Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1999, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1999, Blaðsíða 8
26 MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1999 'Sport r>v -* - ■ - Framarar unnu sinn 50. íslandsmeistaratitil í yngri flokkum karla Dramatíkin var mikil þegar Framarar tryggðu sér íslandsmeist- aratitilinn í 4. flokki karla eftir framlengingu og vítakeppni gegn sigurvegurum í þessum flokki síð- ustu tvö árin á undan, FH-ingum. Umsjón Óskar 0. Jónsson Leikurinn var fjörugur og lengst- um í höndum Framara sem spiluðu skemmtilegan fótbolta og voru með vel skipulagt lið. FH-ingar fengu þó draumabyrjun þegar Árni Freyr Guðnason kom þeim yfir strax á 4. mínútu en þetta var ellefta FH-markið í röð í úrslita- leik 4. flokks karla. Framarar gáfust ekki upp og 26 mínútum síðar náði Þórður Daníel Þórðarson að jafna eftir laglega sókn. Það sem eftir lifði leiks voru Framarar sterkari og fengu mörg ágætisfæri. Vamarleiknum stjóm- aði Jón Orri Ólafsson af miklum myndarskap og Marius Þór Har- aldsson og Gunnar léku sig og fé- laga sína oft skemmtilega í gegnum FH-vörnina. Marius Þór fékk gullið tækifæri á 55. mínútu til að tryggja Fram sig- urinn en hann lét Ragnar Valdi- marsson verja frá sér vítaspyrnu sem Fram fékk er einn varnar- manna FH varði boltann með hendi. Sá fékk rauða spjaldið og FH-ingar voru því einum manni færri það sem eftir var leiksins. Eftir markalausan seinni hálfleik og framlengingu varð vítakeppni að ráða úrslitum og þar skoruðu Fram- arar úr öllum fjórum sínum en FH- ingar misnotuðu tvær af sínum. Þetta var ellefti sigur Framara í fjórða flokki frá upphafi, ekkert fé- lag hefur unnið hann oftar en næstir koma nágrannarnir í Val með níu 4. flokks titla. Haraldsson, Jón Orri Ólafsson og Þórður Daníel Þórðarson voru ánægðir í leikslok en þeir hafa æft lengi saman og segja hópinn hafa haldist en meiri breytingar hafa orðið á þjálfurum. Lárus Grétarsson þjálfar strák- ana nu og bera þeir honum mjög góða sögu en hann hefur rifið lið- ið upp. Þessir árgangar náðu þannig ekki að komast í úrslitin fyrir tveimur árum þegar þeir léku síðast saman í 5. flokknum en nú fóru þeir alla leið og urðu íslandsmeistarar. Strákarnir æfa vel og sýndu það inni á vellinum að þar er mjög agað og skipulagt lið á ferðinni, líklegt til afreka í framtiðinni haldi það áfram á sömu braut. tíu sinnum, 3. flokk 20 sinnum, 4. flokk 11 .sinnum, 5. flokk fimm sinnum, 6. .flokk A þrisvar og 6. flokk B einu sinni. KR-ingar hafa samtals unnið 46 íslandsmeistara- titla í karlaflokki og Valsmenn 39. KR-ingara hafa reyndar vinning- inn hjá bæði strákum og stelpum samanlagt en KR hefur alls unnið 56 íslandsmeistaratitla. -ÓÓJ Fimtugasti Islandsmeistara- titill Framara Morgunmatur í boði foreldra er einnig merkilegt að Framarar unnu hér sinn fimmtugasta ís- landsmeistaratitil í t yngri flokkum karla og urðu fyrsta félagið til að afreka I slíkt. Fram hefur unnið 2. flokk Framararnir Marius Þór Haraldsson, Jón ^ 'imst Orri Ólafsson og Þórður Daníel Þórðarson fagna hér til hliðar saman íslandsmeistara- titlinum í 4. flokki. Það Framarara undirbjuggu sig vel fyrir leikinn og sem dæmi um það tóku foreldrar I strákanna sig til og sáu um 1 morgunmat fyrir liðið á leikdegi en leikurinn byrj- aði á hádegi. Marius Þór «• '■ " - *. ■ ■* ■ . . ' = Hvar er boltinn? Leikmenn FH og Fram í baráttu um boltann sem er í háloftunum. -ÍiitíP Framari i góðu færi, FH- ingurinn (nr. 2) gripur til þess skömmu seinna að verja með höndum og fær fyrir það rauða spjaldið. ■ ■........ FH-ingar máttu sætta sig við tap í vítakeppni og hér fylgjast vftaskyttur liðsins með þegar Framarar taka eitt vfta sinna. FH-ingar stóðu sig vel en náðu ekki að vinna 4. flokkinn þriðja árið í röð. Það er frábært að komast i úrslit í þrjú ár í röð þótt þeir verði að sætta sig við 2. sætið nú. •m

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.