Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1999, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1999, Blaðsíða 12
Ofmetin fyrirbrigc Kvennaráðstefnan Þrátt fyrir endalausa lyst heimsbyggöarinnar á Hillary Clinton datt eng- um fjölmiöli utan land- steinanna í hug aö bjóöa sínu fólki upp á fréttir af Kvennaráðstefnunni í Reykjavík. Hátíðarræöur og hátíölegheit sem má finna í hverri kompu i húsi Sameinuðu þjóðanna árið út og áriö inn. Svona ráðstefnur eru i raun hryllingsmyndir lýðræðis- ins. Einhvern veginn svona væri heimurinn ef allir þyrftu að tjá sig. Meikdraumar poppara Það er þónokkuð liðið síðan það hætti , að vera frétt í iþróttum að ein- hverjir liæfi- leikaveiðimenn settust á áliorf- I endabekki á is- lenskum leik- völlum. Popp- arar hafa ekki enn náð jafn háu menn- ingarstigi. Þeir rjúka enn í blöðin þegar útlendingur víkur sér að þeim til að hæla þeim. Spaugstofan Alveg eins og það tók fólk nokkrar vikur á sín- um tíma að latta að Spaug stofumenn væru fyndnir þá er nú að renna upp fyr- ir henni að þeir eru það ekki lengur. Húmor eldist verst allra fyrirbrigða og Spaugstofan hefur lifað sinn tíma. Hagyrðingar Búnir að liggja vikum saman yfir öllum stökun- um sem þeir þykjast „kasta fram“. Alþingi Málfundafélag sem hefur hvorki áhrif né völd. Sann- færingu þingmanna er fjarstýrt úr stjórnarráð- inu. Þórhallur miðill Þórhallur er álíka aumkunarverður og maður með gervi GSM-síma. Hann þykist vera að tala við einhvern en það er enginn á hinni línunni. Þórhallur selur sig út á sambönd sem hann hefur ekki. Ef þú værír dauð(ur) værí Þórhallur maður- inn sem þú hringdir fyrst í? Stuðmenre Ákaflega hæfileikarikir og færir menn sem ferðast um landiö og selja líkið af ömmu sinni - eins og James Joyce sagði eitt sinn um Rómverja. Rás 1 Þrátt fyrir að mikið sé talað á Rás 1 þá kemur þar fátt nýtt fram. Þar leita dagskrárgerðarmenn uppi fólk sem hefur marg- tuggnar skoöanir á út- jöskuðum málum - líklega vegna þess aö þeir halda að gamlar og klassískar skoðanir séu eins nienn- ingarlegar og gömul og klassísk tónlist. Hollvinasamtök Hollvinasamtök Háskól- ans byrjuöu vel: settlegur klúbbur fyrir fólk sem vill vera heldra. Síðan spruttu upp smærri hollvinasam- tök einstakra deilda fyrir iólk sem átti lengra í land með aö veröa heldra. Þeg- ar hollvinasamtök bóka- safnsfræðiskorar verða stofnuð verður þetta búið spil. Sólveig Pétursdóttir Veit svo fátt um verkefni ráðuneytisins að fréttamenn finna til með henni og reyna að hylma yfir fákunnáttuna. Markús Öm Antonsson Veistu út af hverju Ríkisút- varpið er kallað Gufan? Landkynningargildi íslenskra kvikmynda Kvikmyndagerðarmcnn vilja að ríkið borgi þeim glýsingaverð fyrir myndirnar sem þeir búa til og eru sýndar á norrænum kvik- myndadögum i menningarmið- stöðvum í útborg- um. Hugmyndin er sú að þeir sem sjá myndirnar fyllist sjúklegri ást á land og þjóð og rjúki til og panti sér farseðil til íslands. Gallinn er hins vegar sá að í salnum eru fáir aðrir en íslenskir námsmenn. Og íslenskar myndir eru sjaldnast þannig að þær veki þeim heimþrá. Páll Kr. Pálsson Páli hefur tekist að selja þá hug- mynd að hann sé þessi vel mennt- aði fyrirtækja- stjórnandi. Speki hans má líka oftast finna í ódýrum stjórnunarfræðibókum sem seldar em f öllum fríhöfnum. ís- land er hins vegar þannig land að ef þú heldur því fram að þú sért framtíðin þá verður þú það. Hlutdeild hans að Skjá einum vegur upp á móti drifkrafti unga fólksins. Gunnar Dal Það segir allt um andlegt hmn í nú- tímanum að Gunnar Dal sé álitinn vitur mað- ur. Hann tíndi speki sína af indverskum kornflexpökkum og sauð hana í hafra- graut handa íslendingum. Óljós gmnur um mátt sálarinnar og sigur andans yfir efninu og sveitaleg sannfæríng um ágæti íslendinga, skreytt með enda- lausum fróðleik úr uppflettibókum. Gyrðir Elíasson Augnayndi bókmennta- elítunnar. Eintóna höf- undur, eins og kvikmyndatökumaður sem notar alltaf sama filterinn. Haraldur Johannessen Haraldi tókst að umbreyta Fangelsis- málastofnun úr notalegu skilorðseftiríiti yfir í eitthvert bákn, klippt út bíómynd- um á borð við Con Air. En þrátt fyrír að útidyrahurðin á skrifstofu stofnunarinn- ar værí orðin sprengjuheld og enginn kæmist þar undan vökulum augum eft- iriitsmyndavéla þá héldu fangar á Litla- Hrauni áfram að strjúka ef þá langaði í bæinn. Þetta ætti fólk að hafa í huga áður en það finnur til öryggistilfinningar við að sjá ríkislögreglustjórann skarta amerískum herforíngjabúningi með snúmm og gullbryddingum. Þetta er allt á yfirborðinu. Undir þungum brúnum og alvariegum svip lögreglustjórans býr líka fátt annað en áhyggjur af nýni heimasíðu embættisins eða fyrirhug- uðum flutningi úr útnáranum í Kópavogi yfir í veglegt húsnæði í hjarta skrif- finnskunnar í Reykjavík. Jón Ólafsson ítök Jóns Ólafssonar á fíkniefnamark- aðinum em ömgglega stórlega ofmetin í huga Hannesar Hólmsteins og þeirra sem nenna að skiptast á kjaftasögum við hann - einnig þeirra sem halda ræður á Hólahátíðum. Það er löngu komið fram að Jón var bendlaður við fíkniefnamisferii á áttunda áratugnum en allar sögur um að hann hafi auðgast á fíkniefnasölu em uppblásin ósk- hyggja þeirra sem er í nöp við hann. Og í raun tengist þessi óskhyggja Jóni ekki persónulega. Hún er afleiðing af löngun þeirra sem bera hana til að vera ofsalega góðir. Þess vegna verða þeir sem þeim leiðist að vera alveg ofsalega vondir. Ofmat manna á Jóni sem fíkniefnasala er því jafnframt ofmat þeirra sjálfra á eigin gæðum. Thor Vilhjálmsson Kallaður til sem fulltrúi menningarinnar þegar hennar er þörf. Skríkir af sjálfsánægju af athyglinni og skilur menninguna eftir þar sem flestir vilja geyma hana - úti í horni. Ólafur Ragnar Grímsson Kann ekki að segja nei. Er alls staðar mættur þar sem fleiri en þrír koma saman - og talar mest um sjálfan sig. Kolbrún Bergþórsdóttir Kölluð til að tala um bók- menntir sem hún hefur ekki ýkja góðan smekk á. Reynir að endurvarpa viðurkenndu áliti bókmenntaheims sem hún er ekki í ýkja miklu sambandi við. Stefán Jón Hafstein Hugmyndin um að gera hann að leiðtoga Samfylk- ingarinnar sýnir hversu djúft þessi óskasamtök vinstri manna eru sokkin. Afhverju ekki Gauja litla? Sturla Böðvarsson Hékk svo lengi á biðstofu valdsins að hann gleymdi erindi sínu. Eiríkur Þoriáksson Táknmynd sigurs opinberra starfsmanna yfir listinni. Keiko Þorir ekki út úr kvínni. Davíð Oddsson Fimm sinnum í hverjum fréttatíma. Allt Verðleikar fólks ráða því sjaldnast hvort það nær langt í lífinu eða Og þótt metnaður geti dregið fólk langt þá dugar hann ekki til á hvaða bás fólk lendir, stundum löngun okkar hinna einu og upp úr nýtur athygli einn og sér. fyrir að hafa og trausts samferðamanna sinna. Oft virðist tilviljun eín ráða því einhvern á þessum bás. þurru teygjum við okkur niður í mannhafið og hefjum einhvern meðaljóninn upp á stall þar sem hann hangir þar til við fáum leið á honum. Stundum vex fólk með hlutverki sínu, Megas Löngu kominn tími til að launa manninum það sem hann hefur gefið okkur og setja hann á heið- urslaun. stundum kiknar það undan því en oftast reynir það að láta á að það er vitlaust fólk á engu bera og vonar að enginn átti sig á vitlausum stað. Hannes Hólmsteinn Gissurarson Hannes er margbrotin persóna og vasast í mörgu. Það veldur því að hann er víðar ofmetinn en aðrír menn. í fyrsta lagi ofmetur hann sjálfan sig. Hann hefur sannfært aðdáendur sína meðal ungra sjálfstæðismanna um að hann hafi einn og óstuddur flutt ný- frjálshyggjuna til íslands og ungu sjálf- stæðismennirnir sannfæra hann síðan um það sama við hvert tækifæri. Hann- es ofmetur síðan ímyndaða andstæð- inga sína. í hans huga er Svanur Kríst- jánsson til dæmis áhrifavaldur í ís- lensku samfélagi. Og þar sem Hannes blæs út mikilvægi andstæðinga sinna ofmetur hann snilld sína við að kveða þá í kútinn - hann er Rambo músabani. Þótt Hannes hafi gefið út mikið af bókum - og safnað með því mörgum punktum og aurum í sérstæðu launakerfi háskólamanna - fer þar lítið fyrír af- rekum í fræðunum og því minna eftir því sem hann eldist. Hann virðist því ekki ætla að vitkast með árunum - verður líklega „silly old man“ frekar en „vise old man“. Þar sem Hannes talar mikið og hratt og það eru heil reiðinnar býsn sem standa út úr honum hefur mörgum þótt hentugt að nota hann til að reyna hugdettur sínar á þjóðinni eða það sem þeir treysta sér ekki sjálfir til að taka sér í munn. Þetta er ofmat á Hannesi því þótt hann tali mikið og lengi þá hlustar enginn. Ámi Þór Sigurðsson Það voru álíka vatnaskil í íslenskri póli- tík þegar Árni Þór skipti um stjórn- málaflokk og ef kassadama hjá Hag- kaupi segði upp og réði sig hjá Nóa- túni. Kassadömur stimpla inn verð sem aðrír ákvarða. Þótt stórmarkaðurinn gengi ekki án þeirra hafa þær í sjálfu sér lítil áhríf á rekstur hans. Ámi Þór hefur veríð í sama hlutverki í Alþýðu- bandalaginu gegnum tíðina. Hann stimplar inn eða greiðir atkvæði í takt við ákvarðanir sem heldra fólk í Svav- ars-arminum hefur tekið fyrír hann. Hann markar ekki stefnuna - hann fylg- ir henni. Og þegar hann skiptir um flokk fylgir enginn á eftir. Bjarni Haukur Þórsson Á auglýsingum fyrír Kossinn eftir Hall- grím Helgason tekur nafn Bjama Hauks Þórssonar jafnmikið pláss og allra hinna leikaranna. Þeirra á meðal em ástsælir og elskaðir leikarar á borð við Ladda og Stein Ármann. Bjarni Haukur lék Hellisbúann sem hefur dregið hátt í 80 þúsund manns í Gamla bíó. En það er ekki þar með sagt að þetta fólk sé tilbúið að horfa á hvað sem er svo framaríega sem Bjami Haukur sé á sviðinu. Kossinn er því nokkurs konar prófsteinn á hvor orsak- aði vinsældirnar, Bjarni Haukur eða Hellisbúinn. Að veðja fyrír fram á.Bjama Hauk er ofmat. Og að halda þeirri staðreynd að fólki að hann hafi átt hugmyndina að leikritinu er enn magnaðra ofmat. Hví skyldi fólk fyllast spenningi yfir því að leikarínn sem lék Hellisbú- ann hefði fengið hugmynd að leikriti? Er ekki það ánægjulegasta við leikara að þeir segja ekki það sem þeim dettur í hug heldur það sem öðrum dettur í hug? Leifur Eiríksson Leifur er svo óspennandi maður að íslend- ingar sjálfir hafa aldrei haft neinn áhuga á honum. Það skiptir því engu hversu mikl- um fjármunum ríkisstjórnin eyðir til að auglýsa hann upp eríendis - útlendir munu yppta öxlum. Þrátt fyrir að ís- lensk skáld hafi veríð helsjúk af þjóð- ernisrembingi öldum saman og ort hvern húskall í hetjuhæðir tókst engu þeirra að setja saman eftirminnilega stöku um Leif. Ástæðan er sú að við vit- um akkúrat ekkert um þennan mann. Hann er andlitslaus, karakteriaus og orð- laus - það er ekki höfð eftir honum ein einasta setning. Bandarísku geimfararnir pössuðu sig á að mæla fram nokkur eftir- minnileg orð eða lauma golfkúlu með sér til tunglsins til þess að hverfa ekki í óminnisdjúp sögunnar. Leifur klikkaði á þessu. Það er því ámóta líklegt að íslensk stjómvöld geti auglýst Leif inn í vitund bandarísku þjóðar- innar og að Ástþór Magnússon geti auglýst sig á Bessastaði. < Einarsson Stjórnmálamaður sem metur skoðanir ein- hvers. Reynir jafnvel að rökstyðja þær. Einar Þor- steinn Endurreisnarmaður. Leitar nýrrar hugs- unar í nýrri þekk- ingu í stað reyna að blása lífi gamla hugsun sem til- heyrir horfnum heimi. Sigursteinn Másson Það var kostuleg hugdetta hjá eigend- um Skjás eins að Sigursteinn Másson gæti svo til án aðstoðar haldið uppi daglegum fréttatíma. Og fyrsti frétta- tíminn hans á miðvikudagskvöldið sýndi að þótt hugdettan sé kostuleg þá er afrakstur hennar ekki skemmtilegur. Fyrstu tvær fréttimar voru um Skjá einn - og ekkert út á það að setja. Næstu þrjár snemst um skoðanir Davíðs Oddssonar á ólíklegustu hlutum - meðal annars á íslenskum sjónvarpsleikritum eftir sjálfan sig og aðra. Þá poppaði Steingrímur Hermannsson upp og talaði sig í kríngum mál sem honum kom ekki mikið við. Síðan kom gömul fregn af Reykjavíkurflugvelli og loks viðtal við mann sem danskur vítisengill hafði heimsótt á ferð sinni um ísland og sem síðan hafði skrifað ferðasögu sína í félagsrit danskra Vítisengla. Svo var allt búið. Ábyrgðin liggur svo þungt á Sigursteini að hann ætlar sér auðsjáanlega ekki að gera nein mistök. Niðurstaðan er sú að ef hann á annað borð segir fréttir þá segir hann einungis fréttir sem aðrir hafa reynt og prufað. Ólafur Ragnarsson Útgefandi fína fólksins, Laxness, Ólafs Jóhanns, Davíðs og Andrésar andar. Ólafur er harmsögupersóna. Hann þráir virðinguna sem liggur í bókunum en í hvert sinn sem hann snertir bók breyt- ist hún í konfektkassa. Aðaldriffjöðrin í yfirstandandi tilraun til að gera Laxness að geldu vörumerki fyrir stáss- stofusnobb. Stjórínn sem hann og Bjarni Ármannsson hafa sett Vöku- Helgafelli er jafnvel ólíklegrí til að af- reka en bókmenntaráð Aimenna bóka- félagsins forðum - þótt það sé ekki al- veg eins fínt. Siv Fríðleifsdóttir Hefur hagað pólitískum ferli sínum í takt við eftirspum. Það vant- aði konur í Framsókn. Hún í Framsókn. Það vantaði gellur f pólitík. Hún varð gella á mótorhjóli. Það var hljómgrunnur fyrír umhverfis- vemd. Hún varð umhverfisverndarsinni. Og síðan ráðherra. Það vantaði ráðherra sem sátu og stóðu eins og flokkshagsmunir heimtuðu. Hún stóð og settist eins og flokksformaðurinn sagði. Rúrí Fékk þjóðina til að snúast á sveif með Lands- virkjun með þjóðsöngsgjömingi sínum við Eyja- bakka. Afhjúpaði andstæðinga virkjana sem vemleikafirrta Keikó-vini, lífsþreytt borgarbörn sem vilja persónugera náttúmna og finna í henni þau gildi sem þau hafa sjálf glatað. '68-kynslóðin Völd og mikilvægi þess- arar kynslóöar fara minnkandi. Hún heldur enn viöa um taumana en er orðin svo sljó og þreytt aö jafnvel þótt hún láti smella í taumunum kippist enginn viö. Þaö er svo langt síðan þessi kynslóö bar upp erindi sitt aö allir eru fyrir löngu búnir aö gleyma því - ekki síst hún sjáif. 22. október 1999 f ÓkUS f Ó k U S 22. október 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.