjálaður ofsa-
trúarmaður sem sé að safna sam-
an líkamspörtum.
í aðalhlutverki er Christopher
Lambert og leikstjóri er Russel
Mulcahy en þeir gerðu saman Há-
lendinginn á sínum tíma.
Nýjar myndir í kvikmynda-
húsum:
Bíóhöllin: Ressurection
Saga-Bíó:Tarzan and the Lost City
Bíóborgin: The Other Sister
Háskólabíó: Notting Hill
Háskólabíó: Allt um móður mína
Kringlubíó: Wild Wild West
Laugarásbíó: Austin Powers
Regnboginn: Star Wars: Episode II
Stjörnubíó: Universal Soldiers
Krossgátan
Rigning austan til
Norðaustanátt, 8-13 m/s, og rigning
verður austan til en skýjað að mestu
Veðrið í dag
vestan til. Hiti verður kringum 10 stig.
Sólarlag í Reykjavlk: 21.52
Sólarupprás á morgun: 05.14
Síðdegisflóð í Reykjavík: 19.52
Árdegisflóð á morgun: 08.15
Veðrió kl. 18 i gœr:
Akureyri skýjaó 9
Bergsstaðir rigning og súld 8
Bolungarvík skýjað 9
Egilsstaóir
Kirkjubœjarkl. rigning 9
Keflavíkurflv. rign. á síó.kls. 11
Raufarhöfn þoka 9
Reykjavík alskýjaó 10
Stórhöfói súld 10
Bergen skýjað 12
Helsinki léttskýjaö 13
Kaupmhöfn léttskýjaö 16
Ósló léttskýjaö 11
Stokkhólmur 14
Þórshöfn skýjaö 10
Þrándheimur léttskýjaö 6
Algarve heióskírt 18
Amsterdam skýjaó 14
Barcelona skýjaó 20
Berlín skýjaó 12
Chicago skýjað 24
Dublin skýjaó 16
Halifax súld 17
Frankfurt hálfskýjaö 10
Hamborg hálfskýjaö 14
Jan Mayen rigning 5
London rign. á síð.kls. 15
Lúxemborg skýjaö 11
Mallorca skýjaó 23
Montreal léttskýjaó 19
Narssarssuaq heiöskírt 9
New York hálfskýjaó 24
Orlando þokumóöa 24
París skýjaö 12
Róm léttskýjaö 23
Vín skýjaö 15
1 2 3 4 5 6
7 8 9
10 11
12 13 14
15 18 17 18
19 20 21
22
Lárétt: 1 jarðsetja, 7 hagur, 8 suða,
10 keyrum, 11 hætta, 12 hreinan, 14
bardagi, 15 gruni, 16 straumur, 19
til, 20 kroppa, 22 efni.
Lóðrétt: 1 hvatning, 2 tré, 3 hitinn,
4 handsamar, 5 deila, 6 veð, 9 uppi-
staða, 13 tryllti, 15 óttast, 17 hratt, 18
hald, 21 fljótræði.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 hagræði, 7 Egla, 8 tað, 10
laust, 11 ná, 13 gefins, 16 kram, 18
eim, 19 æða, 21 óttu, 23 rifta, 24 ár.
Lóðrétt: 1 helg, 2 aga, 3 glufa, 4 rasi,
5 ætt, 6 ið, 12 álmur, 14 erði, 15 net,
17 mót, 20 af, 22 tá.
Gengið
Almennt gengi LÍ13. 08. 1999 kl. 9.15
Eininq Kaup Sala Tollqenqi
Dollar 72,420 72,790 73,540
Pund 116,810 117,400 116,720
Kan. dollar 48,750 49,050 48,610
Dönsk kr. 10,3890 10,4470 10,4790
Norsk kr 9,3550 9,4070 9,3480
Sænsk kr. 8,7880 8,8370 8,8590
Fi. mark 12,9917 13,0698 13,1223
Fra. franki 11,7759 11,8467 11,8943
Belg. franki 1,9149 1,9264 1,9341
Sviss. franki 48,2400 48,5100 48,8000
Holl. gyllini 35,0523 35,2629 35,4046
Þýskt mark 39,4948 39,7321 39,8917
ít. líra 0,039890 0,04013 0,040300
Aust. sch. 5,6136 5,6473 5,6700
Port. escudo 0,3853 0,3876 0,3892
Spá. peseti 0,4643 0,4670 0,4690
Jap. yen 0,630000 0,63370 0,635000
irskt pund 98,081 98,670 99,066
SDR 98,710000 99,31000 99,800000
ECU 77,2500 77,7100 78,0200
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270
Viktor Berg
Litli drengurinn á
myndinni, sem fengið hef-
ur nafniö Viktor Berg,
fæddist á fæöingardeild
Barn dagsins
Landspítalans 27. júní síð-
astliðinn. Við fæðingu
var hann 4010 grömm að
þyngd og 54 sentímetrar.
Foreldrar hans eru Sig-
rún Hjálmarsdóttir og
Grétar Berg og er hann
fyrsta bern þeirra.
t.
<c
<
t