Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1999, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1999, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1999 9 Utlönd Hús standa í Ijósum logum í Ajengule fátækrahverfinu f Lagos, höfuðborg Nígeríu. Að minnsta kosti fimmtán manns hafa fallið i átökum ættbálka í hverfinu undanfarna daga og margir tugir verið handteknir. Grænlenska heimastjórnin jákvæð í garð Bandaríkjanna: Gefur grænt kjarnorkuljós Jonathan Motzfeldt, formaður grænlensku heimastjórnarinnar, hefur gefið bandarískum stjórnvöld- um grænt ljós á að nota herstöðina í Thule í umdeildu vamarkerfi gegn kjarnorkuflugskeytum. Grænlend- ingar setja þó þrjú skilyrði fyrir leyfinu. „í fyrsta lagi viljum við sitja við borðið ef boðað verður til samninga- viðræðna Dana og Bandaríkja- manna. í öðru lagi verða Rússar að fallast á áform Bandaríkjamanna í Thule. Og í þriðja lagi mega Græn- lendingar ekki bera neinn íjárhags- legan skaða af, efnahagslegan eða umhverfislegan. Spumingin um bætur kemur líka til með að hafa áhrif á afstöðu okkar,“ segir Motz- feldt í viðtali við danska blaðið Berl- ingske Tidende í dag. Niels Helveg Petersen, utanríkis- ráðherra Danmerkur, skýrði Motz- feldt frá flugskeytaáformum Banda- ríkjanna í Grænlandsheimsókn sinni í síðustu viku. Jonathan Motzfeidt leggur ríka áherslu á að Grænlendingar vilji ekki verða að ásteytingarsteini í nýju köldu stríði. Fjármálaráðherra Frakklands: Segir af ser vegna fjármálahneykslis Hinn vinsæli fjármálaráðherra Frakklands, Dominique Strauss- Kahn, bað í gær Lionel Jospin for- sætisráðherra um lausn frá emb- ætti. Síðastliðinn fóstudag heimil- aði ákæruvaldið rannsókn á því hvort eitthvað væri hæft í ásökun- um um aö fjármálaráðherrann hefði þegið greiðslu fyrir starf sem hann hefði ekki innt af hendi. Um er að ræða greiðslu upp á 7 milljónir íslenskra króna sem Strauss-Kahn fékk frá tryggingafé- lagi námsmanna 1997 fyrir lög- mannsstörf. Þóknunina fékk Strauss-Kahn fjórum mánuðum áð- ur en hann varð fjármálaráðherra í stjórn Jospins. Strauss-Kahn sagði í gær að ekki hefði verið neitt ólöglegt við starf sitt fyrir tryggingafélagið né heldur Jospin vonar að Strauss-Kahn komi til starfa á ný sem fyrst. launin sem hann fékk. Hann viður- kenndi þó að allt kynni ekki að hafa verið með felldu við greiðsluna á reikningnum frá honum. Fjármálaráðherrann tók það fram að hann væri ekki að segja af sér vegna þess að hann teldi sig sekan á einhvern hátt heldur vegna þess að siðferðilega væri það rétt. Jospin hrósaði vini sínum á full- setnu þinginu í gær og gaf í skyn að hann vildi fá Strauss-Kahn aftur til stjórnarstarfa eins fljótt og hægt væri. Fjármálaráðherra Þýska- lands, Hans Eichel, lofaði i gær störf Strauss-Kahns og sagði hann ekki aðeins hafa haft hagsmuni Frakk- lands í huga. Lawrence Summers, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, óskaði Strauss-Kahn velfarnaðar. Christian Sautter fjárlagaráðherra verður fjármálaráðherra Frakk- lands fyrst um sinn. Afsögn Strauss-Kahn getur orðið pólitískt áfall fyrir Jospin. Strauss- Kahn var ein af stjömunum í ríkis- stjórninni og var oft nefndur sem mögulegur eftirmaður Jospins. oQO/o f: Blair sakaður um uppgjöf Bresku blöðin sökuðu Tony Blair og ríkisstjórn hans í morg- un um aö hafa gefist upp fyrir Frökkum í nautakjötsstríðinu. Stjórnvöld þvertóku fyrir að svo væri. Nick Brown og Jean Glavany, landbúnaðarráðherrar Bretlands og Frakklands, urðu ásáttir um það á fundi sínum í Brussel í gær að vísindamenn skyldu rannsaka fimm atriði til að reyna að finna lausn á deilunni. Bretar hafa haft yfirhöndina í deilunni frá því vísindanefnd Evr- ópusambandsins úrskurðaði síð- astliðinn fóstudag að ótti Frakka við kúariðu í bresku nautakjöti væri ástæðulaus. Frakkar vildu ekki selja kjötið vegna þessa. Styrktarfélag vangefinna Dagheimilið Lyngás Þroskaþjálfar og stuðningsfulltrúar óskast til vinnu. Um er að ræða heilar stöður og hlutastörf. Stöðurnar eru lausar nú þegar eða eftir nánara samkomulagi. Lyngás er sérhæfð dagvist fyrir börn og unglinga, staðsett í Safamýri 5. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum. Allar nánari upplýsingar veita, Þórunn Böðvarsdóttir forstöðu- þroskaþjálfi og Hrefna Þórarinsdóttir yfirþroskaþjálfi í símum 553 8228 og 553 3890 alla virka daga. Hæfingarstöðin Bjarkarás Þroskaþjálfar og stuðningsfulltrúar óskast nú þegar til starfa. Um er að ræða heilar stöður og hlutastörf. í Bjarkarási, Stjörnugróf 9, sækja um 50 manns vinnu og þjálfun milli kl. 9.00 og 16.30. Þjónustan felst í starfs- og félagsþjálfun ásamt ýmsu sem tengist athöfnum daglegs lífs. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum. Nánari upplýsingar veita Þórhildur Garðarsdóttir forstöðu-þroskaþjálfi og Guðrún Eyjólfsdóttir yfirþroskaþjálfi í síma 568 5330 alla virka daga. Sambýlið Víðihlíð 5 Þroskaþjálfar og stuðningsfulltrúar óskast nú þegar í hlutastörf, kvöld- og helgarvaktir. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum. Upplýsingar gefur Laufey Hafsteinsdóttir forstöðu-þroskaþjálfi í síma 581 3794, milli kl. 9.00 og 13.00 alla virka daga. Einnig veitir Erna Einarsdóttir starfsmannastjóri upplýsingar um ofangreind störf í síma 551-5941 á skrifstofu félagsins, Skipholti 50c. Blákaldar sti Heiti Brútto Lrtrar Hæð sm. Breidd sm. Dýpt sm. Körfur sem fyigja Læsing Einangrun þykkt i mm. Rafnotkun m/v 18°C umhv.hita kWh/24 klsL HlboðsverA ttgr. HF120 132 86 55 61 1 Nei 55 0,60 20.900 HFL 230 221 86 79 65 1 Já 55 0,84 33.900 HFL 290 294 86 100 65 1 Já 55 1,02 35.900 HFL 390 401 86 130 65 2 Já 55 1,31 39.900 EL 53 527 86 150 73 3 Já 60 1,39 46.900 EL 61 607 86 170 73 3 . Já 60 1,62 53.900 Vesturland: Hljómsýn, Akranesi. Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi. I Kf. Steingrímsfjarðaq Hólmavík. Kf. V-Hún„ Hvammstanga. Kf. Húnvei Fáskrúðsfirði. KASK, Hðfn, KASK Djúpavogi. Suðurland: Mosfell, Hellu.” mömmm Irði. Ásubúð, Bú Urð, Raufarhöfn, ines, Vesl ðln Geii Sveinn G jr. Vík. Reykjanes: L Rafverk, Bolungarvík. Straumur, fsafirði. Pokahornið, Tálknafirði. Norðurland: Radionaust, Akureyri. lirswrarbúðin, Hatreksfiröi. Rafverk, Bolunqai ____________________ t Sveinn Guðmundsson, Egilsstöðum. Kf. Vopnafirðinga, Vopnafirði. Kf. Stöðfirðinga. Verslunin Vík, Neskaupstað. Kf. Fáskrúðsfirðingá, »*: Ljósbogin Keflavík. Rafborg, Grindavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.