Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1999, Blaðsíða 2
20
MMHHEIMIHERU. OKTÓBER 1999
Sport
i>v
Roger Lemerre var ekki til í að ræða
málin eftir leikinn gegn íslend-
ingum.
DV, París:
„Þegar ég var uppi á hótelher-
bergi fyrir leikinn og leitaði eft-
ir jákvæðum hugsunum, ein-
beitti ég mér að því sem ég ætl-
aði að gera og sá sjálfan mig í
huganum skora á Stade de
France, var það ekki þetta sem
ég átti við,“ sagði Ríkharöur
Daðason um sjálfsmarkið sem
hann skoraði eftir 17 mínútna
leik í París á laugardaginn.
„Ég gætti Zidanes í horn-
spymunni og fyrir framan mig
var Hermann með Blanc. Bolt-
inn kom að þeim, þeir fóru báð-
ir upp en misstu báðir af boltan-
um. Ég var óviðbúinn því, missti
sjónar á boltanum, og eitthvert
ósjálfrátt viðbragð varð til þess
að ég rak höfuðið 1 hann og
horfði á hann, skelfingu lostinn,
fara framhjá Birki og í netið. Svo
sá ég uppgjafarsvipinn á Eyjólfi
og Pétri og þá gerði ég mér grein
fyrir því sem hafði gerst. Ég
reyndi að halda áfram og hugs-
aði ekki beint um markið fyrr en
ég fór af velli og var sestur á
bekkinn. Þegar Brynjar jafnaði
var þungu fargi af mér létt,“
sagði Ríkharður sem skoraði sitt
annað sjálfsmark á ferlinum en
það fyrra var í norsku deildinni
fyrr í sumar.
-VS
Ríkharður Daðason - óhepplnn
í París.
Hættir þjálfari Frakkanna?
- franskir blaðamenn furðu lostnir eftir framkomu Lemerre
án þess að gefa færi á sér í viðtöl.
„Ég er ekki ánægður með leikinn, en ég
er ánægður með að Frakkland skuli vera
komið í lokakeppni EM. Ég er stuðnings-
maður franska landsliðsins númer eitt,
Frakkland er enn mikil knattspyrnuþjóð,
rétt eins og á HM, og liðið hefur sannað að
það er enn á meðal þeirra bestu,“ sagði
Lemerre.
Franskir blaðamenn voru furðu lostnir
yfir framkomu þjálfarans og sögðust ekki
geta lesið annað út úr orðum hans en að
hann ætlaði að segja starfi sínu lausu.
-VS
DV, París:
Roger Lemerre, þjálfari Frakka, var
stuttur í spuna eftir leikinn og hafði ekki
mikinn áhuga á að tala við blaðamenn.
Hann kom inn á blaðamannafund og flutti
stutta yfirlýsingu, og hvarf síðan á braut
Eyjólfur Sverrisson segir að glæsimark sitt gegn Frökkum um helgina hafi verið „hálfgerð snudda“. Hér er Eyjólfur með Guðjóni Þórðarsyni.
Eyjólfur Sverrisson um glæsimark sitt gegn Frökkum:
DV, París:
„Ég er virkilega ánægður með
leikinn sem þróaðist okkur í hag
eftir að hafa verið 2-0 undir í hálf-
leik. Við sýndum í seinni hálfleik
hvers viö erum megnugir, sönnuð-
um að það er engin tilviljun að við
vorum í þessari stöðu í riðlinum og
höfðum verið að stríða þessum
sterku liðum í keppninni," sagði
Eyjólfur Sverrisson, fyrirliði ís-
lands og besti maður, við DV eftir
leikinn.
„Það jákvæða við leikinn er að
við sýndum hve liðið býr yfir mikl-
um karakter og gefst ekki upp þó
staðan sé erfið. Við skoruðum tvö
mörk og fengum fleiri færi eftir það.
Við ákváðum í hálfleik að færa okk-
ur framar og setja þá i meiri pressu.
Við ætluðum að halda boltanum
betur og komast yfir á þeirra vallar-
helming, og það gerðum við.“
- En komuð þið ekki sjálfum
ykkur á óvart að vera búnir að
jafna eftir aðeins 11 mínútur í
seinni hálfleik?
„Jú, vissulega var það óvænt en
við vissum að við vorum búnir að
spila vel í þessari keppni og við gæt-
um meira en við sýndum í fyrri
hálfleik. Það var reyndar svekkj-
andi að fá þrjú mörk á sig, við erum
ekki vanir slíku í seinni tíð, en á
hinn bóginn erum við ekki vanir
því að skora tvö mörk á útivelli. Það
gerðum við, og sýndum að við erum
virkilega sterkir. Við vorum að
spila á móti leikmönnum frá Real
Madrid, Parma, Juventus, Inter og
slíkum liðum og það er reglulega já-
kvætt að geta staðið sig svona á
móti þeim.“
- Markið þitt var glœsilegt, þú
hefur skorað mörg á ferlinum en
þau gerast varla betri en þetta?
„Já, við stóðum þarna þrír yfír
boltanum og ákváðum að gera þetta
svona.
Rúnar myndi senda á Þórð og
hann myndi stoppa boltann. Ég
ákvað að senda boltann í þetta hom,
ég vissi að markmaðurinn myndi
taka skrefið um leið og boltinn væri
snertur svo ég sendi boltann hans
megin. Þetta var ekki svo rosalega
fast, háifgerð „snudda", og mér
fannst ég horfa lengi á eftir boltan-
um áður en hann endaði í netinu.
Það var frábær tilfinning að sjá á
eftir honum, þetta er eflaust eitt
allra fallegasta mark sem ég hef
gert. Öll umgjörðin var slík - 80 þús-
und manns, heimsmeistaramir -
þetta gat ekki verið á betri stað og
stund.
Markið gaf okkur líka sjálfstraust
- að það væri hægt að skora hjá
þeim, enda jöfnuðum við fljótlega á
eftir. Við höfum spilað mjög jafnt í
þessari keppni, tapleikirnir hafa
verið með einu marki og við höfum
verið inni í þeim öllum. Að koma til
baka í svona leik, 2-0 undir gegn
Frökkum á útivelli, er nokkuð sem
margir leika ekki eftir. Það hafa ef-
laust margir haldið að þeir myndu
pakka okkur saman eftir fyrri hálf-
leikinn en annað kom á daginn.“
- Þú ert ekkert að fara að draga
saman seglin varðandi landslið-
ið, eða hvað?
„Nei, nei, það geri ég ekki. Ég á
eftir eitt og hálft ár af samningi
mínum hjá Herthu og kem heim eft-
ir það, og það er engin spurning að
ég gef kost á mér í landsliðið á með-
an ég spila erlendis, allavega á með-
an heilsan er góð. Það fylgir því
mikið stolt að spila fyrir íslands
hönd og ég er tilbúinn til þess
áfram, það kemur ekki annað til
greina," sagði Eyjólfur Sverrisson.
-VS