Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1999, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1999
27 .
DV
Sport
Meistaramót KPMG var haldið á Kjóavöllum um
helgina. Þetta er árlegt metamót Andvara og er keppt i
A- og B-flokki gæðinga, tölti, 150 og 250 metra skeiði og
skeiði með fljótandi starti, stundum kallað hraðskeið á
íslandi. Hraðskeið hefur ekki náð vinsaeld-
um á íslandi en töluvert er keppt í þeirri
grein í Þýskalandi og er þá stundum skeiðað
úr myrkri á upplýst svæði eins og gert var á
Kjóavöllum við mikla hrifningu.
Einungis er keppt í opnum flokki og
voru þar margir helstu karlknapar
landsins en fleiri konur hefðu mátt
söðla fáka sína.
í A-flokki stóð uppi sem sigurveg-
ari Klakkur frá Búlandi með 8,83 í
einkunn en knapi hans var Vignir
Jónasson. Reyndar var Geysir frá
Dalsmynni krýndur sigurvegari en
upp komst um mistök á dómpalli
sem leiddu til þess réttlætið sigraði
að lokum og Klakkur sigraði en
Geysir var annar. Geysir fékk 8,81
og var knapi Baldvin Ari Guðlaugs-
son, en hann kom með nokkra hesta
í keppnina frá Akureyri. Skafl frá
Norðurhvammi var þriðji, með 8,63, og
var knapi hans Sigurður Sigurðarson.
Kjarkur frá Ásmúla og Þórður Þorgeirsson
og Bylur frá Skáney og Sigurbjöm Bárðarson
fengu 8,58 og fékk Þórður fjórða sætið í hlut-
kesti.
í B-flokki stóð efstur Fönix frá Tjamar-
landi með 8,76. Knapi var Þórður Þorgeirsson.
Djákni frá Litla-Dunhaga og Sigurbjörn Bárð-
arson fengu 8,71, Númi frá Miðsitju og Sigurð-
ur Sigurðarson fengu 8,69, Sylvía Sigurbjöms-
dóttir og Garpur frá Krossi fengu 8,65 og Ás frá
Syðri-Brekkum og Sigrún Erlingsdóttir fengu
8,64.
Frægir
Japanskur kvikmyndatökumaður og að-
stoðarstúlka hans vöktu
athygli á móti Andvara á
Kjóavöllum og héldu ís-
lendingar að verið væri
að taka myndir af lifandi
pístólukjöti. Svo var.
ekki.
„íslenski hesturinn er
frægur,“ sagði Toshi
Matsushita, en hann var
að taka upp efhi fyrir
Television Tokyo. „Ég
hef farið víða að mynda hesta og hef heyrt
mikið talað um íslenska hestinn. Hér
verðum við í viku að taka upp efhi fyrir
sjónvarpsstöð í Tókíó. Það eru nokkrir ís-
lenskir hestar i Japan. Ég held að þeir séu
fjórir en er ekki viss.“
Mikil fyrirhöfn
Sigurbjörn Bárðarson kannaðist við að
hafa flutt út tvo hesta til Japans fyrir
tveimur áram ásamt Axel Ómarssyni.
„Það var mikið vesen. Fyrst voru hest-
arnir fluttir til Bandaríkjanna og þaðan
til Japans. Við erum að reyna að afla
markaðar í Japan en þetta er mikil fyrir-
höfn,“ segir hann.
-EJ
Sigurbjöm Bárðarson sigraði í töltkeppninni á Oddi
frá Blönduósi, Sigrún Erlingsdóttir var önnur á Ási frá
Syðri-Brekkum, Sævar Haraldsson var þriðji á Glóð
frá Hömluholti, Eysteinn Leifsson var fjórði á Hug frá
Mosfellsbæ og Sigurður Sigurðarson fimmti á
Garpi frá Horni.
-EJ
Hestamolar
..-V
Framtíð frá Runnum fór hvað
hraðast allra vekringa í hraðskeiði
í flóðljósum á kvöldvökunni hjá
Andvaramönnum. Knapi var
Sveinn Ragnarsson og var tíminn
7,2 sek. Hestar í næstu fjórum sæt-
um fóru allir á 7,5 sek. en var rað-
að þannig i sæti: Hraði frá Sauðár-
króki og Logi Laxdal, Óðinn frá
Efsta-Dal og Logi Laxdal, Baldvin
A. Guðlaugsson og Vaskur frá
Vöglum og Þórður Þorgeirsson og
Hnoss frá Ytra-Dalsgerði.
Toshi Matsushi
s? Japan og eru að mynd
s~- a. lenska hesta.
Þorður Þorgeirsson og
Fönix frá Tjarnarlandi
sigruðu í B-flokki á
Kjóavöllum.
DV-myndir E.J.
BOCAINNANHUSS
Baldvin Ari Guðlaugsson skilar bikar fyrir sigur í A-flokki en í Ijós
komu mistök á dómpalli og Vignir Jónasson fékk bikarinn og sig-
ur í A-flokki.
Fyrir þa sem leita að þægilegum æfingaskóm með stuðningi Fyrir
innanhúss æfingagólf.
VERÐ KR. 4.690.-
UTIUF
GLÆSIBÆ
Einari Ragnarssyni á Korpúlfsstöðum og Tómasi
Ragnarssyni rann til rifja að vinur
þeirra Eysteinn Leifsson (til hægri)
komst ekki í úrslit í B-flokki á Kjóa-
völlum á Hug frá Mosfellsbæ. Þeir
gerðu sér lítið fyrir og keyptu fyrir
hann úrslitasæti fyrir 31.000 krónur.
Mótshaldarar héldu uppboð á einu
úrslitasæti í hvorum flokki og var B-
flokks-sætið keypt á 31.000 krónur
en A-flokks sæti fyrir Fiðlu frá
Steinnesi og Loga Laxdal kostaði
18.500 krónur.
Unn Kroghen (Noregi) er efst i fjórgangi á stigalista
FEIF (Félags eigenda og vina íslenska hestsins) en hún
keppir á Hruna frá Snartarstööum. Ásgeir S. Herberts-
son (íslandi) er í öðru sæti með Farsæl frá Arnarhóli,
Guðmundur Einarsson (íslandi) þriðji með Ótta frá
Miöhjáleigu.
Á metamóti Andvara um helgina var einkunn fyrir fet
sleppt í gæðingakeppninni. í B-flokki fékk hæga töltið
tvöfalt vægi. Tveir dómara af funm gáfu einkunnir í
heilum og hálfum tölum í B-flokknum sem tilrauna-
verkefni. Ekki var farið eftir lögum og reglum Lands-
sambands hestamannafélaganna. Til dæmis var
hvorki fótaskoðun né hjálmaskylda.
Gladur frá Hólabaki er sá stóðhestur sem
hefur fengið hæstan dóm í sumar í elsta flokki
stóðhesta þegar miðað er við íslenska dóm-
kerfið. Glaður fékk 8,51 f dómi í Þýskalandi
siðastliðið vor en Þröstur frá Innri-Skelja-
brekku og Ögri frá Háholti fengu 8,33 á sýn-
ingum í Gunnarsholti og á Hellu.
Andvaramenn hafa hug á að gera tilraunir
með tímatöku fyrir skeið í
A-flokki á næsta ári og
mæla hraða skeiðkafla hvers
hests og gefa bónuseinkunn
fyrir hratt skeið. Nánar á eft-
ir að útfæra einkunnagjöf-
ina. Verðlaun voru vegleg á
Kjóavöllum og fengu sigur-
vegarar hraðskeiðs
(Sveinn Ragnarsson, til
hægri) og sigurvegari i tölti (Sigurbjörn
Bárðarson) 100.000 krónur fyrir sigurinn en
sigurvegarar annarra greina fengu einnig
peningaverðlaun.
Gœðingaskeið hefur gegnum tíðina
verið aðalkeppn-
isgrein íslend-
inga. Það kemur
þvi ekki á óvart
að íslendingar
raða sér i efstu
sætin á stigalista
FEIF. Sigur-
björn Báróar-
son (íslandi, til
hægri) er efstur,
Logi Laxdal (íslandi) er annar,
Magnús Skúlason (Svíþjóð) þriðji,
Karly Zingsheim (Þýskalandi) fjórði
og Guðmundur Einarsson (íslandi)
fimmti.
Þegar verðlaun höfðu verið veitt
fyrir B-flokks hesta á Kjóavöllum
lögðu knapar af stað i fallegri breið-
fylkingu en einn vantaði. „Ætlarðu
ekki að koma meö, Erling," kallaði
Sigurbjörn Bárðarson í Erling
Sigurösson. „Nei, það er ekkert und-
ir mér,“ svaraði Erling að bragði en
hestur hans missti skeifu i loka-
spretti.
Mjög góðir tímar náðust í 250
metra skeiði. Ósk frá Litla-Dal og
Sigurbjörn Bárðarsön fóru á 21,7
sek., sem er mjög líklega besti timi
hryssunnar. Skeiðmeistarinn Frið-
dóra Friðriksdóttir og Lína frá
Gillastöðum fóm á 22,1 sek., Sig-
urður V. Matthíasson og Glaður
frá Sigríðarstöðum fóra á 22,2 sek.,
Þórður Þorgeirsson og Hnoss fóra
á 22,3 sek. og Logi Laxdal og Óðinn
frá Efsta-Dal á 22,4 sek. Þessir tím-
ar lofa góðu fyrir veðreiðar Fáks
næstu helgar.
í 150 metra skeiði sigraði Þor-
móður rammi frá Stykkishólmi á
14,0 sek. Knapi var Logi Laxdal.
Röðull frá Stafholtsveggjum og
Guömundur Jónsson fóru einnig á
14,0 sek., Þórður Þorgeirsson og
Gunnur frá Þórcddsstöðum fóru á
14,2 sek., Sigurbjörn Bárðarson og
Snarfari frá Kjalarlandi á 14,6 og á
sama tíma Hraði frá Sauðárkróki
og Logi Laxdal.
-EJ
V