Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1999, Blaðsíða 6
f Fjórða plata
I Maus kemur
I út 1. nóvem-
ber og heitir „í þessi
sekúndubrot sem ég
flýt“. Maus-strákarnir
voru heimsóttir í vik-
unni og þeir sýndu
Fókusi stoltir
uppáhaldsdótið
sitt. Þeir safna
enn Star Wars-
dóti, nema Eggert,
sem þykir meira til
linsanna sinna
koma. Palli er hrifinn af
Magna tuskudúkku,
Danni er forfallinn
Fjörulalla-fíkill og Biggi
fílar Shakespeare.
Þeir eiga það svo
sameiginlegt að
þykja vænt um
hljóðfærin sín.
Gítarleikarinn Palli í Maus
býr í foreldrahúsum á
Kjartansgötu og er ekkert á
leiðinni út. Hann er í
bókmenntum og íslensku í
háskólanum.
Gítarinn minn. © „Ókei, það er kannski ekki
beint frumlegt að telja upp gítarinn sinn, en
samt... Þetta er Epiphone-gítar sem ég er bú-
inn að eiga í eitt og hálft ár. Ég er mjög ánægö-
ur, þetta er flottur og góður gítar. Ég tek hann
alltaf heim eftir æfingar, nema kannski við
séum að spila daginn eftir. Maður er alltaf eitt-
hvað að æfa sig og svo skilur maður svona
hluti heldur ekki eftir á vföavangi."
Star Wars-myndirnar mínar.(g),Þetta eru fyrstu
þrjár í gylltum pakka. Ég er búinn að vera Star
Wars-fan síðan ég man eftir mér, en ég verð að
viðurkenna aö ég er bara búinn að sjá nýju mynd-
ina einu sinni. Ég er auðvitað á leiðinni aftur. Ég
sá hana kl. 2 um nótt og fannst hún skemmtileg,
það var mikið af upplýsingum í henni."
Gemslnn minn. ® ,Þetta er tenging mín við
umheiminn. Sumum finnst það óþægilegt við
GSM að alltaf sé hægt að ná í mann, en mér
finnst það kostur. Þetta er sími af Sagem-teg-
und, eða Megas aftur á bak. Það eiga fáir
svona síma, en þetta er gott tæki. Eini
bömmerinn er að það eru engir leikir í honum."
Tuskudúkkan mín.@,Þetta er eitt af elstu ieik-
föngunum sem ég á. Mér skilst að ég hafi skýrt
hann Magni þegar ég var lítill og hef aldrei náð
af hverju ég gerði það. Þetta er eitt af þessum
leikföngum sem gengur á milli barna f ættinni.
Ég er hættur aö sofa með hann núna og eigin-
lega búinn að gefa hann lítilli frænku minni. Hún
skýrði hann Palla i höfuðið á mér."
Bókin mín. © „Palli var einn f heiminum er
mjög skemmtileg bók og ég las hana mikið og
ekki af þvf ég er nafni aðalsöguhetjunnar. Fólk
er alltaf að spyrja mig hvort ég sé einn f heim-
inum og mér finnst það alltaf jafn ófyndið."
Ertu einn í heiminum, Palli?
„Ooh. Nei, ekki f bókstaflegri merkingu og eig-
inlega meira út úr heiminum en einn í honum."
áhaldsdÓt
Sarann 3
Bassaleikarinn Eggert
í Maus býr á Kárastíg
með kærustunni.
Hann vinnur sem vef-
síðuhönnuður.
Kontrabasslnn mlnn. (l) „Ég keypti
hann fyrir tveim árum og sé ekki eft-
ir þvf. Það er ekki bara frábært að
spila á hann heldur er hann flottur í
stofunni. Nei, ég hef ekki mikið not-
að hann með Maus en nota hann ör-
ugglega meira þegar ég verð eldri. Ég
hef engan áhuga á að læra á hann í
skóla, maður pikkar þetta bara upp
sjálfur."
Gelsladiskasafnlð mltt. @„Þetta er
það eina sem ég,geng vel um heima
hjá mér. Ætii þetta séu ekki um 300
diskar en það er langt sfðan ég taldi.
Þeim er öllum raðað f stafrófsröð.
Þetta er það fýrsta sem ég tek upp úr
kössunum þegar ég flyt og þó íbúðin
sé f rúst eru diskarnir alltaf f röð og
reglu. Þetta vill fara f rugl þegar maö-
ur heldur partí, en þá tekur maður
þynnkuna bara í aö raða diskunum."
Lófatölvan mfn. @ „Af tegundinni
Palm Pilot. Ætli svona kosti ekki f
kringum 40 þúsund kall. Ég er ekki
með aðra tölvu heima hjá mér. Ég
nota hana f margt, hleð t.d. inn f
hana vefsíðum f vinnunni og skoða
þær svo heima. Svona leikföng ættu
allir að eiga og það er stutt f að mað-
ur geti stjórnað öllu á heimilinu meö
svona græju. Það gerist þegar svona
tæki og gemsi verða komin f eitt."
Fyrstl basslnn mlnn. © „Bróðir
minn keypti þennan bassa af gaur úti
f bæ á 5 þúsund kall þegar ég var 14
ára. Ég tók miklu ástfóstri við þenn-
an hlut - var þá að sjá bassa í fyrsta
skipti - og bróðir minn hefur aldrei
fengið að nota hann. Ég lifl eftir þeirri
speki að maður eigi aldrei að selja
hljóðfærin sfn. Ég á þennan bassa
þvf enn þá og þó hann sé hrikalega
lélegur er hann skemmtilegur á sinn
hátt. Ég hef aldrei náð þvf af hvaða
tegund hann er. Letrið á hausnum á
honum er svo óskýrt."
Linsurnar mínar. © „Þegar ég var
unglingur fór ég allt í einu að sjá illa.
Þar sem ég er algjör gleraugnaböðull
eru linsur stórkostleg uppfinning. Ég
nota bara linsur af tegundinni Harley
Davidson."
Trommarinn Danni í Maus
býr í Skipasundi meö
kærustunni, sem er komin
átta mánuði á leið. Danni
segist vera „nett" í háskól-
anum að kroppa í félags-
fræðina.
Sófinn minn. © „Alveg hrikalega góður sófi.
Geðveikur! Viö erum nýbúin að fá okkur hann í
Húsgagnahöllinni. Maður verður að borga af
honum næsta árið. Maður er aðallega að glápa
á vfdeó úr honum. Við getum léttilega tvö legið
fyrir I honum, en það komast fjórir f hann'sitj-
andi."
Upptökutækið mltt. @ „Átta rása digital
Fostex-tæki. Ógeðslega gott. Ég fékk mér það
fyrir tveim árum og er búinn að nota það stans-
laust sföan. Hér gerast hlutirnir!"
Pet Sounds-settiö mitt. @ „Þetta er besta
plata sem hefur nokkurn tfmann verið gerð og
þessi kassi er mögnuð heimild um þessa plötu,
fjórir diskar með alls konar útgáfum, æfingum
og ónotuðum upptökum og tvær bækur með
textum og upplýsingum. Ég á tvö eintök af þess-
um kassa. Eitt er til vara. Ég heyrði plötuna '96
og þá byrjaði Beach Boys-fanatíkin. Galdur
Beach Boys er Brian Wilson og galdur hans eru
ótrúlegir hæfileikar til að semja góðar melódíur
og blanda þeim saman við geðveik sánd og
frumlegar pælingar. Hann hefurenn „touchið"."
Snerlltromman mfn. © „Hún er bandarísk,
100% handsmfðuð og framleidd af Noble &
Cooley. Einfaldlega besta sneriltromma sem
ég hef prófað. Ég er búin að eiga hana síðan
ég var 13 ára eöa eitthvað og hef notað hana
f 99% af því sem ég hef gert. Alveg hrikalega
góð tromma!"
Styttan mín. © „Emperor Palpatine er flottasta
illmenni í heimi, ótrúlega kúl gaur. Ég á slatta af
Star Wars-dóti sfðan ég var Iftill. Þetta er eina
dótið sem stenst tímans tönn og er eiginlega
ekki dót, heldur frekar bara listaverk. Nei, mfnir
krakkar fá ekki að leika sér með þetta. Ég verð
búinn að setja það f glerbúr."
Söngvarinn og gítar-
leikarinn Biggi í
Maus býr á Ásvalla-
götu með kærust-
unni. Hann er af-
greiðslumaður í
plötubúð.
Stollinn mlnn. © „Mjög þægileg-
ur stóll og flottur, svona 60's eitt-
hvað. Viö fengum hann gefins frá
samstarfsfólki Lenu. Hann er
djúpur og það er mjög gott að
hlusta á tónlist í honum. Magnað-
urfjandi."
Gítarinn mlnn. ®„Ég keypti hann
á 20 þúsund ! Rin en lét meta
hann um daginn og ætti að geta
fengið 130 þúsund kall fyrir hann.
Þetta er 30 ára Rickenbecker og
hann afstillist aldrei, nema helvft-
is G-strengurinn. Það er sama þó
ég fljúgi meö hann og hafi hann f
10 stiga frosti f farangursgeymsl-
unni. Hann haggast ekki."
Star Wars-kallinn minn. @„Ég á
nokkra en þykir vænst um þenn-
an. Þetta er Svarthöfði f gamla,
góða upprunalega forminu, ekki
þessi nýi vöðvastælti. Mesti
Maus-aödáandi landsins gaf mér
hann f 23 ára afmælisgjöf. Ég átti
helling af Star Wars-dóti en gaf
mest af þvf þegar ég varð gelgja.
Ég byijaði að safna aftur um tví-
tugt og lýsi hér með eftir gamla
dótinu mfnu."
Vídeóspólan mín.® „Nightmare
Before Christman leikstýrt af Tim
Burton með tónlist eftir Danny
Elfman. Æöisleg mynd og ótrú-
lega góð músfk - töfrandi verk. Ég
hef horft á spóluna svona tvö
hundruð sinnum en get alltaf
horft á hana aftur án þess að mér
leiöist. Það er ósk mfn að sjá
þessa mynd uppfærða á sviði og
ég er byrjaður á íslensku þýðing-
unni og klára hana kannski ein-
hvern tfmann. Ég sé Daníel Ágúst
og Helga Björns (sem Mr.
Boogieman) fyrir mér f aðalhlut-
verkunum."
Shakespeare-safnið mitt.(§)„Þetta
er heildarsafn verka Shake-
speares og er einfaldlega það
besta sem ég hef lesið. Mér þykir
vænt um innihaidið, ekki bókina
sem slíka, svo ég myndi ekkert
væla þó bókin eyðilegðist, heldur
bara fá mér nýtt eintak."
6
f Ó k U S 22. október 1999