Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1999, Blaðsíða 2
20
MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1999
Sport
DV
Hvaö finnst þér?
Hverjir voru bestu
ieikmenn íslands í
leiknum við Andorra.
Spurt eftir leikinn á
Laugardalsvelli á laugardag
Helgi Guðmundsson
„Brynjar var rosagóður, mjög
duglegur leikmaður en leikur-
inn var leiðinlegur þó að við
sigruðum."
Sema Erla Serdar
„Mér fannst Þórður Guðjóns-
son vera bestur. Leikurinn var
flnn, þeir eru bestir og unnu af
því ég á afmæli í dag.”
Einar Hálfdánarson
„Mér fannst Þórður Guðjóns-
son vera bestur. Liðið var ágætt
í fyrri hálfleik en mun daufara í
þeim seinni.”
Friðrik Karlsson
„Mér fannst Hermann Hreið-
arsson bestur. Þetta var ekki
nógu sannfærandi en þeir stóðu
sig samt ágætlega.”
Halldór Halldórsson
„Siggi Jóns var bestur, ís-
lenska liðið var svona þokkalegt
í þessum leik og sigurinn var
mikilvægastur.”
Þrír sigrar í röð
Bretinn Lee Westwood vann i gær sitt þriðja golfmót í röð þegar hann
bar sigur úr býtum á meistaramóti Evrópu sem fram fór í Sviss. West-
wood lék á 270 höggum eða 14 höggum undir pari vallarins og loka-
hringinn fór hann á 65 eða sex höggum undir parinu. Daninn Thomas
Björn varð annar á 272 höggum, Alex Cejka, Þýskalandi, varð þriðji á
276, Sam Torrance, Skotlandi, og Marc Farry, Frakklandi, komu næstir
á 278 höggum og þeir Miguel Angel Jiminez, Spáni, Ignacio Garrido,
Spáni, og Sven Struer, Þýskalandi, léku allir á 280 höggum.
Bretanum Nick Faldo gekk illa eins og á fleiri mótum í ár og endaði á
288 höggum.
-GH
Rússar í bílslysi
Rússnesku handknattleiksmennirnir Aleksandr Tutschkin og Igor
Lavrov slösuðust illa í bílslysi aðfaranótt laugardagsins og verða frá
keppni í marga mánuði. Lið þeirra, Minden og Flensburg, mættust í
þýsku A-deildinni á fostudagskvöld. Um nóttina voru þeir á ferð í út-
hverfi Minden á Bens-bifreið Tutschkins. Lavrov ók og lenti út fyrir veg-
inn, beint á tré og bifreiðin fór nokkrar veltur og endaði á þakinu. Klippa
þurfti þá félaga út úr bifreiðinni sem var gjörónýt. Tutschkin er með
brotna hálsliði og Lavrov er viðbeinsbrotinn. Samkvæmt upplýsingum
lækna munu þeir ná sér að fullu. Þeir voru báðir atkvæðamiklir í leikn-
um um kvöldið, Tutschkin skoraði 6 mörk fyrir Minden en Lavrov 5 fyr-
ir Flensburg sem fagnaði sigri, 22-28. -VS
Mánudagsviótalift
Brynjar Björn Gunnarsson
smeliir hér kossi á unnustu
sína. Olgu Einarsdottur, eftir
sigurinn gegn Andorra á
laugardaginn.
DV-mynd E.ÓI.
Brynjar Björn Gunnarsson er rólyndismaöur:
- andstæða sjálfs síns þegar hann kemur inn á fótboltavöllinn
Landsliðsmaðurinn í knattspyrnu
og fyrrverandi KR-ingurinn Brynjar
Björn Gunnarsson hefur verið að
spila frábærlega með liði sínu í Sví-
þjóð, Örgryte. Sænsk dagblöð hafa
sagt hann einn albesta leikmann
sænsku deildarinnar og heyrst hef-
ur að ítölsk lið séu farin að sýna
kappanum áhuga.
Hverju er velgengnin aó þakka?
„Fyrst og fremst því að ég hef
fengið að spila með mínu félagsliði
og fengið séns. Það hefur gengið
mjög vel hjá liðinu og það hjálpar
og þá er maður með gott sjálfstraust
og flest gengur upp.“
Hvernig litist þér á aó flytja þig
um set?
„Ef við erum að tala um Ítalíu þá
er það að minu mati besta deild í
heimi. Að sjálfsögðu hefði maður
áhuga á því að fara þangað en við
erum mjög ánægð þar sem við erum
núna. Maður myndi að sjálfsögðu
hugsa alvarlega um það ef það
kæmi upp á borðið."
Hvernig eru aóstœóur hjá ykkur í
Svíþjóö?
„Við erum tvö,“ sagði Brynjar.
„Og við erum með frábæra granna,
einn þeirra er aðstoðarþjálfarinn
þannig að þeir geta talað enda-
laust," skaut Olga Einarsdóttir,
kærasta Brynjars, inn í. „Við erum
mjög ánægð með húsið. Það er vel
séð um okkur.“
„KR verður meistari"
Hvernig finnst þér íslenski bolt-
inn?
„Ég get nú lítið dæmt um það. Ég
hef séð einn eða tvo leiki hér með
KR i sumar. Ég hugsa að þeir verði
meistarar núna.“
Slœr KR-hjartaö enn í þér.
„Já, ég er fæddur og uppalinn í
KR og helmingurinn af minni fjöl-
skyldu, þannig að það hættir ekkert
að slá.“
Hverja teluröu möguleika lands-
liösins aó komast áfram?
„Hvernig sem allt fer er þetta
búið að vera framar vonum. Fyrst
við erum komnir þetta langt þá ætl-
um við að berjast til síðasta blóð-
dropa um sæti í þessari keppni."
Hverja teluröu möguleika ykkar á
aó komast áfram?
„Ef maður litur raunhæft á það
eru þeir ekki miklir. En við erum
búnir að sýna að við getum spilað
vel á móti þessum sterku þjóðum
þannig að maður er ekkert að setja
það fyrir sig.“
Hvaö finnst þér gott aó gera þegar
þú ert ekki á fótboltaœfingu?
„Við (Brynjar og Olga) erum
meira og minna saman þegar ég er
ekki á æfingu."
Hvaö ert þú aó gera, Olga?
„Ég er búin með eitt ár í kera-
miki og er búin að setja upp lítið
verkstæði heima. Við Brynjar vor-
um til dæmis að smíða borð á litla
verkstæðinu minu.“
Hvernig myndir þú lýsa sjálfum
þér?
„Ég er mjög rólegur." Olga skýtur
inn í: „Eigum við ekki að segja að
þessi rólegi maður skiptir um ham
þegar hann fer inn á völlinn, hann
er andstæða sjálfs síns inni á vellin-
um.“
Hefuröu þér einhver áhugamál
fyrir utan fótboltann?
„Nei, engin sérstök. Fótboltinn
var aðaláhugamálið þangað til ég
gerðist atvinnumaður og ég er bara
að gera það sem mér finnst
skemmtilegast. Annars förum við
bara í bíó, í bæinn eða út að borða
ef maður ætlar að bijóta upp
mynstrið eitthvað."
Langar að vinna titla
Áttu þér framtíöardraum?
„Að spila I sterkari deild og
kannski vinna einhverja titla og svo
bara sjá hvað gerist. Eftir fótboltann
hefði maður áhuga á að fara út í
þjálfun eða eflaust gera eitthvað
tengt fótboltanum."
En Olga, þú varst tvöfaldur ís-
landsmeistari meö KR í fótboltanum,
ertu hœtt?
Ég hef fundið annað áhugamál
sem hefur tekið hug minn allan,
keramikið, þannig að við erum
bæði að gera eitthvað sem er áhuga-
málið okkar og það gæti í rauninni
ekki verið betra. Við höfum það
hrikalega fínt,“ sagði Olga. -ÍBE