Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1999, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1999, Blaðsíða 32
 aðvimm FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1999 Hestaskóli: Minn stíll - segir skólastjórinn „Það er búið að leiðrétta þann misskilning sem mér fannst afskap- lega lítill og var kannski hægt að leiðrétta tveimur dögum fyrr, áður en þessi misklíð kom upp,“ sagði Hafliði Halldórs- son, skólastjóri Hestaskólans, við DV í gærkvöld. Mikil óángja hefur komið upp meðal nemenda með kennsluhætti Hafliða. Eftir mikil fundahöld í gær og fyrradag var ákveðið að nýir kennarar tækju yið kennslunni. Hafliði sagði að svo virtist sem nemendur hefðu ekki treyst því að allir þættir námsefnisins yrðu kenndir, af því að töf hefði orðið á kennslunni. I einu tilviki hefði t.d. gestakennari verið upptekinn ann- ars staðar. í öðru hefðu hestafætur, sem nota átti til æfmga við jáming- ar, ekki komið úr sláturhúsinu á til- settum tíma. „Svo get ég tekið á mig, það sem ég fékk frá nemendum, að ég hafi orkumikla og kröftuga framkomu. Ég er afskap- lega feginn að hafa þennan kraft og þessa orku. Þetta er minn stíll. Ef hann passar ekki fyrir alla nemend- ur þá er hægt að breyta því. Sem betur fer virðist hann passa öðr- um.“ Hafliði kvaðst mundu mæta í kennslu í morgun eins og ekkert hefði í skorist. Nánar á bls. 2 -JSS Hafliði Halldórs- son. Gengið frá kaupum íslenskra fjárfesta á breska knattspyrnuliðinu Stoke í gær: John Coates, Sigurður Einarsson, Magnús Kristinsson og Júlíus Bjarnason. DV-mynd E.Ói. Frestun samninga Verkamannasambandsins og viðsemjenda: 100 þúsund og ráðherravísitölu - er krafan, segir Pétur Sigurðsson Sparifé og lán „Kaup mín í FBA fyrir 114 milljón- ir eru fjármögnuð með sparifé mínu, svo og lántöku. Ég tel ekki eðlilegt að greina nánar frá hvemig skipting- in er í því dærni," sagði Bjarni Ár- mannsson, for- stjóri Fjárfesting- arbanka atvinnu- lífsins, um kaup sín í fyrirtækinu sem hann stjóm- ar. - Varla á mað- ur, nýkominn úr skóla, svona mikið sparifé? „Ég er ekki nýkominn úr skóla, hef verið á vinnumarkaðnum í áratug en ég veit að ég er unglegur," sagði Bjarni. „Með þessum kaupum mínum legg ég allt undir, starfsheiður og al- eigu.“ - En mánaðarlegar afborganir af láninu hljóta að vera miklu hærri en mánaðarlaun þín hjá FBA? „Það fer eftir þvi hvemig afborgun- arferlið af láninu er. Láninu er stillt upp með tilliti til aðstæðna." -EIR Bjarni Ármanns- son. DV, Akureyri: „Að mínu mati er hægt að fresta samningum ef það fæst í gegn í fyrsta áfanga i því frestunarferli að lágmarkslaun verði 100 þúsund krónur. Þetta er mitt mat og ég myndi ekki mæla með lægri upp- hæð,“ segir Pétur Sigurðsson, for- maður Verka- lýðsfélagsins Baldurs á ísa- firði, um það að fresta kjarasamn- ingaviðræðum Verkamanna- sambands ís- lands og viðsemj- enda þeirra í allt að eitt ár, gegn því að tvívegis komi til á frestunartíma- bilinu verulegar launahækkanir. Pétur segir að aðferðafræðin sjálf í komandi kjarasamningum sé ekki það sem öllu máli skiptir, megin- málið sé með hvaða kröfur eigi að fara fram og hvað komi til með að nást. „Samþykkt þings Verka- mannasambandsins nú að höfuðá- Pétur Sigurðs- son, formaður Verkalýðsfélags- ins Baldurs. herslan og raunar eina áherslan í komandi kjarasamningum sé að ná upp launatöxtum verkafólks er mjög góð,“ segir Pétur. En hverjar telur hann að kröfumar eigi að vera? „Ég held að það sjái það allir núna að kröfur okkar um 100 þús- und króna lágmarkslaun í samning- unum 1997 hafi átt fullkomlega rétt á sér. Það hefur sýnt sig að það var til svigrúm sem aðrir hafa nýtt sér, launaskriðið og 50 milljóna króna tekjuskattur ríkisins umfram það sem reiknað var með sanna það full- komlega. En það er eins með kjara- bæturnar og kvótann, þetta hleðst á fáar hendur. En það mælir allt með verulegri launahækkun lægstu launa núna og e.t.v. væri ekki vit- laust að taka Í00 þúsund króna upp- hæðina sem við vildum sem lág- markslaun 1997 og margfalda þá tölu með launavísitölu ráðherra, hver sem hún svo er,“ segir Pétur. -gk Stunginn með veiðihníf Ungur maður var stunginn með veiðihníf í kviðinn laust eftir mið- nætti í nótt. Árásarmanninum og hin- um stungna hafði orðið sundurorða en það endaði með því að tekið var til vopna og annar aðilinn særður illa. Atburðurinn átti sér stað við Nonna- bita í Hafnarstræti. Mennirnir sem um ræðir voru á svipuðum aldri en hinn stungni tuttugu og eins árs. Hann kom sér sjálfur á slysadeild eft- ir árásina en þaðan var haft samband við lögregluna. Hann gekkst strax undir aðgerð en stungan hafði náð alla leið niður í lifúr. Þá voru stungu- sár á btjóstkassanum en þau voru grynnri en á kviðnum. Að sögn vakt- hafandi læknis gekk aðgerðin vel og verður hann útskrifaður af gjörgæslu í dag en hafður undir eftirliti í nokkra daga. Líðan hans er eftir atvikum. Lögreglan handtók árásarmanninn á heimili sínu og gisti hann fanga- klefa í nótt. Málið er hjá rannsóknar- deild lögreglunnar en hann verður yf- irheyrður í dag. Umræddur maðm- hefur áður komið við sögu hjá lögregl- unni. -hól Leikskólauppsagnir: Hnífstunga í bakiö - segir talsmaður „Þessar uppsagnir voru eins og hnífstunga i bakið á okkur og við byrjum á því að reyna fá þær dregn- ar til baka,“ sagði Elísabet Gísla- dóttir, talsmaður foreldra leikskóla- barna, en hún sat fund stjórnar Leikskólaráðs nú í morgunsárið. El- ísabet lagði fram kröfu um að upp- sagnir dvalarsamninga á tólf leik- skólum verði dregnar til baka. „For- eldrar upplifa þetta sem mismunun milli leikskóla þar sem það eru að- eins tólf leikskólar sem hafa fengið uppsögn en við leggjum jafnframt til hliðarsamninga við gömlu samning- ana sem koma til móts við starfs- mannaekluna," segir Elísabet. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri lagði í gær fram tillögu um 70 milljóna króna aukafjárveitingu til leikskólanna. -GAR Litla Hraun - þétt setinn bekkurinn af gæsluvarðhaldsföngum. Stóra fíkniefnamálið: Gæsluvarðhald að renna út Gæsluvarðshaldsúrskurður yfir tólfta manninum sem settur var á bak við lás og slá í stóra fíkniefna- málinu rennur út á morgun. Maður- inn var úrskurðaður í gæslu að kröfu efnahagsbrotadeildar ríkislög- reglustjóra sunnudaginn 24. októ- ber. Hann er búsettur í Vogum á Vatnsleysuströnd og var á árum áður einn af rekstraraðilum Bláa lónsins. Við húsleit á heimili mannsins fundust munir og gögn sem talið er að tengist fíkniefnamál- inu. Aðrir gæsluvarðhaldsúrskurðir í málinu renna út um og eftir miðjan þennan mánuð. Að öllu óbreyttu verða fjórmenningarnir, sem upp- haflega voru settir í gæslu, lausir 13. nóvember en þá hafa þeir setið í gæsluvarðhaldi í tvo mánuði. Flest- ir gæslufanganna hafa verið hafðir í haldi á Litla Hrauni og þar hefur bekkurinn verið þéttsetinn. Ellefu menn sitja nú í gæsluvarðhaldi í stóra fikniefnamálinu og einum hef- ur verið sleppt þar sem þáttur hans í málinu þótti upplýstur. -EIR I I I I I I I I I í I Í Í í í i i i i i i i i i i i i i Veðrið á morgun: Kólnandi veður Norðan- og norðvestanátt verður á morgun, víðast 5 til 10 m/s. É1 verða um norðanvert landið en víða léttskýjað um land- ið sunnanvert. Heldur kólnandi í bili. Veðriö í dag er á bls. 37. Jólakort t Sími 569 4000 Hafnarbraut 23, Kóp.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.