Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1999, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1999, Blaðsíða 22
Lifid eftir vmnu t ó n 1 i s t Miðvikudagur 27. október jf ■ •Krár Hefurðu ekki ennþá heyrt í Dægurlagapönkhljöm- sveltinnl Húfunni? Þá ættirðu að drifa þig á Næstabar og hlýða á bananabrandara og aðra fyndna tóna frá þessum drengium. Píanósnillingurinn Joseph O'Brian hamrar á pí- anóið á Café Romance. Hamingian býr á Gauki á Stöng og hvergi nema þar. Sóldögg tekur undir fagnaðaróðinn og leikur undursamlega tóna fyrir þá sem nenna að dratt- ast á staðinn. •Klassík Roman Jablonski og Richard Simm flytja m.a. þrjár umritanir fyrir selló á orgelverkum eftir Bach og verk eftir Coperin o.fl. Tónleikarnir byrja kl. 20.30 í Salnum Kópavogl. Nú er skammt milli stórviðburða í Islensku óper- unnl. Glæsilegir tónleikar eru rétt nýafstaðnir og þá kemur að frumsýningu á óperunni La voix humalne(Mannsröddln) eftir Francis Poulenc kl. 12.15.Flutningurinn tekur um 45 mínútur. Þetta er nýbreytni hjá Óperunni að flytja óperu í hádeg- inu og vonast er til að þetta mælist vel fyrir og fólk kjósi að sleppa hádegismatnum og fara frek- ar á óperu. ©Leikhús Sex í svelt er enn í fullum gangi í Borgarlelkhús- Inu og var sýningafjöldinn að skríða yfir hundrað- iö fyrir nokkru síðan. Miðasalan I Borgarleikhús- inu er opin virka daga frá kl.12-18 en verkið er sýnt kl. 20. Síminn þar er 568 8000. t Iðnó er byrjað að sýna leikritið Frankle og Johnny og er það sýnt kl. 20.30. Nú eru það Halldóra BJörnsdóttlr og Kjartan Guöjónsson sem leika I stað Mlchelle og Pacino. Þau munu örugglega standa sig miklu betur með dyggri leikstjórn Við- ars Eggertssonar. Verkið virðist aiiavega ætla að fara vel af stað þvl það er þúið að vera uppselt á nokkrar sýningar og því er sniðugt aö hringja I Iðnó I síma 530 3030 og panta miða. Fyrir börnin Það standa enn þá yfir prinsessudagar í Nor- ræna húsinu þar sem börn geta klætt sig upp eins og prinsessur. í höllinni er einnig llsta- smiðja þar sem hægt er aö búa til ýmislegt kon- f unglegt og skrautlegt.Gjald fyrir einstaklínga kr. 100 en einníg er tekið á móti stærri hópum. •Fundir Býrð þú yfir leyndum hæfilelkum? Restir búa yfir fleiri hæfileikum en þeir gera sér Ijóst. Viltu vita meira um það hvernig þú getur tekist á við sjálf- an þig og öðlast meira sjálfsöryggi? Langar þig til að læra að halda þrusugóðar ræður? Þá ættirðu að mæta á kynningarfund hjá ITCdeildinni Mel- korku I Menningarmiðstöðinnl Gerðubergl kl.20. ITC er vettvangur fyrir þá sem aldrei hafa þorað, en ekki slður þá sem hafa kjarkinn en skortir æf- inguna. Nánari upplýsingar: itc@simnet.is/itc fSport l.deild kvenna I handbolta rúllar áfram af fullum krafti í kvöld. Víkingur tekur á móti ÍR I Víkinni kl.18, Stjörnur reyna að leggja Völur í Ásgarði kl.20, FH tekur á móti Aftureldingu í Kaplakrika . kl,20 og Grótta/KR rústar ÍBV á Seltjarnarnes- * inu kl.20. Víkingar eru illir I kvöld. Þeir taka með semingi á móti Val í Víkinni kl. 20. FimmtudágTr 28. október ..Best að vera 0 i n ~ ww ■ ■ _ mm w 1 bessu starfi“ Dos Paraguyos eru ekta farandsöngvarar sem hafa ferðast vítt og breitt um heíminn og m.a spilað fyrir, Mariu Callas, Kennedy-J 1 fjölskylduna og Grace m Kelly. M Þeir hafa komið fram í frétta- tíma Stöðvar 2 og sagst ekki hafa fengið greidd laun fyrir spila- mennsku sína á Hótel Örk í sum- ar. Hvort sem það er rétt eða ekki þá hefur tónlist hljómsveitarinn- ar Dos Paraguyos ótvírætt fallið í góðan jarðveg hjá íslendingum. Síðustu sex mánuði hafa þeir Fel- ix Peralta Fernandez og Francisco Marecos Olmedo ferðast vítt og breitt um landið og sungið suðræn og rómantísk lög fyrir landann, lög eins og Volare, Tipitin og Guantana mera. Og ekki nóg með það, þessir spænsk- paragvæsku menn eru einnig farnir að semja á íslensku. Barnastjörnur í Paragvæ Hljómsveitin Dos Paraguyos var stofnuð árið 1953 í Paragvæ og voru hljómsveitarmeðlimir þá fjór- ir talsins. Felix kom inn í grúpp- una árið 1964 og Francisco fjórum árum seinna, en síðustu tíu árin hafa þeir aðeins verið tveir í hljómsveitinni. Þeir byrjuðu báðir að troða upp sem stráklingar og kynntust áriðl951 þegar Felix var 10 ára og Francisco 9. Tilefnið var hæfileikakeppni í heimalandi þeirra þar sem fimm börn voru valin til þess að fara til Argentínu að spila þar og syngja á 10 daga há- tíð og lentu Felix og Francisco í þessum fimm manna hópi. Leiðir þeirra tveggja lágu samt ekki fyrir alvöru saman fyrr en í hljómsveit- inni Dos Paraguyos um 17 árum seinna. Hljómsveitin hefur gefið út 120 plötur og ferðast til um 70 landa. Á ferðalögum sínum um heiminn hefur hljómsveitin spilað fyrir ýmsar frægar persónur eins og Kennedy-fjölskylduna, Peter Sellers og Grace Kelly. „Okkur finnst samt skemmti- legast að spila fyri sjúka og fá- tæka því þeir kunna svo virkilega að meta tónlistina og þurfa á henni að halda,“ segja vinirnir, en þeir hafa það fyrir sið á ferða- lögum sínum að heimsækja elli- heimili, fangelsi og sjúkrahús og spila þar að kostnaðarlausu. ís- lenskar stofnanir hafa þar ekki verið nein undantekning. „Vin- kona mín, það er bara að hringja í okkur og þá komum við, „ segir Felix en frasinn „vinkona mín“ er einmitt eitt af því sem Felix hefur lært hér á landi og notar ekki sparlega. „Við erum kannski ekki ríkir peningalega séð en við erum ríkir í hjartanu. Það gefur okkur mikið að geta glatt aðra,“ segir Felix. Táruðust á Landspítal- anum Þeir Felix og Francisco eiga báðir konur og uppkomin börn á Kanaríeyjum en aðspurðir um það hvort það sé ekki erfitt að vera svona langt í burtu frá ætt- mennunum svara þeir að þeir séu farandsöngvarar í eðli sínu og þeir séu fæddir til ferðalaga og vissrdega væri oft auðveldara að vera einhleypur í svona starfi. En hver er fallegasta minningin sem þeir munu taka með sér frá ís- landi? „Einu sinni spiluðum við fyrir 99 ára gamla konu á Landspítaln- um og þegar við vorum búnir að spila þá sagði hún: „Nú er ég ánægð og nú get ég dáið.“ Við felldum tár við þessi orð hennar,“ segir Felix hrærður. Þeim er einnig minnisstæð ferð til Djúpavogar þar sem allur bær- inn mætti á tónleika þeirra og ein konan bað þá um að koma með sér heim og spila fyrir veikan eig- inmann sinn sem ekki gat komið og hlustað á þá. Þrátt fyrir launastappið sem þeir eru lentir í við eiganda Hótel Arkar í Hveragerði bera þeir ís- lendingum góða j söguna. „Mig langar til að þakka öll- um þeim sem hafa sýnt okkur stuðning í þessu máli,“ segir Felix og fullvissar okk- ur um að þeir muni koma aftur til landsins og spila fyrir íslendinga, hvernig sem þetta mál muni enda. Það er þó ennþá sjens að sjá bóhem- ana áður en þeir hverfa af landi brott, þar sem þeir munu spila á kínverska veitingastaðnum Gengis Khan til 20. nóvember. •Krár j/'Sannkölluð útsala á Nellýs þar sem drykkjar- föng eru seld á hálfviröi. Hver er fyndnastl maður íslands? Það kemur I Ijós á Astró f kvöld. Það var hann Sveinn Waage sem vann titilinn í fyrra og hefur hann veriö með stöðugaruppákomur slðan. Skari Skrípó er kynnir keppninnarásamt Rödd Guðs af X-inu 977, honum Jóni Atla. Sá sem vinnur í kvöld mun ekki fara fátækur heim þvf að sig- urvegarinn hlýtur að iaunum kr. 50.000 og splunkunýjan Nokia 6110 sima frá Tali. Að- gangseyrir er kr. 500 og fylgir honum einn seiðandi Miller. Talsmenn fá ókeypis aðgang og seiðandi Miller gegn framvísun Talsmanna- kortsins eða Taisíma sem eru auðþekkjanleg- ir af kennimerkjunum „TAL“ og „IS-02". Ald- urstakmark er 18 ár og Miller er bara fyrir fyr- ir þá/ær/au sem hafa náð 20 ára aldri. Það verður sannkölluð Ijóða- og tónlistar- velsla á Næstabar. Hér munu m.a. Elísabet Jökulsdóttir, Blrgitta Jónsdóttir, Product 8, Þorstelnn víkingur og Sveinbjörn Halldórsson stfga á stokk og flytja Ijóð f tali og tónum. Þetta verður enginn þurr jólabókarupplestur svo það er um að gera að mæta. Dagskráin hefst kl. 20. Ókeypis inn. •Leikhús Leikfélag Reykjavíkur heldur áfram að sýna Litlu hryllingsbúðlna eftir þá Howard Ashman og Alan Menken. Hún mælist vel fyrir hjá almenningi og þykja þau Stefán Karl, Valur Freyr og Þórunn Lárusdóttlr standa sig vel f aðalhlutverkum. Bubbi er líka ágætis planta og sýningin hefst kl. 20. Síminn f Borgarleikhúsinu er 568 8000. Fyrir börnin Það standa enn þá yfir prinsessudagar í Nor- ræna húsinu þar sem börn geta klætt sig upp eins og prinsessur. í höllinni er einnig llsta- smiðja þar sem hægt er að búa til ýmislegt konunglegt og skrautlegt.Gjald fyrir einstak- linga er kr. 100 en einnig er tekið á móti stærri hópum. •Fundir Á Súfistanum hefjast pailborðsumræður kl.20 I tilefni af útgáfu bókar Erics Hobsbawm um 20. öldina. Umræðurnar heita Öld öfganna. Allir eru velkomnir til að hlusta á eöa leggja orð I belg. Þjóðhátta- og þjóölagafræðingurinn Ann-Mari Haggman segir frá söngva- og fiðlungahefð f sænskumælandi byggðum Rnnlands í Norræna húsinu kl. 20.30. Ókeypis aðgangur. ✓=Fókus mælir með |=Athyglisvert Góða skemmtun 1 hverjir voru hvar Á föstudaginn fór fram á Astró HiM ‘99 og var góð stemning hjá þeim sem létu sjá sig. T.d. Svavar Örn tískulögga, Jón Gnarr, Björk Guðmundsdótt- lr, Domml f X-net og Atll og Gísli módel. Halll Kristins frá FM957 var f húsinu sem og forstjóri Rns miðils, CJ Jones, Þorstelnn f KR og Böðvar „Space“ Eggerts- son. Og á laugardagskvöldið var kjaftfullt hús. Ólöf Rún Tkúladóttir lét sjá sig, sem og Fjölnir og Manda, Gunni i GK og útlendingar með hon- um, Siggl Bolla og 0111 úr 17 og Maggi Ozi- okokkur. Einnig mátti sjá þarna Gumma Braga vaxtarræktatröll, Blrnu Braga súper- módel, Raul Rodriguez og Höllu GSM-módel, Heiðar Austmann frá FM957, Valda, Stelna og Stjána af Rex, Birtu og örnu Play- boy, Sigfús línumann hjá Val og Stjána Clinton. Hannes i Góu og Óli BT kóngur voru f essinu sfnu og Þór Jón fallhífar- stökkvari, Anna María frá Aerobic Sport og Tomml jr. Fyrsta frumsýning Islenska dansflokksins á þessum vetri var á fimmtu- dagskvöldið f sfðustu viku. Þar var margt um manninn enda verið að frumsýna glæ- ný dansverk eftir þrjá fs- lenska höfunda. steingrfm- ur Hermannsson, veitinga- maðurinn Valdimar og frú sem og Helena dansari voru meðal þeirra sem sátu agndofa í salnum. Fók- us fannst tvö fyrstu verkin alveg rosaleg góð en sföasta verkið mátti atveg missa sig. Kristján Ra og Árni Vigfússon frá Skjá einum, Ari Magg Ijósmyndari og Björn Bjarnason voru einnig mættir til að berja hina frábæru dansara aug- um sem og Iðnómaðurinn Magnús Þörðarson sem kom með pabba sinn, Þórð. Karl Pétur úr Iðnó ræddi við þá feðga, Friðrik Friðrlksson leikari, Páll Banine „stórieikari" og Hallur Ing- ólfsson voru einnig á svæðinu. Margrét Pálma- dóttir, stjórnandi Kvennakórsins, og maðurinn hennar, Hafliði ekkvaö, og Oddný Sturludóttir, fyrrum Ensímagella Á Kaffibarnum sama kvöld voru Dagur Kári kvikmynda- gerðarmaður, Huldar Breið- fjörð, Húbert Nói, Her- blegowitz, Linda Ásgeirs, Ingvi klipparí, Dj. Addi og Dj. Kári. En þrátt fýrir að það væri margt um diskótekar- ann þá var geislaspilari hússins bara stilltur á random og það sama var uppi á teningnum á sunnudagskvöld. Þá var Ingvar Þórðar sjálfur á staönum ásamt Jakobi Bjarnari Grétarssyni, Hildl Helgu úr Þetta helst. Svo var Sjón á sveimi, Jón Steinar leikmyndahönnuður og Ari Eldon. Vegamót átti afmæii á föstu- dagskvöldið og var húsið troöfullt, enda veitingar f boöi. Þar sást til Helga Björns, Þóris Snæs, Freys Einarssonar, Árna Þórarins, Jóels Pálssonar, Dj Mar- geirs, Jóhanness á Mono og Snorra Undirtóns. Fókus hélt síðan skuggalega skemmtilegt kvöld á Skuggabarnum á föstudagskvöldið þar sem Páll meiiraL á www.visir.is Óskar steig á stokk við mikinn fögnuð viðstaddra og hafði hann miklu meira en vel við beibunum fjórum sem voru með undirfatasýningu sama kvöld. Baddi, bjartasta von Borgarinnar, sá um að enginn þyrfti að skrælna upp og sáust þeir Slggi Hlö, Jón Gunnar Geirdal, Villi VIII, Ás- gelr Kolbelns, Bjarki á FM og íris, heimasiða vik- unnar, nýta sér það tilboð. En á laugardeginum var ekkert Fókuspartf en samt stuö. Slggi Bolla og 0111 úr 17 mættu, Gunni GK, Svava flugskvlsa, Einar Þór Daníelsson, Pétur Örn og Vilhjálmur Goöi bítlagæi en hann og félagar hans áttu senuna á Skjá einum, miðvikudagskvöld. Á laugardaginn gekk grænmetiskóngurinn Haukur Magnússon að eiga Soffíu Marteinsdóttur en Haukur baö einmitt Soffíu í gegnum sjónvarpsaug- lýsingu eins og frægt er orðið. í brúðkaupsveisl- unni f Viðey var meðal annars að sjá bræður brúð- gumans, þá Óskar Magnússon, stjórnarformann Baugs, og Þorbjörn Magnússon vfnkaupmann. Einnig knattspyrnuþjálfarann Willum Þór Þórsson sem og Tryggva Geirsson, formann Þróttar, svo fáeinir séu nefndir. 22 f Ó k U S 22. október 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.