Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1999, Side 11
MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1999
29
DV
Sport
Rúndr Jónsson var að aka alþjöð-
lega'rallið í 10. sinn og náði nú sí
um 12. sigri. Imprezan virkaði vei
hann sleit sig lausan frá keppinaut-1
unirp á öðrum degi sem hefur oftj
reynst úrslitadagurinn og glima vi^
bilanu: 1 keppnisbílum.
Siguróur Bragi og RögnytUdur á
Rover, sigurvegaTar-tveggfa síðustu
ára, vonuðust eftir þrennu. þeir luku
fyrsta keppnisdegi ,26 sekúndum á
eftir besta tíma Bfétanna en eftir
fyrstu sérleið laugardagstns varð bil-
un í rafli sem breýtti rafgeýminum í
goshver og leilpíum var lokiði
Gunnarsholt var blaut leið og
sumum ijeppendum blotnaði allt se
blotnað'gat. Niðurfallstappar skut-
ust úr/botnum bíla við þrýstinginn
frá pqllunum og þurfti t.d. Jóhannes
Jóliannesson íslandsmeistari að
nota pótublokkina sem skjöld til að
verjas^ vatnsgusunum þegar hvery
pollurinp tók við af öðrum.
Baldur Jón
i taldi sii
ið 20 litra af vatni inn í bílinn og
kvartaöi undan rassbleytu það sem
eftir var dags. Kem4ndur voru ekki
allir sáttir við að'áka' Jeiðina til baka
þar sem grjój. getiu- léynst í pollun-
um. Keppnisstjóri ákváð að fella
seinni upíferð um leiðina rliöur.
-ÁS
Feðgarnir Rúnar Jónsson og Jón
Ragnarsson fagna sigri sínum í
alþjóðlega rallinu ásamt
aðstoðarfólki sínu.
DV-myndir ÁS
Alþjóðlega rallið:
- Rúnar og Jón sigruðu Bretana og Páll og Jóhannes urðu í þriðja sætinu
Baldur Jónsson, litli bróðir Rúnars, hafnaði í fjórða sætinu. Svipurinn líkist
golfleikara sem hefur sett niður langt pútt.
Rúnar Jónsson og Jón Ragnars-
son héldu uppi heiöri íslenskra rall-
ökumanna þegar þeir unnu alþjóð-
lega rallið um helgina og báru sig-
urorð af Bretunum Ian Gwynne og
Lyn Jenkins en báðar áhafnir aka
mjög öflugum Subaru Impreza-bíl-
um. í þriðja sæti urðu Páll Halldórs-
son og Jóhannes Jóhannesson á
MMC Lancer, Sighvatur Sigurðsson
og Úlfar Eysteinsson unnu jeppa-
flokk á Cherokee og Daníel Sigurðs-
son og Sunneva Lind Ólafsdóttir á
Toyota Corofla sigruðu í flokki eins
drifs bíla. Úrslit og sérleiðatímar
eru skráðir á rallsíðum mótorsport-
vefs visir.is ásamt upplýsingum 'um
afdrif keppenda sem heltust úr lest-
inni.
Hraði og spenna
Frá fyrstu sérleið þessa þrjá rall-
daga var mikfl keppni og reyndi
hver sem betur gat að koma sér
framarlega i ráshóp næsta dags. Ian
Gwynne og Lyn Jenkins sýndu að
þar eru engir pappakassar á ferð,
byrjuðu raflið með sigri á fyrstu
sérleið og með ákveðnum akstri
héldu þeir forustu fyrsta keppnis-
dag. Þeir voru hins vegar ekki til-
búnir að takast á við hröðustu sér-
leiðirnar seinni dagana af sama afli
og heimamenn og drógust þar aftur
úr, enda stór munur á að kunna
leiðina eða að sveiflast milli blind-
beygja og hæða, eingöngu eftir lýs-
ingu aðstoðarökumanns, þar sem
hraðinn nær allt að 200 km. í Bret-
landi eru þeir vanari þröngum leið-
um í skógum og kröppum beygjum.
Einvígi um annað sætið
íslandsmeistararnir Páll og Jó-
hannes nýttu sér það, geröu harða
atlögu að Gwynne/Jenkins síðasta
keppnisdag og jöfnuðu leikinn. Báð-
ar áhafnir settu undir sig hausinn
og háðu einvígi um annað sætið á
síðustu leið, næstlengstu sérleið
keppninnar um Ísólfsskála/Djúpa-
vatn. Páll og Jóhannes ráku bílinn
utan í grjót fljótlega, urðu að slá af
og töldust heppnir að ljúka leiðinni
án þess að tapa af þriðja sætinu með
brotinn drifbúnað að aftan.
Subaru Bretanna virtist hins veg-
ar þola akstur um jarðsprengju-
svæði því þrátt fyrir að riðlast yfir
talsvert af grjóti í köntunum gaf
hann sig ekki.
Fleiri stórir strákar
Fjórða sætinu náðu Baldur Jóns-
son og Geir Óskar Hjartarson á
Subaru Legacy eftir tilþrifamikinn
akstur og ná þeir að þróa sig hratt
inn í hóp „stóru strákanna" með sí-
felldri bætingu á aksturstímum og
betri höndlun á bílnum.
Hjörtin: Pálmi Jónsson og ísak
Guðjónsson á Toyota Corolla
glímdu hins vegar enn og aftur við
óheppnisdrauginn og urðu að gera
sér fimmta sætið að góðu eftir
tímatap við dekkjaskipti á sérleið.
Þolraun
32 áhafnir hófu keppni en 14 féllu
úr leik, þar á meðal sigurvegarar
tveggja síðustu ára, þeir Sigurður
Bragi Guðmundsson og Rögnvaldur
Pálmason. Var auðséð i endamarki
á sumum ökutækjanna að keppnin
mátti ekki lengri vera.
Hún er líka þolraun fyrir keppn-
isstjórn sem hefur alltof fáum
starfsmönnum á að skipa og vissu-
lega veitti ekki af að innramma bet-
ur það glæsilega sérleiðamálverk
sem er íslenska alþjólega rallið.
-ÁS
Mercedes Benz C220 Elegance, 4
d., '96, grænn, ek. 89 þ. km, ssk.,
ABS, álf., CD o.fl. V. 2.950.000.
Subaru Legacy Outback, 4x4, 2500, 5
d., '97, grænn, ek. 17 þ. míl., ssk., ABS,
álf. o.fl. V. 2.350.000.
Toyota Cellca GT2200, 2 d., '94,
svartur, ek. 64 þ. km, þsk., leður, a/c
O.fl. V. 1.790.000.
Toyota Avensis 1600 L/B sol '98,
grænn, ek. 15 þ. km, bsk., álf., CD,
spoi. V. 1.700.000.
Land Rover, langur, dísil, 5 d.,
lO.manna, '81, grænn, ek. 91 þ. km,
bsk. V. 450.000.
Mjög gott úrval blla
á skrá og á staðnum
Opið virka daga 10-12 og 13-18. Lokað á laugardögum til og með 7. ágúst.
BÍLASALA
Tryggvabraut 14, 600 Akureyri
461 3020-461 3019
Cadillac sedan de Ville V8, 4 d., '91,
blár, ek. 66 þ. km, ssk., m/öllu.
V. 2.500.000.