Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1999, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1999, Blaðsíða 28
onn 36 MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1999 Steingrímur og umhverfismálin „Þaö er helvíti aö hann skuli ekki hafa verið kominn á þessa skoðun, sem hann hefur i Eyjabakka- málinu, þegar hann stóð að því að sökkva heiðum undir Blöndulón." Páll Pétursson fé- lagsmálaráöherra um ummæli Stein- gríms Hermannssonar, í Degi. Nudda sér eins og riðuveikar rollur „Þegar farið var að flytja inn stúlkukindur sem nudduðu sér upp við stálsúlur líkt og riðu- veikar rollur við garða var talið að um. listdans væri að ræða enda ömuðust engir við þessu nema nokkrar hjartveikar kerl- ingar.“ Katrín Andrésdóttir dýralæknir, í Morgunblaðinu. Spennufíklar „Ég get nefiit sem dæmi að þó nokkrir frægir þjálfarar úti í heimi hafa dáið úr hjartaslagi á vara- mannabekknum. Það má eiginlega , lýsa okkur sem spennufiklum." Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari, í Degi. Þjóðaríþróttin „Upplýst er að hann hafi orð- ið að borga 450.000 kr í sekt vegna „skattaóreiöu" að eigin sögn, og getur þá hver og einn metið hvort hér sé um mann- orðshreinsun aö ræða eða afrek i íslensku þjóðaríþróttinni." Jónas Bjarnason efnaverkfræð- ingur um Hrannar B. Arnarsson, ÍDV. Siðferði á brauðfótum „Siðferði stjórnmálaflokkanna hér stendur á brauðfótum. Það breytist ekki fyrr en flokkamir verða framtals- skyldir og fjármál þeirra verða að- gengileg fyrir alla.“ Valdimar Jóhann- esson, í miðstjórn Frjálslynda flokksins, í Morgunblaðinu." Bara eitthvað annað „Fjallagrös og ber eru eitt af þeim molum sem allsnægtar- þjóðfélag umhverfisvemdar- sinna býður Austfirðingum að láta sér verða að góðu til lífsvið- urværis, ásamt þessu sem engin veit hvað er, og heitir á þeirra máli: „Bara eitthvað annað“.“ Karólína Þorsteinsdóttir, hús- móðir á Seyðisfirði, í Morgun- blaðinu. Arthur Bogason, formaður félags strandveiðimanna á Norður-Atlantshafi:' Sameinumst til að geta ver- ið virkir á alþjóðavettvangi „Það var fyrir um fjórum árum að hugmyndir kviknuðu um það að Landssamband smábátaeigenda hefði forgöngu um að stofna félag strand- veiðimanna í Norður-Atlandshafi," segir Arthtn- Bogason, formaður Landsambands smábátaeiganda. „Ég hóf í kjölfarið á samþykkt aðalfundar félagsins að hafa samband við menn í löndunum í kringum okkur. Til að gera langa sögu stutta þá var loka- punkturinn í þessu ------------------------------- ferli á laugardag- MaAiii' dafiTSinS inn þegar félagið lflflUUI var stofnað með undirskrift fjögurra af þeim fimm þjóðum sem standa að stofnun félags- ins, en það eru auk okkar Ný- fundlendingar, Grænlendingar, Fær- eyingar og Norðmenn. Ég á von á því að fleiri þjóðir komi inn í félagsskap- inn fljótlega," segir Arthur Bogason, formaður Landsambands smábátaeig- anda sem var einn fulltrúa á stofn- fundinum. Arthur segir undirtektir annarra þjóða hafi verið góðar frá upphafi: „Það voru allir tilbúnir að vera með en á tímabili var eins og allt væri á móti okkur þegar átti að fara að stofha samtökin, alls konar uppákom- ur sem komu í veg fyrir það. Það var síðan í sumar að ég sá lag til að klára þetta og það tókst. Nú er bara að fylgja eftir markmiðum félagsins sem er að standa vörð um réttindi strand- veiðimanna á þessu svæði og jafn- framt gæta að hlutur strandveiði- manna sé ekki skertur þegar kemur að veiðileyfum. Strandveiðimenn um allan heim eru að upplifa það að rík- isstjómir eru að gera alls konar milli- rikjasamninga um veiðar án þess að hafa nokkurt samband við fólk sem lifir á veiðunum. Við munum síðan fylgja þessum markmiðum okkar eftir og verður næsti fundur 5. febrúar í Hamborg". Arthur segir þetta framtak, ásamt því að vera stofnendur alþjóðasam- taka strandveiðimanna sem stofhuð vom 1957, sé viðleitni samtakanna hér heima að fylgja eftir tá tímanna: „Umræðan um sjáv- arútvegsmál og nýt- ingu auðlinda hafsins er alltaf að fær- ast á víðari grundvöll og til þess að geta verið virkir þátttakendur í þessari umræðu þá verðum við að sameinast með þessum hætti." Arthur hefur veitt samtökum smábátaeigenda forystu um ára- bil: „Það hefur fækkað í samtök- unum undanfarin ár vegna þess að kerfinu hefur verið stillt þannig upp að menn eru að úrelda og sameina báta en ég hygg nú að úr þessu fækki þeim ekki mikið. Það em í kringum ell- efu hundruð bátar sem em þátttakend- ur í þess- um veið- um og ég tel að sú tala eigi eftir að verða stöðug." Arthur hefur sjálfur ekki farið til veiöar í mörg ár: „Ég hef ekki róið í mörg ár og sakna þess mjög. Þetta var mitt líf og yndi. Á sínum tíma varð ég að ákveða það hvort ég ætlaði að vera í landi eða halda áfram veiðum. Ég kaus félagsmálin þar sem mér fannst þau spennandi og sérstaðan mikil og taldi að ég gæti farið í sjómennskima síðar, en hvort kerfið býður upp á það þegar að því kemur veit ég ekki. Ég er ekkert óhress með valið. Þetta er búið að vera mikil upplifun að standa í þessum málum á þessrnn mnbrotatím- um og svo hefði ég ekki viljað missa af þeirri umræðu sem er um hafið og nýtingu þess á alþjóðavettvangi. Því er þó ekki hægt að neita að það kemur fyr- ir þegar ég horfi á haf- ' flötinn að mér finnst óþolandi að vera að fara á skrifstofuna i stað þess að fara niður á bryggju." -HK Almenn skyndihjálp Á morgun hefst á vegum Reykjavíkurdeildar RKÍ nám- skeið i almennri skyndihjálp. Kennsludagar eru þrír. Kennt er frá 19-23 í Fákafeni 11. Þátttaka er öllum heimil sem eru orönir funmtán ára og eldri. Meðal þess sem kennt veröur á námskeiðinu er blástursmeðferðin, endurlífg- un með hjartahnoði, hjálp við bruna, beinbrotum og blæðingum úr sáruhi. Einnig verður fjallað um helstu heimaslys. DNA-bóluefni gegn ofnæmi Á morgun kl. 12.30 verður haldinn fræðslufundur að Til- rauna- Samkomur stöð Hí 1 ________________meina- fræði, Keldum, í bókasafninu í miðhúsi. Sigurbjörg Þorsteinsdóttir ónæm- isfræðingur flytur erindið DNA- bóluefni gegn ofhæmi. Cyrano de Bergerac Kvikmyndin Cyrano de Bergerac með Gérard Depardieu verður sýnd í Kvikmyndaklúbbi Alliance Francaise í kvöld kl. 20.30 í húsakynnum Alliansins að Austurstræti 3. Myndin er með enskum texta. Fjallkonumar og Hvítabandið Kvenfélagið Fjallkonumar fer í heimsókn á fund til Kvenfélagsins Hvítabandið í dag. Hefst fundur- inn kl. 20.30 að Hallveigarstöðum. Gengið um Sundahafn- arsvæðið I kvöld stendur Hafnagöngu- hópurinn fyrir gönguferð um hafnarsvæði Sundahafnar. Far- ið verður með rútu frá Hafnar- húsinu kl. 20 inn að Hrafnistu. Allir eru velkomnir i ferð með Hafnagönguhópnum. Myndgátan ~ÞAÐ HePUX. /pUfípT AÐ SJOOfí 4 \/S>P)C> SfífítfíA’ eer'fí 'fvefíAt se. 3o hfí^O Stendur með blóma Myndgátan hér að ofan lýsir hvorugkynsorði. Það varður hart barist á mörgum vígstöðvum í handboltanum í kvöld. Átta leikir í bikarkeppninni Bikarkeppni karla í handbolt- anum hófst í gær með þremur leikjum. í kvöld verður henni framhaldið og eru á dagskrá átta leikir sem fara fram víðs vegar um landið. í Austurbergi leika ÍRb og ÍH og hefst sá leikur kl. 19.30. í Kaplakrika f Hafharfirði leika FHb og HK og hefst sá leik- ur kl. 20.30. Aðrir leikir kvöldsins hefjast kl. 20.30. í Fylkishúsinu leika Fylkir og Stjaman og eru það einu 1. deildarliðin sem j, ,M. dregist hafa IprÓttir saman og sjálf- sagt verður þaö mest spennandi leikur kvöldsins. Á Húsavik leika Völsungur og FH, í Höllinni, Ak- ureyri leika Þór og Víkingur, á Selfossi, Selfoss og ÍR, 1 Smáran- um, Kópavogi leika Breiðablik og Fram og í Vestmannaeyjum ÍBVb og Haukar. Þess má geta að Stjaman og Fylkir leika aftur á fostudagskvöld, en þá verða þrír leikir í 1. deildinni. Ekkert er um að vera í körfu- boltanum í kvöld en annað kvöld verða leiknir þrír leikir í Egson- deUdinni, á Akranesi leika ÍA-KFÍ, í Borgamesi Skallagrím- ur-TindastóH og i Grindavík leika UMFG-Haukar. Bridge Eftirfarandi spU kom fyrir í þriðju lotu undankeppni íslandsmóts í tví- menningi. Algengast var að AV ættu lokasamninginn og þar gaf besta skor að spUa grandsamning. Vömin á ekki mikla möguleika í grand- samningi og fékk yfirleitt ekki nema 4-5 slagi. Hjartasamningur á hendur AV var mun verri viðureignar. Sagnir gengu þannig á einu borð- anna, norður gjafari og NS á hættu: ♦ D98 * 74 ♦ 96 * K76543 * Á1032 *• 93 ♦ 854 * KG5 «► D10652 * KD2 * DG N * A1098 * 764 4» ÁKG8 * ÁG1073 * 2 Norður Austur Suður Vestur pass pass 1 ♦ 1 v pass pass pass Austur var í vandræðum og treysti sér ekki tU að segja eitt grand með þrjá hunda í tígli við hjartasögn félaga síns. Suður átti góða vöm í hjartasamningi og átti ekki erfitt með að passa niður þann samning. Norður spUaði út tígulníunni og suð- ur setti þristinn, hvetjandi spU í litnum. Vestur átti slaginn á kóng, spUaði spaða á ás og lifiu hjarta úr blind- um. Suður setti kónginn, tók slag á tígulásinn og spUaði tígulsjöunni tU baka (lægsta spUi í litnum tU að fá laufspU tU baka). Norður trompaði og spUaði hlýðinn laufi. Sagnhafi hleypti heim á laufdrottningu og spUaði næst lauf- gosa. Suður trompaði og spUaði spaða. Vestur reyndi svininguna, norður fékk á drottninguna og spU- aði spaða um hæl. Sagnhafi gat ekki komið í veg fyrir að suður fengi tvo slagi tU viðbótar á tromp og eitt hjarta fór þvi einn niður. Talan 50 i NS reyndist gefa toppskor. fsak öm Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.