Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1999, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1999, Blaðsíða 17
16 MIÐVKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1999 MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1999 Sport ..íUiUÍUÍiÍk.iu.i mmtMm Sport Herdís Sigurbergsdóttir handknattleikskona: Herdls Sigur- I bergsdóttir hand- knattleikskona og Jörundur Áki Sveinsson, eigin- maður hennar, héldu til Þýska- lands í morgun I þar sem Herdís mun hitta þarlendan sérfræðing í íþróttalækningum. Herdís sleit sem kunnugt er hásin í landsleik í upphafi árs og í framhaldi af því kom drep í hásinina sem batt enda von í morgun til sérfræöings í Þýskalandi á íþróttaferil hennar. „Við fréttum af þessum lækni í Þýskalandi en hann hefur með- höndlað marga þekkta íþróttamenn og haíði haft spumir af mínu tilfelh. Þegar við höfðum síðan samband við hann út vildi hann endilega fá mig til nánari skoðunar og hefúr í raun gefið mér nýja von,“ sagði Herdís i samtali við DV í gærkvöld. Herdís sagði þaö næsta víst, eftir samtal við þýska sérfræðinginn, að hún mundi fara í enn eina aðgerð á fætinum, hvort sem það yrði hér á landi eða erlendis. Sú aðgerð myndi vera til þess að reyna að byggja upp nýja hásin og að það væru gleðileg tíðindi fyrir sig. „Ég veit að það á sér ekki stað kraftaverk, en mín von er sú að ég verði gönguhæf i framtíðinni. Hitt geri ég mér ekki vonir um að ég muni leggja stund á handknattleik framar. Sú dapurlega staðreynd stendur eftir sem áður,“ sagði Her- dís sem er væntanleg aftur til landsins á sunnudag. -ih Haukur í skoðun hjá Rosenborg Keflvíkingurinn Haukur • Ingi Guðnason, sem er á mála hjá enska A-deildarliðinu Liverpool, gæti verið á leið til norsku meistaranna í Rosenborg. Haukur fer til norska liðsins um leið og hann hefúr náð sér af þeim meiðslum sem hafa verið að hrjá hann og forráðamenn félagsins munu þá skoða hann í framhaldinu. Liverpool keypti Hauk Inga frá Keflavík fyrir 18 milljónir króna fyrir tveimur árum. Þá var Roy Evans við stjómvölinn hjá Liverpool og Haukur Ingi var í og við leikmannahópinn hjá félaginu. Eftir að Frakkinn Gerard Houllier tók við stjórastarfmu hjá Liverpool hefur Haukur verið úti í kuldanum enda var Houllier iðinn við að kaupa nýja leikmenn til liðsins í sumar. -GH Korac-bikarinn í körfuknattleik: Verðum að vinna til að eiga möguleika - Reykjanesbær mætir Lugano í kvöld Sameiginlegt lið Njarðvikinga og Keflvíkinga, sem keppir undir merkjum Reykjanesbæjar, mætir i kvöld svissneska liðinu Lugano í Korac-keppnini í körfuknattleik. Þetta er síðasti leikur leikur liðsins i keppninni á heimavelli en næstu tveir leikiimir gegn Huima og Nancy verða á útivöllum. „Þessi leikur sker úr um hvort við eigum möguleika í keppninni. Það er alveg Ijóst að það er skarð fyrir skildi að við getum ekki teflt fram nema einum útlendingi og svo í ofan á lag hafa meiðsli sett strik í reikningin. Guðjón Skúlason verður reyndar með okkur i kvöld og þeir Örlygur Sturluson og Elentínus Margeirsson koma inn fyrir þá Hjört Harðarson og Friðrik Ragn- arsson. Botninum var náð í síðasta leik gegn Nancy og það er vonandi að menn nái sér á strik í kvöld,“ sagöi Friðrik Ingi Rúnarsson, annar þjálfara liðsins, í samtali við DV. -JKS Lazio D.Kiev Leverkusen Maribor 6 1 1 B-riöiU: AIK-Arsenal .................2-3 0-1 Overmars (17.), 1-1 Andersson (41.), 1-2 Overmas (52.), 1-3 Suker (56.), 2-3 Andersson (68.) Fiorentina-Barcelona.........3-3 1-0 Bressan (14.), 1-1 Figo (20.), 1-2 Rivaldo (43.), 2-2 Balbo (56.), 3—2 Balbo (69.), 3-3 Rivaldo (74.) Barcelona 6 4 2 0 19-9 14 Fiorentina 6 2 3 1 9-7 9 Arsenal 6 2 2 2 9-9 8 AIK 6 0 1 5 4-16 1 C-riðill: Boavista-Dortmund............1-0 1-0 Femander (65.) Feyenoord-Rosenborg ........ 1-0 1-0 Somalia (85.) Rosenborg 6321 12-5 11 Feyenoord 61507-6 8 Dortmund 6 1 3 2 7-9 6 Boavista 6 1 2 3 4-10 5 D-riðill: Man.Utd United-Sturm Graz . 2-1 1-0 Solskjær (57.), 2-0 Keane (69.), 2-1 Vastic (88.) Marseille-Croatia Zagreb .... 2-2 0-1 Mujcin (42.), 1-1 Bakayoko (54.), 1-2 Mikic (84.), 2-2 Diawara (89.) Man.Utd 6 4 1 1 9-4 13 Marseille 6 3 12 10-8 10 Sturm 6 2 0 4 5-12 6 Croatia 6 1 2 3 7-7 5 Riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu: Dortmund sat eftir - eftir tap gegn Boavista og Feyenoord komst áfram Óvæntustu úrslitin í Meistaradeild Evrópu í knattspymu í gærkvöld urðu þegar þýska liðið Borassia Dortmund tapaði i Portúgal fyrir Boavista, 1-0. Þessi úrslit gerðu það að verkum að Dortmund, sem varð Evrópumeistari 1997, er úr leik og kemst ekki áfram í 16-liða úrslit. Leikur þýska liðsins olli vonbrigð- um sem skapaði sér sárafá tækifæri í leiknum. Boavista, sem átti enga mögu- leika í riðlinum, missti mann út af þeg- ar 25 mínútur vom eftir af leiknum en Dortmund náði ekki að færa sér liðs- muninn í nyt. Eftir þessa niöurstöðu má ætla að Michael Skibbe, þjálfari Dortmund, sé orðinn valtur í sessi. Hollenska liðið Feyenoord sigraði Rosenborg, 1-0, á heimavelli í Rötter- dam. Feynoord varð að vinna sigur til að komast áfram og það gekk eftir. Ros- enborg, sem var búið að tryggja sig áfram fyrir leikinn, var miklu betri að- ilinn en liðið fór illa með fjölmörg tækifæri. Feyenoord er ekki líklegt til afreka í 16-liða úrslitunum enda lítt sannfærandi lið þar á ferð. Leverukusen situr einnig eftir með sárt ennið eftir markalaust jafntefli á heimavelli gegn Mariborg. Lazio sigraði Dynamo Kiev í Kænu- garði en bæði liðin komust áfram upp úr sínum riðli. Manchester United lagði Sturm Graz á Old Trafford en David Beckham og Paul Scholes léku ekki með en þeir vora báðir í leikbanni. -JKS Ný andlit hjá Keflavík Vilhjálmur Vilhjálmsson Fjórir nýir leikmenn hafa mætt á æfingar hjá úrvalsdeildarliði Kefla- víkur í knattspyrnu síð- ustu daga. Einn þeirra, Guðmundur Steinars- son, snýr nær örugglega aftur í sitt gamla félag eftir eitt ár með KA í 1. deildinni. Hinir eru Pavle Pavlovic, mark- vörður frá Júgóslavíu, sem hefur var- ið mark ísfirðinga og Bolvíkinga síð- ustu árin, Nígeriumaðurinn Saint Paul Edeh, sem var í röðum Framara síðustu vikur tímabilsins, og Vil- hjálmur Vilhjálmsson, fyrrum Vals- maður og KR-ingur, sem lék með Jacksonville Cyclones í bandarísku B- deildinni í sumar. Páll Guðlaugsson, þjálfari Keflavíkur, kom frá Brasilíu um helgina en þar sótti hann þjálfaranám- skeið. -VS Guðmundur Steinarsson. Opna kanadíska mótiö í júdó: Silfur til Gísla NBA-deildin í körfubolta hófst á ný í nótt: Breytingar - á NBA-liðum, reglum og leikvöllum Gísll Jón Magnússon nældi sér í silfur á opna kanadíska mótlnu f júdó. Bolton sagði nei Enska B-deOdarliðið Bolton hefur hafnað tilboði frá A- deildarliöinu Derby County í Eið Smára Guðjohnsen. Þetta kom fram á enska fréttavefnum Team talk í gær. Jim Smith, knattspymutjóri Derby, segist hafa sent tilboð til Bolton um síðustu helgi og í gær barst honum svar þess efnis að Bolton vildi ekki taka tilboði hans og fannst það vera of lágt. Ekki kemur fram hversu háa upphæð Smith bauð í Eið Smára eða hvort Derby ætlar að gera nýtt tilboð. -GH boltann, svo framarlega sem sóknar- maðurinn er staðsettur á sterku hlið- inni, það er þeirri sem boltinn er á í það sinnið. Almennt sjá menn að þessar nýju reglur eigi eftir að skapa nýja mögu- leika fyrir sóknarmenn, þar sem þeir eiga ekki að þurfa lengur að þola lík- amleg átök í leið sinni upp að körf- unni, varnarmennimir þurfa að fara að nota fætuma í stað handa, mjaðma, axla og olnboga. Breytingar á leikmannahópum era þónokkrar. Portland fékk sem dæmi þrjá sterka til sín í sumar, þá Scottie Pippen, Steve Smith og Detlef Schrempf og ljóst að þeir verða ekki auðunnir frekar en lið Los Angeles Lakers takist Phil Jackson, sem snýr nú aftur í deildina, að fá stjörnur sín- ar Shaquille O'Neal og Kobe Bryant til að spila fyrir liðið og sætta sín ágreiningsmál. Portland vann sem dæmi alla átta leiki sína á undirbún- ingstímabilinu. Þá er liði Phoenix, sem fékk Penny Hardaway frá Or- lando í sumar, meistarar San Anton- io og Charlotte Homets spáð góðu gengi í vetur. Nýir leikmenn úr há- skólum gætu sett sinn svip á deildina og menn ættu að leggja nöfn eins og Lamar Odom hjá Clippers, Steve Francis hjá Houtson, Wally Szczerbi- ak hjá Minnesota, Richard Hamilton hjá Wizards og Jason Terry hjá Atlanta á minnið auk þess að það koma alltaf nokkrir til með að slá í gegn, öllum spekingum að óvörum. Nýjar hallir Sex félög taka svo í notkun nýjar íþróttahallir í vetur. Þetta era liðin Atlanta Hawks, Denver Nuggets, Mi- ami Heat, Los Angeles Clippers, Los Angeles Lakers og Indiana Pacers. Siðast en ekki síst mun það örugg- lega gleðja margan NBA-áhugamann- inn að í stjömuleiknum í Oakland eftir áramót verður troðslukeppnin endurvakin eftir nokkurra ára fjar- vera. -ÓÓJ Gísli Jón Magnússon og Bjami Skúlason náðu frábæram árangri á opna kanadíska meistaramótinu í júdó um helgina. Gísli hlaut silfurverðlaun og Bjami hafnaði í fimmta sæti í sínum flokki. flokki. í þessum þyngdarflokki mættu 29 keppendur til leiks en hann er með þeim erfiðustu í júdó. Hér eru oftar en ekki flestir þátttakendur og samkeppnin hörðust. Þrír á ippon Gísli Jón Magnússon keppti í +100 kg flokki. í þessum þyngdarflokki voru 11 þáttakendur. Gísli mætti fyrst Mahmedovic Senko frá Kanada sem hann vann á ippon eða fullnaðarsigri. Síðan mætti hann Norat Oswaldo frá USA sem hann vann einnig á ippon, þar á eftir mætti hann Kent Alexander frá Kanada sem einnig varð að lúta í gras fyrir Gísla eftir fastatak í gólfglímu. Þessa glímu vann hann einnig á ippon. Þegar hér var komið sögu var Gísli kominn í úrslitaglímuna gegn Qerawaqa Nacaneri frá Fijieyjum. Úrslitaglimunni tapaði Gísli á svo kölluðu „pick up“ bragði. Bjami Skúlason keppti í -81 kg Tapaði á dómaraúrskurði í fyrstu glímu Bjama mætti hann Ricki Hawn frá Bandaríkjunum sem hann vann á ippon. 1 næstu glímu mætti hann Abderramao frá Puerto Rico og vann hann einnig á ippon. Þar á eftir mætti hann Reno Reser frá Bandaríkjunum sem einnig féll á ippon fyrir Bjama. Þegar hér var komið sögu var hann kominn í 4 manna úrslit en tapaði þar fyrir Daniel Kelly frá Austurríki. í glímunni hafði Bjami yfirhöndina lengst af en fékk þegar leið á glímuna refsistig og tapaði síðan á dómaraúrskurði. Hann glímdi um bronsverðlaunin við mjög sterkan breskan júdómann að nafni Luke Breston þar sem hann varð að lúta í lægra haldi. -GH Titov að verða klár LeverKusen-ManDor........ Dynamo Kiev-Lazio........ 0-1 Mamedov sjálfsmark (18.) Ferry De Haan stekkur upp á bak pólska markvarðarins í liði Feyernoord, Jerzy Dudek, f fagnaðarlátum liðsins eftir sigur á Rosenborg í Rotterdam í gærkvöld. Með sigrinum komst liðið í 16-liöa úrslít keppninnar. Reuter Það eru breyttir tímar í NBA-deildinni í körfubolta sem er enn að jafna sig eftir langt verkfall og stysta og stigalægsta tímabilið í sögunni. Keppni hófst í nótt og fram undan er spenn- andi vetur. Forráðamenn deild- arinnar tóku sig til í sumar og fundu upp breytingar á reglun- um og á meðan skiptu hðin um 75 leikmenn sem kemur til með að halda keppninni um titilinn opinni til að byrja með. Mörg lið sjá sér núna færi á að feta í fótspor San Ant- onio Spurs í fyrra. Auka flæðið San Antonio fagnaði eftir síðasta tímabil.að ofan, en breytingar á reglun, líkt og bannað er nú að bakka inn f varnarmann í meira en 5 sekúndur, að neðan, gæti þýtt miklar breytingar í NBA í vetur. Nýju reglumar eiga auka flæði í leikj- unum og leiða til meiri og skemmtilegri sóknarleiks. Harðari viðurlög við átökum án bolta og ýmsum öðram brotum eiga effir að leiöa til met- leikja í villufjölda til að byrja með en for- ráðamenn deildarinn- ar vonast eftir að eftir vissan aðlögunartima eigi leikimir eftir að verða hraðari, sókn- djarfari og almennt skemmtilegri fyrir áhorfendur. í fyrra skoraði aðeins eitt lið, Sacromento Kings, 100 stig að meðal- tali í leik og 9 lið náðu ekki að skora yfir 90 stig að meðaltali. New York Knick komst þannig alla leið í úrslit þrátt fyrir að vera í 27. sæti yfir flest stig skorað og ekkert lið hefur skor- að færri stig en Knicks gerðu í úr- slitaleikjunum gegn San Antonio. Nýjar reglur Athyglisverðustu breytingar á reglunum era að vamarmanninum er nú bannað að styðja annari hendi á sóknarmanninn og sóknarmaður- inn verður að losa boltann innan fimm sekúnda eftir að hann byijar að bakka að körfu fyrir neðan vítateigs- línu. Vamarliðum er nú líka leyft að tvidekka leikmenn sem ekki era með Framarar era að gera sér vonir um að hinn sterki línu- og vamarmaður þeirra, Rússinn Oleg Titov, verði senn klár í slaginn. Hann hefur lengi átt við þrálát meiðsli að stríða í baki. Á heimasíðu liðsins kemur fram að Titov fari jafnvel að leika með liðinu um miðjan mánuðinn en þá mæta Framarar liði Víkings. Anatoly Fedjukin, þjálfari liðsins, hefur sett kappann í sérstaka meðferð til að undirbúa hann sem best fyrir átökin. -JKS Bland i noka Ljóst er að Lokomotiv Moskva getur ekki stillt upp sínu sterkasta liði gegn Leeds United á Elland Road í UEFA-bikamum í kvöld. Tveir af bestu leikmönnum liðs- ins, Zaza Dzhanashia og Yuri Drozdov, eiga við slæm meiðsli að stríða og þjálfari Lokomotiv sagði í gær að líkumar á því að þeir fé- lagar lékju með gegn Leeds væra nánast engar. Gianluca Vialli, framkvæmda- stjóri Chelsea, neitaöi í gær að hafa lent í rifrildi við Ken Bates, stjómarförmann félagsins. Hann viðurkenndi hins vegar að þeir hefðu átt fund saman en hann hefði farið friðsamlega fram. Vitað er að Ken Bates er ekki ánægður með gengi Chelsea undanfarið og Vialli sagði í gær að hann skildi vel óánægju stjómarformannsins. Þrir leikir fóru fram í ensku B- deildinni í knattspymu í gær. Huddersfield lagði Ipswich, 3-1, Crewe tapaði fyrir Charlton, 0-2 og Stockport og QPRgeröu 3-3 jafntefli. Þrir leikir vora á dagskrá í 32- liða úrslitum í bikarkeppni karla í handknattleik í gær. Fjölnir tapaði fyrir ÍBV, 22-36. Miro Baric skoraði 11 mörk fyrir ÍBV en hjá Fjölni vora Ástþór Gudmundsson og Gunnar S. Tryggvason með 6 mörk hvor. Valur sigraði B-lið Fram, 31-17, og Valur-B lagði B-lið Breiðabliks, 36-18. -SK/GH NBA-DEILDIN SK Kemur Washington-Atlanta . xx xx New York-Cleveland . xx xx New Jersey-Indiana . . xx xx Miami-Detroit........ xx xx Charlotte-Orlando . . . xx xx Toronto-Boston....... xx XX SA Spurs-Philadelphia xx xx Dallas-Golden State . . xx xx Houston-Milwaukee . . xx xx Denver-Phoenix....... xx UEFA-BIKARINN 2. umferð, slöari leikir, samanlögð úrslit í sviga: AEK-MTK Budapest . . . 1-0 (2-2) 1-0 Ciric (74.) ' Monaco-Widzew Lodz . . 2-0 (3-1) 1-0 Lamouchi (50.), 2-0 Trezeguet (84.) Bologna-Anderlecht.... 3-0 (4-2) 1-0 Eriberto (45.), 2-0 Ze Elias (51.), 3-0 Nervo (90.) .Wolfsburg-Roda........1-0 (1-0) 1-0 Akonnor (87.) AEK komst í 3. umferðina á útimarkaregiunni en liðið tapaði fyrri leiknum í Ungverjalandi 2-1. Arnar Grétarsson lék ekki með AEK í gær. -GH Ætla að útvega 43 milljarða fyrir ÓL 2004 Grísk yfirvöld hafa lýst því yfir að þau hyggist öngla saman litlum 43 milljörðum króna fyrir Ólympíuleikana sem fram fara í Aþenu árið 2004. Einn af forráðamönnum grísku undirbúningsnefndarinnar greindi frá þessu í gær. Nefndin telur eðlilegt að reikna með 20 milljörðum króna frá stuöningsaöilum í Grikklandi og reiknað er með að sala ýmiss kon- ar varnings gefi 23 milljarða í aðra hönd. Á þessum tölum sést að það er ekki fyrir smáríki að halda ólympíu- leika. Og margir eru þeirrar skoðunar að kostnaður vegna leikanna sé fyrir margt löngu kominn úr böndunum. -SK Tveir FH-ingar hjá Wednesday Tveir ungir og efnilegir knattspymumenn úr FH era þessa dagana við æfmgar hjá enska A-deildarliðinu Shefifield Wednesday. Þetta era Bene- dikt Ámason og Magnús Ingi Einarsson sem báðir hafa leikið með drengja- og unglingalandsliðum íslands. Þeir fóra út á sunnudaginn og er áætlað að þeir verði hjá Wednesday í vikutíma. -GH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.