Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1999, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1999, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1999 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjómarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓLI BJÖRN KÁRASON Aöstoðarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVlK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuöi 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblað 250 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Nátttröll í nútíma Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins er að líkindmn óþarfasta ríkisfyrirtækið sem eftir lifir - nokkurs konar nátttröll í nútímanum. Það er furðulegt að undir lok 20. aldar skuli talið nauðsynlegt að ríkið stundi smásölu- verslun. Nýkaup hefur vakið athygli á þeim fáránleika sem ríkir í verslun með áfengi hér á landi með því að opna „sýndaráfengisverslun“. Viðskiptavinir Nýkaups geta að vísu ekki keypt rauðvínið með steikinni þar sem vamingurinn er geymdur bak við lás og slá. Þetta fram- tak forráðamanna Nýkaups er þarft verk og minnir á þá tíma þegar ekki mátti selja mjólk nema í sérstökum verslunum. Æ fleiri íslendingar eru famir að átta sig á hversu frá- leitt það er að ríkið skuli enn stunda smásöluverslun og hægt og bítandi hafa verið stigin skref í þá átt að leysa Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins upp. Friðrik Sophus- son, þáverandi íj ármálaráðherra, tók af skarið þegar hann ákvað að ÁTVR skyldi hætta innflutningi á áfengi. Geir H. Haarde, eftirmaður hans í fjármálaráðuneytinu, getur rekið smiðshöggið á verkið. Auðvitað eiga einkaaðilar að hafa leyti til að stunda smásölu með áfengi enda uppfylli þeir ákveðnar kröfur um hvemig staðið sé að sölunni. Raunar hefur ÁTVR þegar samið við einkaaðila um að annast smásölu á áfengi víða um land og hefur það gefist vel. Reynslan sem þegar hefúr skapast vísar því veginn í þessum efn- um. Fyrirkomulag áfengisverslunar er angi af úreltri áfengislöggjöf sem mismunar innlendum framleiðend- um sem eiga litla eða enga möguleika á því að stunda eðlilegt markaðsstarf á meðan erlendir framleiðendur hafa óheftan aðgang að auglýsingum í erlendum fjöl- miðlum sem íslendingar eiga síðan fullan aðgang að. ÁTVR var söguleg tímaskekkja þegar fýrirtækið var stofnað og er furðufýrirbæri í frjálsu samfélagi manna. Til að bjarga saltfiskmörkuðum á Spáni og vegna bágrar stöðu ríkisissjóðs var ákveðið að leyfa innflutning á Spánarvínum - gerð var undanþága frá bannlögum - og til að annast sölu þeirra var Áfengisverslun ríkisins komið á fót árið 1922. Nú, 77 árum síðar, lifir ríkisversl- unin enn. Frelsi er hins vegar komið á í útflutningi á saltfiski og Sölusamband íslenskra fiskframleiðenda hf. er orðið eitt öflugasta fyrirtæki sinnar tegundar í heim- inum. Sumt breytist með timanum en annað ekki - að minnsta kosti ekki fyrr en stjómvöld eru tilneydd. Misskilningur Jóhanna Sigurðardóttir virðist ekki skilja að það geti verið eðlilegt að fyrirtæki verði verðmætari eftir því sem tíminn líður. Hún hefúr ekki hugmyndaflug til að gera sér grein fyrir því að hugsanlegt sé að ríkisfyrir- tæki, sem em seld einstaklingum, verði verðmeiri eftir sölu en fyrir hana. í huga Jóhönnu er ekkert samhengi milli þess að dregið sé úr áhrifúm stjómmálamanna á stjómun fyrirtækja og verðmætis þeirra. En allra síst getur Jóhanna Sigurðardóttir unnt þeim tugum þúsunda einstaklinga sem keyptu hlutabréf í rík- isbönkunum þess að græða ofurlítið af fjárfestingunni. Þess vegna er Jóhanna andvíg einkavæðingu ríkisfyrir- tækja og þess vegna grípur hún hvert tækifæri sem gefst til að gera sölu ríkisfyrirtækja tortryggilega. Óli Björn Kárason „íslendingar hafa tekiö á móti 234 flóttamönnum á sl. 40 árum. Þaö jafngildir 6 manns á ári aö meðaltali. - Hjá Rauöa krossinum. Undirbúningur að komu flóttamanna. Eru pólitískir flótta- menn óvelkomnir? var veitt pólitískt hæli en 12 menn fengu land- vistarleyfi af mannúð- arástæðum. íslending- ar hafa tekið á móti 234 flóttamönnum á sl. 40 árum. Það jaftigildir 6 manns á ári að meðal- tali. Það fólk hefur hins vegar allt fengið hæli á íslandi fyrir milligöngu Flótta- mannahjálpar Samein- uðu þjóðanna. í haust gerðu dóms- málaráðuneytið og Rauði kross íslands með sér samning þar sem Rauði krossinn skuldbindur sig til þess að veita hælisleitend- um aðhlynningu og fyr- „ Við verdum að vona að enginn láti sér til hugar koma að setja næsta mann sem óskar eftir póli- tísku hæli í gæsluvarðhald, enda um fráleita og ómannúðlega meðferð að ræða sem brýtur í bága við alþjóðasamninga sem ísland er aðili að. “ Kjallarinn Þórunn Svein- bjarnardóttir þingkona fyrir Samfylk- inguna á Reykjanesi Kúrdi að nafni Marewan Mostafa Ali sótti um póli- tískt hæli á íslandi fyrir nokkru. Mað- urinn fékk fremur óblíðar móttökur yf- irvalda. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald og vistaður innan um dæmda sakamenn áður en Hæstiréttur hnekkti úrskurðin- um. Það ber hvorki vott um skilning né umburðarlyndi yfir- valda að það fólk sem hér reynir að sækja um pólitískt hæli skuli fá mót- tökur sem þessar. Við verðum að vona að enginn láti sér til hugar koma að setja næsta mann sem óskar eftir pólitísku hæli í gæsluvarð- hald, enda um frá- leita og ómannúð- lega meðferð að ræða sem brýtur i bága við alþjóða- samninga sem ís- land er aðiii að. Enginn fengið pólitískt hæli Mál Kúrdans hefur orðið til þess að vekja athygli á þeirri stað- reynd að íslensk yfirvöld hafa aldrei veitt einstaklingi hæli sem pólitískum flóttamanni. Sú stað- reynd talar sínu máli og er íslend- ingum til lítils sóma. Árið 1997 sóttu 6 manns um pólitískt hæli hér á landi en enginn fékk. Á síð- asta ári báðu 24 einstaklingar um pólitískt hæli á íslandi. Engum irgreiðslu í allt að 3 mánuði á með- an yfirvöld hafa mál þeirra tU at- hugunar. Samningurinn er án nokkurs vafa skref í rétta átt en mál Kúrdans sýnir glöggt að nauð- synlegt er að verklagsreglur séu skýrar í málum sem þessum svo að réttindi hælisleitenda séu tryggð. Þegar Samfylkingin tók mál Marewans Mostafa Ali upp á Al- þingi gerði Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra í löngu máli grein fyrir því með hvaða hætti hann hefði komist tU landsins, þ.e.a.s. fyrir miUigöngu manna sem hafa aleiguna af fólki með því að lofa því fari til Vesturlanda. Glæpastarfsemi sem þessi er þekkt um víða veröld en ráðherrann virtist ekki gera sér grein fyrir því að hún var ekki tU umfjöllunar að undirlagi Samfylkingarinnar held- ur mannréttindabrot íslenskra yf- iralda. Kúrdar ofsóttir í írak Nú er það svo að Kúrdar sem búa í írak eiga þess engan kost að komast úr landi nema með ólög- legum hætti. Fyrir því er einfold ástæða. Stjóm Saddams Hussein leyfir ekki útgáfu vegabréfa tU Kúrda. Marewan Mostafa Ali er frá bænum Halabja í Kúrdistan. Halabja komst í heimsfréttirnar árið 1988 þegar írakski herinn gerði eiturgasárás á hann með skelfilegum aíleiðingum. Mostafa Ali hefur greint frá því í fréttavið- tali við DV að hann hafi misst ást- vini í þeirri árás. Við skulum hafa það hugfast að fólk sem er ofsótt af yfirvöldum í heimalandi sínu á oft engan annan kost, vUji það bjarga lífi sínu, en að verða sér úti um fölsuð skilríki tU þess að komast úr landi. Þingmenn Samfylkingarinnar hafa á liðnum árum margoft kaU- að eftir því á Alþingi að lög um út- lendinga frá árinu 1965 verði end- urskoðuð og færð tU nútímalegs horfs. Ráðherrar dómsmála hafa margboðað slíka endurskoðun en enn bólar ekkert á nýju frum- varpi. Það er löngu tímabært að málefni hælisleitenda verði tekin tU gagngerrar endurskoðunar hér á landi og þeirri spumingu m.a. svarað hvort pólitískir flóttamenn séu yfirhöfuð velkomnir á íslandi. Þórunn Sveinbjarnardóttir Skoðanir annarra Kaupmenn og áfengissala „Það heyrist oft í umræðum um fikniefni, að áfengi sé fyrsta kveikjan að notkun sterkari efna. Menn sem selja fíkniefni eru réttUega dæmdir í fang- elsi hafi þeir verið fundnir sekir fyrir dómi. ... Þeir kaupmenn sem sækjast eftir að græða á sölu áfengis verða að taka að sér rekstur sjúkrahúsa, án styrks frá ríkissjóði, ef þeir næðu sínu fram, þ.e. þeirra sjúkrahúsa sem eru tU að endurhæfa þá sem verða að sjúklingum af völdum þeirra eiturlyfja sem þeir hugsanlega selja. Samanber mörg ríki í Bandaríkj- unum sem gera seljendur áfengis ábyrga fyrir gjörð- um vímuþegans. Það er engin sanngirni að þegnar landsins greiði þann sjúkrakostnaö sem seljendur áfengis eru óbeint valdir að.“ Sigurður Magnússon í Mbl. 2. nóv. Ósóminn verði haminn „Klámbylgjan er eðlileg afleiðing þeirrar óheftu markaðshyggju sem íslendingar hafa játast undir um hríð. Þegar aUt er gefið frjálst án þess að kann- að sé fyrirfram hvaða afleiðingar það muni hafa, þá er þess að vænta að gróðafíklar leiti í þá starfsemi sem löngum hefur verið arðbærust á jarðríki - Það er að höfða tU lægstu hvata mannskepnunnar og fá borgað fyrir. Vonandi nær sú andúð á taumlausri klámvæðingu, sem nú gerir loksins vart við sig, að magnast svo á næstunni að stjórnvöld neyðist tU að hemja ósómann." Elías Snæland Jónsson í Degi 2. nóv. RÚV verði gert samkeppnisfært Ef fólk er spurt um afnotagjald eru flestir óhress- ir með þetta óréttiæti sem endurspeglast í því að þú þarft að greiða afnotagjald af einum miðli til þess að geta horft á annan.... Ríkisútvarpið fær nú fé á fjár- lögum og afnotagjald sem sýnir að við rekstur Ríkis- útvarpsins er mikið að athuga þegar íslenska út- varpsfélagið getur rekið 3 sjónvarpsstöðvar og þrjár útvarpsstöðvar með afnotagjaldi og auglýsingatekj- um.... Okkur ber að gera Ríkisútvarpið samkeppnis- fært á markaði og haga tekjuöfiun stofnunarinnar á sömu nótum og aðrir einkaaðUar þurfa að gera. Lát- ið landsmenn fá afruglara að sjónvarpinu, þá geta menn valið hvort þeir gerast áskrifendur." Hinrik Fjeldsted í Mbl. 2. nóv.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.