Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1999, Blaðsíða 11
hakkavél Dr- Gunna
Nine Inch Nails
- The Fragile ★★★
Það fyrsta sem manni dettur í
hug er titill á gamalli Halla og
Ladda-plötu, „Hlúnkur er þetta“,
því Trent Reznor, hinn fjaður-
magnaði aðalmaður 9“ naglanna
mætir eftir 5 ára fjarveru með rosa-
legan hlúnk, tvöfalda plötu sem
skríður í mark eftir 23 lög á 103
mínútum. Þetta er maraþonhlaup í
snarvitlausu ofsarok(k)i og ekki er
beinlínis hægt að mæla með að fólk
kyngi þessum haltu-kjafti-brjóst-
sykri í einu lagi. Þó Trent sé snill-
ingur í tækniatriðum og platan
sándi eins og billjón dala geimferð-
aráætlun (og ansi oft líkt því sem
Kevin Shields var að spá með My
Bloody Valentine) er hann þó ekk-
ert sérstakt mikilmenni þegar kem-
ur að því að búa til lög sem festast
í manni. Hann vill festast í sínum
eigin klisjum og maður veit upp á
hár hvenær hann byrjar að æpa til
að leggja áherslu á mál sitt. Og þeg-
ar billjón dala hæ-fæ-áferðin hefur
verið klipin af lögunum er oft lítið
eftir en einfaldar kveikjaraballöður
eða sáraeinfaldir rokkslagarar.
Samt, það er auðvelt að láta
blekkjast og auðvitað er platan
áhrifamikil á köflum. Trent er bit-
ur og sár í hverju einasta lagi, text-
amir mismunandi túlkanir á „ég
er svo fokkd-öpp“ og reiðin oft óg-
urleg þó það glitti í afslappaðri stef
innan um. Þrír fimmtu af pakkan-
um eru „lög“ en restin stef, oft
ósungin, með klassísku yfirbragði
og hefðu sómt sér vel í einhverri
brúnkornóttri aksjónmynd um
sköllótta hetju í síðum leðurfrakka.
Niðurstaðan er sú að Trent virðist
ekki hafa neitt nýtt að segja okkur,
en það er nóg bragð í gömlu tugg-
unni hans og það má slá því fostu
að framtíðarsinnaðir leðurrokkar-
ar hvarvetna munu jappla á þess-
ari risatuggu i allan vetur.
Filter
- Title of Record 0
Hljómsveitin Filter er hugar-
fóstrið hans Richards Patrick.
Hann var einu sinni í Nine Inch
Nails en hætti af því Trent Reznor
var svo vondur við hann. Þá varð
Richard voða sár út í Trent og
sagði öllum að þeir hefðu verið
kærustupar. Hann stofnaði Filter
og fékk mörg tilboð. Plata kom út
1995 og lagið „Hey Man, Nice Shot“
um pólitíkusinn Bud Dwyer sem
skaut af sér andlitið í beinni út-
sendingu varð dálítið vinsælt. Svo
sukkaði Richard frá sér vitið í
nokkur ár, varð skotinn í ein-
hverri frægri giftri konu en snýr
nú aftur og syngur um sukkið og
giftu konuna og er auðvitað svaka
sár því það er svo kúl. Rokkið sem
Filter flytur er ekki merkilegt,
tölvukeyrt léttþungarokk með
hefðbundnum áherslum og hljóm-
ar eins og það komi af einhverju
tölvustýrðu færibandi staðsettu í
horni á skrifstofu plötufyrirtækis-
ins Klisjurokk hf. Richard hljómar
ekki ósvipað og Bono þegar hann
er á rólegu nótunum (já, það eru
nokkrar krciftgallaballöður innan
um X-rokkið og þær eru mun
skárri) og þvi geta forfallnir U2-að-
dáendur sem nenna ekki að bíða
lengur eftir U2-plötu fengið smá
friðþægingu með þessari plötu.
Aðrir græða lítið á því að tékka
á henni, það er nóg af betra
rokki í boði og það er auðskilið
af hverju Trent losaði sig við þenn-
an félaga sinn.
Tom Jones - Reload ★
Air - Premiers
Symptomes ★★★
# • • •• • • • ••••
# • • # # • • • •
• • • • • • •
• • • • C • • «
• •• «•
• •• • • • •••
• •• • • • ••••
• • • • • • • •
• • • • • • • • • • • • # # ##
Auðvitað er Tom Jones svalur
náungi. Ég sá hann á Hótel íslandi
og var nærri kominn úr nærbux-
unum í geðshræringu þegar hann
söng Green Green Grass of Home
og allt þetta gamla gæðagrænmeti.
Hann hefur rödd sem fær snjókalla
til að svitna, svo einfalt er það. En
karlinn er gamall og almennt séð
ekki kúl hjá „unga fólkinu". Þessu
vildu útgáfustjórarnir breyta á
áhrifaríkan hátt og fengu því
nokkrar „ferskar" stjömur í púkk-
ið til að syngja dúetta með karlin-
um. Útkoman hefði átt að heita
„Tom og vinir hans syngja
gamla og nýja slagara í kciraókí-út-
gáfum", því það er það sem þessi
plata gengur út á. Sumt er beinlín-
is lífshættulega ömurlegt, eins og
þegar Tom og Robbie Williams
syngja saman Lenny Kravitz-lag
eða þegar krullótta leiðindadósin
Zucchero mætir til leiks. En annað
er meira viðeigandi, eins og dúett-
ar Toms með Divine Comedy og
Portishead, þar sem Tom heldur
virðingu sinni og er á heimavelli í
dramatísku stórpoppi. Ágæt plata
til að gefa öldruðum foreldrum sín-
um en í guðanna bænum, ekki
falla fyrir auglýsingaherferðinni
og fara að finnast Tom kúl út af
þessari plötu.
„Moon Safari" kom út í byrjun árs
1998 og er löðrandi snilld eins og
margir íslenskir eigendur plötunnar
geta verið sammála um. Til að Air
falli ekki í gleymskunnar dá hefur
verið gefin út þessi 7 laga diskur með
eldra efni sem frönsku strákarnir
gerðu í árdaga. Lögin eru ekki eins
poppuð og á Moon Safari og eiginlega
alveg ósungin en sami „elegansinn"
er í gangi og ljóst hvert stefndi hjá
sveitinni: Hér vantar bara
herslumuninn í snilldina. Eftir sex
loftkennd og gufuleg rafmagnsverk
sem helst á að hlusta á í freyðibaði
kemur síðasta lagið blóðinu á hreyf-
ingu með kjötmiklu gerflafreti. En
þó platan sé fín er hún ekki
ómissandi og eflaust hafa flestir aðr-
ir en æstustu Air-aðdáendur margt
betra að gera við 2200 kall en að setja
í þessa rúmlega hálftíma plötu. (Fá-
ránlegt okur á plötum á íslandi!)
PS. Nú berast fréttir af því að
næsta skref hjá Air sé að gera
sándtrakkið í myndina „Virgin
Suicides“, sem dóttir Francis Ford
Coppolla, Sophie, leikstýrir. Ekki er
kominn útgáfutimi á myndina eða
músikina en það má reikna með
góðu grúfi. Núna í nóvember á svo
að koma út myndband með Air sem
lýsir heimsyfirreið þeirra síðustu
tvö árin. Leikstjóri er Mike Mills og
myndbandið heitir því lýsandi heiti
„Eating, Sleeping, Waiting and Play-
ing“.
Jimmy Page rýr ellilíf-
eyrisþega inn að skinni
Nágranni Jimmy Page, Dudley
Bumside, hefur verið dæmdur til að
greiða lögfræðikostnað upp á 40.000
dali eftir að hann tapaði máli á hend-
ur gamla gítargoðinu. Dudley hafði
lengi nauðað í Jimmy um að höggva
risavaxin tré á landareign sinni en
Zeppelin-karlinn
skellti skollaeyrum ,
við þessu. Dudley i
sagði trén skyggja
á útsýnið og ræt-
urnar væru smám
saman að skemma
steyptan göngu-
stíg á sinni lóð og
fór því með málið fyrir rétt þegar vél-
sögin hans Jimmys hélt bara áfram að
liggja óhreyfð inni í skúr. Dudley, sem
barðist bæði í seinni heimstyrjöldinni
og Kóreu-stríðinu, reyndi að koma við
kaunin á Jimmy og sagði fyrir rétti að
það væri vegna dugnaðar fólks af
sinni kynslóð sem húðlatir gaurar
eins og Jimmy gætu orðið efnaðir.
Dómarinn tók ekki mark á þessum
„rökstuðningi" og trén hans Jimmys
fá að standa. Gamli maðurinn verðúr
hins vegar að selja húsið sitt til að
hafa efni á lögfræðikostnaðinum. Ekki
náðist í Jimmy áður en Fókus fór í
prentun til að spyrja hann um málið.
Skepnustrákar með
það besta
Hipp hopp-dýrin í Beastie Boys
gefa út 2 diskasett þann 23. nóvember
með 42 lögum, takk fyrir. Þetta er
svokallaður „greatest hits“-pakki, en
í kaupbæti fá skepnuáhangendur
helling af góssi.
Til dæmis glæ-
nýtt lag, „Alive",
sjaldgæfa B-hlið,
„Skills To Pay
The Bills“, tón-
leikaupptökur
og nokkur lög
af „Country Mike“-upptökunum
svokölluðu, sem voru gerðar á því
tímabili er Beastie Boys ætluðu að
gera kántríplötu með Garth Brooks.
Þegar hefur verið gert myndband við
nýja lagið og um leikstjórn sá
Nathaniel Hornblower, sem einnig
gerði myndböndin við „Body Movin’"
og „Intergalatic" af Hello Nasty, sem
kom út i fyrra. Talið er víst að
Nathaniel þessi sé í raun Adam
Yauch, einn af meðlimum tríósins,
a.m.k. hafa þeir aldrei sést á sama
stað á sama tímanum.
Blóðblóm
vaxa í febrúar
Ný lög með Cure verða frumflutt á Internetinu í
Það er aumur
„goth-ari“ sem er
ekki aðdáandi The
Cure. Nú gengur
sá orðrómur að
næsta plata,
„Bloodflowers", sú
þrettánda í röð-
inni, verði líklega
síðasta plata sveit-
arinnar. Platan á
að koma út 15.
febrúar og er
fyrsta stúdíóplatan
síðan „Wild Mood
Swings“ kom út
1996. Robert segir
að nýja platan sé
síðasta platan í
tríólógíu innan fer-
ils The Cure og
eigi að teljast saman næsta mánuði.
i hóp með plötunum
„Pomography" (1982) og „Disin-
tegration“ (1989). Nýja platan
mun hafa að geyma níu „löng og
skuggaleg" lög, eins og Robert
lýsir þeim.
„Við kláruðum plötuna í júní,“
segir hann, „og vorum á tímabili
að spá í að gefa hana út í haust.
Við ákváðum svo að bíða þar til
aldarmótageðveikin verður yfir-
staðin. Já, og mig langaði bara í
smápásu."
Aðdáendur The Cure gera lítið
úr orðrómnum um að bandið sé
að hætta og segja að svona
orðrómur hafl alltaf fylgt nýjum
plötum. „Þetta er bara eitthvað
sem við Cure-aðdáendur þurfum
að lifa við,“ sagði einn þeirra, „og
við kippum okkur ekki upp við
það.“
Búast má við að lög af nýju
plötunni verði frumflutt á heima-
síðu The Cure um miðjan nóvem-
ber. Slóðin er einfold:
www.thecure.com.
maðuplnn ep alltaf einn
ólöfjngólfsdóttir
TONLIST) hallur ingólfsson
TÓNLIST) SKARREN EKKERT
npk
katrm hall
æsa: Ijóð um stríð
lára stefánsdottir pars pro toto
LEIKHÖFUNDUR
ÞÓR TULINIUS
CfÓNLIST) GUÐNI FRANZSON
Tónlistin úr sýningunni verður fáanieg á geisiadiski
Afsláttur fyrir Námu- og Vörðufélaga Landsbankarts og TALsmenn r rat
íd
Borgarleikhúsinu
www.id.ls
Miðasala
568 8000
föstudagur
22. október
sunnudagur
24. október
sunnudagur
31. október
fimmtudagur
4. nóvember
sunnudagur
7. nóvember
22. október 1999 f ÓkUS
11