Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1999, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1999, Side 7
24 MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1999 MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1999 25 Sport Bland í nok Rúnar Kristinsson náði ekki að slá Frammistaða íslensku leikmannanna: Sport lands- Jeikiametið ' laugar d.i'J Hann ekki var orðmn goð meiðslunum á hálsi sem hann varð fyrir um síð- ustu helgi en góðar líkur eru á að hann nái að spila gegn Úkraínu og þá fellur metið. Bjarni Guöjónsson spil- aði sinn fyrsta EM-leik gegn Andorra. Það var hans fyrsti A-landsleikur siðan í febrúar 1998 þeg- ar hann lék gegn Slóven- iu og Slóvakíu á Kýpur. Tryggvi Guömundsson var i byrjunarliðinu í fyrsta sinn í EM en hann hafði ekki byrjað inni á í landsleik síðan gegn Lettlandi 19. ágúst í fyrra. Hermann Hreiöarsson lék sinn 25. landsleik og hélt upp á það með því að skora glæsilegt skalla- mark í fyrri hálíleik. Eiöur Smári Guöjohn- sen lék sinn annan A- landsleik en sá fyrsti var í Eistlandi i apríl 1996. Stuttu sið- ar fót- brotnaði Eiður illa og var frá keppni í tvö ár. Hann hélt upp á fyrsta landsleik sinn á Laugardalsvellinum með fallegu skailamarki. Enginn íslenskur leik- maður fékk gult spjald, fjórða leikinn í röð, og þvi verður enginn i banni gegn Úkraínu. Siguröur Jónsson slapp þó með skrekkinn, fékk tiltal fyrir brot sem hæg- lega hefði getað þýtt gult spjald og leikbann. Niu leikmenn af ellefu i byrjunarliði Andorra og tveir af þremur vara- mönnum sem komu inn á leika saman með FC Andorra. Það félag spilar nú i efstu deild í Katalón- íu eftir að hafa falliö úr spænsku D-deildinni í fyrra. Hinir þrír sem tóku þátt í leiknum spila allir með spænskum lið- um í sömu deild. Lárus Orri Sigurösson var ekki hress þegar honum var skipt af velli eftir aðeins 29 mínútur og sýndi það með lát- bragði þegar hann settist á bekkinn. Guöjón Þóráarson var í þann veginn að skipta Arnari Viöarssyni inn á fyrir Lárus Orra þegar Þórður skoraði fyrsta mark fslands. Guðjón virtist hættur við skipt- inguna og þeir Arnar löbbuðu aftur að bekkn- um. Ásgeir Sigurvins- son, tæknilegur ráðgjafi Guðjóns, var hins vegar greinilega á því að ekki væri rétt að hætta við og Arnar fór inn á að vörmu spori. -VS Birkir Kristinsson markvörður. Lítið reyndi á Birki en hann greip einu sinni ágætlega inn í. Hann var öruggur og hélt einbeitingu þrátt fyrir að lítið væri að gera hjá honum í markinu. Auðun Helgason, hægri bakvörður. Spilaöi örugg- lega sinn léttasta landsleik, var ekki mikið í boltanum og fékk fáar sóknir á sig. Gerði þó áfram út á sinn stíl, skynsaman og öruggan varnarleik í þau skipti sem á reyndi. Sigurður Jónsson miðvörður. Var mikið með bolt- ann, kannski of mikið, og oft heppinn þegar hann gleymdi sér og kom sér í vandræði. Langar fyrirgjafir hans frá öftustu vöm voru ekki leiðin í gegnum Andorra-vörnina og gáfu lítið. Hermann Hreiðarsson miðvörður. Lék af feiknakrafti og er í góðu formi. Auk þess að opna markareikn- inginn lék hann manna best í vöminni og stríddi „sóknar“- mönnum Andorra með að sýna augljósa yfirburði sína. Arnar Þór Viðarsson, vinstri bakvörður. Kom inn á eftir 28 mínútur. Sýndi að hann er orðinn þroskaður leik- maður, tilbúinn í landsliðið. Gerði engin mistök, vann oft bolt- ann af skynsemi og kom honum fljótt og örugglega í leik. Bjarni Guðjónsson, hægri tengiliður. Stóð undir væntingum og var ekki langt frá því að skora í fyrri hálfleik þegar hann átti í tvigang skot að marki í sömu sókninni. Frá- bær sending fyrir markið var uppsprettan að þriðja markinu. Brynjar Gunnarsson tengiliður. Tvímælalaust besti maður íslenska liðsins. Vann eins og hestur á miðjunni og tók nokkrar rispur upp að markinu. Skilaði boltanum vel og átti góðar sendingar. Hefur farið mikið fram á þessu ári. Þórður Guðjónsson tengiiiður. Gaf íslenska lið- inu tóninn með ágætu marki og tók síðan hornspymuna sem fór beint á kollinn á Hermanni og í netið. Þórður vann vel og réðu mótherjamir lítið sem ekkert við hraða hans og kraft. Tryggvi Guðmundsson, vinstri tengiliður. Góð sending hans færði íslenska liðinu fyrsta markið í leiknum. Hann vann vel og átti að auki góðar fyrirgjafir fyrir markið. Á með sanni heima í íslenska landsliðshópnum. Ríkharður Daðason framherji. Hefur oft spilað betur. Hann fékk lítið pláss til að athafna sig en átti oft ágætis- skalla og finar sendingar. Fékk fá marktækifæri, átti skalla í slá og undir lokin fékk hann ágætt færi sem hann hefði átt að klára. Helgi Sigurðsson framherji. Helgi vann boltann oft vel af varnarmönnum Andoma. Sendingar hans voru ekki nógu hnitmiðaðar. Helgi átti ágætisrispur inni á milli en vantaði neista til skapa sér góð færi og skora. Varamenn: Heiðar Helguson komst aldrei almennilega i takt við leik- inn. Eiður Smári lífgaði upp á íslenska sóknarleikinn og skoraði gott mark. Hann hefði jafnvel mátt koma fym inn á. Lárus Omi byrjaöi inni á en fór af velli fyrir Amar Þór. Lárus Orri átti í miklum vandræðum með sendingar þær 28 mínútur sem hann lék. -JKS/ÓÓJ/ÍBE Einkunnagjöf DV: 10 = stórkostlegur, 9 = frábær, 8 = mjög góður, 7 = góður, 6 = í meðallagi (+), 5 = í meðallagi (-), 4 = slakur, 3 = lé- legur, 2 = hræðilegur, 1 = skelfilegur. s%-. - Vörn Andorramanna var þéttskipuð í leiknum á laugardaginn. Hér þrengja sex leikmenn Andorra að Ríkharði Daðasyni og Tryggvi Guðmundsson fylgist með. DV-mynd E.ÓI. m • l.. " fittHjr Ji { ■ ‘ >, V 1 - •• . ■ . .. , fm m 1 . ísland 3 (2) - Andorra 0 Birkir Kristinsson - Auðun Helgason, Lárus Orri Sig- urðsson (Amar Þór Viðarsson (29.), Sigurður Jóns-1 Ison, Hermann Hreiðarsson - Bjami Guðjónsson, Brynjar B. Gunn- larsson, Þórður Guðjónsson - Ríkharður Daöason (Eiöur S. Guðjohnsen | I (75.), Helgi Sigurðsson (Heiðar Helguson 57.). Gul spjöld: Engin. Godoy 60.), Francisco Ramirez, Oscar Sonejee, Jose I I Garcia Luena, Jordi Escura - Augusti Pol (David Buxo 90.), Emiliano I ■ González, Alex Godoy (Genis Garcia 66.), Manuel Jiminez - Juli | | Sanchez. Gult spjald: Armannd Godoy (88.) ísland - Andorra fsland - Andorra ] iMarkskot: 22 0 jHorn: 17 0 Áhorfendur: 4.795. Völlur: Góður. Dómari: Miroslav Liba frá | Tékklandi, ágætur. Madur leiksins: Brynjar Björn Gunnarsson. 1EM - 4. riðill 1 | fsland - Andorra 3-0 Rússland - Armenía . . . 2-0 1-0 Beschastnykh (7.), 2-0 Karpin (77.) Úkraína - Frakkland . . 0-0 J Úkraína 8 4 4 0 12-3 16 Rússland 8 5 0 3 19-10 15 ÍSLAND 8 4 3 1 10-3 15 I Frakkland 8 4 3 1 11-6 15 Armenía 8 12 5 3-12 5 | Andorra 8 0 0 8 2-23 0 Sigurliöiö i riólinum fer beint í úr- slitakeppni EM í Hollandi og Belgiu næsta sumar og lið númer tvö fer i útsláttarkeppni um sæti þar. 8. september: Andorra-Rússland, Armenía-Frakk- land, Ísland-Úkraína. 9. október: Andorra-Armenía, Frakldand-ísland, Rússland-Úkraína. Þórður Guðjónsson skorar fyrsta mark íslands gegn Andorra. DV-mynd E.ÓL Bland * i P oka Guöjón Þóröarson stjómaöi íslenska liðinu í sjötta sinn til sigurs i und- ankeppni stórmóts um helgina og varð þar með fyrsti landsliösþjálfarinn frá upphafi sem nær þeim árangri en þetta var þó aðeins 12. leikurinn hans með liðið i keppni. Undir stjórn Guöjóns hefur liðið náð 60,9% árangri með íslenska landsliðið í 23 leikjum. Liðið hefur unnið 11 leiki, gert 6 jafntefli og tapað 6 en 5 af þessum 6 tó> um komu í fyrstu 9 leikjunum því að Is- land hefur aðeins tapað einum af síðustu 14 landsleikjum og unnið 8 af þeim. Birkir Kristinsson hélt í 24. sinn hreinu hjá íslenska landsliðinu í sínum 63. landsleik en með þvi að halda hreinu á iaugardag hefur hann fengið undir mark á sig að meðaltali í landsleikjum eða alls 62. Birkir hefur haldið hreinu í 6 af síðustu 10 landsleikjum sínum. ísland hefur aöeins fengið á sig þrjú mörk i átta leikjum í EM til þessa og Birkir Kristinsson hefur haldið hreinu í fimm af síðustu 7 landsleikjum íslands í keppninni. Bæði Hermann Hreiöarsson og Eiöur Smári Guöjohnsen skoruðu meö skalla í leiknum á laugardag en fimm af tíu mörkum íslenska landsliðsins í und- ankeppni Evrópukeppninnar hafa kom- ið með skalla. Þóröur Guöjónsson hefur átt þátt i 6 mörk- um íslenska landsliðs- ins í ár, skorað 3 og lagt upp önnur þrjú. Þórður hefur alls átt þátt í 14 mörkum í 18 landsleikjum undir stjóm foður síns, Guöjóns Þóröarson- ar. Hann hefur skorað sjö mörk og lagt upp önnur sjö fyrir félaga siria. Þóróur skoraði sitt níunda mark fyrir A-landsliðið og er kominn í 5.-7. sætið frá upphafi ásamt feögunum Þórði Þóróarsyni og Teiti Þóröarsyni. Fyrir ofan era Rikharóur Jónsson með 17 mörk, Arnór Guöjohnsen með 14, Pét- ur Pétursson og Matthias Hallgrims- son með 11 mörk. -ÓÓJ/VS - algjörir yfirburðir Islands gegn Andorra og EM-draumurinn lifir enn góðu lífi Það er vægt til orða tekið að ísland hafi hcift yfirburði gegn Andorra í Evrópuleiknum á Laugardalsvelli á laugardaginn. Þvílík einstefna hefur sennilega aldrei sést í landsleik ís- lands, ekki einu sinni gegn Liechten- stein fyrir tveimur árum. En þrátt fyrir 22 markskot og 17 hornspymur án þess að Andorra svaraði fyrir sig á þeim sviðum urðu mörkin aðeins þrjú. Aðeins þrjú, segi ég, en staðreynd- in er sú að opin marktækifæri Is- lands voru ekki svo mörg þrátt fyrir einstefnuna. Skalli Ríkharðs í þver- slá, fjögur skot sem Koldo markvörð- ur varði vel og mikið af skotum í kringum vítateiginn sem hittu ekki rammann. Vamarleikur Andorra er mjög vel skipulagður og langtímum saman vom allir tíu útispilarar liðs- ins í eða við eigin vítateig. Liðið þekkir sín takmörk og leikmenn þess færðu sig ekki tommu framar á vellinum þó ísland næði að skora tvisvar á 4 mínútum eftir miðjan fyrri hálfleik. Eftir mörk Þórðar og Hermanns hélt fjölmenn Andorra- vömin út í 58 mínútur eða þar til Eiður Smári bætti þriðja markinu við þegar 24 sekúndur voru eftir. Og gleymum því ekki að ísland skoraði jafnmörg mörk á þessum 90 mínútum og sjálfir heimsmeistaram- ir, Frakkar, gerðu í báðum leikjum sínum við Andorra, á 180 mínútum! Þessi úrslit, ásamt jafntefli Úkraínu og Frakklands, þýða jafnframt að ís- land er komið í 3. sætið í riðlinum á ný, stigi á eftir efsta liðinu, Úkraínu, og er fyrir ofan heimsmeistarana á hagstæðari markatölu. Ótrúleg staða og EM-draumurinn lifir enn góðu lífi. Það er hægt að segja að Andorra sé eitt slakasta landslið sem stigið hefur inn á Laugardalsvöllinn en samt er ekki hægt annað en dást að þraut- seigju þessara síðustu áhugamanna Evrópu sem voru án fjögurra bestu leikmanna sinna í þessum leik. Birkir Kristinsson þurfti einu sinni að grípa inn í leikinn og hirða boltann á undan fremsta manni And- orra eftir langa sendingu í gegnum vörnina. Að öðra leyti var hann A./jt Þóröur Guðjónsson (28.) með ” skoti af markteig eftir snögga sókn upp vinstri vænginn og óeigingjama sendingu Tryggva Guðmundssonar. 0_|í\ Hermann Hreióarsson (32.) ^ með hörkuskalla. við nærstöng eftir homspymu Þórðar frá vinstri. A./jt Eióur Smári Guðjohnsen (90.) *** “ með góðum skalla rétt utan markteigs, alveg út við stöng, eftir fyrir- gjöf Bjama Guðjónssonar frá hægri. 5.118. áhorfandinn á Laugardalsvell- inum og spilaði þann rólegasta af 63 landsleikjum sínum. Hann hefði lítið getað sagt þó hann hefði verið rakk- aður um aðgangseyri í seinni hálf- leiknum. Þrjú mörk og langir kaflar þar sem lítið var að gerast annað en það að ís- lensku leikmennirnir reyndu og reyndu að brjóta niður pýreneska vamarmúrinn. En þeir vora þó að reyna og það er erfitt að kvarta mik- ið yfir frammistöðunni. Leikmönn- um Andorra var haldið í heljargreip- um með þungri pressu og það vottaði merkilega lítið fyrir kæruleysi í ís- lenska liðinu. Einbeitingin hélst þokkaleg allan tímann, viljinn til að halda áfram og skora var alltaf til staðar og það eitt er oft það erfiðasta að viðhalda i svona leik. Og þó seinni hálfleikurinn væri afskaplega lítið fyrir augað, já hreint og beint leið- inlegur frá knattspymulegu sjónar- miði, luku allir leiknum með bros á vör eftir mark Eiðs Smára í lokin. Áhorfendur létu meira að segja að mestu af þeim leiða ósið aö fara löngu fyrir leikslok og biðu til að geta klappað fyrir íslensku leikmönnun- um. Á öðram tíma hefðu varla nema nokkur hundruð manns nennt á landsleik milli Islands og Andorra. í dag er viðhorfið til íslenska landsliðs- ins annað en áður. Á sjötta þúsund manns mættu til að sjá sitt lið, þeir komu til að sjá sína menn en ekki mótherjana. Þaö eitt er mikil hugar- farsbreyting sem óvæntur og frábær árangur landsliðsins í þessari Evr- ópukeppni hefur leitt af sér. Andorra er að baki, skylduverki er lokið. Vissulega hefðu fleiri mörk»- verið vel þegin en það sem skiptir máli er að stigin unnust á öruggan hátt og ísland er áfram með í barátt- unni um sæti í lokakeppninni. Eng- in meiösli og engin spjöld. Fram und- an er miðvikudagurinn, mótherjinn er Úkraina í mikilvægasta leik í sögu íslenskrar knattspyrnu. -VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.