Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1999, Síða 14
Ashley Judd vill leika
í Basic Instinct 2
Lengi hefur verið í bígerð að
gera framhald af Basic Instinct
en nothæft handrit hefur vant-
að. Eins og kunnugt er gerði
myndin Sharon Stone að
stjörnu og var fastlega búist
við að hún
myndi leika í
framhaldinu.
Stone hefur nú
gefið út þá yf-
irlýsingu að
henni líki
ekki við
hvernig fram-
haldið er j
hugsað og w/
vilji ekki Wm
leika í mynd-
inni. Þetta hefur komið cif stað
umræðu um hver muni taka
við af henni. Ein leikkona á
mikilli uppleið, Ashley Judd,
hefur gefið í skyn að hún sé til-
búinn í slaginn. Judd sem leik-
ur aðalhlutverkið í Double
Jeopardy, vinsælustu kvik-
myndinni vestanhafs um þess-
ar mundir, er samt alls ekki
örugg um hlutverkið og hafa
framleiðendur myndarinnar
gefið í skyn að Judd sé of dýr
fyrir þá. Þeir vilji leikkonu
sem ekki sé eins þekkt og ódýr-
ari.
Pltt og Coen-
bræður
Brad Pitt, sem þykir ásamt
Edward Norton fara á kostum í
hinni ofbeldisfullu The Fight
Club, er sagð-
ur á góðri leið
með að taka
að sér aðal-
hlutverkið í
nýjustu kvik-
mynd Coen-
b r æ ð r a
Tk, JkL. (Far§°)> To
V the White
Sea,
þeir
eru með í
undirbúningi. Myndin
verður gerð eftir skáldsögu
James Dickey um ameriskan
flugmann sem skotinn er niður
yfir Japan í seinni heimsstyrj-
öldinni. Til að komast heim
verður hann að fara yfír frosn-
ar auðnir Norður-Asíu. Þess má
geta að hin fræga kvikmynd
Deliverance var einnig gerð eft-
ir skáldsögu Dickey.
Leikstjóri í lukku-
pottinn
Hinar miklu vinsældir The
Sixth Sense, en hún er næst-
vinsælasta kvikmynd ársins í
Bandaríkjunum, hafa gert leik-
stjóra myndarinnar og hand-
ritshöfund, M. Night Shyamal-
an, eftirsóttan, svo eftirsóttan
að Disney er tilbúið að borga
honum metfé, 10 milljónir doll-
ara, fyrir að skrifa handrit og
leikstýra næstu kvikmynd fyrir
Disney. Skiptist upphæðin
þannig að Shyamalan fær 5
milljónir fyrir handritið, sem
hann hefur nefnt Unbreakable,
og 5 milljónir fyrir leikstjórn.
Þar með slær bann metgreiðslu
fyrir handrit, en áður var metið
fjórar milljónir dollara fyrir
handritið að The Long Kiss
Goodnight. „Þetta er ótrúlegt,"
segir Shyamalan, „á aðeins tíu
vikum hefur líf mitt gjörbreyst.
Áður þurfti ég að berjast fyrir
hlutunum, nú fæ ég allt sem ég
bið um samstundis.“
Sjónvarpsþættirnir um krilin í
South Park eru ekkert barnagaman
og hafa þeir vakið umtal og
hneykslun, aðallega vegna um-
hverfisins sem er ofbeldisfullt og
þess orðaforða sem krakkamir eru
látnir nota. Kvikmyndin South
Park, stærri, lengri og óklippt slær
út allt það sem sjónvarpið sýnir og
hefur mörgum þótt nóg um. Ballið
byrjar þegar þeir félagar Stan,
Kyle, Kenny og Cartman lauma sér
inn á kvikmynd bannaða bömum
þar sem í aðalhlutverkum eru
kanadískir orðhákar og villimenn.
Myndin hefur djúp áhrif á fjór-
menningana og bekkjarfélaga
þeirra sem að sjálfsögðu fylgja for-
dæmi fjórmenninganna, með þeim
afleiðingum að allur bekkurinn fer
að tileinka sér súpu bannorða sem
hneykslar foreldrana svo mikið að
nú ætlast bærinn til að Bandaríkin
segi Kanada stríð á hendur. Hefst
nú mikið sjónarspil þar sem marg-
South Park krílin
eru nú komín í
kvikmynd í fuiiri
iengd sem nefníst
South Park,
stærri, lengri og
ókiippt og verður
hún frumsýnd í
Sam-bíóum í dag.
ir koma við sögu, þekktir einstak-
lingar sem óþekktir. Eins og í flest-
um sjónvarpsþáttunum þá segir
einhver að búið sé að drepa Kenny
og nú liggur leið hans til helvítis
þar sem hann hittir fyrir Saddam
Hussein, sem er nýlátinn. Þar er
hann í góðu yfirlæti hjá
djöfsa. Allt endar þó vel og
börnin læra sína lexíu og
komast að því að heilbrigð
samskipti milli foreldra og
barna eru lífsnauðsynleg og
að heimurinn er betri án
Saddams Husseins.
Þeir sem standa að baki
South Park, leikstýra, fram-
leiða, skrifa handrit og tala
fyrir sumar persónur heita
Matt Stone og Trey Parker
og hefur sjónvarpsserían gert þá
ríka eins og þeir ætluðust til. Þeir
félagar sem kynntust í Columbia-
háskólanum í New York hafa brall-
að ýmislegt og eru ekki við eina
fjölina felldir, hafa gert tónlistar-
myndbönd, leikið í kvikmyndum
(Stone lék meðal annars í BA-
SEketball) og þeir eru báðir með-
limir hljómsveitarinnar DVDA,
þar sem Matt Stone er bassaleikari
og Trey Parker söngvari. Um South
Park, stærri, lengri og óklippt seg-
ir Matt Stone: „Hún er um barátt-
una endalausu fyrir frelsi, en það
hljómar vissulega heimskulega ef
maður segði það“ og Trey Parker
segir: „Ef fólk langar að vita um
hvað myndin er ætti það að lesa
Moby Dick og í hvert skipti sem
orðið „hvalur" kemur fyrir ætti að
skipta því út og setja orðið
„kanadískur" í staðinn.“
-HK
bíódómur
Stjörnubíó — The Astronauts's Wife ★ -i
Geimfarí haldinn illum anda
Hingað til hefur Johnny Depp
verið vandlátur á handrit og sagt
að peningar ráði ekki ferðinni. En
eitthvað hefur dómgreindin brugð-
ist honum þegar hann ákvað að
leika geimfarann í The Astronaut’s
Wife. Ákaflega sundurlaus og oft á
tíðum óskiljanleg saga er helsti
galli myndarinnar sem segja má að
sé bastarður sem erfitt er að
flokka.
Eftir fallega fjölskyldumynd af
hjónum, geimfaranum Spencer
(Johnny Depp) og bamaskólakenn-
aranum Jillian Amacost (Charlize
Theron) fylgjum við Spencer út í
geiminn þar sem allt er í lukkunn-
ar standi þar til Spencer ásamt öðr-
um geimfara, Alex sem er með hon-
um, týnast í tvær mínútur. Þeir
eru heimtir úr helju, en ljóst er að
ekki er allt eins og það á að vera
þegar Alex deyr á frekar óhugnan-
legan hátt og eiginkona hans frem-
ur sjálfsmorð í kjölfarið. Eitthvað
hefur skeð, sem geimfararnir
greina ekki frá, þessar tvær mínút-
ur sem þeir voru sambandslausir.
Grunur Jillian eykst eftir að eigin-
maður hennar nánast nauðgar
henni og hún veröur ófrísk í kjöl-
farið af tvíburum; hún er orðin
handviss um að faðirinn er ekki
eiginmaðurinn sem hún þekkti.
Lagt er upp með The Astronaut’s
Wife sem sálfræðidrama en mynd-
in fer fljótt yfir á annað svið sem er
meira í ætt við geimhrylling með
skírskotun í Rosemary’s Baby eftir
Roman Polanski, án þess þó
nokkurn tímann að geta talist
hrollvekjandi. Þar er mest um að
kenna, auk ómarkvissrar sögu, leik
Johnny Depp en hann tekur hlut-
verkið of alvarlega. Kannski hefur
hann allan tímann haldið að hann
væri að leika í drama. Þetta leiðir
til þess að myndin er of þunglama-
leg og það er helst að Charlize
Theron, þegar hún er ein á ferð í
neðanjarðarhvelfingu, nái upp
spennu en það varir stutt og mynd-
in er fljót að falla niður á plan með-
almennskunnar aftur, þar sem allt
er fyrirsjánlegt meira að segja
endirinn sem sjálfsagt hefur átt að
koma á óvart en kemur engum á
óvart.
Leikstjóri og handritshöfundur
Rand Ravich. Kvikmyndataka:
Allen Daviau. Tónlist: George S.
Clinton. Aðalleikarar Johnny
Depp, Charlize Theron, Joe
Morton og Clea DuVall.
Hilmar Karlsson
f ó k u s
22. október 1999
14