Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1999, Qupperneq 4
22
MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1999
Sport
DV
Bland í poka
Luis Figo, leikmaður Barcelona, bjarg-
aði Portúgölum frá háðulegu tapi gegn
Aserbaídsjan en hann jafnaði metin
einni mínútu fyrir leikslok eftir að
heimamenn voru orðnir manni færri
eftir að markaskoraranum Taghizadse
var vikið af leikvelli seint í síðari hálf-
leik.
Norómenn eru komnir með góða stöðu í
1. riöli eftir sigur á Grikkjum og geta
með sigri gegn Slóveníu á miðvikudag-
inn tryggt sér sigur í riðlinum. Það var
Öyvind Leonhardsen sem skoraði sig-
urmarkið eftir góða samvinnu við
Steffen Iversen, félaga sinn hjá Totten-
ham. Þetta var 13. leikur Norðmanna án
taps en síðast töpuðu þeir leik gegn Lett-
um í september á síðasta ári.
Svíar eru með annan fótinn í loka-
keppninni eftir sannfærandi sigur á Búl-
görum og Danir unnu afar mikilvægan
sigur á Sviss og eiga mikla möguleika á
að komast í útsláttarkeppnina.
Teitur Þóröarson er kominn með Eist-
lendinga í baráttuna um annað sætið
eftir 2-0 sigur í Færeyjum. Lániö lék
ekki viö Færeyinga því mörkin komu
bæði á siðustu þremur mínútunum. Uni
Arge og Allan Mörköre léku með fær-
eyska liðinu. Eistland fær Skotland i
heimsókn á miðvikudag og sá leikur
ræður mestu um annað sætið.
Oliver Bierhoff tryggði Þjóðverjum
nauman sigur í Finnlandi, 1-2, með
tveimur mörkum á fyrstu 17 mínútun-
um. Finnar sóttu stíft á lokakaflanum og
aðeins markvarsla Jens Lehmans kom í
veg fyrir aö þeir jöfnuðu.
Davor Suker reyndist Króötum enn
dýrmætur þegar hann skoraði sigm--
mark gegn írum, 1-0, á lokasekúndun-
um. Króatar höfðu yfirburði í leiknum
en markalaust jafntefli blasti við þegar
Suker skoraði eftir langa sendingu inn-
fyrir írsku vörnina. Uppgjör Króata og
Júgóslava í lokaumferðinni mun ráða
úrslitum i 8. riðlinum.
Kýpur er liklega sú þjóð sem hefur
komið næstmest á óvart á eftir Islend-
ingum í riðlakeppninni. Kýpurbúar
unnu sætan sigur á ísraelum í gær, eru
í öðru sæti í sínum riðli og eygja mögu-
leika á að komast áfram í keppninni.
-VS/GH
Bland í poka
uottoró
Gæóavottorð frá
Frumherja staófestir
framúrskarandi ástand
7 stjörnu bílanna.
Þetta er ein af sjö
ástæóum til aó kaupa
sjö stjörnu bíl hjá B&L.
Bílaland B&L • Gijóthálsi 1 • Sími 575 1230
Úkraínumaðurinn Andriy Husyn gerir hér harða hrið að Fabian Barthez, markverði heimsmeistara Frakka, í leik
þjóðanna í Kænugarði á laugardaginn. Reuter
Undankeppni EM í knattspyrnu:
Mest spenna
- í riðli íslands eftir jafntefli Úkraínu og Frakklands
Línur skýrðust talsvert í mörgum
riðlum undankeppninnar um helg-
ina en þó náði ekkert lið að tryggja
sér sæti í lokakeppninni í Hollandi
og Belgíu. Sem fyrr eru því aðeins
Tékkar öruggir með að komast
þangað.
Þau liö sem tryggðu sér annað
tveggja efstu sætanna í sínum riðli
og komast því aOa vega i útsláttar-
keppnina eru Noregur, Slóvenía,
Þýskaland, Tyrkland, Svíþjóð, Rúm-
enía og Portúgal.
Riðill íslands, sá fjórði, er sá tví-
sýnasti í keppninni því þar berjast
fjögur lið um tvö efstu sætin og eitt
stig skilur þau að.
Shabo þurfti læknishjálp
vegna spennunnar
Úkraína og Frakkland juku enn á
spennuna með 0-0 jafntefli í Kiev.
Spennan reyndist óbærileg fyrir
Yozhef Shabo, þjálfara Úkraínu,
sem þurfti læknishjálp í lok leiksins
vegna verkja fyrir brjósti. Frakkar,
með Zinedine Zidane í aðalhlut-
verki, réðu ferðinni í leiknum en
heimamenn vörðust og beittu
skyndisóknum. Marktækifæri voru
afar fá og féllu flest Frökkum í
skaut.
Allt lagt undir í lokaleikjun-
um
„Ég er ánægður með úrslitin.
Frakkar sýndu sínar bestu hliðar og
léku ekki verr en í úrslitaleik HM.
En við héldum okkar hlut og gerð-
um eins vel og við gátum miðað við
það að sumir leikmanna okkar eru
ekki komnir í nógu góða æfingu
ennþá. Nú þurfum við að hvíla okk-
ur fyrir átökin á íslandi á miðviku-
daginn. íslenska liðið er gott og ef
við erum ekki ferskir í þeim leik
verður hann okkur afar erfiður. Að-
albaráttan í riðlinum er öll eftir og
allt er lagt undir í tveimur síðustu
leikjunum,“ sagði Yozhef Shabo
þegar hann hafði jafnað sig eftir
leikinn.
Örlög okkar í höndum ís-
lendinga
„Við vorum mun betri en höfðum
ekki heppnina með okkur. Staðan í
riðlinum er sú sama, sömu fjögur
liðin eru í hnapp á toppnum. Örlög
okkar eru nú í höndum íslendinga
og örlög Úkraínumanna í höndum
Rússa,“ sagði Roger Lemerre, þjálf-
ari Frakka.
Rússar unnu Armeníu í Moskvu,
2-0, en voru ekki sannfærandi i
sóknarleik sinum. „Við þurfum að
laga ýmislegt fyrir leikinn í And-
orra á miðvikudag," sagði Oleg
Romantsev, þjálfari Rússa. -VS
EN61AND
B-deild:
Barnsley - Tranmere...........3-0
Nottingham Forest - Walsall ... 4-1
Sheffield Utd - Cr. Palace ..3-1
Bolton - Birmingham...........3-3
Port Vale - Grimsby .........3-1
Sigurdur Ragnar Eyjólfsson kom
inn á eftir 50 minútna leik þegar Wal-
sall tapaði fyrir Forest. Bjarnólfur
Lárusson lék ekki með Walsail. Þeg-
ar 20 mínútur voru eftir og staðan 1-1
var markvörður Walsall rekinn af
velli og Forest nýtti sér þaö vel og
skoraði þrivegis.
Bolton jafnaöi metin úr vítaspymu
á lokamínútunni eftir að hafa lent 1-3
undir. Per Frendsen skoraði 2 mörk
fyrir Bolton og Dean Holdsworth
skoraði jöfnunarmarkð úr vítaspymu
eftir að vamarmaður Birmingham
hafði varið skot Frandsens með hendi
ár marklínunni. Gudni Bergsson lék
síðustu 35 mínútur leiksins.
-GH
Patrick Kluivert skoraði þrennu
fyrir Hollendinga þegar þeir gerðu
5-5 jafntefli við nágranna sína, Belga,
i vináttulandsleik í Rotterdam. Vin-
átta grannanna reyndist lítil í ótrú-
legum leik því auk markanna 10 fóru
9 gul spjöld og eitt rautt á loft áður en
yflr lauk. Branko Strupar gerði tvö
marka Belga og Edgar Davids gerði
einnig tvö mörk fyrir Hollendinga.
Argentina vann slakt lið Brasilíu,
2-0, í vináttuleik i Buenos Aires á
laugardagskvöldið. Juan Veron og
Hernan Crespo skoraðu mörkin. en
þjóðimar mætast aftur í Brasilíu
annaö kvöld.
David Beckham fór meiddur af
leikvelli í leik Englendinga og Lux-
emborgara og er mjög óvist hvort
hann getur spilað gegn Pólverjum á
miðvikudaginn.
Noah Ngeny frá Ken-
ya bætti í gær 18 ára
gamalt heimsmet Bret-
ans Sebastians Coe í
1.000 metra hlaupi á
móti á Ítalíu í gær.
Ngeny hljóp skeiðið á
2:11,96 mínútum.
-VS/GH
Veisluhöld á Wembley
Englendingar voru meö mikla
sýningu í fyrri hálfleiknum gegn
Lúxemborg á Wembley en þeir
skoruðu þá 5 mörk. Alan Shearer,
sem mikið hefur verið í sviðsljós-
inu að undanfómu, skoraði
þrennu í fyrri hálfleiknum og
Steve McManaman tvö og það var
síðan varamaðurinn Michael
Owen sem innsiglaði stórsigur
Englands með fallegu marki af 25
metra færi á lokamínútunni, 6-0.
Shearer hefur nú skorað 27
mörk í 52 leikjum enska landsliðs-
ins en McManaman var að opna
markareikning sinn með landslið-
inu í sínum 24. landsleik. Kiernon
Dyer hjá Newcastle, sem var 'að
leika sinn fyrsta landsleik, fór á
kostum í fyrri hálfleik og átti þátt
í öllum mörkum Shearers. Hann
varð hins vegar fyrir meiðslum og
gat ekki leikið síðari hálfleikinn.
„Ég er fyrst og fremst ánægður
með stigin þrjú og þessi leikur er
gott veganesti í leikinn gegn Pól-
verjum. Við vitum hvað við þurf-
um að gera þar,“ sagði Alan Shear-
er eftir leikinn. England þarf að
sigra í Póllandi á miðvikudag til að
komast áfram í keppninni.
„Ég er auðvitað mjög sáttur við
leik minna manna og þá sérstak-
lega fyrri hálfleikinn. Fyrir hönd
Shearers er ég kátur og þessi þrjú
mörk eiga eftir að gera honum
mjög gott,“ sagði Kevin Keegan,
landsliðsþjálfari Englendinga.
-GH
^ÍeVRÓPUKEPPNIN
H* ..>4---------
1. riðill:
Hvlta-Rússland - Wales......1-2
1-0 Baranov (30.), 1-1 Saunders (42.),
1-2 Giggs (86.)
Danmörk - Sviss ............2-1
1- 0 Nielsen (54.), 1-1 Túrkyilmaz (79.),
2- 1 Tomasson (81.)
Ítalía 6 4 2 0 11-2 14
Danmörk 7 3 2 2 8-6 11
Wales 7 3 0 4 7-14 9
Sviss 6 2 2 2 5-5 8
H-Rússland 6 0 2 4 4-8 2
2. riðill:
Noregur - Grikkland...........1-0
1-0 Leonhardsen (34.)
Albanla - Lettland............3-3
0-1 Astafjevs (20.), 1-1 Bushi (29.), 1-2
Astafjevs (62.), 1-3 Stolcers (70.), 2-3
Bushi (78.), 3-3 Muka (90.)
Slóvenía - Georgía............2-1
1-0 Acimovic (47.), 1-1 Arveladze
(55.), 2-1 Zahovic (80.)
Noregur 8 6 11 15-8 19
Slóvenía 8 5 2 1 12-7 17
Lettland 8 3 3 2 10-8 12
Grikkland 8 2 3 3 8-8 9
Albanía 8 0 4 4 6-11 4
Georgía 8116 5-14 4
3. riðill:
Norður-írland - Tyrkland . .. 0-3
0-1 Arif (45.), 0-2 Arif (46.), Arif (49.)
Finnland - Þýskaland .........1-2
0-1 Bierhoff (2.), 0-2 Bierhoff (17.), 1-2
Salli (63.)
Þýskaland 6 5
Tyrkland 6 5
Finnland 7 2
N-írland 6 1
Moldavía 7 0
0 1 16-4 15
0 1 14-5 15
1 4 9-12 7
2 3 3-11 5
34 6-16 3
5. riðill:
England - Lúxemborg ..........6-0
1-0 Shearer (12.), 2-0 Shearer (28.), 3-0
McManaman (30.), 4-0 Shearer (34.),
5-0 McManaman (44.), 6-0 Owen (90.)
Sviþjóð - Búlgaría............1-0
Alexandersson (65.)
Svíþjóð 6 5 1 0 7-1 16
England 7 3 3 1 14-4 12
Póiland 6 4 0 2 12-6 12
Búlgaría 7 1 2 4 3-8 5
Lúxemborg 6 0 0 6 2-19 0
6. riðill:
Austurríki - Spánn ...........1-3
0-1 Raúl (22.), 1-1 sjálfsmark (49.), 1-2
Hierro (51.), Enrique (88.)
Kýpur - ísrael ...............3-2
1- 0 Engomitis (27.), 1-1 Badir (31.),
2- 1 Spoljaric (53.), 2-2 Benayoun (82.),
3- 2 Spoijaric (86.)
Spánn 6 5
Kýpur 6 4
tsrael 6 3
Austurríki 7 3
San Marino 7 0
0 1 31-5 15
0 2 11-10 12
1 2 17-6 10
1 3 16-19 10
0 7 1-36 0
7. riðill:
Azerbaijan - Portúgal ........1-1
1-0 Taghizadse (50.) 1-1 Figo (88.)
Slóvakia - Rúmenía............1-5
0-1 Ilie (6.), 1-1 Labant (22.), 1-2 Hagi
(30.), 1-3 Ciobotariu (66.), 1-4 Moldo-
van (88.), 1-5 Moldovan (90.)
Liechtenstein - Ungverjaland . 0-0
Rúmenía 8 6 2 ' 0 21-2 20
Portúgal 8 6 1 1 28-3 19
Slóvakía 8 3 2 3 9-9 11
Ungverjal. 8 2 3 3 11-7 9
Azerbaijan 8 1 1 6 6-22 4
Liechtenst. 8 1 1 6 2-34 4
8. riðill:
Króatia - frland.............1-0
1-0 Suker (90.)
Júgóslavía - Makedónía.......3-1
1- 0 Stojkovic (37.), 2-0 Stojkovic (54.),
2- 1 Ciric (64.), 3-1 Savicevic (77.)
Króatia 7 4 2 1 12-8 14
Júgóslavía 6 4 11 12-4 13
trland" 6 4 0 2 10-3 12
Makedónía 6 2 13 10-9 7
Malta 7 0 0 7 4-24 0
9. riðill:
Bosnía - Skotland ...........1-2
0-1 Hutchison (13.), 1-1 Bolic (23.), 1-2
Dodds (45.)
Færeyjar - Eistland..........0-2
0-1 Reim (88.), 0-2 Piiroja (90.)
Litháen - Tékkland ..........0-4
0-1 Nedved (60.), 0-2 Nedved (63.), 0-3
Koller (68.), 84 Koller (90.)
Tékkland 8 8
Skotland 7 3
Eistland 8 3
Bosnía 7 2
Litháen 8 2
Færeyjar 8 0
0 0 21-5 24
2 2 11-10 11
1 4 14-13 10
2 3 18-12 8
2 4 7-13 8
3 5 4-14 3